Morgunblaðið - 12.10.1993, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
Sósíalistaflokkur Papandreous sigraði í grísku þingkosningunum
Aðhald varð stjóni
hægriafla að falli
Aþenu. Reuter.
FLOKKUR grískra sósíalista, PASOK, undir forystu Andreas Pap-
andreou, sigraði í þingkosningunum á sunnudag, hlaut um 47% at-
kvæða og hreinan meirihluta á þingi. Konstantin Mitsotakis, forsætis-
ráðherra og leiðtogi hægriflokksins Nýs lýðræðis, hyggst segja af
sér leiðtogaembætti í flokknum eins og hann var búinn að heita
biði stjórnarflokkurinn ósigur. Oánægja með aðhaldsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum er talin hafa vaidið umskiptunum
en sósíalistar hrökkluðust frá völdum 1989 vegna ósljórnar og ýmissa
hneykslismála.
Papandreou er 74 ára gamall og
stjórnmálaskýrendur afskrifuðu
hann sem leiðtoga eftir ósigurinn
1989. En Papandreou er mikill bar-
áttuj'axl og þrátt fyrir heilsuleysi
leiðtogans síðustu árin, framhjáhald
Kasparov
vann Short
London. Reuter.
RÚSSNESKI stórmeistarinn
Garríj Kasparov bar sigur-
orð af Englendingnum Nigel
Short í 15. einvígisskák
þeirra sem fram fór í Lond-
on á laugardag.
Með sigrinum hefur Ka-
sparov hlotið 10,5 vinninga
gegn fjórum og hálfum vinn-
ingi Shorts og þarf hann því
einungis tvo vinninga úr þeim
níu skákum sem eftir eru til
að tryggja sér sigur í einvíg-
inu. Sextánda einvígisskákin
verður tefld í dag, þriðjudag.
og önnur vandamál hefur PASOK-
flokkur hans haft traust fylgi, eink-
um í sveitahéruðum. Þar er Pap-
andreou víða tignaður sem guð
vegna stefnu hans á valdaárunum
1981-1989 er óspart var beitt ríkis-
styrkjum til að aðstoða bændur.
Velferðarkerfið var þanið út án þess
að velta um of fyrir sér slæmri stöðu
ríkissjóðs og verðbólgunni; fjölmarg-
ir kjósendur eiga allt sitt undir því
að ekki verði hróflað við kerfinú.
Niðurskurður ríkisútgjalda síðustu
árin og einkavæðingarstefna Mitso-
takis hafa því ekki reynst vænleg
til vinsælda.
Papandreou var sýknaður naum-
SIGUR GRISKRA
SOSIALISTA
lega fyrir hæstarétti í fyrra af ákær-
um um íjármálaspillingu og hefur
ávallt fullyrt að málaferlin hafl verið
af pólitískum toga. Heisti andstæð-
ingur hans, Mitsotakis, hefur að
sögn vikuritsins The Economist
einnig átt í vandræðum vegna ásak-
ana um spillingu, m.a. gerði hann
dóttur sína að menningarmálaráð-
herra og íjölskyldan hefur verið
grunuð um að sölsa undir sig verð-
mæta fornmuni með vafasömum
hætti.
Andúð á Bandaríkjunum
Papandreou er af þekktn fjöl-
skyldu, hann varð ungur vinstrisinn-
aður og var pyntaður á stjórnarárum
Ioannis Metaxas hershöfðingja í
Grikklandi en flutti til Bandaríkj-
anna 1940. Hann lauk hagfræðinámi
við Harvard-háskóla og varð pró-
fessor við Berkeley-háskóla. Arið
1959 sneri hann heim og var kjörinn
á þing 1964; faðir hans var þá for-
sætisráðherra. Er hershöfðingjar
rændu völdum 1967 var hann fang-
PASOK
50% ‘
40
30
20
6,8%
Nýtt lýði
39,3%
Nýtt
lýort
iræði
8%
Kommúnista-
flokkur
Grikklands
4,5%
Ettir að 95% atkvæða höfðu verið talin
elsaður og síðar gerður útlægur.
Eftir fall einræðisherranna sneri
hann heim og hefur stefna hans ein-
kennst af mikilli andúð á afskiptum
Bandaríkjamanna af málefnum
Grikkja og heift gegn Tyrkjum.
Einnig þótti hann afar hallur undir
sjónarmið Sovétmanna á stjórnar-
árum sínum og olli þetta verulegum
taugatitringi í Atlantshafsbandalag-
inu. Stjórn Papandreous var einnig
grunuð um að halda hlífiskildi yfir
alþjóðlegum hryðjuverkamönnum á
vinstrivængnum sem oft leituðu
hælis í Grikklandi.
Læknisfræði
Tveir fá
Nóbels-
verðlaun
Stokkhólmi. Reuter.
TVEIR vísindamenn í Banda-
ríkjunum, sem uppgötvuðu
hvor í sínu lagi „samsetta
erfðavísa", hlutu Nóbelsverð-
launin í læknisfræði að þessu
sinni. Er uppgötvun þeirra
taiin geta auðveldað leitina
að nýjum aðferðum við lækn-
ingu ýmissa sjúkdóma, til
dæmis krabbameins.
Nóbelnefndin við Karólínsku
stofnunina í Stokkhólmi til-
kynnti í gær, að Richard Ro-
berts, sem er fæddur í Bret-
landi, og Bandaríkjamaðurinn
Phillip Sharp hefðu fengið verð-
launin fyrir rannsóknir sínar.
Árið 1977 komust þeir að
því, hvor á sinni rannsókna-
stofu, að erfðavísar eru stund-
um samsettir úr nokkrum að-
skildum einingum en ekki einni
samhangandi eins og áður var
talið. Þá má nefna, að uppgötv-
un þeirra Roberts og Sharps
var undanfari samþættunar
erfðavísa eða erfðavísasplæs-
ingar.
Fyrstu kaflarnir úr endurminningum ,tíárnfrúarinnar“ birtir
/
Thatcher sakar Howe um
svik og Lawson um rug-!
UPPBYGGING ATVINMIUFS
RÁÐSTEFNA í HOLIDAYINN FIMMTUDAGINN
14.0KTÓBER 1993
DAGSKRÁ:
15:00 Afhending fundargagna.
15:10 Setning ráðstefnunnar. Einar
Sveinsson, formaður Verslunarráðs íslands.
15:25 Ávarp iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. Sighvatur Björgvinsson.
15:50 Tækifæri í atvinnumálum í
nútíð og framtíð.
Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri.
16:15 Kaffihlé
£16:45 Verktakastarfsemi á íslandi.
Þórður Þórðarson, framkvæmdastjóri
Verktakasambands íslands.
I 17:10 Að snúa vörn í sókn
-niðurstöður málefnastarfs Hugins.
Bjarki Már Karlsson, framkvæmdastjóri
Viðskiptavakans.
17:30 Ráðstefnunni slitið.
Már Másson,formaður Sjáifstæðisfélagsins
Hugins.
Fyrirspurnir að lokinni hverri framsögu ef tími vinnst til.
Ráðstefnustjóri: Bjarni Benediktsson, varaformaður Hugins.
Ráðstefna þessi er opin öllum áhugamönnum um eflingu atvinnulífs.
Ráðstefnugjald kr.2.000. Hugim RUS Garðabœ
London. Reuter, The Daily Telegraph.
MARGIR fyrrverandi samráðherrar Margaretar Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands 1979-1990, fá slæma útreið i endurminningum
hennar, sem gefnar verða út síðar í þessum mánuði. Breska blaðið
Sunday Times birti um helgina kafla úr bókinni og kemur þar m.a.
fram hörð gagnrýni á þá Nigel Lawson, fyrrum fjármálaráðherra,
og Geoffrey Howe, fyrrum utanríkisráðherra. Gagnrýni á John
Major, núverandi forsætisráðherra, var aftur á móti mun vægari
en búist hafði verið við.
í þeim köflum, sem birtir voru í
Sunday Times sakar Thatcher
Howe um „gremju og svik“ og vís-
ar hún til ræðu sem hann flutti í
þinginu er hann lét af embætti árið
1990. Er sú ræða talin hafa valdið
því að Thatcher var bolað úr emb-
ætti. „Þessi hægláti, ljúfi en ótrú-
lega metnaðarfulli maður, sem ég
hafði átt sífellt versnandi samskipti
við eftir því sem hin sífellda löngun
hans til málamiðlana fór meira í
taugarnar á mér og gerði það að
verkum að ég hellti mér stundum
yfir hann í návist annarra, ætlaði
nú eftir bestu getu að koma mér í
vandræði,“ segir í endurminningun-
um.
Howe sagðist ekki vera hissa á
því hvemig Thatcher tæki til orða
en hann væri ekki sammála henni.
„Sekt mín felst einungis í því að
eftir átján ára samstarf þá leyfði
ég mér við og við að vera ósam-
mála og reyndi að finna flöt á
málinu sem við gætum bæði sætt
okkur við. Ég lét af embætti vegna
málefnaágreinings, ekki illkvittni,"
sagði Howe.
Þá segir Thatcher tilraun Law-
sons sem fjármálaráðherra til að
tengja sterlingspundið þýska mark-
inu hafa verið „rugl“. Ágreiningur
um málið leiddi að lokum til þess
að Lawson lét af embætti. í viðtali
við BBC sagði Lawson að greinilega
ætti Thatcher enn í erfiðleikum með
að vera ekki forSætisráðherra og
að hún skildi ekki enn hvers vegna
hún væri ekki við völd lengur. „Það
var mjög sorglegt en það varð að
gerast. Hún reynir að skýra þetta
með því að varpa sökina á aðra í
stað þess að líta í eigin barm,“ sagði
Lawson.
Fundið að illkvittni
Margir breskir stjórnmálamenn
gagnrýndu í gær hvernig Thatcher
réðist að fyrrum samstarfsmönnum
sínum og sögðu hana setja ofan við
þetta. „Af þeim köflum sem birtir
hafa verið má geta sér til um að
bókin einkennist af gremju. Það er
ekki mjög áhugavert að fylgjast með
árásum á hvern samstarfsmanninn
M AlÁ iAUI I
THE DOWNING STREET ÝÉaRS
Reuter
Árin í Downing-stræti
BÚIST er við að endurminningar
Margaretar Thatcher verði met-
sölubók enda hlífir hún hvergi
gömlum samstarfsmönnum sínum.
á fætur öðrum,“ sagði Gilmour iá-
varður, sem Thatcher rak úr ríkis-
stjórn árið 1981. David Mellor, fyrr-
um ráðherra í ríkisstjórn Majors,
sagði að það hefði verið æskilegra
að Thatcher hefði ekki verið svona
illkvittin, fyrst og fremst bæri að
líta á endurminningamar sem merki
um hugarástand hennar.
Bernard lngham, sem var blaða-
fulltrúi og einn nánasti aðstoðar-
maður Thatcher þau ár sem hún
var við völd, sagði í viðtali við BBC
kominn tíma til að hún hætti að tjá
sig á þessum nótum. Aðspurður um
hvað ráð hann myndi gefa henni í
dag svaraði hann: „Þú átt eftjr að
græða mikla peninga á útkomu
bókarinnar. Þú er búin að koma
henni frá þér. Nú skalt þú einbeita
þér að því að sinna stofnuninni
þinni, ferðast um heiminn og tala
við fólk. Styddu John Major og
haltu kjafti." Hann tók þó undir
ýmislegt í gagnrýni hennar á Law-
son, Howe og Michael Heseltine.
A undan timanum
i 100 ár.
fyrir
steinsteypu.
Léttir
meöfærilegir
viöhaldslitlir.
fyrirliggjandl. y
varahlutaþjónusta.
Þ. ÞORGRÍMSSON & C0 Armúla 29, sími 38640
FYRIRLIGGJANDI: GÚLFSLÍPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPUR - DffLUR
STEYPUSA6IR - HRÆRIVELAR - SAGARBLÖD - Vdnduú framleiðsla.