Morgunblaðið - 12.10.1993, Síða 28

Morgunblaðið - 12.10.1993, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 Sjónarhorn Um gagnsemi við- skiptaáætlana eftir Aðalstein J. Magnússon Viðskiptaáætlanir eru í dag tald- ar bráðnauðsynlegar þegar hefja á rekstur og mörgum leikur eflaust hugur á að viþa í hveiju gagnsemi þeirra felst. í raun má segja að viðskiptaáætlun er ómissandi því hún er skjal sem segir til um hvað eigi að gera, hvernig og fyrir hvaða tíma. Viðskiptaáætlunin er notuð til að skipuleggja og samræma þau verk sem vinna þarf og viðskiptaá- ætlunin er einnig notuð til að sann- færa fjárfesta um ágæti hugmynd- arinnar. Það vekur því oft furðu starfsmanna banka og fjárfestinga- sjóða hversu léleg vinnubrögð tíðk- ast hjá mörgum sem koma bónveg eftir fjármagni. Fjárfestar verða að fá ítarlegar og nákvæmar skriflegar útskýringar ella telja þeir að hug- myndin sem verið er að kynna sé vanhugsuð eða á henni gallar sem leitt gætu til mistaka. Ef viðskiptaáætlun er ekki notuð til að samstilla alla þætti rekstrar er líklegt að hver og einn taki ákvarðanir sjálfstætt og að heild- arsamræmi vanti. Framkvæmdir geta dregist á langinn án þess að eftir því sé tekið og árangurinn verður í samræmi við það. Orka fer til spillis ef átakið er ekki samræmt og dýrmætur tími glatast. Án við- skiptaáætlunar ferðast hver þátt- takandi í framtakinu á eigin vegum og áfangastaðirnir verða ólíkir og fæstum til ánægju þegar upp er staðið. Þó svo að viðskiptaáætlun sé nauðsynleg til að sýna ijárfestum hvað fyrirtækið á að framkvæma er það ekki aðalhlutverk hennar. Viðskiptaáætlunin er umfram allt teikningin eða lýsingin á öllu því sem fram þarf að fara til að settu marki verði náð. Það mundi ekki hvarfla að neinum að reisa hús eða þó ekki væri nema bæta við her- bergi án þess að hafa ítarlegar teikningar og_ áætlanir um t.d. efni og kostnað. Á sama hátt ætti það ekki að hvarfla að neinum að hefja nýja starfsemi án þess að fyrir liggi áætlun um hver á að gera hvað, fyrir hvaða tíma og hvernig. Þegar viðskiptaáætlunin er tilbú- in á hún að innihalda allar forsend- ur. Þeir sem viðskiptaáætlunina sömdu verða einnig að vera tilbúnir að fylgja henni eftir. Fjárfestar eða aðrir þeir sem máli skipta sem lesa viðskiptaáætlunina verða að skilja nákvæmlega frá lestri hennar hvað á að framkvæma. Fjárfestar krefj- ast þess að fá að vita hver á að framkvæma hvað, fyrir hvaða tíma og hverjar forsendurnar séu. Ekki skiptir þá minna máli að veita upp- lýsingar um hvað til þarf og hvað fjárfestarnir eigi að leggja til og hvernig verði greitt fyrir þeirra framlag. Viðskiptaáætlunin er því fyrst og fremst skipulagsskjal innan fyr- irtækisins sem frumkvöðullinn starfar eftir einn eða með hópi manna. Vel úthugsuð viðskipta- áætlun getur reynst ómissandi skjal til að ná fram settu marki og ber því sú vinna sem í hana er lögð ríkulegan ávöxt. Þetta á ekki síður við þótt viðskiptaáætlunin sé aldrei sett í framkvæmd eða henni hafnað af fjárfestum. Oft er því ver af stað farið en heima setið. Höfundur er lektor við Samvinnu- skólann. John Frazer-Robinson í febrúar sl. fengu yfir 200 (slendingar að kynnast kenningum þessa heimsþekkta og eftirsótta markaðsmanns og óskuðu eindregið eftir frekari fræðslu hans. Stjórnunarfélagið býður nú tvær námsstefnur sem JFR nefnir: „The Secrets of Effective Direct Mail“ 19. október nk. kl.9—17 JFR mun fjalla nánar um ýmsa þætti beinnar markaðssóknar (Direct Marketing), með aðaláherslu á MARKPÓST (Direct Mail). Þetta er námsstefna sem hlotið hefur miklar vinsældir víða um heim og hefur verið aðalnámsefnið á alþjóðlegri ráðstefnu um beina markaðssókn í London undanfarin ár. Verð kr. 15.000,- og „The JFR Masterclass“ 21. október nk. kl. 9—17.30 Hér verður fjallað ítarlega um aðferðarfræði beinnar markaðssóknar þar sem JFR mun sjálfur vinna með þátttakendum að raunhæfum verkefnum þeirra í vinnuhópum. Verð kr. 18.000,- Staðun Hótel Saga, Þingstofa A Stjórnunarfélag islands Fjöldi takmarkaður Skráning og nánari upplýsingar í síma 621066 TÆKNISKÓLINN — Tækniskólinn hlaut nýlega að gjöf Windows-útgáfu af útboðs og tilboðsgerðarkerfi frá Verk- og kerfis- fræðistofunni Spor. Dos-útgáfan af kerfinu hefur verið í notkun hjá skólanum sl. tvö ár og hafa nemendur unnið útboðs- og tilboðs- verkefni í kerfinu þar sem stuðst er við verð og verklýsingar úr byggingarlykli Hannarrs. Þá hefur nýlega verið sett upp Novell netstýrikerfi með 18 vélum sem m.a. eru notaðar fyrir útboðskerf- ið. Myndin var tekin þegar Guðmundur Hjálmarsson, deildarstjóri byggingardeildar og Isleifur Jakobsson deildarstjóri tölvudeildar tóku formlega við kerfinu af Einari Júlíussyni, framkvæmdastjóra Verk- og kerfisfræðistofunnar Spors. Sjónvarp NBC sækir á Evrópu- markað með kaupum á Super Channel BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin NBC hefur gert sína mestu innrás til þessa inn á Evrópumarkaðinn með kaupum á meirihluta í Su- per Channel, sem sjónvarpar um gervihnött og nær til næstum 60 milljóna heimila í Evrópu, aðallega í gegnum kapalkerfi. Fyrir síðustu helgi ætlaði NBC að ganga frá kaupunum en þau taka til 75% hlutafjárins fyrir 61,6 milljónir dollara. Seljandinn er Marcucci-fjölskyldan en hún er umsvifamikil í ljósvakamiðlun og iðnrekstri á Italíu. Búist er við, að NBC muni halda áfram að auka við skemmtiefnið á Super Channel auk þess að gera viðskipta- og ijármálatíðindum hærra undir höfði en nú. Talsmenn CNBC, þeirrar kapalrásar NBC, sem sérhæfir sig í viðskiptafrétt- um, lýstu því raunar yfir fyrr á árinu, að ætlunin væri að færa út kvíarnar til Evrópu og Austur- Asíu. Tapaði 160 millj. kr. á mánuði Marialina Marcucci, fram- kvæmdastjóri Super Channel, keypti stöðina árið 1988 fyrir níu sterlingspund en greiddi lánar- drottnunum 2,5 milljónir punda. Á þessum tíma var stöðin, sem sam- steypa óháðra sjónvarpsfyrirtækja í Bretlandi stofnaði 1987, að tapa um 1,5 milljónum punda á mánuði en Marcucci-fjölskyldan lagði fram 25 milljónir punda til að byggja upp dreifingarkerfi Super Channel í Vestur- og Austur-Evrópu. Franski bankinn Crédit Lyonna- is mun áfram eiga 25% í Super Channel en Marcucci-fjölskyldart á raunar ítök í þeim hlut og búist er við, að Marialina verði áfram í Leiðrétting Volvoíátt- unda sæti I viðskiptablaði sl. fimmtudag urðu þau mistök að sölutölur fyrir Volvo-fólksbíla féllu niður í yfirliti yfir 10 söluhæstu fólksbílana fyrstu níu mánuði ársins. Meðfylgjandi er leiðrétt tafla þar sem sjá má að Volvo er í áttunda sæti yfir sölu- hæstu bílana á tímabilinu og 3,6% markaðshlutdeild. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. stjórn fyrirtækisins. Talið er, að Marcucci-fjölskyldan hafi talið, að Super Channel kæmist ekki miklu lengra nema öflugt fyrirtæki á borð við NBC tæki við og nefna má, að stöðin hefur átt erfitt með að keppa við stóru risana um ný- legar myndir og mikla íþróttavið- burði. Þess í stað hefur Super Channel ræktað upp ýmsa mark- aðskima eins og Film Europe og auk þess sýnt efni frá FTTV, sjón- varpsdeild Financial Times. Aukinn áhugi á Evrópu í löndum eins og Austurríki, Sviss og Hollandi hefur Super Channel um 3% sjónvarpsáhorf- enda en búist er við, að með til- komu NBC muni virðing stöðvar- innar og aðdráttarafl aukast að mun. Áhugi bandarísku sjónvarps- fyrirtækjanna á Evrópu hefur raunar stóraukist að undanförnu og sem dæmi má nefna, að í síð- asta mánuði hleypti Ted Turner þar af stokkunum TNT/Cartoon Network en hún sýnir teiknimynd- ir að deginum en sígildar kvik- myndir á kvöldin. 10 mest seldu fólks-bíla- tegundirnar í jan.-sept. 1993 ^ Fjöldi % 1. TOYOTA 1.003 21,9 2. MITSUBISHI 737 16,1 3. NISSAN 669 14,6 4. HYUNDAI 350 7,6 5. LADA 228 5,0 6. VOLKSWAGEN 173 3,8 7. DAIHATSU 166 3,6 8. VOLVO 163 3,6 9. RENAULT 150 3,3 10. SKODA 141 3,1 Aðrir 796 17,4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.