Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 29 Mórgunblaðið/Árni Sæberg MEÐMÆLI — Um 79% erlendra gesta sem sóttu ráðstefnur til íslands í sumar telja sig geta mælt með landinu sem ráðstefnulandi. Flug Ferðamái ísland færgóð með- mæli sem ráðstefnuland Nýleg gæðakönnun meðal erlendra ráðstefnugesta í sumar gefur til kynna að mikill meirihluti þeirra hafi verið ánægður með ráðstefnuhaldið hér á landi UM 79% erlendra gesta sem sóttu ráðstefnur til íslands i sumar telja sig geta mælt með landinu sem ráðstefnulandi, samkvæmt niðurstöðum gæðakönnunar sem gerð var á vegum Ráðstefnuskrifstofu Islands. Þegar spurt var um verðlag á íslandi sögðu um 63% þátttakenda að það væri hærra en þeir hefðu átt von á en einungis 36% sögðu verðlag- ið vera í samræmi við væntingar. Enginn þátttakenda sagði verðlagið lægra en vænst hafði verið. Sérstök athugun meðal erlendra skipuleggj- enda ráðstefnanna Ieiddi í Ijós að þeir voru undantekningalaust ánægð- ir með aðstöðuna hér og frammistöðu íslenskra aðila við skipulagningu. Gæðakönnunin var framkvæmd af starfsmönnum Ráðstefnuskrif- stofunnar óg Svanborgu Frostadótt- ur sem vann hana sem lokaritgerð í viðskiptafræði við Háskóla íslands. í svörum þeirra erlendu aðila sem stóðu að ráðstefnunum kom fram að Island hafði orðið fyrir valinu ýmist vegna þess að röðin var komin að landinu eða að það þótti kjörinn áfangastaður. Ráðstefnukostnaður var talinn í meðallagi eða yfir meðal- lagi í samanburði við samkeppnis- staði. Þá hafði íslensk ferðaskrifstofa aðstoðað við skipulagningu ráðstefn- unnar í öllum tilvikum. Reyndust skipuleggjendur almennt ánægðir með þjónustu ferðaskrifstofanna, aðstöðu, þjónustu, tæknibúnað, fæði, hótelþjónustu og leiðsögumenn. í úrtakinu voru 84 ráðstefnugestir eða tæplega 10% gesta á ráðstefnun- um sem könnunin náði til. Þar af var tæplega þriðjungur þeirra frá Norð- urlöndum, 27% frá Evrópu og 29% frá Bandaríkjunum. Aðeins 17% ráð- stefnugesta hafði komið til íslands 12.10. 1993 VAKORT Eftirlýst kort nr.: 4543 3718 0006 3233 4546 3912 3256 0090 4842 0308 1995 3028 ÖLL ERLEND KORT SEM BYRJA Á: 4506 43** 4507 46** 4543 17** 4560 08** 4560 09** 4920 07** 4938 06** 4988 31** 4506 21** Afgreiðslufólk vinsamlegast takiö ofangreind kort úr umferö og sendið VISA fslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir aö klólesta korl og vísa á vágest. I IWJJUiJffiÍ Höföabakka 9 • 112 Reykjavlk Slmi 91-671700 áður. Um 79% þeirra dvöldu á hótel- um að meðaltali í 6 gistinætur. Verð- urfar .hér á landi var í samræmi við væntingar hjá 39% aðspurðra en jafnstór hluti þeirra 'sagði veðrið betra en þeir hefðu átt von á. Lang- flestir eða 94% þátttakenda töldu að ráðstefnan hefði staðið undir vænt- ingum. Þá svöruðu um 90% þátttakenda þeirri spurningu játandi hvort eitt- hvað hefði gert dvölina á íslandi sér- staklega ánægjulega og nefndu flest- ir náttúrufegurð, útsýni, fólkið og skipulag ráðstefnunnar. Þegar spurt var hvort eitthvað hefði valdið von- brigðum svöruðu 42% að svo hefði verið og nefndu hátt verðlag og verð- urfarið. Bjórverð óútskýranlegt „Mér fannst einna athyglisverðast að ábyrgðarmenn ráðstefnanna voru VAKORTAUSTI |Dags. 12.10.1993. NR. 142 5414 8300 0310 5102 5414 8300 0957 6157 5414 8300 2814 8103 5414 8300 3122 1111 5414 8300 3163 0113 5414 8301 0494 0100 5422 4129 7979 7650 5221 0010 9115 1423 | Ofangreind kort eru vákort, sem taka berúrumferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. sammála um að skipulagning ís- lensku ferðaskrifstofanna væri mjög fagmannleg," sagði Arsæll Harðars- son, framkvæmdastjóri Ráðstefnu- skrifstofu íslands í samtali við Morg- unblaðið. „Þetta sýnir að þeir fáu aðilar hér á landi sem hafa annast skipulagningu ráðstefna hafa náð góðum árangri. Síðan er það merki- legt að flestir þátttakendur segja að eitthvað hafí gert dvölina á Islandi mjög ánægjulega og benda á náttúr- una og útsýnið. Þetta eru einmitt þeir þættir sem áhersla verður lögð á í framtíðinni. Hins vegar er það áhyggjuefni að 42% nefna yfirleitt að verðlag og veður hafí valdið þeim vonbrigðum. Það er hægt að útskýra fyrir mönnum að hótel séu hér ekki dýrari en annarsstaðar, flug sé á sambærilegu verði og maturinn sé peninganna virði. Hins vegar er ekki hægt að útskýra það hvers vegna þeir þurfi að greiða 7-8 dollara fyrir einn bjór. Á því er engin skýring nema of há álagning.“ Evrópu- samtök flugfélaga funda hér TÆKNINEFND Evrópusam- taka flugfélaga hélt sinn fyrsta fund hér á landi sl. föstudag. Á dagskrá fundarins voru fyrst og fremst málefni sem varða samskipti flugfélaganna við ný samtök flugmálastjórna í Evr- ópu en þau eru að gefa út fjölda samræmdra reglugerða um flugrekstur í álfunni. Einnig voru rædd ýmis sameiginleg hagsmunamál á sviði flug- rekstrar og tæknimála ásamt umhverfismálum, segir í frétt frá Flugleiðum. Evrópusamtök flugfélaga voru stofnuð árið 1952 af fjórum flugfé- lögum, Air France, KLM, Sabena og Swissair. Fljótlega bættust í hópinn British Airways og SAS og Flugfélag íslands gerðist aðili að samtökunum árið 1957. Flug- leiðir gerðust síðan aðili við stofn- un félagsins árið 1973. Núna eru 24 flugfélög í Evrópu aðilar. I árslok 1992 voru samtals 318 þúsund starfsmenn hjá þessum félögum og í rekstri þeirra voru samtals 1.604 flugfélagar. Á sl. þremur árum hafa aðilarfé- lög Evrópusamtakanna átt við mikla rekstrarörðugleika að glíma ogtapað samtals um 1,2-1,7 millj- örðum á ári. Sum þeirra virðast vera komin á barm gjaldþrots og hafa leitað eftir aðstoð hlutaðeig- andi ríkisstjórna. Öll félögin beta sér fyrir meiriháttar lækkun kostnaðar sem m.a. felur í sér fækkun starfsmanna og niðurfell- ingu áætlunarflugs á óarðbærum leiðum. Þá er búist við því að félög- in muni í auknum mæli tengjast og mynda stærri rekstrareiningar. Aðeins tvö félög eru að öllu leyti í einkaeigu, British Airways og Flugleiðir en flest hinna eru að meiri hluta í eigu viðkomandi ríkis- sjóða. Þvottavélar á verði sem allir ráða við! Þær nota HEITT OG KALT vatn ■ spara tíma og rafmagn •Fjöldi þvottakerfa eftir þlnu vali • Sérstakt ullarþvottakerfi •Fjölþætt hitastilling •Sparnaðarrofi •Stilling fyrir hálfa hleðslu Verð 52.500,- 49.875,- Stgr. L85-800 sn. vinda. Verð 57.500,- 54.625,- Stgr. munXlán Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SlMI 69 15 00 . FAX 69 15 55 KREDITKORT HF., Ármúla 28, 108 Reykjavík, sími 685499 HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSNÆÐISBRÉF 1. FLOKKUR 1993 10. Uppboð -12. október 1993 Tíunda uppboð húsnæðisbréfa fer fram 12. október n.k. Frestur til þátttöku rennur út kl. 14:00 þann dag og þurfa bindandi tilboð í bréfin að hafa borist Húsnæðis- stofnun ríkisins. Húsnæðisbréf eru gefín út í tveimur einingum, 1 rn.kr. og 10 m.kr. að nafnverði. Húsnæðis- bréf eru verðtryggð með lánskjaravísitölu til 20 ára með 39 jöfnum greiðslum vaxta og afborgana. Upplýsingarit ásamt tilboðsgögnum liggja frammi hjá Húsnæðis- stofnun íTkisins, Suðurlandsbraut 24, Reykjavík og nánari upplýsingar um útboðið veitir verðbréfadeild stofnunarinnar. HANDSALS q m—m o KlVSaNVH HANDSAL H F LÖGGIlTVERÐBRÉFAFYRIRT/íkl • AÐILI AÐ VERÐIIRÉrAHNGI ISLANDS ENGIATEIGI 9 • 105 REYKJAVÍK ■ SÍMI 686111 • EAX 687611

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.