Morgunblaðið - 29.10.1993, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
Tilboð^
í helstu verslunurn^
meðan á sýningu í Perlunni stendur 27.-31. okt.
Kólumbus
Kólumbus er stórskemmtilegur
leikur þar sem stillur og
stormar, kænskubrögð,
heppni og hugkvæmni ráða
úrslitum. Þetta spil gæti Leifur
heppni hafa samiS!
Meistari
völundarhússins
Meistari völundarhússins er
taugatrekkjandi kapphlaup
um nornajurtir,
hauskúpumosa og kristalla í
síbreytilegu völundarhúsi þar
-sem hægur vandi er aS
villast.
Spretthlaup
dýranna
Apann langar helst í stóran
banana. Hundurinn nagar
girnilegt bein. Músin nartar í
ostbita. Dýrin taka á sprett
og þjóta af staS ef þau fá
uppáhaldsmatinn sinn.
Segöu sögu
SegSu sögu er skapandi
minnis- og söguleikur sem
reynir á hugmyndaflugiS.
Otæmandi brunnur af
ósögSum sögum fyrir
hugmyndaríkasta
aldurshópinn.
Kapphlaupid að
kalda borðinu
KapphlaupiS aS kalda
borSinu er ótrúleg barátta um
bestu bitana og þurfa menn
aS vera heppnir í
teningakasti og óragir viS aS
notfæra sér andstæSinginn
vilji þeir sigra. Hinir geta
náttúrulega fariS í ísskápinn.
Svarti Pétur
Einhver mesti óþokki
spilasögunnar. Þegar allir
hafa komiS sínum
samstæSum í borS, þá situr
einn uppi meS Svarta Pétur.
Og þá er útlitiS dökkt því
viSkomandi fær svart strik á
nefiS.
Margar aðrar
gerðir
Fyrir stór börn, lítil böm,
smærri börn og smábörn.
Pabba og afa, ömmu og
mömmu. Einföld eSa flókin,
stutt eSa tímafrek.
Því ekki aS slökkva á
sjónvarpinu og tala hreint út?
Leggja spilin á borSiS!
Ravensburger merkið er á öllum þessum spilum,
en merkið nýtur mikillar virðingar í spilaheiminum.
Svo framarlega sem kornabörn spili ekki Kolumbus
eða prófessorar Svarta Pétur, þá tryggir
Ravensburger skemmtileg og vönduð spil.
Samdráttarsjóður sjávarútvegsins
TÍMASKEKKJA
eftir Steingrím
J. Sigfússon
Ríkisstjórn Isiands hefur á borðum
sínum þessa dagana frumvarp til
laga um einn mesta stórsjóð íslands-
sögunnar. Fyrirbærinu hefur verið
gefið nafnið þróunarsjóður sjávarút-
vegsins, en er þegar betur er að gáð
kynlegur bastarður og stendur engan
veginn undir nafni. I reynd er verið
að slengja saman undir einn hatt og
eina stjóm þremur mismunandi sjóð-
um en fyrst á að taka 4 milljarða
að láni til að borga mönnum fyrir
að draga saman í sjávarútvegi. Sam-
dráttarsjóður er því rétta nafnið á
þessum tugmilljarða sjóði ríkisstjórn-
ar Davíðs Oddssonar sem fyrr á öld-
inni skar upp herör gegn því sem
hún kallaði „sjóðasukk". í samræmi
við lýðræðishefðir, valddreifingarvið-
leitni, einkavæðingu og minni af-
skipti hins opinbera af atvinnu-
rekstri, handvelur svo ráðherra tvo
af þremur sjóðskommisörum, án til-
nefningar og skipar formann.
Við þetta mikla sjóðasamsull
vakna ýmsar áleitnar spurningar.
Svo sem hvort hyggilegt sé eða rétt-
lætanlegt að skattleggja þau sjávar-
útvegsfyrirtæki sem starfandi eru í
dag, eða verða það frá og með 1996,
vegna liðinna erfiðleikaára í grein-
inni? Hvort tilfærsla milli þátta í
greininni, veiða og vinnslu, sem að
hluta til fara fram innan allsóskyldra
fyrirtækja, sé sanngjörn eða hvort
mikið sé yfirleitt að marka stefnu-
mörkun núverandi ríkisstjórnar um
gjaldtöku, sem koma á til fram-
kvæmda á miðju næsta kjörtímabili.
Miklu stærst er þó sú spuming
hvort sjálf grundvallarhugsun frum-
„Umframafkastageta í
flotanum, sem er lög-
gilt stofnanamál yfir
stóran flota sem hefur
of lítið að gera, skapar
þrýsting á að nýrra
verkefna sé leitað. Sé
þessi afkastageta jafn
harðan úrelt, með öðr-
um orðum, borið á
menn fé til að fá þá til
að taka skipin úr um-
ferð í stað þess að leita
nýrra verkefna, þarf
ekki að sökum að
spyija.“
varpsins sé rétt. Er það brýnasta
verkefni íslenska þjóðarbúsins nú um
stundir að taka 4 milljarða að láni
(væntanlega erlendis) til að draga
saman í sjávarútvegi. Lítum nánar á
það.
Of stór floti?
Ein helsta röksemdin fyrir þessum
aðgerðum hefur verið og er sú að
flotinn sé of stór. Tuggan er gamal-
kunn, en ekki alltaf að sama skapi
vel rökstudd eða útskýrð. Er til dæm-
is einhver tiltekinn hluti flotans sér-
staklega hafður í huga, eru það trill-
ur, vertíðarbátar, togbátar, frysti-
skip, nótaskip o.s.frv. sem eru of
stór, eitthvað af þessu eða þetta allt
saman, eða er það einfaldlega heild-
artonnafjöldinn sem er of mikill og
skiptir þá sóknarmynstrið engu máli? i
Er aflamarkið þá eftir allt saman
svona gagnslítið stjórntæki að til við-
bótar því og öllum reglum um veiðar- .
færi, möskvastærðir o.s.frv. öllum *
lokununum og eftirlitinu skuli einnig
þurfa að takmarka stærð flotans?
Átti ekki, hér einu sinni, hin ósýni-
lega hönd markaðarins á grundvelli
hreyfanleika veiðiheimildanna að
leysa slík vandamál?
Greinarhöfundur var vissulega í
hópi þeirra sem taldi líkt og flestir
fyrir nokkrum árum síðary að minnk-
andi aflamöguleikum á Islandsmið-
um væri að líkindum hagkvæmast
að mæta að hluta til með einhverri
minnkun flotans. Ég efast nú um að
sú hugsun hafi yfir höfuð verið rétt
eða a.m.k. að hún sé það í dag. Til
viðbótar breyttri nýtingu flotans sem
frá upphafi var að mínu mati rétt .
að stuðla að þegar horfði til minnk-
andi veiði, einkum á þorski, hafa nú
komið breyttar aðstæður:
1. Með hlutfallslega stærri flota mið- I
að við afla átti að og hefur vonandi
að einhveiju leyti tekist að auka
gæði hráefnisins sem að landi kemur I
og þannig halda í horfinu hvað verð-
mæti snertir.
2. Þegar afli dróst saman af hefð-
bundnum tegundum eins og þorski
lá á borðinu að reyna að nýta af-
kastagetu sem við það losnaði, til
að hefja sókn í nýjar tegundir eða
auka sókn í aðrar vannýttar. Þetta
hefur í stórum stíl gerst á undanförn-
um árum eða hefur ekki rækja á
skömmum tíma orðið önnur mikil-
vægasta útflutningstegundin? Ekki
syndir hún sjálf á land.
3. Reynslan virðist sýna og mátti svo
sem ljóst vera að þegar stofn minnk-
ar þarf hlutfallslega meira fyrir því
jffjj Pér er boðið
FJ á sýningu 02
mmm rynrlesuir
Á morgun kl. 15.00 hefst í Kringlunni sýning
á árangri nokkurra fyrirtækja sem eru
þátttakendur í verkefninu Vöruþróun '92.
Iðnaðarráðherra Sighvatur Björgvinsson
flytur ávaip og opnar sýninguna.
Sýningin stendur til 4. nóvember 1993.
Við opnun sýningarinnar heldur hinn þekkti
markaðsmaður
(Q) iðnlánasjóður Iðntæknistofnun
ffmW o/lf/MdOW
fyrirlestur um markaðsmál
i