Morgunblaðið - 29.10.1993, Síða 1
80SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
246. tbl. 81. árg.
FOSTUDAGUR 29. OKTOBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mannskæðar aðgerðir SÞ í Sómalíu kalla á breytingar á hlutverki samtakanna
Vonir um að koma á friði
með vopnavaldi brostnar
New York. The Daily Telegraph.
SAMEINUÐU þjóðirnar (SÞ) hafa formlega viðurkennt að vonir
um að hægt sé að koma á friði með vopnavaldi séu brostnar,
með vísan til gangs mála í Sómalíu. Framkvæmdastjórn SÞ kom
saman á lokuðum fundi þar sem Boutros Boutros Ghali, aðalrit-
ari SÞ, gaf skýrslu eftir för sína til Sómalíu. Viðurkenndi Boutr-
os Ghali að samtökin „gætu ekki komið á friði“. Er embættismað-
ur þjá SÞ var spurður hvort það þýddi endalok slíkra aðgerða
svaraði hann því til að tímarnir væru breyttir.
„Ég tel ekki að Boutros Ghali sé
reiðubúinn að viðurkenna að SÞ
muni aldrei aftur standa að aðgerð-
um til að koma á friði með vopna-
valdi. Hann mun að sinni leggja
áherslu á friðargæslu," sagði emb-
Uppreisn
í Líbýu-
her vegna
óánægju
með laun
ættismaðurinn. Vestrænn sendifull-
trúi sagði Boutros Ghali í raun hafa
viðurkennt alkunna staðreynd, að
hugmyndin um „heimslögreglu“ SÞ
væri úr sögunni.
Niðurstaða Boutros Ghali er per-
sónulegt áfall fyrir hann, þar sem
hann lagði áherslu á árangursríkari
aðgerðir til að binda enda á styijald-
ir víðs vegar um heim. Honum var
hins vegar nauðugur einn kostur
að láta af þeirri stefnu sinni eftir
að Bill Clinton Bandaríkjaforseti
lýsti vilja sínum til að kalla heim
bandarískar hersveitir frá Sómalíu.
Alls hefur 81 friðargæsluliði látið
lífið og um 300 særst í Sómalíu.
Eru aðgerðir SÞ í landinu þær
mannskæðustu i sögu samtakanna.
Telja verður líklegt að héðan í
frá verði nýjar aðgerðir einungis
samþykktar ef hagsmunum Vestur-
veldanna er ógnað, eins og í Bosn-
íu. Aðgerðum sem nú eru í gangi,
svo sem á Kýpur, verði hins vegar
fram haldið. Sameinuðu þjóðirnar
munu einnig reyna að halda úti
hersveitum í Sómalíu en þeim verð-
ur væntanlega fækkað og umboð
þeirra endurskoðað. Fulltrúar hjá
SÞ sögðu niðurstöðuna líklega
verða í ætt við atburðina í Angóla,
en SÞ drógu herafla sinn þaðan
eftir að bardagar jukust að nýju.
Þar látast nú um 1.000 manns á
degi hveijum og er styrjöldin þar
sú blóðugasta sem háð er í heimin-
um nú.
Washington. Reuter.
BANDARÍSKA dagblaðið Was-
hingion Post skýrði frá því í
gær að Muammar Gaddafi,
leiðtogi Líbýu, væri að reyna
að kveða niður uppreisn nokk-
urra hundraða hermanna.
Blaðið hafði þetta eftir stjórnar-
erindrekum og líbýskum útlögum
í Kaíró. Þeir sögðu að uppreisnar-
mennirnir væru um 650 og hefðu
risið upp gegn Gaddafi vegna
óánægju með laun sín. Þijár her-
stöðvar væru á valdi uppreisnar-
mannanna.
Loftárásir flughersins á
uppreisnarmenn
Abdelhamid Bakoush, fyrrver-
andi forsætisráðherra Libýu, sem
býr í útlegð í Kaíró, sagði að her-
menn hefðu einnig gert uppreisn
i herstöð í grennd við höfuðborg-
ina, Tripoli, 7. október, eftir að
þeir höfðu ekki fengið laun sín
greidd í nokkra mánuði. Gaddafi
hefði látið flugherinn gera loft-
árásir á uppreisnarmennina og
hann hefði tvisvar áður barið niður
uppreisnir á þennan hátt.
Stjórnin í Líbýu hefur verið ein-
angruð á alþjóðavettvangi og á
yfir höfði sér harðari refsiaðgerðir
Sameinuðu þjóðanna þar sem hún
hefur neitað að framselja tvo menn
sem grunaðir eru um að hafa
sprengt farþegaþotu í eigu banda-
ríska flugfélagsins Pan Am í loft
upp árið 1988. Tilræðið kostaði
270 manns lífið.
Milljarðatjón af völdum skógarelda
Reuter
Reuter
RÚMLEGA 500 íbúðarhús höfðu brunnið í gær og fyrradag af völdum skógarelda í Suður-Kaliforníu
Eldur breiddist hratt út vegna hvassviðris en í gær lægði og vonast var til að her- og slökkviliði tækist
að hemja bálið. Eignatjón nemur jafnvirði tugi milljarða króna.
Sjá „Eins og himinninn logaði hvert sem litið var“ á bls. 20.
Spenna á
Norður-
*
Irlandi
Dublin, Belfast. Rauter.
STJÓRNMÁLASKÝRENDUR
búast ekki við miklum árangri
af viðræðum írska forsætisráð-
herrans, Alberts Reynolds og
Johns Majors, forsætisráðherra
Bretlands, sem verða í dag en
þeir munu ræða tillögur Dicks
Springs, utanríkisráðherra Ira,
að lausn á óöldinni á Norður-
Irlandi.
Major lýsti í gær yfir ánægju
með tillögurnar en stjórnmálaskýr-
endur segja óliklegt að til samn-
ingaviðræðna komi fyrr en þeir
sem staðið hafi að ofbeldinu sýni
vilja til að friðmælast. Mótmælend-
ur hafa drepið sex kaþólikka og
sært einn alvarlega í hefndarskyni
við sprengingu írska lýðveldishers-
■; (IRA) á laugardag en tíu manns
.etu lífið í henni. Öryggisráðstafan-
ir hafa verið hertar á Norður-
írlandi í vikunni enda óttast
óbreyttir borgarar um líf sitt í
þeirri öldu morða sem fylgt hefur
í kjölfar sprengingarinnar.
Borís N. Jeltsín skipar héruðunum
að greiða skattskuldir sínar strax
Moskvu, Genf. Reuter.
BORÍS N. Jeltsín Rússlandsforseti skipaði í gær 88 sjálfsstjórnarhéruð-
um og lýðveldum landsins að greiða þegar sambandsstjórninni í Moskvu
milljarða rúblna sem þau skulda í skatta. í tilskipun forsetans segir
að ella verði þau beitt hörðum refsingum; innflutningur og útflutning-
ur þeirra verður takmarkaður og fjárstuðningur sambandssljórnarinn-
ar skorinn niður.
Ráðamenn margra héraða studdu
andstæðinga Jeltsíns í uppreisnartil-
raun þingsins i byijun mánaðarins
og enn fleiri hafa reynt að auka eig-
in áhrif á kostnað miðstjórnarvalds-
ins í Moskvu.
Nokkur héraðanna, með hið olíu-
ríka Tatarstan í fararbroddi, hættu
alveg að greiða sambandsstjórninni
skatta fyrr á árinu. Voru ráðamenn
flestra héraðanna kosnir í embætti
sín á sovéttímanum.
Markmiðið með tilskipun Jeltsíns
er að treysta tök sín á landinu, sem
margir óttast að geti orðið sundr-
ungu að bráð, en einnig verður
stjórnin með einhveijum hætti að
bregðast við gríðarlegum halla á
ijárlögunum.
Viktor Geratsjenko, seðlabanka-
stjóri Rússlands, er enn við völd
þótt hann hafi verið talinn hand-
bendi afturhaldsmanna. Bankastjór-
inn útvegaði fram á mitt árið úrelt-
um fyrirtækjasamsteypum frá sovét-
skeiðinu lán með taumlausri seðla-
prentun og fóðraði þannig óðaverð-
bólguna. Viktor Tsjernomýrdín for-
sætisráðherra, sem vill fara mun
hægar í sakirnar en ákafir umbóta-
sinnar í ríkisstjórninni, mun vera
sammála Geratsjenko í mikilvægum
málum.
„Bolsévikkar höfðu rétt fyrir sér,
það er ekki peningastefnan heldur
einokunarfyrirtækin sem valda verð-
bólgunni“, sagði Geratsjenko nýlega
í blaðaviðtali.
Aðild að GATT?
Bandaríski hagfræðingurinn
Jeffrey Sachs, sem verið hefur ráð-
gjafi stjórnar Jeltsíns, sagði í gær
að Rússland gæti orðið aðili GATT-
alþjóðasamkomulagsins um aukið
frelsi í heimsviðskiptum á næsta
ári. Forsendurnar væru að umbótun-
um yrði haldið áfram og Vesturveld-
in legðu sig fram um að koma aðild-
inni í höfn.
Rútskoj á sjúkrahús
Alexander Rútskoj, fyrrum vara-
forseti og annar tveggja leiðtoga
byltingartilraunar þingsins fyrr í
mánuðinum, var fluttur á sjúkrahús
á miðvikudagskvöld. Hann þjáist af
of háum blóðþrýstingi en læknar
sögðu líðan hans með ágætum. ■