Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
Guðný Anna Annasdóttir, sjö bama móðir, opnar einkarekinn leikskóla á Akureyri
Orka ýmislegt ef
brennandi áhugi
er á málefninu
GUÐNÝ Anna Annasdóttir opnaði formlega um helgina Leik-
skóla Guðnýjar Önnu í Dvergagili 3 á Akureyri. Leikskólinn er
í um 180 fermetra húsnæði, einbýlishúsi sem Guðný Anna og
fjölskylda hennar keypti undir starfsemina. I leikskólanum
verða 40 börn á aldrinum þriggja mánaða til þriggja ára, en
vistun á leikskóla er ekki til staðar fyrir þennan yngsta aldurs-
hóp á Akureyri.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Leikskólastj órinn
LEIKSKÓLI Guðnýjar Önnu var opnaður formlega um helgina,
en Guðný Anna rekur leikskólann sem er fyrir börn á aldrinum
3ja mánaða til 3 ára og er sá eini sinnar tegundar á Akureyri, en
2ja ára aldurstakmark er inn á aðra leikskóla.
Guðný Anna hreyfði því fyrst
fyrir um ári við bæjaryfirvöld að
fá leyfi til að reka leikskóla í bæn-
um og hafði í fyrstu hug á að fá
úthlutað lóð til að byggja á. Engin
lóð var tiltæk, þannig að hún ákvað
að festa kaup á einbýlishúsi við
Dvergagil undir starfsemina og
v^ru gerðar á því breytingar sem
tóku mið af fyrirhugaðri starfsemi.
Skapandi starf
Fullsetinn tekur leikskólinn 40
börn, nú í upphafi eru 28 börn
byijuð, en í skólanum verða börn
frá þriggja mánaða aidri og upp í
þriggja ára sem er nýjung í starf-
semi leikskóla í bænum þar sem
miðað er við tveggja ára aldurstak-
mark. „Þetta er aldur sem mér
finnst vera lítið sinnt, en er mjög
mikilvægur," sagði Guðný Anna,
en síðasta vetur var hún í fram-
haldsnámi við Fósturskóla íslands
í skapandi starfí sem m.a. tekur
mið af þessum aldri og verður lögð
áhersla á það í allri starfsemi leik-
skólans.
Guðný Anna sagðist hafa mætt
velvild á flestum stöðum, en vissu-
lega þyrfti mikla þrautseigju við
að sannfæra fólk á ýmsum stöðum
í kerfinu um ágæti starfseminnar.
Félagsmálaráð tekur fyrir erindi
hennar um rekstrarstyrk til leik-
skólans á fundi á morgun, miðviku-
dag, en stofnstyrkur var ekki inn
á fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir
þetta ár, Guðný Anna sagðist þó
væntanlega myndu sækja um þann
styrk aftur fyrir næsta ár.
Sjö börn heima
Guðný Anna rekur leikskólann,
er framkvæmdastjóri hans auk
þess að vera leikskólastjóri og þá
sér hún einnig um ræstingarnar
sjálf, en ekki er nóg með að í mörg
horn sé að líta í vinnunni, hún og
eiginmaður hennar, Siguijón Har-
aldsson eiga sjö ung börn, það
yngsta fæddist í sumar. „Ég hef
heilmikið að gera, en móðir mín
hefur verið hjá mér síðasta mánuð
og hjálpað mikið til, en hún býr á
ísafirði og er farin að ræða um að
fara heim,“ sagði Guðný Anna.
„Þegar maður hefur gaman af því
sem maður er að gera og er að
velja sér verkefni af áhuga þá ork-
ar maður ýmislegt. Ætli megi ekki
segja að þessi brennandi áhugi
minni á leikskólamálum og fyrir
bættum hag barna í þessu landi
knýji mig ekki áfram, en með þessu
framtaki er ég að vona að ég stuðli
að slíku.“
Námskeið
um tjáskipti
innan fjöl-
skyldunnar
NÁMSKEIÐ um tjáskipti innan
fjölskyldunnar með norska fjöl-
skylduráðgjafanum Eivind Frö-
en verður haldið á vegum Fjöl-
skyldufræðslunnar í Glerár-
kirkju fimmtudaginn 14. októ-
ber og föstudagiim 15. október
frá kl. 20 til 23 bæði kvöldin.
Þetta er í þriðja skipti sem fjöl-
skylduráðgjafinn Eivind Fröen
kennir á slíku námskéiði á Akur-
eyri, en síðast hélt hann námskeið
haustið 1991. Hann er vinsæll fyr-
irlesari og hefur kennt á námskeið-
um um fjölskylduna víða á Norður-
löndum.
Á námskeiðinu í Glerárkirkju á
fimmtudags- og föstudagskvöld
mun Eivind kenna um tjáskipti
hjóna sína á milli og við börnin.
Hann fjallar hispurslaust en á
nærgætinn og oft smellinn hátt
um viðkvæm mál.
Kennsla fer fram í fyrirlestrar-
formi, þrír fyrirlestrar hvort kvöld
og verður túlkað jafnóðum yfir á
íslensku.
Skráning og nánari upplýsingar
era veittar á skrifstofu Glerár-
kirkju og vegna undirbúnings er
fólk beðið að skrá sig sem fyrst.
Morgunblaðið/Rúnar -Þór
BÚNAÐUR m.a. til að fást við olíumengun úr sjó var kynntur á
fundi með ýmsum aðilum sem að slíkum málum koma, en þessi búnað-
ur er nýlega kominn til Akureyrar.
Mengnnarvamar-
búnaður kynntur
VIÐBRÖGÐ við olíumengun voru rædd á fundi með fulltrúum frá
norðlenskum höfnum, olíufélögum og útgerðum á Akureyri nýlega.
Þá var mengunarvarnarbúnaður sem fyrir skömmu er kominn norður
skoðaður, en um er að ræða ýmsan búnað til hreinsunar olíu úr sjó.
Eyjólfur Magnússon fulltrúi á
mengunarvarnardeild Siglingamála-
stofnunar ríkisins flutti erindi á
fundinum og kynnti mönnum búnað-
inn við Fiskihöfnina þar sem hann
er staðsettur. Auk þess sem meng-
unarvarnarbúnaður er á Akureyri
hafa þrjár aðrar hafnir yfir slíkum
búnaði að ráða, á Þórshöfn, Siglu-
firði og Sauðárkróki.
Enn vantar svokallað fleytitæki
sem notað er til að ná olíu upp úr
sjó, en það er væntanleg eftir um
þijár vikur. Þegar fleytitækið er
komið sagði Guðmundur Sigur-
björnsson hafnarstjóri á Akureyri
að haldin yrði viðamikil æfing m.a.
með fulltrúum hafnanna við Eyja-
fjörð þar sem notkun búnaðarins
yrði kennd.
Fimm íbúðir auk félagsað-
stöðu fyrir aldraða í Hrísey
Heilsugæslu boðin aðstaða í húsinu
HLEIN, húsnæði aldraðra í Hrísey var formlega tekið í notkun á sunnu-
daginn. Húsið er á tveimur hæðum og í því eru 5 íbúðir auk félagsað-
stöðu. Húsið er 579 fermetrar að stærð og eru íbúðirnar frá 67 fer-
metrum upp í 96 fermetra með geymslum og sameiginlegu rými.
Fram kom í máli Jónasar Vigfús-
sonar sveitarstjóra Hríseyjarhrepps
við athöfnina að fyrsta skóflustunga
að byggingunni var tekin fyrir rúm-
um tveimur áram, í ágúst 1991 og
hafa framkvæmdir staðið yfir síðan.
Pjórar íbúðir eru á efri hæð hússins'
og ein á þeirri neðri, en þar er að
auki félagsaðstaða, föndur, matsalur
og sameiginlegt eldhús. Verður öll-
um öldruðum íbúum eyjarinnar gef-
inn kostur á að nýta sér félagsað-
stöðuna.
Heilsugæslu boðið húsnæði
Að sögn Jónasar hefur heilsu-
gæslunni verið boðin afnot af íbúð-
inn á neðri hæð hússins undir starf-
semi sína í eynni. Hreppurinn er eig-
andi hússins en mun leigja íbúðirnar
til íbúanna, ýmist á þann hátt að
þeir greiði leigu mánaðarlega eða
þeir kaupi sér búseturétt og fái fram-
lag sitt endurgreitt ásamt verðbótum
er þeir flytja burt. Fólk er ekki flutt
í húsið enn, en Jónas sagði að marg-
ar fyrirspurnir hefðu borist og
greinilegur áhugi væri fyrir því.
Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson
Lyklar afhentir
JÓNAS Vigfússon sveitarstjóri í Hrísey afhendir Lilju Sigurðardótt-
ur forsvarsmanni aldraðra í eynni lykla að félagsaðstöðu í Hlein,
húsi aldraðra í Hrísey sem tekið var I notkun um helgina. Á inn-
felldu myndinni er Hlein.
■ KÍNVERSK tónlist hljómar í
Deiglunni á þriðjudagskvöld, 12.
október næstkomandi, kl. 20.30.
Fimm kínverskir tónlistarmenn,
Þjóðlegi tónlistarhópurinn, leikur
þar kínverska tónlist á kínversk
hljóðfæri í rúman klukkutíma. Hóp-
urinn hefur ferðast víða um heim,
var m.a. á þekktri þjóðlagahátíð í
Edinborg í Skotlandi.
Flutt verða verk eins og Fuglar
í skóginum, Vor í Tianshan-fjöll-
um, Sverðið, Hausttungl yfir
friðsælu vatninu og Gullsnákur-
inn dansandi.
Hópurinn leikur viða um land og
kynnir kínversk hljóðfæri auk þess
sem kínversk tónlist verður kynnt
í grunnskólum.
(Úr fréítatilkynninffu.)
--------»■ ------------
■ SYSTRAKVÖLD verður
haldið í Glerárkirkju í kvöld,
þriðjudagskvöldið 12. október frá
kl. 20.30 til 22.00. Fjölbreytt dag-
skrá þar sem áhersla er lögð á söng,
lofgjörð o g bænagjörð. Næsta
systrakvöld verður í kirkjunni 16.
nóvember næstkomandi.
Hríseyjarhreppur sækir um
að verða reynslusveitarfélag
SVEITARSTJÓRN Hríseyjarhrepps hefur sótt um að Hríseyjarhrepp-
ur verði reynslusveitarfélag í verkefni því sem Alþingi samþykkti í
maí síðastliðnum.
Telur sveitarstjórn að sérstaða og að vegna fámennis fáist góður
Hríseyjar sé það mikil að eðlilegt sé samanburður um mismun á kostnaði
að gera tilraun með einhvern flutn- við stærri sveitarfélög.
ing verkefna frá ríki til Hríseyjar Umsókn Hríseyjarhrepps er háð
því að samningar takist um hváða
reynsluverkefni verði flutt og gegn
hvaða greiðslum. „Við viljum vera
með í þessu og sýna að hægt er að
reka þetta af litlu sveitarfélagi,"
sagði Jónas Vigfússon sveitarstjóri
Hríseyjarhrepps.