Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 UTANDAGSKRARUMRÆÐA A ALÞINGI UM BIFREIÐAMAL SEÐLABANKANS Þingmenn gagnrýndu harð- lega bflafríðindi bankastjóra reið sem hann hafði sem banka- stjóri. Sagðist hann ekki telja óeðlilegt að stjórnendur þeirra stofnana sem um væri að ræða tækju reglur um bílamál ráðherra sér til fyrirmyndar. „Ég sé ekki rökin fyrir því að forsvarsmenn stofnana ríkisins eigi að njóta rýmri hlunninda en ráðherrar ís- lenska ríkisins," sagði hann. Bílar keyptir fyrir 20 millj. á síðastliðnum fjórum árum BIFREIÐAEIGN Seðlabanka íslands samanstendur af alls tíu bif- reiðum og var rekstrarkostnaður þeirra rúmar fimm milljónir kr. á seinasta ári en aðkeyptur akstur bankans kostaði 3.396 millj. kr. á sama ári. Þetta kom fram í ræðu Guðrúnar Helgadóttur, þing- manns Alþýðubandalagsins, við utandagskrárumræður á Alþingi í gær, sem fram fóru að beiðni Guðrúnar en hún gagnrýndi harð- lega kaup Seðlabankans á jeppa handa Jóni Sigurðssyni seðla- bankasljóra fyrir skömmu. Tóku fleiri þingmenn, bæði úr sljórn og stjórnarandstöðu, undir gagnrýni á bílafríðindi forstöðumanna, bæði Seðlabankans og annarra ríkisstofnana. Sighvatur Björgvins- son viðskiptaráðherra, sagði að ráðherra hefði ekki vald til taka ákvarðanir um launakjör Seðlabankastjóra heldur væri það á vald- sviði bankaráðs, sem kosið væri af Alþingi. Hefur hann óskað eftir að fá yfirlit yfir launakjör og ráðningarkjör bankastjóra Seðlabankans og stjórnenda banka og sjóða sem heyra undir ráðu- neyti hans. Guðrún sagði að það kæmi eins þegar upplýst hefði verið að Jón og löðrungur framan í landsmenn Sigurðsson, nýskipaður seðla- bankastjóri, hefði fengið fimrn milljón kr. bifreið sem greidd væri af almannafé. Birti Guðrún upp- lýsingar um bifreiðaeign bankans sem hún sagði allar af dýrustu gerð en þær eru eftirfarandi: Chevrolet Suburban árgerð 1984, sem notaður er til seðla- flutninga, Range Rover Vouge árg. 1988, Pajero Wagon árg. 1990, Volvo 744 Gli, árg 1991 og Audi 100 árg. 1992, en þessar fjór- ar bifreiðir eru notaðar til banka- eftirlitsferða og eftirlits með seðla- geymslum, fyrir bankastjóm og gestamóttöku, skv. upplýsingum Seðlabankans. Þá hafa bankastjórar eftirtaldar á vinnuljósum & útiljósum Næturverðirnir - Ijós með skynjara Halogen 150w ^ 4.990. Halogen 500w Hleðsluhandlukt fyrir 220v og 12v Vinnuljós Halogen 500w Halogen 500w 1.080. Halogen 500 w. Olíulukt FAXAFEN9 SÍMI 91-677332 Opið mánud.-föstud 9-18 Laugard. 10-16 tryggtn; bifreiðir til einkanota: Jón Sigurðs- son Cherokee Limited árg. 1993, Tómas Árnason Chevrolet Blazer SIO árg. 1991, Birgir ísleifur Gunnarsson Ford Explorer E.B., árg. 1991, Jóhannes Nordal, fyrrv. Seðlabankastjóri, Range Rover Vouge, árg, 1989 ogÞórður Ólafs- son, forstöðumaður bankaeftirlits- ins, 4Runner 3000i árg. 1991. Sagði Guðrún athygli vekja að Jóhannes Nordal hefði enn bifreið sína til tímabundinna afnota og sagði eðlilegt að Jón Sigurðsson tæki við henni. Guðrún sagði að bifreiðaeignin væri „aðeins einn hluti hins taumlausa fjárausturs Seðlabankans“. Bankinn væri að lyfta risi stórhýsis að Einholti 4, sem hýsti bóka- og myntsafn bankans. „En fréttir eru auk þess um að Jóhannes Nordal og Tómas Ámason, sem lætur af störfum vegna aldurs um áramót, fái þar skrifstofur. Ástæða væri til að nefna fleira. Seðlabanki íslands hefur um langt skeið keypt mikið safn listaverka, svo að sérstakur listráðunautur starfar við bank- ann, frú Bera Nordal, forstöðu- maður Listasafns ríkisins,“ sagði Guðrún. Bætti hún við að rekstrar- kostnaður Seðlabankans á síðasta ári hefði verið 608.407 þúsund kr. Kjaramál heyra undir bankaráð Sighvatur Björgvinsson við- skiptaráðherra sagði að sam- kvæmt lögum ákvæði bankaráð Seðlabankans, sem kosið væri af Alþingi, laun og önnur ráðningar- kjör bankastjóra og viðskiptaráð- herra hefði því ekki vald yfir kjara- málum bankastjóranna. Sagði Sighvatur einnig að ákvörðun um launakjör banka- stjóranna væri frá því í september árið 1987, en þar segði m.a. að bifreiðahlunnindi væru byggð á reglu um að hver bankastjóri gæti fengið til umráða bifreið í eigu bankans sem bankinn bæri allan kostnað af. Væri miðað við laun hæstaréttardómara þegar laun bankastjóra væru ákveðin. „Þó er rétt að taka það fram, að nýleg launahækkun til dómara hæsta- réttar, sem þeir hafa ákveðið að taka sér, gildir ekki gagnvart bankastjórum Seðlabankans," sagði Sighvatur. Sagðist hann ennfremur hafa óskað eftir fundi með formanni bankaráðs Seðlabankans til að gera honum grein fyrir umræðun- um á Alþingi. Sagði hann einnig . að sambærileg hlunnindi eins og hér um ræðir virtust ríkja hjá öðr- um opinberum stofnunum, bæði hjá viðskiptabönkum og hjá opin- berum lánasjóðum. Hefði hann þess vegna skrifað bréf til allra þeirra sjóðsstjórna sem undir við- skipta- og iðnaðarráðherra heyra í gær og óskað upplýsinga um heildarstarfskjör og fríðindi æðstu ráðamanna. Sérstaklega verði gef- ið yfirlit yfir grunnlaun og hvers- kyns álag á laun og svo aðrar við- bótargreiðslur og um lífeyriskjör. Jafnframt er óskað eftir upplýs- ingum um í hvaða mæli stjórnar- mönnum og stjórnendum væru greidd laun fyrir stjórnunarstörf í þágu dótturfyrirtækja og vegna bifreiðakaupa og reksturs bifreiða viðkomandi aðila ásamt fyrir- komulagi á ferða- og risnugreiðsl- um. Sighvatur sagði að bankaráðið hefði heimilað Jóhannesi Nordal að hafa áfram afnot af þeirri bif- Reglur um ráðherrabíla þrengdar Einar Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokks lagði fram út- reikninga á rekstrarkostnaði Seðlabankans undanfarin fjögur ár sem sýndu að lítil lækkun hefði orðið á rekstrarútgjöldum bank- ans. „Miðað við núvirðisútreikning á bifreiðakostnaði vegna bifreiða- kaupa Seðlabanka íslands, þá hef- ur Seðlabankinn keypt bíla á und- anförnum fjórum árum fyrir tæpar 20 milljónir króna,“ sagði þing- maðurinn. í máli Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra kom fram að rík- isstjórnin hefði breytt reglum um bílamál ráðherra sem fælu nú í sér að skylt væri að auðkenna bíla ráðherra. Þeir skuli ekki kosta meira en þijár milljónir á verðlagi eins og það var í upphafi árs 1992. Innkaupastofnun ríkisins ætti að öðru jöfnu að sjá um innkaupin og hlunnindin væru skattskyld. Dýrar torfærubifreiðir Sigbjörn Gunnarsson, formaður fjárlaganefndar, sagði óþolandi að ýmsir af æðstu embættismönnum þjóðarinnar nytu sérstakra bif- reiðahlunninda í tengslum við starf sitt. Erfitt væri að koma auga á haldbær rök fyrir því. Sagði hann nauðsynlegt að fram kæmu upp- lýsingar um hvenær samningar um bifreiðahlunnindi og starfskjör forstöðumanna voru gerðir og hveijir hafi gert þá. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingmaður Kvennalistans, gagn- rýndi ráðherra fyrir að tala eins og þeir kæmu engum vörnum við þegar um starfskjör Seðlabanka- stjóra væri að ræða og minnti á umræður um starfskjör tiltekinna starfsstétta á sjúkrahúsum og að heilbrigðisráðherra hefði sagt þeim upp. Halldór Ásgrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins, fór þess á leit við fjármálaráðherra að enn einu sinni yrði gerð tilraun til að samræma reglur um bílakaup og bílanotkun hjá ríkinu. Sagði hann að bankastjórar og forstöðumenn stofnana kepptust við að kaupa mjög dýrar torfærubifreiðir og ekki gæti verið brýn þörf á_ að hafa svo dýra bila til afnota. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, sagði ljóst að stór hluti bílasamninga ríkisstofnana snerti ekkert akstursþörf viðkomandi stofnunar. Forstöðumenn ríkis- stofnana fengju í mörgum tilvikum bíla til einkaafnota þótt þeir hefðu enga þörf fyrir bíl í tengslum við starf sitt og það væri einkennileg þessi þörf forstöðumanna ríkis- stofnana að eiga jeppa, sem væru fokdýr tæki og búin til aksturs á allt öðrum vettvangi en þessir menn störfuðu á. Ólafur Ragnar Grímsson og Steingrímur J. Sigfússon, Alþýðu- bandalagi, skoruðu á viðskiptaráð- herra að beina þeim tilmælum til Seðlabankans að afturkalla kaupin á Cherokee-jeppanum handa Jóni Sigurðssyni. Sagði Ólafur að bíla- kaupin væru siðlaus. Steingrímur minnti á að bankastjóri Evrópu- bankans hefði verið látinn fjúka fyrir skömmu fyrir flottræfilshátt. Nú yrði að gera annað tveggja; afturkalla þennan gjörning seðla- bankastjórans nýja eða láta hann fara sömu leið og bankastjóra Evrópubankans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.