Morgunblaðið - 12.10.1993, Side 15

Morgunblaðið - 12.10.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 15 1 Dansmeyjarnar voru í frum- textanum handverksmenn á Eng- landi, enda leikarar og leikhús- gestir karlkyns á tímum Sha- kespeares, en þar sem fimm af átta nemendum á lokaári Leiklist- arskólans eru konur er nú farin önnur leið. Þótt leikmyndin sé ein- föld er hún nýtt á þann hátt að oft kemur skemmtilega á óvart. Enda þarf leikni til að stökkva milli draums og vöku og frá grísk- um goðsögnum til álfheima í enskri þjóðtrú. Talið er að Shakespeare hafi skrifað Draum á Jónsmessunótt til skemmtunar í brúðkaupi kring- um 1594 þegar hann var þrítug- ur. Um svipað leyti skrifaði hann Rómeó og Júlíu og leitaði einnig þar í kvæði Óvíds um Pýramus og Þispu. Harmleikirnir urðu síðar fleiri hjá skáldinu og söguleikir, þótt enn kæmu gamanleikrit, eins og Þrettándakvöld, sem kætt hafa konur og menn allar götur síðan. Leikstjóra Draumsins í Nem- endaleikhúsinu er áður getið en leikmynd hefur Grétar Reynisson gert. Áttmenningarnir sem skemmta leikhúsgestum í kvöld og því næst á fimmtudag, föstu- dag og sunnudag heita Benedikt Erlingsson, Guðlaug Elísabet Ól- afsdóttir, Halla Margrét Jó- hannesdóttir, Hilmir Snær Guðna- son ,Katrín Þorkelsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigrún Ólafsdótt- ir og Þórhallur Gunnarsson. Þ.Þ. Zacliarias Heinesen Myndlist Bragi Ásgeirsson Það er ekki oft sem færeyskir myndlistarmenn gista Island, en þeir hafa jafnan verið aufúsu- gestir, og sýningar þeirra ein- kennt upprunalegur ferskleiki, þó þeir vilji fara eigin leiðir og nálgist núlistapáfana af ítrustu varúð. Helst hefur það verið í formi samsýninga, og nokkrar slíkar og eftirminnilegar hafa verið haldnar í okkar veglegustu sýningarsölum. Einn af þeim sem við sögu hafa komið á þessum samsýning- um er Zacharias Heinesen, en hann var þátttakandi á eftir- minnilegri sýningu í sölum Nor- ræna hússins 1972. Þá má einnig geta þess, að hann hóf listnám í Handíða- og myndlistarskólan- um hér í borg tvítugur að aldri (1956) og muna vafalítið þó nokkrir eftir honum frá þeim tíma. Einkasýningar færeyskra myndlistarmanna, eins og sú sem var opnuð á verkum Zakariasar í listhúsinu Borg sl. laugardag, eru aftur á móti fágætir viðburð- ir, og þó eiga þær erindi til okk- ar ekki síður en íslenzkar einka- sýningar til Færeyja, en þær eru einnig fátíðar. Það hefur margt vatn runnið til sjávar frá sýningunni eftir- Verk éftir myndlistarmanninn minnilegu í Norræna húsinu 1972, en þá málaði Zacharias sannverðugar landslagsmyndir frá sínu heimalandi og þá ekki síst af Velbastaðarhálsi, sem mér skilst að sé afar myndríkur stað- ur. Myndstíll listamannsins hefur tekið miklum stakkaskiptum og í stað safaríkra jarðlita eru komnir sterkari litir og mynd- byggingin er meiri lifun en lýs- ing. Segja má að þær séu orðnar huglægari, í þeim meiri hugsun Zacharias Heinesen. og yfirvegun, en samt er stuðst við landslag og áhrif frá lands- lagi, og hér er þannig um að ræða nýtt vín á gömlum belgjum. Zacharías styðst þannig við hefðir, sem hafa gert færeyska myndlist dálítið sér á báti, þann- ig að ekki er ólíklegt að umheim- urinn eigi einn góðan veðurdag eftir að beina sjónum sínum þangað, og mun frekar en til þjóða sem leggja minni rækt við sérkenni sín en þeim meiri við alþjóðleg einkenni. Hvorutveggja viðhorfin eru auðvitað fullgild og það er fyrst og fremst árangurinn sem máli skiptir. Ekki hef ég upplifað færeyska náttúru og aldrei komist lengra en á ytri höfnina eða hafnar- mynnið í Þórshöfn, svo mér ber að fara varlega í alla samanburð- arfræði, en ef maður dæmir eftir því sem menn nefna myndræn gæði, myndi ég hiklaust benda á tvö málverk sem skera sig úr, sem eru „Sólarglátti" (6) og „Móðir listamannsins" (14). Báð- ar eru vel upp byggðar og í þeim öflugt form- og litrænt samspil og þar að auki búa þær yfir ákaf- lega lífrænu innra ferli. Aðrar myndir á sýningunni eru yfirleitt einfaldari og formin stærri og opnari og kann það að vera í samræmi við landslagið í næsta sjónmáli hveiju sinni, auk þess að fyrir bregður tilhneigingu til skreytikenndra vinnubragða. Zakarías Heinesen sýndi það þegar á námsárum sínum á ís- landi, að hann hefur ríka tilfinn- ingu fyrir samræmi lita og það virðist ennþá hans sterkasta hlið. Heildarsvipur sýningarinnar er jafn og traustur, en ég verð að viðurkenna að ég hef ekki fylgst nægilega vel með þróun listamannsins sem málara, en mér er kunnugt um að hann hefur ekki alltaf synt lygnan sjó. Og í ljósi þess hefði verið ákaf- lega fróðlegt ef nokkrar eldri mynda hans hefðu slæðst með sem sýnishorn. 4WD skutbíll Umsagnir MAZDA eigenda eru í takt við þau próf sem gerð hafa verið á MAZDA bílum m.a. hjá þýska bflablaðinu "Auto Motor und Sport". í nýjasta 100.000 km bilanaprófinu eru 3 MAZDA fólksbílar í fimm efstu sætu'num, af 85 bílum sem prófaðir voru. MAZDA 323 4WD er ekki aðeins bíll, sem þú getur treyst, hann er ódýr í rekstri, rúmgóður fjórhjóladrifinn skutbíll með sídrifi og læsanlegum millikassa, 5 gírum, álfelgum o.fl. Við eigum fáeina bíla á lager á mjög hagstæðu verði frá kr. 1.340.000,- MISSTU EKKI AI' ÞESSU TÆKIFÆRI. Hafðu strax samband við sölumenn okkar. í reynsluakstrinum upplifir þú seigluna í þessum ágæta bíl. SOLUAÐILAR: Akranes: Bílás sf., Þjóðbraut 1, sími 93-12622. ísafjörður: Bílatangi hf., Suðurgötu 9, sími 94-3800. Akureyri: BSA hf. Laufásgötu 9, sfmi 96-26300. Egilsstaðir: Bílasalan Fell, Lagarbraut 4c, sími 97-11479. Selfoss: Betri Bílasalan, Hrísmýri 2a, sími 98-23100. Keflavík: Bílasala Keflavíkur, Hafnargötu 90, sími 92-14444. Notaðir bíiar: Bílahöllin hf., Bíldshöfða 5, sími 91-674949.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.