Morgunblaðið - 12.10.1993, Page 14

Morgunblaðið - 12.10.1993, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 Úr uppfærslu Nemendaleikhússins á Draumi á Jónsmessunótt. Nemendaleikhúsið frumsýnir gamanleik eftir William Shakespeare í Lindarbæ í kvöld Draumur á Jónsmessunótt ÁSTIR og afbrýði, álfar og dauðlegir menn, einfaldir, útsmogn- ir og óborganlegir. Úr penna Williams Shakespeares í ævintýra- leiknum Draumi á Jónsmessunótt sem Nemendaleikhúsið frum- sýnir í Lindarbæ í kvöld klukkan átta. Leikstjóranum, Guðjóni Pedersen, finnst að útskriftarnemendur Leiklistarskólans eigi að fást við framúrskarandi verk og sjálfir vildu þeir gjarna gamanleik. Og víst er gaman að Drauminum, frábærlega gam- an. í uppfærslu Nemendaleikhússins er hafður svipaður háttur á og í Elísabetarleikhúsinu á tímum skáldsins, leikmyndin ein- föld og búningar úr samtímanum, þótt sögusviðið í upphafi og við leikslok sé Aþena til forna. Vatnadansmeyjar blómum prýddar og glæsilegar. En draumurinn gerist að mestu í skógi þar sem Óberon álfakóng- ur og drottningin Títanía ráða lögum og lofum. Þangað hrekjast elskendurnir Lýsander og Hermía á flótta undan harðneskjulegum' lögum Aþeninga. Egeifur faðir Hermíu hafði skipað dóttur sinni að giftast öðrum pilti, Demetr- íusi, og hún fékk lögum sam- kvæmt fjögurra daga frest til að hlýða en skyldi líflátin ella. í skóg- inum eru líka Demetríus og á hælum hans Helena svo ástsjúk að hún vill frekar þola háð og gífuryrði en láta hann róa. Óberon og Títanía eiga í illind- um og í reiði sinni tekur kóngur það ráð að senda álfinn Bokka að finna ástarjurt og dreypa á augu Títaníu. Honum verður að þeirri ósk að hún festi ást á þeim óskapnaði sem fyrst blasir við eft- ir blundinn og á nóg eftir af ástar- blómum til að flækja mál elskend- anna í skóginum. Fyrir mistök Bokka verða báðir piltarnir, Lý- sander og Demetríus, hugfangnir af Helenu og stefnir í óefni. Enn beitir álfakóngur belli- brögðum og eins og vera ber í góðum leik finnast elskendurnir aftur að lokum. Þeir halda til Aþenu með hertoganum Þeseifi og Hippólítu og stefnir í þrefalt brúðkaup. Til skemmtunar á þessu lokakvöldi leiksins er „hin einkar hörmulega kómidía um grimman dauða Pýramusar og Þispu“ sem hópur vatnadans- meyja hafði æft í skóginum. Sinfóníuhljómsveitin á tónlistarhátíð í Míinchen Opið hús í Háskólabíói í dag SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands hefur opið hús í Háskólabíói í hádeginu í dag milli kl. 12 og 12.45 og er öllum heimill ókeypis aðgangur. Tilefni þessa er ferð sem hljómsveitin leggur upp í á morgun á evrópska tónlistarhátíð í Munchen. „Europa Musicale“- hljómsveitarhátíðin er nú haldin í fyrsta í sinn og stendur allan októbermánuð. í Múnchen Ieikur hljómsveitin verk eftir fimm íslensk tónskáld, Forna dansa eftir Jón Ásgeirsson, Concerto de Giubileo eftir Pál P. Pálsson, Poem fyrir einleiksfiðlu og strengjasveit eftir Hafliða Hall- grímsson, Choralis eftir Jón Nor- dal og Geysi eftir Jón Leifs. Osmo Vánská stjórnar og einleikari með hljómsveitini _ verður Sigrún Eð- valdsdóttir. Á opna húsinu í Há- skólabíói í dag leikur hljómsveitin verk Hafliða, Jóns Nordals og Jóns Leifs. Á tónlistarhátíðinni í Þýskalandi koma allar helstu sinfóníuhljóm- sveitir Evrópu. Nefna má Vínarfíl- harmóníuna, Royal Concertgebou- hljómsveitina, Oslóarfílharmón- íuna og Konunglegu fílharmóníu- sveitina í London. Upphafsmaður hátíðarinnar er baróninn Pankraz af Freyberg, Jacques Delors for- seti framvæmdastjórnar Evrópu- bandalagsins er verndari hennar, en hún er styrkt af bandalaginu. Á hveijum hljómleikum flytur ávarp áberandi persóna í menning- arlífi heimalands eða borgar við- komandi hljómsveitar. Forseti ís- lands, frú Vigdís Finnbogadóttir, talar á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar sem haldnir verða á fimmtudag. stjana við þig á Lindinni. Súpa, fiskur, salatbar og heimabakaö hvítlauksbrauð. LIMPIM %950#- Rauðarárstíg 18 — Sími 623350 f! i i| jj* ■ I * I i-lfl ' ,1 lÉK 'H Tónlistarmennimir fimm frá Kína. Kínverskir virtúósar í Islensku óperunni Tónlist Ragnar Björnsson Þeir eru sannarlega snillingar á hljóðfærin sín þessir fimm kín- versku tónlistarmenn sem héldu tónleika í Óperunni sl. laugardag á vegum Tónlistarfélagsins og Kínversk/íslenska menningarfé- lagsins. Öll eru þau hljóðfæra- leikarar í hinni þjóðlegu kín- versku ríshljómsveit, hinni þjóð- legu hljómsveit kínverska ríkis- útvarpsins, hinni þjóðlegu hljóm- sveit kínverska útvarpsins, hinni hefðbundnu hljómsveit kínverska útvarpsins og nöfn þessara fimm framúrskarandi hjóðfæraleikara eru Zhou Yaokun sem leikur á tveggja strengja fiðlu sem þeir kalla erhu, Jian Guangyi sem leikur á flautu með nafninu dizi, Yi Yongren sem leikur á Sheng- munnorgel. Þetta var karlpening- urinn í hópnum og upptalningin tekin beint úr efnisskránni og síðastar eru taldar dömur tvær sem ekki voru aðeins óhemju leiknar á hljóðfærin sín heldur höfðu og útlit sem við lá að yrði spilamennskunni hættulegt. Þær hétu Miao Xiaoqin sem lék á hljóðfæri sem pip nefnist og er einskonar fjögurra strengja lúta, og Li Ping sem leikur á hljóðfær- ið Yangqin og mætti kannske líkja við margfaldan sílófón. Tón- listin byggist mikið á þjóðlagaút- setningum og á að lýsa dansandi gullsnáki, snjó á sólríku vori, lest- inni sem brunar inn í bæinn Dong, kappreiðum i Mongólíu, hátíð í Tian-fjöllum eða regn- dropum sem falla á bananalauf. Menningarheimur sem í fyrstu virðist nokkuð fjarlægur okkar vestræna en spinnst þó úr sömu þráðum, sem eru hugvit og snilli. I heimi sem stöðugt þrengir að, er okkur nauðsyn að skilja og meta hvert annað, ef við ætlum að lifa af. Þakkir til Tónlistarfé- lagsins og Kínversk-íslenska menningarfélagsins fyrir heim- sókn þessara snillinga frá Kína.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.