Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 23 Sjóslys í Suður-Kóreu Reuter SUÐUR-kóreskri fetju með á þriðja hundrað manns innanborðs hvolfdi á sunnudag í slæmu veðri við vesturströnd Suður-Kóreu. Þá um daginn tókst að bjarga 67 manns en óttast er, að hátt í 200 hafi látið lífið. Feij- an mátti flytja 207 farþega en talið víst, að þeir hafi verið fleiri. Enginn farþegalisti fyrirfinnst. Hér ber harmi slegið fólk kennsl á ástvin sinn meðal hinna látnu. Nýjar, danskar tillögur um vanda Færeyinga Boða neyðarskatt og hagstæðari lán Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. TVÆR nefndir um ástandið í Færeyjum hafa skilað skýrslu. Ekki er búist við að séð hafi verið fyrir endann á vandanum, en lagt er til að lagður verði á sérstakur neyðarskattur og að Danir aðstoði Færey- inga við að fá hagstæð lán. Erik Bonnerup forstjóri, sem er formað- ur annarrar nefndarinnar og á sæti í hinni, segir að engar auðveld- ar lausnir séu í augsýn. Færeyingar verða að horfast í augu við að framleiðslan hefur minnkað um þriðjung síðan 1989, tuttugu prósent landsmanna eru atvinnulaus og níu prósent eyja- skeggja hafa flutt burt síðan 1988, eða 4.500 manns. Frá 1988 hafa færeysku bankarnir tapað sem samsvarar rúmum 35 milljörðum íslenskra króna og Landskassen eða ríkissjóður hefur tapað 15 milljörðum. Skuldir hans nema fjörutíu milljörðum. Lánstraustið ekkert í samtali við Morgunblaðið sagði Erik Bonnerup að tillögur nefnd- anna væru kannski ekki frumleg- ar, en öðru væri vart til að dreifa. Lagt er til að meira verði sparað og álögur auknar, til dæmis með sérstökum neyðarskatti og álögum á verðmæti, sem mynduðust á síð- asta áratug. Þó heppilegt væri að setja fram hallalaus fjárlög fyrir eyjarnar næsta ár sagðist Bonner- up ekki reikna með að það væri hægt. Þá yrðu umskiptin of snögg. Danir bjóða nú Færeyingum að nota lánstraust sitt erlendis til að umbreyta lánum, sem þegar hafa verið tekin, fá ný og hagstæðari lán. Milliganga Dana er nauðsyn- leg, þar sem Færeyingar eiga vart lengur kost á erlendum lánum og þá ekki á sömu kjörum og Danir. Á fundi í Kaupmannahöfn í dag er búist við að Færeyingar beri fram óskir um að Danir leggi eyj- unum til sem svarar rúmum fimm- tíu milljörðum íslenskra króna. Mogens Lykketoft fjármálaráð- herra hefur þegar sagt að bæjarfé- lögin færeysku verði að ráða fram úr sínum skuldum upp á um sautj- án milljarða. Á Færeyjum hefur neyðarskatturinn mælst mjög illa fyrir, þar sem eyjarskeggjar segj- ast vera skattlagðir ótæpilega fyr- Andstaðan við Jeltsín er mest utan borganna Frjósömustu landbúnaðarhéruðin eru öflugustu vígi andstæðinganna Moskvu. The Daily Telegraph. Reuter. ÞÓTT Borís Jeltsín Rússlandsforseta hafi tekist að brjóta á bak aftur uppreisn kommúnista og þjóðernissinna er ekki þar með sagt að öll andspyrna hafi verið kæfð. Leiðtogar uppreisnar- manna eru að sönnu á bak við lás og slá en styrk sinn sóttu þeir til lægri stiga stjórnsýslunnar á landsbyggðinni. Tæplega 50 ráð og héraðaþing fordæmdu þá ákvörðun Jeltsíns forseta að leysa upp fulltrúaþingið og Æðsta ráðið. Stjórnmálaástandið er vissulega flókið í Rússlandi en segja má að í hveiju héraði ríki sams konar valdabarátta og geisaði í Moskvu. Ríkisstjórinn er yfirleitt fylgismað- ur Jeltsíns en fylkisþingið almennt hallt undir málstað þingheims í Moskvu. Jeltsín hafði uppi áform um að leita eftir samstarfi við leið- toga lýðvelda og sjálfstjórnar- svæða innan Rússlands. Hann hugðist fá þeim sæti í efri deild þingsins nýja sem kosið verður til 12._ desember. Á sunnudag blés Jeltsín til sókn- ar gegn þeim lýðveldum og sjálf- stjórnarsvæðum sem standa í vegi fyrir hugmyndum hans. Sagði full- trúi hans líkur á því að gefnar yrðu úr sérstakar tilskipanir á hendur þeim sem neituðu að viður- kenna völd Jeltsíns. Send hefðu verið skeyti til 31 af 88 héraðs- stjórum þar sem þeir fengu þijá daga .til að draga andstöðu sína til baka. Fresturinn rann út á sunnudag og sagði fulltrúi Jeltsíns að aðeins tveir hefðu ákveðið að verða við tilmælum Jeltsíns. Á laugardag gaf forsetinn úr tilskipun þar sem þau héraðsþing sem studdu fulltrúaþingið í and- stöðunni við Jeltsín, eru sett skör lægra en leiðtogi lýðveldisins. Þá er þeim gert að setja fram tillögur um nýjar stjórnareiningar fyrir 15. október, en þessar einingar eiga að taka við af ráðum og héraða- þingum. Ráðlagði Jeltsín leiðtog- um sjálfsstjórnarlýðvelda að fylgja í kjölfarið. I hinum einstöku hlutum Rúss- lands er stjórnmálaástandið sem hér segir: Moskva og Pétursborg: í þess- um tveimur stærstu borgum Rúss- lands fékk forsetinn mikinn stuðn- ing í þjóðaratkvæðagreiðslunni í aprílmánuði. Borgarstjórarnir eru báðir dyggir stuðningsmenn for- setans og í Moskvu hafa ráðin þegar verið leyst upp. Svartmoldarsvæðin: Sterk- ustu vígi andstæðinga Jeltsíns er að finna á landbúnaðarsvæðunum ftjósömu í miðjum Evrópuhluta Rússlands. Þar ræðir einkum um Orel, Bríjansk, Kúrsk og Vor- onezh. Alexander Rútskoj, fyrrum varaforseti Jeltsíns og annar leið- togi uppreisnarmanna, er frá Kúrsk og á vormánuðum var fyrr- um félagi í stjórnmálanefnd Kommúnistaflokks Sovétríkjanna kjörinn ríkisstjóri í Orel. Úral-svæðið: Jekaterínborg, er áðúr hét Sverdlovsk, er heimavöll- ur Jeltsíns og þar nýtur hann mik- ils stuðnings. Óvissa ríkir á öðrum svæðum t.a.m í Tsjeljabínsk. Síbería: í borgum Síberíu, fyrr- um miðstöðvum hergagnafram- leiðslunnar, mætti ætla að harðl- ínuöflin væru sterk. Svo er í raun ekki, í flestum stærstu borgunum; Krasnojarsk, Tomsk og Omsk, reyndist víðtækur stuðningur fyrir hendi við stefnu Jeltsíns í apríl. Héraðaþing eru á hinn bóginn andsnúin miðstjórnarvaldinu og hafa m.a. tekið undir að stofnað verði lýðveldið Síbería. Norður-Kákasus: Jeltsín er hvergi jafn óvinsæll og í þessum hluta Rússlands, í lýðveldunum Ossetíju, Ingúsetjíu og Daghestan. Ástæðan er í senn almenn fátækt og spenna í samskiptum einstakra þjóðarbrota. Hins vegar er vægi þessa svæðis lítið innan rússneska ríkjasambandsins. Volgu-Iýðveldin og Jakútíja: Þrýstingur frá Moskvu kann að verða til þess að ýta undir kröfur aðskilnaðarsinna en á þessu svæði er að finna miklar náttúruauðlind- ir. Hættan er sú að óhóflegur þrýstingur reynist upphafið að endalokum Rússlands. Austrið: Staða Jeltsíns er einn- ig sterk í austurhéruðum Rúss- lands þótt hann hafi rekið úr emb- ætti ríkisstjóra Amúr á þriðjudag. VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS '• VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKAN VEM RAF* OG GÍRMÓfORAR í FARARBRODDI 1CJÖRUTÍU ÁR! VEM verksmiöjurnar framleiða ailar helstu stæröir og gerðir raf- og gírmótora fyrir iðnaö, skip, land- búnað og ýmsar sérþarfir. Höfum fyrirliggjandi allar algengustu stærðir og gerðir og útvegum alla fáanlega mótora með skömmum fyrirvara. Veitum tæknilega ráðgjöf við val á mótorum. VEM - þýsk gæðavara á góðu verði! MUI-UAbAlLILA S • ÖIMl: Sl- Mótorvindingar, dæluviögerðir og allar almennar rafvélaviögerðir. Pekking Reynsla Pjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK SlMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84 VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VELADEILD FÁLKANS Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími S71800 Nissan SLX Sedan ’93, rauður, sjálfsk., ek. 12 þ., rafm. í rúðum, spoiler o.fl. V. 1180 þús., sk. á ód. MMC Lancer GLX 4x4 station ’89, blás- ans, 5 g., ek. 70 þ., 1800 vél, rafm. í rúð- um o.fl. V. 830 þús. *- » Dodge Ramcharger SE’83, rauður/grár, sjálfsk., ek. 120 þ. V. 690 þús., sk. á ód. SSjÍB Nissan Micra GL ’89, rauður, sjálfsk., ek. 43 þ. V. 480 þús., sk. á ód. *ssm MMC Galant GLSi 4x4 ’90, hvítur, 5 g., ek. 67 þ., rafm. í öllu, hiti í sætum, saml. stuðarar, álfelgur o.fl. Toppeintak. V. 1190 þús. MMC Lancer GLX ’89, sjálfsk., ek. 47 þ., spoiler o.fl. V. 780 þús. o.fl. óvenju gott eintak. V. 790 þús. Lada 1500 station ’92, hvítur, 5 g., ek. 32 þ. V. 450 þús. stgr. Toyota Corolla XL ’90, grásans, 4 g., ek. 89 þ. V. 590 þús. stgr. Monda Prelude EX 2.0I 16v ’91, grásans, I 5 g., ek. aðeins 29 þ. km., rafm. í öllu, hiti l í sætum, álfelgur, sóllúga o.fl. Sem nýr. V. 1700 þús. Subaru Justy J-12 ’90, rauður, ek. 35 þ. V. 750 þús. Daihatsu Charade CS '88, 5 dyra, 4 g., ek. aðeins 34 þ. V. 430 þús. MMC Pajero langur '87, beinsín, 5 g., ek. 107 þ., sóllúga, o.fl. V. 1150 þús. MMC Lancer GLXi 16v '93, sjálfsk., ek. 8 þ., sóllúga, álflegur, spoiler o.fl. V. 1530 þús. Mazda 323 LX '87, sjálfsk., ek. 82 þ. V. 390 þús. Audi 80 1.8 S ’88, rauður, 5 g., ek 96 þ. Ný tímareim o.fl. V. 900 þús. Toyota Lite Ace bensín, ’91, vsk bíll, rauð- ur, ek. 64 þ. V. 950 þ. M. Benz 250 '82, beinsk. Óvenju gott ein- tak. V. 550 þús., sk. á ód. Toyota Corolla XL Sedan '88, 5 g., ek. 105 þ. V. 550 þús., tilboðsverð 450 þús. stgr. MMC Galant GLSi '89, sjálfsk., m/öllu, ek. 71 þ. V. 990 þús., sk. á ód. Range Rover 2ja dyra '82, beinsk., ek. 127 þ. Góður jeppi. V. 450 þús. Toyota Corolla Liftback '88, sjálfsk., ek. 98 þ., góður bíll. Tilboðsverö 550 þ. stgr. Cherokee Chief, 4 L, '87 3ra d., sjálfsk., ek. 130 þ. V. 1150 þ. Sk. ód. Chevrolet Blazer Thao '86, grár (tvilitur), sjálfsk., ek. 86 þ. km. Gott eintak. V. 1050 þús. Chrysler Voyager V-6 ’90, brúnsans, sjálfsk., ek. 101 þ., 7 manna, einn eig- andi. V. 1390 þús. MMC L-300 4x4 '88, 8 manna, grár, 5 g., ek. 87 þ. V. 1090 þús., sk. á ód. Cherokee Pioneer 2,5L ’84, sjálfsk., ek. 79 þ. mílur. V. 690 þús., sk. á ód. (eða 2 bílum). MMC Colt GLXi '91, 5 g., ek. 47 þ. V. 890 þús. Daihatsu Feroza DX '89, svartur/grár, 5 g., ek. 60 þ. km., topplúga o.fl. V. 850 þús., sk. á ód. Fjörug bílaviðskipti: Vantar á skrá og á staðinn góða bíla, helst skoðaða ’94. Ath.: Bón og þvottur á staðnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.