Morgunblaðið - 12.10.1993, Side 7

Morgunblaðið - 12.10.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 7 Framkvæmdastjóri VSI um uppsögn verkamanns hjá Stálsmiðjunni Fráleitur heilaspuni að um ofsóknir sé að ræða STEFNA Alþýðusambands íslands vegna Dagsbrúnar gegn VSÍ vegna uppsagnar Gylfa Páls Hersis hjá Stálsmiðjunni hf. verður þingfest fyrir Félagsdómi í dag. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, segir það fráleitt að um cinhverjar ofsóknir sé að ræða gagn- vart þessum starfsmanni fyrir að hafa átt hlut að vinnudeilu við Stál- smiðjuna. Forystumenn Dagsbrúnar telja að ástæður uppsagnarinnar séu afskipti Gylfa Páls af vinnudeilum við Stál- smiðjuna og störf hans að málum milli Dagsbrúnar og Stálsmiðjunnar fyrir Félagsdómi sl. vetur, sem unnin hafi verið að ósk félagsins og lög- manns þess, og hafa krafist þess að uppsögnin verði dregin til baka en því var neitað. „Stálsmiðjan er að fækka um sjö starfsmenn. Einn þeirra er úr hópi verkamanna og í stefnunni kemur fram að fyrirtækið hugðist upphaf- lega segja öðrum starfsmanni upp en Gylfa Páli Hersi. Það var fyrir Jónas Gústavsson héraðsdómari látinn JÓNAS Gústavsson, héraðsdómari í Reykjavík, er látinn 52 ára að aldri. Hann fæddist í Reykjavík 12. mars 1941, sonur hjónanna Gústavs A. Jónassonar, ráðuneytisstjóra, og Steinunnar Sigurðardóttur Sívertsen. Jónas lauk stúdentsprófí frá MR árið 1961 og embættisprófi í lög- fræði frá Háskóla íslands árið 1968. Um tveggja ára skeið var hann fulltrúi á málflutningsskrifstofu Arn- ar Þór hrl. Árið 1970 gerðist Jónas fulltrúi yfírborgarfógeta í Reykjavík og 1976 varð hann aðalfulltrúi við það embætti. Jónas Gústavsson var skipaður borgarfógeti í Reykjavík 1. desember 1979 og gegndi því embætti til 1. júlí 1992 er hann var skipaður héraðsdóm- ari við Héraðsdóm Reykjavíkur sem þá tók til starfa. Jónas Gústavsson var skipaður dómari í Félagsdómi frá 1. október 1986 til 30. september 1989 og var skipaður varaforseti Félags- dóms þann 1. október á síðasta ári. Jónas Gústavsson Eftirlifandi eiginkona Jónasar Gústavssonar er Kristín Gyða Jóns- dóttir, félagsráðgjafi. Þau eiga tvær uppkomnar dætur. tilmæli trúnaðarmanns Dagsbrúnar að það var ekki gert. Það varð niður- staða stjórnenda fyrirtækisins að segja þá þessuni manni upp störfum í stað þess sem upphaflega hafði staðið til að segja upp,“ sagði Þórar- inn V. Þórarinsson. Samdráttur í málmiðnaði „Þessi atburðarás sýnir það ljós- lega að það er fráleitur heilaspuni, rakalaus með öllu, að af hálfu fyrir- tækisins sé um einhveijar ofsóknir að ræða gagnvart þessum starfs- manni af því að hann hafi átt hlut að máli í deilumáli sem rekið var fyrir Félagsdómi. Það er ekki verið að segja upp einum manni heldur sjö starfsmönnum. Þetta er endurspegl- un á samdrætti í málmiðnaði sem á sér stað hjá fleiri fyrirtækjum," sagði Þórarinn. Lottó Einn með tæp- lega 11 millj- ón kr. vinning EINN vinningshafi var með lottp- vinning að upphæð rúmlega 10,7 milljónir króna þegar dregið var sl. laugardagskvöld. Miðinn var keyptur í söluturninum Sogaveri við Sogaveg og var um sjálfval að ræða. Að sögn Bergsveins Sampsted, markaðsfulltrúa Islenskrar getspár, er þetta 8. hæsti vinningur frá upp- hafi sem einum vinningshafa hlotn- ast í lottóinu. Miðinn var sjö raða tölvuval og kostaði vinningshafann 280 krónur. Vinningshafinn var ekki búinn _að gefa sig fram þegar skrifstofa Is- lenskrar getspár lokaði í gær. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ármann Axelsson garðyrkjumaður hreinsar brotið gler úr rúðunum í gróðurhúsi sínu. Suðurlandsvegur við Hveragerði 50 rúður brotn- ar í gróðurhúsi Selfossi. ^ ^ 50 rúður í gróðurhúsi Ármanns Axelssonar í Hveragerði voru brotnar aðfaranótt sunnudags. Vegstika var notuð við skemmdarverkið en gróðurhúsið stendur skammt frá Suðurlandsvegi. Ármann Axelsson garðyrkjumað- ur kvaðst hafa orðið var við skemrrfd- irnar þegar hann var á leið til Hvera- gerðis úr Reykjavík á sunnudags- morgun en hliðin á gróðurhúsinu með brotnu rúðunum blasir við veg- farendum á Suðurlandsvegi. Ármann sagði að óvíst væri með afdrif plantnanna í húsinu en meðal plantna í húsinu eru jólastjörnur sem komnar eru vel á veg. Það hefði bjargað þeim að lygnt var í veðri, annars kæmi það í ljós næstu daga hvernig plöntunum reiddi af. Vegstikan sem notuð var við verknaðinn var skilin eftir uppi á þaki hússins. - Sig. Jóns. Kjaradeilda svæfingalækna o g ríkisins Frekari fundarhöld GUÐRIÐUR Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Ríkisspítalanna, segist vænta þess að niðurstaða og vonandi lausn fáist á næstu dögum á launadeilu þeirri sem verið hefur vegna staðarvakta svæfingarlækna, en fundur var í gær í samstarfsnefnd Læknafélagsins og Ríkisspítal- anna. Annar fundur hefur verið boðaður í dag. Guðríður sagði að verið væri að þá gert ráð fyrir að fímm klukkutíma endurskoða greiðslur fyrir staðarvakt- hvíld næðist á vakt. Síðan þetta hefði imar í ljósi breyttra aðstæðna. Greiðsl- verið hefði álag aukist og aðstæður ur vegna þeirra hefðu upphaflega breyst, en hugmyndir til lausnar yrðu byggst á greiðslum fyrir bakvaktir og ræddar áfram á fundinum í dag. Nú finnur þú Konuilm á öllum betri myndbandaleigum ÓSKARSVERÐLAUN sem besti leikarinn AL PACINO AL PACINO fer á kostum í þessari mögnuðu mynd. Hann leikur blindan ofursta sem er staðráðinn í að gera sér glaðan dag, borða dýrindis kræsingar, njóta fagurra kvenna, aka um í eðalvögnum og gista á hótelsvítu. Hinn alvarlegi nemandi Charlie (CHRIS O'DONNELL) slæst í förina af hálfum hug en hlýtur uppfræðslu sem á eftir að endast honum ævilangt. MYNDBÖND Síðumúla 20, sími 679787 Láttu KONUILM ekki fram hjá þér fara. KEMUR ÚT í DAG

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.