Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 5 Verðbólga enn um 7% á ársgrundvelli Framfærsluvísitalan í október 1993 (170,8) Ferðir og flutningar (18,6) Húsnæði, rafmagn og hiti (18,5) Matvörur(17,1) \ Tómstundaiðkun og menntun (11,5) Húsgögn og heimilisbún. (6,8) Föt og skófatnaður (6,3) Drykkjarvörur og tóbak (4,3) Heilsuvernd (2,5) Aðrar vörur og þjónusta (14,3) Vísitala vöru og þjónustu FRAMFÆRSLUVÍSITALAN Tölur í svigum vísa til vægis einstakra liða af 100. -0,1 % I Breytingfrá -0,4% H fyrri mánuði 0,4% -0,1 % | -0,1 % | 0,4% ■ 0,8% | 0,6% 2,3% Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Fundur verður í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 12. október, kl. 20.30 í Átthagasal Hótels Sögu. Dagskrá: 1. Kosning landsfundarfulltrúa. 2. Tekin ákvörðun um það hvort og þá hvenær viðhaft skuli prófkjör vegna borgarstjórnarkosninga vorið 1994. Stjórnin. Agúrkur hækkuðu um 115% VÍSITALA framfærslukostnað- ar hækkaði um 0,6% milli mán- aðanna september og október en það jafngildir 7,3% verðbólgu umreiknað til heils árs. Hækkun- in síðustu þrjá mánuði jafngildir 7,6% verðbólgu og hækkunin síð- ustu 12 mánuði er 5,8%. Vístala vöru og þjónustu hækkaði um 0,8% milli mánaða og jafngildir þriggja mánaða hækkun vísi- tölunnar 8,4% verðbólgu á heilu ári. Matvörur höfðu hækkað um 2,9% frá byijun september en það hækk- aði vísitöluna um 0,47%. Þar af má nefna að dilkakjöt hækkaði um 8,8%, sem olli 0,09% hækkun vísi- tölunnar. Agúrkur hækkuðu um 115,4%, sem hækkaði vísitöluna um 0,15% og kartöflur hækkuðu um 42,9% sem hækkaði vísitöluna um 0,12%, að því _er fram kemur í frétt frá Hagstofu íslands. 6,3% hækkun tóbaks olli 0,10% hækkun vísi- tölunnar og 2% verðhækkun á áfengi öðru en bjór hækkaði vísi- töluna um 0,02%. Á móti kemur að húsnæðiskostn- aður lækkaði um 0,8% sem svarar til 0,08% lækkunar vísitölu og 1,4% lækkun á bensíni lækkaði vísitöluna um 0,06%. Bjór lækkaði um 6,3% sem jafngildir 0,03% lækkun. Rjúpnastofninn Veiði- tímabil- ið stytt RÁÐGERT er að stytta ijúpnaveiðitímabilið í vetur um einn mánuð í þeim tilgangi að vernda ijúpnastofninn, og verður veiðitimabilið því frá 15. október til 22. nóvember í stað 22. desember. Þetta kom fram í svari Ossurar Skai-p- héðinssonar umhverfisráð- herra á alþingi í gær. í máli umhverfisráðherra kom fram að ekki væru til nákvæmar upplýsingar um stærð ijúpna- stofnsins, en áætlað hefði verið að um 100 þúsund ijúpur lentu á borðum landsmanna um hver jól, og stofninn gæti verið um ein milljón fugla. Fuglafræðing- ar væru ekki á einu máli um ástand stofnsins, en því hefði verið haldið fram að hann væri jafnvel í mestu lægð sem hann hefði komist í. Sagðist ráðherr- ann ætla að beita sér fyrir aukn- um rannsóknum. B höldum morgnum verflur moður bæöi að hugsa í frosti getur hélað innan á bensíntanka bifreiða, sérstak- lega þegar lítið er á þeim. Vatn myndast þá í tanknum og veldur að lokum gangtruflunum og erfiðleikum við gangsetningu. ísvari er isopropylalcohol sem hefur engin áhrif á gæði bensíns en blandast vatninu og brennur og eyðir þannig rakanum úrtanknum. Ef þér er annt um bílinn þinn skaltu taka bensín hjá Skeljungi því að þar er bensínið blandað með ísvara í réttum hlutföllum. Verið velkomin á næstu Shellstöð. um sjálfan sig og bílinn Belra fgrir bílinn -og big líha! Skogrækt með Skeljungi Skeljungur hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.