Morgunblaðið - 29.10.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
7
Forsætisráðherra
segir að heilsukort-
in verði gefin út
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra kveðst líta svo á að Friðrik Soph-
usson fjármálaráðherra og Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðis-
ráðherra muni greiða úr þeim misskilningi sem upp sé kominn um
afstöðu sjálfstæðismanna í ríkissljórn til heilsukorta. „Eg lít þann-
ig á að við höldum okkur við upphaflegt samkomulag og heilsu-
kort verði gefin út,“ sagði forsætisráðherra í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Forsætisráðherra bendir í þessu stjórnarinnar, en ekki á flokks-
samhengi á að þegar Alþýðufiokk- þingum.“
urinn hélt flokksþing sitt hafi þar „Guðmundur Árni kýs að túlka
verið samþykkt nokkur atriði, sem þessa samþykkt landsfundarins
ekki stemmdu við stjórnarsáttmála með þessum hætti, og þeirri túlkun
ríkisstjórnarinnar. erum við ósammála. Ef menn
„Okkur datt ekki í hug að fara skoða ræður okkar íjármálaráð-
að telja að slíkt hefði það í för herra á þingi og viðtöl við okkur,
með sér, að um einhvetja breytingu þá kemur þar fram að það er al-
hefði orðið að ræða á okkar stjórn- gjörlega ljóst að þetta hefur ekki
arsamkomulagi,“ sagði Davíð, „því áhrif á okkar framgang í málinu
að slíkt gerist á vettvangi ríkis- hér,“ sagði Davíð.
Borgarísjaki við Grímsey
FOKKER-flugvél Landhelgisgæzlunnar fór í ískönnunarflug í gær. Borgarísjaki sást norð-vestur af Gríms-
ey og einnig var íshrafl undan norðanverðri eynni, sem náði um fjórar sjómílur í norðaustur. Er það talið
hættulegt skipum í myrkri og slæmu skyggni. Menn telja að mörg ár séu síðan ís hefur sést jafn austarlega
á þessum slóðum.
Refir áber-
andi á slóð-
um rjúpna
RJÚPNASKYTTUR víða um
Iand felldu marga refi fyrstu
daga rjúpnaveiðitímabilsins. I
Súgandafirði voru felldir þrír
refir á tveimur dögum og ekið
yfir þann fjórða.
í Hestfirði elti rjúpnaskytta ref
en refurinn slapp með skrekkinn.
Ernir, fálkar og smyrlar eru mjög
áberandi á Vestfjörðum og eru
þessir ránfuglar dagleg sjón ijúpna-
skyttna. Refaslóðir eru þvers og
kruss upp um afla dali og heiðar,
og að sögn kunnugra meira en oft
áður. Ekki má gleyma hrafninum
sem keppist við ránfuglana um að
finna dauða eða auðvelda bráð.
-----♦-------
28 milljónir
fyrir leikskóla
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka rúmlega 28 milljón króna
tilboði lægstbjóðanda, Magnúsar
G. Jenssonar, í endurbyggingu
tveggja húsa fyrir leikskóla við
Lindargötu. Er það 81,97% af
áætlun hönnuða.
Fimm aðilum var gefinn kostur
á tilboði í verkið. Næst lægsta boð
átti Sigurður Guðmundsson, sem
bauð tæpar 28,4 millj. eða 82,72%
af áætlun. Gunnar Dagbjartsson
bauð rúmar 28,6 millj. eða 83,70%
af áætlun, Sigurgeir Tómasson
bauð tæpar 29 millj. eða 84,63%
af áætlun og Byggingarfélag Ás-
munds og Halls hf., bauð 31,8 millj.
• eða 93,07% af áætlun.
Bókmennta-
verðlaun
Tómasar
« VEGNA fréttar af Bók-
menntaverðlaunum Tóinasar
Guðmundssonar, sem
Reykjavíkurborg hyggst
veita næstu þijú ár, er rétt
að taka fram að verðlaunin
eru veitt í tilefni þess að 60
ár eru liðin frá útkomu bók-
arinnar Fagra veröld.
Ljóðabókin kom út árið 1933
'' og veitti bæjarstjórn Reykja-
víkur skáldinu ferðastyrk í við-
urkenningarskyni árið 1935.
Fyrsta bók skáldsins, Við sund-
in blá, kom hins vegar út árið
1925.
Ráðstefha um atviimu og byggð í Hafnarfírði
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar býður hér
með til ráðstefnu um atvinnumál,
atvinnuhorfur og aðgerðir til nýrrar
sóknar í atvinnumálum Hafnfirðinga.
Ráðstefnan verður haldin
3. nóvember n.k. í veitingahúsinu
Hraunholti, Dalshrauni 15, Hf.
Ráðstefnan hefst kl. 8:30 með
sameiginlegum morgunverði
og lýkur um kl. 17:30.
Ráðstefnan er öllum opin; þeir sem
vilja láta til sín taka og bera hag
atvinnumála í Hafnarfirði fyrir brjósti
eru eindregið hvattir til að mæta.
Ráðstefnustjóri:
Árni Hjörleifsson.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku
á skrifstofu bæjarins,
í síma 53444, fyrir kl, 16:00,1. nóv. n.k.
DAGSKRÁ:
Kl. 8:30 - Ráðstefnan sett.
Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
- Morgunverður.
VOR '93 - Hvað svo? Steen Johansson.
Atvinnumál frá sjónarhóli bæjaryfirvalda.
Ingvar Viktorsson bæjarstjóri.
Atvinnulífið, möguleikar til sóknar.
Framsaga: Atli Ólafsson, Meistarafél. iðnaðarm. Guðríður Elíasdóttir,
Verkakv.fél. Framtíðin, Helgi Vilhjálmsson, Sælgætisgerðin Góa,
Páll Pálsson, Ferðamálan. Hafnarfjarðar.
Nýsköpun í atvinnulífinu.
Hallgrímur Jónasson, Iðntæknistofn.
Fyrirtækjanet. Kristján Jóhannsson í verkefnastjórn.
- Hádegisverður.
Viðhorf atvinnurekenda.
Anton Bjarnason, Glerborg hf.
Atvinnulífið, möguleikar til sóknar - framhald.
Framsaga: Garðar Smári Gunnarsson, Sjólastöðin, Ingimar Haraldsson,
Sparisj. Hafnarfj., Grétar Þorleifsson, Fél. byggingariðnaðarm. og Unnur
Helgadóttir, Versl.m.fél. Hafnarfj.
Pallborðsumræður/Almennar umræður.
Skipað í starfshópa, sem ætlað er að vinna áfram að málaflokkum.
Árangursmat/Framhald umræðunnar.
Ráðstefnuslit.
BÆJARSTJÓRINN
í HAFNARFIRÐI