Morgunblaðið - 29.10.1993, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
15
Steingrímur J. Sigfússon
að hafa að ná tilteknu magni (fiski-
stofn er ekki kolabingur sem hægt
er að ganga að vísum til að moka
úr, mikið eða lítið eftir atvikum, en
með föstum afköstum á klukkutím-
ann). Það er ekki þar með sagt að
eftir sem áður geti ekki verið hag-
kvæmt að breyta hlutfallslega stærri
flota til að ná því magni sem stofn-
inn er talinn þola, a.m.k. ef menn
hafa ekki að öðru að hverfa.
4. Umframafkastageta í flotanum,
sem er löggilt stofnanamál yfir stór-
an flota sem hefur of lítið að gera,
skapar þrýsting á að nýrra verkefna
sé leitað. Sé þessi afkastageta jafn
harðan úrelt, með öðrum orðum,
borið á menn fé til að fá þá til að
taka skipin úr umferð í stað þess að
leita nýrra verkefna, þarf ekki að
sökum að spyija.
5. Nú blasir sú staðreynd hins vegar
við að íslenskum skipum hefur tek-
ist, og er í stórauknum mæli að tak-
ast á þessu ári, að afla sér nýrra
verkefna við veiðar utan landhelgi
íslands. Svo getur farið að aflaverð-
mæti slíkra veiða verði á þessu ári
af stærðargráðunni 2,5-4 milljarðar
króna eftir því hvernig gengur það
sem eftir er ársins í smugunni í
Barentshafi, á Flæmska hattinum, á
Reykjaneshrygg og e.t.v. víðar. Mik-
il umræða fer nú fram meðal útgerð-
armanna og skoðun á mörgum fleiri
möguleikum, en þeim sem hér voru
taldir.
6. Flest síðastliðin ár hefur útgefinn
aflakvóti ekki náðst í einhverjum, og
jafnvel mörgum tegundum, svo sem
rækju, loðnu, síld, grálúðu o.s.frv.
7. Við hljótum að binda vonir við að
ekki líði mjög mörg ár þar til afli
taki að aukast á nýjan leik á okkar
hefðbundnu miðum. Reynslan úr
Barentshafinu að undanförnu sýnir
að slíkar breytingar geta gerst með
skjótum hætti, en eins og kunnugt
er eru fáein ár síðan talað var um
þörfina á að jafnvel alfriða það um
skeið sökum ástands þorskstofnsins.
Aukinn afli, ef við segjum í bjart-
sýni, að 3-4 árum liðnum mun vænt-
anlega kalla á aukin afköst í veiðum
og þó ekki síður vinnslu, ef við eigum
ekki að missa hann lítt unninn eða
óunninn úr landi og falla í viðjar
„magn“ hugarfarsins á nýjan leik.
Einstöku sinnum að undanförnu
hefur greinarhöfundur heyrt frá
skoðanabræðrum hugmyndir um að
stjórnvöld eigi að ýta undir eða jafn-
vel beinlínis skylda stærstu og öflug-
ustu skipin til að leita verkefna á
djúpmiðum og utan landhelgi a.m.k.
hluta úr árinu. Æskilegast er að
sjálfsögðu að slíkt gerist á frjálsum,
grundvelli, en hitt er ljóst að hin
blinda úreldingarstefna gengur í
þveröfuga átt. Nýjustu, stærstu og
öflugustu skipin verða eðlilega eftir,
eða segjum öllu heldur, koma í stað
hinna sem hverfa og yfirtaka verk-
efni þeirra innan landhelginnar.
Hver á að hafa vit fyrir
hverjum?
Megin niðurstaða mín er sú að það
sé allt of mörgum spurningum ósvar-
að varðandi samdráttarsjóð sjávarút-
vegsins til þess að rétt sé að festa
hann í sessi með hækkuðu styrkhlut-
falli úr 30% í 45% og 75 milljóna
hámarksupphæð í stað 50 áður, hvað
fiskiskipin varðar, og með tiltölulega
einhliða áherslu á samdrátt eða úr-
eldingu í stað uppbyggingar.
í öðru lagi sé handhófskennd eða
„blind“ minnkun flotans sem leggur
að jöfnu tonnin í, dagróðrabátum,
togurum eða nótaskiptum vistfræði-
lega og efnahagslega hæpni í meira
lagi. Er t.d. gáfulegt að menn geti
úrelt loðnuskip, sem að margra dómi
eru orðin ískyggilega fá miðað við
að ná með sæmilegu öryggi leyfðum
afla, og keypt í staðinn togara?
í þriðja lagi sé miklu meiri þörf
fyrir nýtt fé inn í greinina til upp-
byggingar og aukinnar verðmæta-
sköpunar en öfugt. Þróunarsjóður
sem stendur undir nafni verður því
f.o.f. að styrkja menn til nýsköpunar
og þróunar í formi sérhæfingar,
tæknivæðingnr, bættrar meðferðar
afla, aukinnar fullvinnslu, veiða á
ónýttum eða vannýttum tegundum,
veiða á djúpslóð og fjarlægum miðum
o.s.frv. Sjávarútvegurinn er sagður
skulda um 110 milljarða um þessar
mundir og hvemig í ósköpunum á
hann að hafa minnstu von um að
standa undir því (og fjármagna alla
úreldinguna með iðgjöldum og veiði-
leyfagjöldum framtíðarinnar) öðru-
vísi en að láta þá fjárfestingu sem
orðin er vinna fyrir sér.
Enn er það að nefna að úreldingar-
peningarnir eru sýnd’veiði en ekki
gefin fyrir útgerðina sjálfa til eigin
nota. Skyldu nú ekki lánadrottnar,
sjóðir og bankar sem veð eiga í skip-
um og eignum ætla sér sinn hlut?
í fjórða lagi er úrelding fisk-
vinnsluhúsa, sem flest eru væntan-
lega þegar tóm og það án þess að
slík starfsemi verði þá bundin leyfum
og takmörkuð líkt og veiðarnar, afar
torskilið fyrirbæri a.m.k. hvað fram-
kvæmd snertir. Styrkir sem færu til
að sérhæfa hús og útbúa vannýtt
húsnæði til fullvinnslu í neytenda-
pakkningar væru nær lagi við núver-
andi aðstæður í efnahagslegu jafnt
sem atvinnulegu tilliti.
I fimmta og síðasta lagi vantar
með öllu þann stefnugrundvöll, nýja
hugsun, þá framtíðarsýn, þá heild-
stæðu sjávarútvegsstefnu, er tekur
jafnt til veiða og vinnslu, sem úreld-
ingin verður að vera hluti af eigi hún
að skila árangri. Allra síðast og síst
mega menn svo horfa framhjá þeirri
staðreynd að það eru ákvarðanir í
atvinnugreininni sjálfri um hagræð-
ingu, um að auka tekjurnar og/eða
draga úr tilkostnaði, þar með talið
aðlaga afkastagetuna að raunhæfum
möguleikum, sem skipta sköpum um
útkomuna.
Ég veit satt best að segja ekki,
þegar ég fer að hugsa málið, hvaðan
mönnum kemur sú speki að íslenskir
útgerðarmenn muni halda áfram
fram í rauðan dauðann að gera út
alltof stóran flota löngu eftir að það
er orðið óhagkvæmt og engin verk-
efni að hafa, nema stjórnvöld hafi
vit fyrir þeim um að hætta því.
Árgerð '94 af SONATA er gjörbreyttur.
Nýr bíll, nýtt útlit og glæsilegri og öflugri
en áður. Bíllinn er búinn 2.0 lítra,
139 hestafla vél sem skilar góðri snerpu.
SONATA er með vökva- og veltistýri,
rafdrifnum rúðum og útispeglum,
samlæsingu og styrktarbitum í hurðum.
^ .
Vcrð frd 1.577.000 i<r.
Að auki eru vönduð hljómflutningstæki
með 4 hátölurum.
3ja ára ábyrgð og 6 ára ryðvarnarábyrgð.
Komið og setjist undir stýri þessa
glæsilega bíls, þá finnið þið það sem við
erum að tala um!
Ódýrasti bíllinn í sínum flokki
HYUNDAI '94 S0NATA 2,0 GLSi H0NDA '93 ACC0RD 2,0 MIVIC '93 GALANT 2,0 GLSi ‘93 MAZDA 626 GLXi T0Y0TA '94 CARINA 2,0E GLi
VERÐ 1.577.000 1.995.000 1.962.000 1.895.000 1.734.000
RÚMTAKVÉLAR 1997 1997 1997 1991 1998
HESTÖFL 139 112 137 116 133
ÞYNGD 1307 1225 1270 1175 1185
LENGD 4680 4700 4620 4695 4530
BREIDD 1751 1695 1730 1750 1695
HÆÐ 1408 1390 1395 1400 1410
SONATA
þolir allan
samanburð
HYunom
...til fratntidar
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
Höfundur er varaformaður
Alþýðubandalagsins ogásæti í
efnahags-, viðskipta- og
sj&varútvegsnefndum Alþingis.
NOTUM GROFMYNSTRUÐ VETRARDEKK.
HÖGUM AKSTRI EFTIR AÐSTÆÐUM
GATNAMALASTJORI