Morgunblaðið - 12.10.1993, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
0'
Hiúkrunarheimilið Eir
_«z__________________
Opnuð deild fyr-
ir 27 einstaklinga
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson, heilbrigðisráðherra, opnaði síðari
hluta nýrrar deildar fyrir samtals 54 vistmenn á 3. hæð hjúkrunar-
heimilisins Eirar á föstudag. Fyrri hluti deildarinnar fyrir helming
vistmannanna var opnaður 2. mars.
Hjúkrunarheimilið Eir er 7.135
fm á ijórum hæðum. Á neðstu
hæðinni eru m.a. mótttaka og skrif-
stofur en á annrri hæð er gert ráð
fyrir deild með 44 einstaklingum.
Þar mun annars vegar verða eining
ætluð heilabiluðum sem þarfnast
inikillar umönnunar og eftirlits.
Einingin er því sérstaklega hönnuð
með þarfir þessara einstaklinga í
huga. Áætlað er að þessi deild taki
til starfa fyrri hluta næsta árs.
Hins vegar verður á sömu hæð
deild, m.a. fyrir blinda og sjón-
skerta. ,
Fyrir 120 einstaklinga
Á fjórðu hæð hússins verður deild
fyrir greiningu, endurhæfingu og
skammtímavistun. Starfsemi henn-
ar gerir öldrunarlækningadeildum
sjúkrahúsanna m.a. fært að starfa
eins og þeim er ætlað. Með tilkomu
deildarinnar er þess einnig vænst
að einstaklingar geti dvalist lengur
á heimilum sínum. Á fjórðu hæð
verður að auki fullkomin aðstaða
fyrir sjúkra- og iðjuþjálfun. Eftir
því sem segir í fréttatilkynningu
er gert ráð fyrir að í framtíðinni
verði rými fyrir 120 einstaklinga í
húsinu.
Hjúkrunarheimilið Eir er reist af
Reykjavíkurborg, Seltjarnarnes-
kaupstað, Samtökum blindra og
blindravina, Sjómannadeginum í
Reykjavík og Hafnarfirði, Sjálfs-
eignarstofnuninni Skjól, Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur og Félagi
aðstandenda Alzheimersjúklinga.
Eir
Morgunblaðið/Þorkell
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Eir er 7.135 fm á fjórum hæðum. Helstu ráðgjafar við hönnun og framkvæmd-
ir eru: Halldór Guðmundsson, Teiknistofan Ármúla 6, Verkfræðistofa Stefáns Ólafssonar hf. og Stýri-
tæki hf.
Ætla að hefja rekstur slipp-
stöðvar í Garðabæ að nýju
VÉLSMIÐJAN Normi hf. í Garðabæ undirbýr nú að hefja að nýju
rekstur dráttarbrautar skipasmíðastöðvarinnar Stálvíkur, sem fyrir-
tækið eignaðist í viðskiptum við Framkvæmdasjóð eftir gjaldþrot
Stálvíkur. Sævar Svavarsson framkvæmdasljóri Norma segir að fyr-
irtækið hafi keypt eignirnar fyrir nærri 100 milljónir króna og
muni að auki leggja um 50 milljónir króna í uppbyggingu brautarinn-
ar til að gera hana að stærstu dráttarbraut landsins, án framlaga
opinberra aðila eða sjóða.
Við opnunina
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson opnaði deild fyrir 27 einstaklinga á
föstudag. Með honum fremst á myndinni eru (f.v.) Markús Örn Ant-
onsson, borgarsljóri í Reykjavík, og Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deild-
arsijóri i heilbrigðisráðuneytinu.
Fyrirtæki í skipasmíðaiðnaði hér
á landi hafa átt.við mikla rekstrar-
erfiðleika að etja og er skemmst
að minnast núverandi greiðslu-
stöðvunar Slippstöðvarinnar Odda
á Akureyri, en það fyrirtæki var
endurreist með nýju hlutafé fyrir
um það bil einu ári. Rætt hefur
verið um að nýsmíði skipa hér á
landi heyri til liðinni tíð vegna erf-
iðra samkeppnisskilyrða. Sævar
Svavarsson segist hins vegar telja
ljóst að skipasmíðaiðnaður eigi sér
framtíð í landinu og að erfiðleika
í greininni megi rekja til lítillar
framleiðni og lélegrar stjórnunar.
„Við höfum hingað til rekið þetta
fyrirtæki með hagnaði og ætlum
að halda því áfram,“ segir Sævar.
Islensk fyrirtæki í skipasmíðaiðnaði
fengu að sögn Sævars í fyrra 10%
af þeim 6 milljörðum króna sem
útgerðin varði í viðskipti við skipa-
smíðastöðvar innanlands og utan.
„Við ætlum að auka okkar hlut,“
segir hann.
Má bæta aðstöðu
Sævar segir að við núverandi
hafnaraðstöðu í. Arnarnesvogi sé
við réttar aðstæður unnt að taka
upp í brautina skip allt upp í stærð
togara en með dýpkunarfram-
kvæmdum á innsiglingu fyrir 26-57
milljónir króna megi bæta svo úr
að unnt sé að taka upp þar allt að
100 metra löng skip óháð sjávar-
föllum og veðurfari.
Sævar segir að á svæðinu sem
kennt hefur verið við Stálvík sé að
finna mannvirki fyrir hálfan millj-
arð króna þegar endurbótunum
sem nú standa yfir á vegum Norma
verður lokið. „Við erum búnir að
steypa upp brautirnar og að því
loknu förum við að reisa vagninn,"
sagði Sævar. Hann sagði að eftir
um það bil hálfan mánuð lyki fram-
kvæmdum við brautirnar en eftir
væri að útvega lánsfé til að gera
kleift að setja saman vagn við
brautina og óvíst hvernig það
Það er allt að seljast upp!
Pú getur ennþá komist með í ódýra ferð til einnar vinsælustu verslunar- og
menningarborgar Evrópu.
Fyrsta flokks gisting - spennandi skoðunarferðir - ævintýralegir
verslunarmöguleikar.
Tryagð,
Þér
s*éti
J3- okt,
l7- °kt.
27 °kt
3t °kt■
■ Okt.
3■ nóv.
7- nóv.
10■ nóv.
7' nÓV■
17 ■ "óv.
21 ■ nóv.
24- nóv.
órfé sæti /a
örfá sæt! *US
uppselt aU
'aus sæti
uPpselt
uPpZt 'dUs
/aus sæti laus
us sæti
uPPselt
!aus sætj
^ lous
miðað við mann í tveggja
manna herbergi á Hótel
Country eða Crest
Vöruverð er svo ótrúlega lágt að
jafnvel Skotarnir flykkjast þangað til
að versla
Stærsta
verslunarmiðstöð
Evrópu
— og meira til!
*lnnifalið flug, gisting, morgunverður
og öll flugvallagjöld
Á ILI 1 llV
65 22 66
Ferðaskrifstofan Alís, sími 652266, fax. 651 160
gangi. í besta falli gæti brautin
orðið fullbúin um áramót. Framtíð-
aráform séu um að gera aðstöðu.
fyrirtækisins þannig úr garði að
unnt verði að taka smærri togara
inn undir þak í núverandi húsi Stál-
víkur. Sævar segir að Normi ætli
sér ekki að einoka vinnu þá sem
kunni að skapast í kringum dráttar-
brautina heldur leigja öðrum iðn-
fyrirtækjum aðstöðuna fyrir verk-
efni á þeirra vegum.
Eiga ekki kost á fyrirgreiðslu
Sævar sagði að forsvarsmönnum
fyrirtækisins væri ljóst að þeir ættu
ekki kost á sams konar opinberri
fyrirgreiðslu og þau fyrirtæki sem
hingað til hefðu starfað í þessari
grein hér á landi hefðu notið. Erfið-
lega hafi gengið að fá fé úr ríkis-
sjóði til að framkvæma áætlanir
Gárðabæjar um nauðsynlegar
hafnarbætur við Arnarnesvoginn
til að sú aðstaða sem þar sé komin
nýtist að fullu þeim fyrirtækjum
sem starfa á svæðinu. Sævar
kvaðst allt eins reikna með að
Normi hf. yrði að annast útvegun
fjár eigi að verða unnt að ráðast í
lágmarksdýpkunarframkvæmdir til
að bæta innsiglinguna frá því horfi
sem hún hefur verið í. Þar sé um
10-26 miiljónir króna að ræða til
að gera fyrirtækinu kleift að þjón-
usta skip sem nú þurfi að kaupa
viðhald erlendis frá. Hámarks
framkvæmdaþörf við voginn til að
þar verði gerð höfn sem stenst
t.a.m. samanburð við Reykjavíkur-
höfn muni hins vegar kosta um 57
milljónir króna, samkvæmt skýrslu
Hafnamálastofnunar, að sögn Sæv-
ars. Hann kvaðst ekki telja miklar
líkur á að í þá framkvæmd verði
ráðist á næstunni.
Allar hafnarframkvæmdir
háðar ríkissjóði
Ingimundur Sigurpálsson,
bæjarstjóri í Garðabæ, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að samþykkt-
ir og áætlanir hafnarnefndar
Garðabæjar gerðu ráð fyrir að verja
þyrfti 2,7 milljónum króna til að
steypa þekju á núverandi viðlegu-
kant og væri vonast til að það
gæti orðið á næsta ári. Einnig
þyrfti að gera 30 metra breiða og
2,5 metra djúpa rennu í innsiglingu
hafnarinnar fyrir um 29 milljónir
króna og væri vonast til að unnt
verði að ljuka því á fyrrihluta árs
1995. Á árinu 1996 væri stefnt að
því að lengja viðlegukantinn um
40 metra, en það kosti samkvæmt
áætlun 21 milljón króna. Ingimund-
ur sagði að lögum samkvæmt beri
að greiða 90% dýpkunar en 75%
af öðrum hafnarframkvæmdum úr
ríkissjóði. Framgangur þessara
áætlana sé algjörlega háður því að
framlög þaðan fáist, en það hafi
ekki tekist hingað til. Hann sagði
engar aðrar hafnarframkvæmdir
ráðgerðar á vegum Garðabæjar.
Þessar úrbætur væru nauðsynlegar
til að aðstaða sem þegar hefði ver-
ið fjárfest í nýttist fjölmörgum iðn-
fyrirtækjum í bænum sem veittu
sjávarútvegsfyrirtækjum ýmsa
þjónustu.