Morgunblaðið - 29.10.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
Fundað um kvóta- og kjaramál um allt land
Ottast að innan árs
þurfi sjómenn alls
staðar að kaupa kvóta
Akranesi. Frá Guðna Einarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
FUNDAHERFERÐ forystumanna þriggja sjómannasamtaka um
landið hófst á Akranesi í gærkvöldi. Efni fundanna eru kvótamál
og kjaramál. f máli framsögumanna í gær kom fram að verði
ekki spornað við þróuninni í kvótaleigu og kvótakaupum með
þátttöku sjómanna muni kvótakaup með þessum hætti verða tek-
in upp um allt land og flestallir sjómenn á íslandi þurfa að taka
þátt í kaupum á aflaheimildum innan árs.
Óskar Vigfússonj formaður Sjó-
mannasambands Islands, sagði
fundina vera tilraun til að koma í
veg fyrir að frumvarp sjávarút-
vegsráðherra nái fram að ganga.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags íslands, taldi stórfelld
skattsvik stunduð í viðskiptum
með kvóta. „Beiji sjómenn þetta
ekki af sér verða engir kjarasamn-
Upplag Morg-
unblaðsins
51.235 eintök
í SAMRÆMI við reglur upp-
lagseftirlits á vegum Verslun-
arráðs íslands hefur trúnað-
armaður þess, Reynir Vignir,
löggiltur endurskoðandi,
sannreynt upplag Morgun-
blaðsins í mánuðunum júní,
júlí og ágúst í ár.
Niðurstaðan er sú að meðal-
talssala blaðsins var 51.235 ein-
tök á dag. Á næstu þremur
mánuðum á undan var meðal-
talssalan 52.838 eintök á dag.
Meðaltalið á þessu sex mánaða
tímabili öllu var því 52.365 ein-
taka sala á dag.
Að svo stöddu nota ekki önn-
ur dagblöð þjónustu eftirlits um
staðfestingu upplags síns.
ingar eftir stuttan tíma,“ sagði
hann.
Barátta fyrir gýg
Guðjón A. Kristjánsson, formað-
ur Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands, sagði samtökin vilja
stöðva kvótabraskið. „Ef sjómönn-
um tekst ekki að stöðva þessa
þróun er öll okkar kjarabarátta
undanfarin fimmtán til tuttugu ár
unnin fyrir gýg,“ sagði hann. Guð-
jón taldi að gefa ætti fijálsa sókn
í ýsu og skarkola strax í upphafí
kvótaárs því að ekki næðist að
veiða kvótann í núverandi kerfi.
Hann taldi einungis að stjórnunar
á fískveiðum væri þörf á þorski,
ufsa, karfa og grálúðu.
unglingadegi
MIKIL þátttaka var í unglingadegi
í Kópavogi í gær. Meðal annars fjöl-
menntu unglingamir til að fylgjast
með umræðum sveitarstjórnar-
manna og unglinga um ýmis mál-
efni, sem snerta unglinga, en fund-
urinn var í félagsheimilinu. í gær-
kvöldi brugðu unglingarnir undir
sig betri fætinum og skunduðu á
dansleik í félagsmiðstöðinni Ekkó.
Davíð Oddsson forsætisráðherra um ágreining í sjávarútvegsmálum
Bæði málin lögð fram en
Þróunarsjóður hafi forgang
HM landsliða í skák
*
Islandtap-
aði gegn
Úkraínu
ÍSLENSKA landsliðið tapaði í
gær með IV2 vinningi gegn 2Vi
fyrir Úkraínumönnum á heims-
meistaramóti landsliða í skák í
Luzem í Sviss.
ívantsjúk vann Margeir og Rom-
ansjín vann Hannes Hlífar en Karl
Þorsteins vann Frolov. Helgi og
Malanjuk gerðu jafntefli.
íslendingar eru í áttunda sæti
af tíu landsliðum á með 8V2 vinn-
ing. Bandaríkjamenn hafa forystu
á mótinu með 12'/2 vinning. Lettar
hafa 12 vinninga.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að í sumar hafi ríkisstjórain
samþykkt að frumvarpið um Þróunarsjóð sjávarútvegsins yrði lagt
fram í upphafi þings og afgreitt með hraði. „Hugsunin á bak við
þessa ákvörðun var sú, að frumvarpið þyrfti ekki að bíða eftir af-
greiðslu frumvarps til laga um stjórn fiskveiða, því það væri flókn-
ara og tæki lengri tima. En við sjálfstæðismenn höfðum jafnframt
þann skilning að bæði málin yrðu lögð fram í upphafi þings, sem
stjórnarfrumvörp," sagði Davíð í samtali við Morgunblaðið í gær.
Forsætisráðherra sagði að þegar
þetta hefði verið ákveðið, hefðu
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins ekki
haft hugmynd um að inn í ríkis-
stjóm ætti eftir að koma ráðherra,
sem væri andvígur öðm málinu,
þ.e. frumvarpi til laga um stjómun
fískveiða. „Við töldum það því bara
vera formsatriði að fá málin saman
inn í þingið, þótt afgreiða bæri fyrst
þróunarsjóðsmálið. Málið hefur nú
tekið breytingum að því leyti, að
stjómarfmmvarp, sem hafði verið
samþykkt, stoppar allt í einu nú í
ríkisstjórn,“ sagði Davíð.
í yfírlýsingu ríkisstjórnarinnar
um aðgerðir til að mæta aflasam-
drætti frá því 27. júní í sumar seg-
ir m.a.: „Fmmvarp til laga um
stofnun Þróunarsjóðs sjávarútvegs-
ins verður lagt fram strax í upp-
hafí þings og afgreitt sem sjálf-
stætt þingmál og forgangsmál..."
Á að afgreiða bæði málin
Forsætisráðherra var spurður
hvort orðalag yfírlýsingarinnar frá
því í sumar, væri ekki á þann veg,
að litið gæti út fyrir að sjálfstæðis-
menn væru að ganga á bak orða
sinna: „Nei, það er alls ekki hægt
að túlká þetta með þeim hætti. Nú
er það gefið í skyn af ákveðnum
mönnum, að fiskveiðifrumvarpið
þyrfti ekki að koma fram í þinginu.
Það er náttúrlega alls ekki um það
að ræða, heldur var gengið út frá
því sem vísu að fiskveiðistjórnar-
frumvarpið tæki mun lengri tíma í
meðförum þingsins en þróunar-
sjóðsfmmvarpið. í fyrra var sam-
þykkt á þinginu að afgreiða ekki
þróunarsjóðsfmmvarpið fyrr en hitt
væri orðið að lögum um leið. Það
var bara þessi tenging sem við
breyttum í sumar og skildum á
milli málanna. Bæði framvörpin
höfðu komið fram og það er ekkert
annað en formsatriði að svona
fmmvörp gangi aftur inn í ríkis-
stjóm, en þá kom bara fram breytt
viðhorf, því kominn var inn nýr
ráðherra sem var á móti málinu,
og heldur því fram að það eigi ekki
að leggja fískveiðiframvarpið fram.
Það er náttúrlega vitleysa. Það á
að afgreiða þróunarsjóðsfmmvarp-
ið, óháð því hvort hitt sé afgreitt á
sama tíma. Þetta eru hvort tveggja
stjómarframvörp og auðvitað á að
afgreiða þau bæði,“ sagði Davíð.
Forsætisráðherra sagði menn
gera sér mætavel grein fyrir því,
að bæði þessi frumvörp kynnu að
taka breytingum í meðfömm þings-
ins, og þá sérstaklega fiskveiði-
frumvarpið.
í dag
Ný kvikmynd Hrafns
Hin helgu vé frumsýnd í Reykjavík
í kvöld 18
Eldhaf í skógum Kaliforníu
500 hús brunnin, tjón nemur miilj-
örðum en íslendinga hefur ekki
sakað 20
Vsk. hækkar ekki bókaverðið
Útgefendur taka á sig 14-20%
skattinn 22
Leiöari
Vextir og atvinnulíf 22
AJþjdóleg
Fosteignir
► Byggt í skörðin í miðborginni
- Orgelsmíði - Innan veggja heim-
ilisins - Lagnafréttir - Mann-
virkjaþing
Daglegt líf
Fatlaðir til Portúgals - Svefn-
truflanir barna - Hjónabandið -
Fatahönnuður - Ást í bókabúð-
um - Suður-Afríka - Flugfélags-
blöð
Fékk riffilskot í höfuðið á bæjarhlaðinu
Leit niður og kúlan
straukst við hnakkann
KJARTAN Pálsson bóndi í Vaðnesi í Grímsnesi fékk riffilskot í
höfuðið á bæjarhlaðinu á miðvikudag. Hann var að ganga niður
tröppur en leit niður fyrir sig og segist þess vegna ekki hafa
fengið skotið í ennið heldur straukst það frá hvirfli eftir hnakkan-
um og skildi eftir skurð sem sauma þurfti með 14 sporum á sjúkra-
húsi. Hvorki Kjartan né nærstödd kona hans heyrðu hvell og ekki
er vitað hvaðan skotið kom né úr hvaða byssu. Talið er að það
gæti hafa komið allt að 2 km leið og að um gáleysisverk hafi
verið að ræða.
„Hver var að henda í mig?“
„Það var feiknahögg sem ég
fékk þegar þetta kom allt í einu í
hausinn á mér,“ sagði Kjartan í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Ég varð illur og sagði: „Hver
andsk. var að henda í mig?“ Við
heyrðum engan hvell og datt ekki
fyrst í hug að þetta hefði verið
skot.“ Þau hjónin sáu heldur enga
skyttu í grenndinni þannig að víst
er talið að skotið hafi komið úr
mikilli fjarlægð. Strax blæddi úr
Kjartani og honum var ekið á
sjúkrahúsið á Selfossi þar sem gert
var að sárinu. Hann kvaðst frnna
til í skurðinum, saumamir tækju í
og sárið væri bólgið en kvaðst
þakka fyrir þá mildi að ekki fór
verr. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar á Selfossi heyrðu
menn sem vom að vinna við Hraun-
borgir sem em í skotlínunni byssu-
skot síðdegis á miðvikudag og sáu
ijúpnahóp sem tók flugið undan
skotunum.
Varúð í sumarbústöðum
Kjartan Pálsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að því miður
væri það svo að margir skotveiði-
menn virðast lítið hirða um boð og
bönn 0g oft hafi hann þurft að
stugga við mönnum sem æði inn á
einkalönd með þéttri sumarbú-
staðabyggð og skjóti jafnvel út um
bílglugga. Kjartan kvaðst vilja
beina varnaðarorðum til þeirra sem
væru á þessum tíma í sumarbústöð-
um, sem skipta tugum í landi Vað-
ness, og ætluðu út að ganga í nátt-
úrunni og einnig hvetja skotmenn
til þess að vera ekki við veiðar í
grennd við svæði þar sem manna-
ferða væri alltaf að vænta.
Lögreglan á Selfossi biður þá
sem einhveijar upplýsingar geta
gefið um málið að hafa við sig
samband.