Morgunblaðið - 12.10.1993, Qupperneq 48
Samdráttur
Hótel Norð-
urland lýst
gjaldþrota
HÓTEL Norðurland var úr-
skurðað gjaldþrota í gær hjá
Héraðsdómi Norðurlands, en
stjórn hótelsins lagði inn beiðni
um gjaidþrotaskipti á föstudag.
Sigurður Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Norður-
lands sagði að Flugleiðir ættu 40%
í hótelinu, Flugfélag Norðurlands
40%, Úrval-Útsýn 10% og Gísli Jóns-
son og Þórarinn Jónsson 5% hvor.
Að sögn Einars Sigurðssonar
blaðafulltrúa Flugleiða gekk rekstur
hótelsins ekki vel í sumar og var
meðal annars um að kenna slæmu
tíðarfari. Alls eru 28 herbergi á hótel-
inu og hefur það verið í eigu sömu
aðila sl. fjögur ár.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér eru
skuldir hótelsins um 95 milljónir en
eignir eru metnar á um 80 milljónir.
Litadýrð á hausti
Morgunblaðið/RAX
HAUSTBLÍÐAN hefur verið einstök að undanförnu og Veðurstofan spáir mjög svipuðu veðri næstu daga. Fólk ætti því að fá tækifæri til að
njóta haustlitanna áfram. Spáð er heiðskíru veðri sunnanlands í dag og er búist við að frost verði víðast hvar nema um hábjartan daginn sunnanlands.
Formaður bankaráðs Seðlabankans eftir harða gagnrýni á Alþingi
Vafalítið komið að því að
endurskoða regiumar
Ráðherra aflar upplýsinga um starfskjör æðstu manna ríkisbanka og lánastofnana
BÍLAFRÍÐINDI bankastjóra Seðlabankans sættu mikilli gagnrýni
þingmanna við utandagskrárumræður á Alþingi í gær. Sighvatur
Björgvinsson viðskiptaráðherra sagði að ráðherra hefði ekki vald
til að taka ákvarðanir um launakjör Seðlabankastjóra heldur væri
það á valdsviði bankaráðsins, sem kosið væri af Alþingi. Að loknum
fundi viðskiptaráðherra með Ágústi Einarssyni, formanni bankaráðs
Seðlabankans í gærkveldi sagði Ágúst að almennt yrði að finna
þessum bílamálum þann farveg að hálf þjóðin ærðist ekki. Hann
sagði að bankinn hefði farið eftir þeim reglum sem giltu. „Það kem-
ur alltaf að því öðru hvoru að það verði að endurskoða þær reglur
og það er vafalítið komið að þeim tímapunkti núna,“ sagði Ágúst.
Einholt og tímabundin afnot af þeim
bíi sem hann hafði afnot af sem
bankastjóri. Ekki hefði verið samið
um neinar sérstakar greiðslur fyrir
ritstörfin. Ekki hefði komið til tals
að Tómas Árnason sem lætur að
störfum um áramót ynni að neinum
sérverkefnum fyrir bankann. Hann
sagði það rangt, að Bera Nordal
starfaði sem listráðanautur við bank-
ann, en því hélt Guðrún Helgadóttir
alþingismaður fram við utandag-
skrárumræðuna í gær.
Sjá nánar á bls. 18-19.
í sölu áfeng-
is og tóbaks
SAMDRÁTTUR varð í sölu ÁTVR
á áfengi og tóbaki á fyrstu níu
mánuðum ársins miðað við sama
tíma í fyrra.
Samdrátturinn er 5,16% í alkóhól-
lítrum og samdráttur í sölu vindlinga
er 4,35%. 6,21% samdráttur varð í
söiu reyktóbaks og 2,81% samdrátt-
ur varð í sölu nef- og munntóbaks.
sölu ÁTVR
og 93 1,5%
Bjór □
Léttvín 10,1%
-9,1%
-9,5%
Sterkir drykkir
-8,20
Áfengi annað en bjór
Áfengi alls:
-5,15%
Vindlar
-2,58% [
Nef-og munntóbak -2,81%
Vindlingar -4,34%
Reyktóbak ________________________
Áfengið er hér mælt i alkóhóllftrum,
vindlar i stykkjatali en annað tóbak eftir þyngd.
Guðrún Helgadóttir, þingmaður
Alþýðubandalagsins, hóf utandag-
skrárumræðuna í gær og sagði hún
að bifreiðaeign Seðlabankans væri
nú tíu bílar áf dýrustu gerð. Hefðu
allir bankastjórar bifreiðir til einkanota
og athygli vekti að Jóhannes Nordal,
sem lét af störfum Seðlabankastjóra
í sumar, hefði enn bifreið sína til tíma-
bundinna afnota. Sagði hún að rekstr-
arkostnaður bílaflotans hefði verið 5
millj. kr. á síðasta ári.
Einar Guðfínnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, upplýsti við
. umræðumar að rekstrarkostnaður
Seðlabankans hefði lítið lækkað á
undanförnum fjórum árum en á þeim
tíma hefði bankinn keypt bifreiðir
fyrir tæpar 20 millj. kr.
Sighvatur hefur óskað eftir að fá
yfírlit yfír laun og ráðningarkjör
bankastjóra Seðlabankans og hefur
einnig sent stjórnum ríkisbankanna
og þeirra lánastofnana sem undir
ráðuneyti hans heyra bréf og óskað
eftir uppiýsingum um starfskjör og
fríðindi æðstu ráðamanna þessara
stofnana. Sagðist hann ekki telja
óeðlilegt að stjómendur þessara
stofnana tækju reglur um bílamál
ráðherra sér til fyrirmyndar.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði við umræðurnar að ríkis-
stjórnin hefði breytt reglum um bíla-
mál ráðherra, sem næðu hins vegar
ekki til ríkisbankanna. Fælu þær
m.a. í sér að nú væri skylt að auð-
kenna bíla ráðherra og reglurnar
kvæðu á um að ekki mætti kaupa
nýjan bíl fyrir hærri upphæð en 3
milljónir kr. á verðlagi um áramótin
1990-1991, þegar þær voru settar,
en að núvirði er sú upphæð tæplega
3,5_ milljónum króna.
Ágúst Einarsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að Jóhannes Nor-
dal myndi vinna að ritun á ýmsu sem
tengdist _sögu peninga- og efnahags-
mála á íslandi og fengi aðstöðu til
þess verkefnis í húsi bankans við
Bensín lækkar um 1% vegna verð- og gengisbreytinga
Áttunda skípti sem
verð breytist á árinu
BENSÍN lækkaði í verði síðastliðinn laugardag að meðal-
tali um 1%. Lækkunin er tilkomin vegna lækkandi heims-
markaðsverðs á bensíni og lækkunar á gengi Bandaríkja-
dollars. Þetta er í áttunda sinn á árinu sem verðbreyting-
ar verða á bensíni hér á landi.
Hjá Olís fengust þær upplýs-
ingar að það yrði skoðað þegar
liði á mánuðinn hvort frekari verð-
breytingar yrðu gerðar. Óstöðugt
gengi dollara og óstöðugt heims-
markaðsverð gerði það að verkum
að skoða yrði þessi mál reglulega.
Þetta verð ætti þó að haldast
óbreytt til mánaðamóta.
Innkaupsverð á gasolíu hefur
verið að hækka en hjá Olís eru
engin áform uppi um að hækka
verðið hér. Þó verður það einnig
skoðað um næstu mánaðamót.
Verð á lítra af 92 oktana bens-
íni lækkaði hjá Olís úr 66,80 í
66,10, 95 oktana úr 69,30 í 68,60
og 98 úr 72 í 72,10 kr. Hjá Olíufé-
laginu hf. lækkaði verð á lítra af
92 oktana bensíni úr 66,90 í
66,20, 95 oktana úr 69,20 í 68,60
og 98 oktana úr 72,60 í 72 kr.
Hjá Skeljungi lækkaði verð á lítra
af 92 oktana bensíni úr 66,90 í
66,20, 95 oktana úr 69,20 í 68,50
og 98 oktana úr 72,70 í 72,10 kr.