Morgunblaðið - 29.10.1993, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
27
Hjörtur Magnús-
son — Minning
Fæddur 7. október 1914
Dáinn 19. október 1993
Hinn 19. þ.m. lést á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli ástkær frændi minn
og tryggur vinur, Hjörtur Magnús-
son. Mig langar að kveðja hann
með örfáum orðum.
Hjörtur var búinn að stríða við
langvarandi veikindi og kom and-
látsfregn hans mér því ekki að óvör-
um. Engu að síður er dauðinn ávallt
köld staðreynd sem erfitt er að
sætta sig við. Hjörtur var einstakt
ljúfmenni, lipurmenni og sérlega
tryggur. Hann var líka tilbúinn að
rétta fram hjálpandi hönd, þegar
hann sá að hann gat orðið að liði.
Ég er ákaflega þakklátur fyrir að
hafa kynnst jafn göfugum og góð-
um_ manni.
Ég gleymi því aldrei þegar ég
þurfti sem ungur maður að fara í
skóla í íjarlægt hérað til að búa
mig undir framhaldsnám, þá kom
Hjörtur með lindarpenna áletraðan
með nafni mínu og gaf mér. Þennan
penná á ég enn og hef geymt sem
dýrmæta vinargjöf.
En það voru ekki aðeins skyld-
menni hans sem nutu þessara dýr-
mætu eiginleika hans. Hann var
vagnstjóri hjá SVR í fjöldamörg ár
og kynntist þá fjölda manns í starfi
sínu. Þar, sem annars staðar, komu
þessir eiginleikar hans vel í ljós,
ljúfmennskan og lipurðin. Hann
taldi ekki eftir sér að hinkra örlítið
þegar einhver var seinn fyrir og
___________Brids_____________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Breiðfirðinga
Fimmtudaginn 21. október var spil-
að 3. og síðasta kvöldið í þriggja
kvölda hraðsveitakeppni. Meðalskor
var 504 og bestum árangri náðu:
Jón Stefánsson 543
Guðlaugur Sveinsson 538
Ljósbrá Baldursdóttir 538
Úrslit Hraðsveitakeppninnar urðu
þannig:
Guðlaugur Sveinsson 1.678
Ljósbrá Baldursdóttir 1.643
Jón Stefánsson 1.561
Ingibjörg Halldórsdóttir 1.543
Sigríður Pálsdóttir 1.532
Fimmtudaginn 28. október byijar
aðaltvímenningur félagsins, veitt
verða vegleg verðlaun fyrir þijú efstu
sætin, auk þess sem veitt verða sér-
stök verðlaun fyrir besta árangur
hvers kvölds.
Vetrar-Mitchell BSÍ
Föstudaginn 22. október var spilað-
ur tölvureiknaður Mitchell. 36 pör
spiluðu 15 umferðir með tveimur spil-
um á milli para. Meðalskor var 420.
og bestum árangri náðu:
NS
hefði ekki náð vagninum nema fyr-
ir þessa lipurð Hjartar.
Það var gott að koma í Ásgarð-
inn en þar áttu þau hjónin íbúð,
fallegt heimili, og bjuggu þar lengst
af. Þau voru samhent hjón Adda
og Hjörtur. Þar var ávallt tekið á
móti manni með sama hlýja viðmót-
inu.
Við hjónin vottum Öddu, dætrun-
um og öllum öðrum ástvinum inni-
lega samúð okkar og biðjum Guð
að styrkja ykkur í harmi ykkar.
Sigurður Bjarnason.
í dag, föstudaginn 29. október,
verður faðir okkar Hjörtur Magnús-
son fyrrverandi vagnstjóri hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur borinn
til hinstu hvíldar. Hann var fæddur
7. október 1914, og varþví nýlega
orðinn 79 ára gamall. Á hans 79
árum veitti hann mörgum gleði og
viljum við með þessum pistli minn-
ast hans og þakka honum öll góðu
árin.
Hann var fæddur og uppalinn í
Hrútsholti í Eyjahreppi á Snæfells-
nesi, sonur hjónanna Önnu Sigur-
brandsdóttur og Magnúsar Þórar-
inssonar og var eitt af þrettán
systkinum. Fimm systkinanna eru
enn á lífi, Júlíus tvíburabróðir hans,
Guðjón, Guðmundur, Kristján og
María. Hugur pabba stóð ætíð til
heimahaganna, jafnvel eftir langa
búsetu í Reykjavík, og léttist á hon-
um brúnin er minnst var á sveitina
og Hafursfellið fallega fyrir ofan
Hrútsholtsbæinn.
Hann pabbi okkar var sú besta
fyrirmynd sem við gátum haft. Allt-
af trúði hann á það besta í fólki
og hafði sjálfur heiðarleikann að
leiðarljósi. Hann var samviskusam-
ur og traustur, kenndi okkur bæn-
irnar á unga aldri og það að við
uppskerum eins og við sáum. Mörg-
um góðum stundum eyddum við
saman í sundlaugunum, hann synti
á hveijum degi og við vorum ekki
háar í loftinu þegar við vorum farn-
ar að suða í honum að fara með.
Hann hafði yndi af börnum og nut-
um við þess í uppeldinu. Mörg leik-
föngin bjó hann til handa okkur,
sem enn eru til í dag, dúkkurúm,
bílar og bátar. Handbragð hans er
einnig að finna í stofum okkar, en
hann dundaði við að bólstra stóla,
búa til mósaíkmyndir og aðrar
hannyrðir. Hann hafði mikinn
áhuga á söng; söng á yngri árum
við guðsþjónustur í sinni heima-
kirkju á Snæfellsnesi, fyrir utan öll
lögin sem við sungum saman.
Marga góða vini og kunningja átti
hann meðal starfsfélaganna hjá
Strætó, svo og sá hann margan
farþegann vaxa úr grasi og fylgdist
með þeim til fullorðinsáranna. Mörg
jólakortin bárust honum ár hvert
frá farþegum sem kunnu vel að
meta velvild og vingjarnleika hans.
Síðastliðin tíu ár átti hann við
heilsuleysi að stríða, og dvaldi síð-
ustu 2 árin á hjúkrunarheimilinu
Skjóli. Við söknuðum hans þá, en
söknum hans enn meir nú er hann
er alfarinn. Þó er okkur huggun í
því að hann er loks búinn að fá
hvíld frá veikindunum og kominn í
betri og bjartari heima. Að lokum
langar okkur að flytja pabba okkar
bænina sem hann fór svo oft með
fyrir okkur:
Vertu nú yfir og allt um kring
í eilífri blessun þinni.
Sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Steinunn, Anna,
Guðrún og Sigrún.
Mig setti augnablik hljóða þegar
símtalið kom sem lét mig vita að
afi væri dáinn. Það er alveg sama
hversu mikið maður á von á frétt-
inni; hún verður, held ég, alltaf
áfall.
Minningarnar um afa minn hafa
verið að birtast mér og öðrum úr
fjölskyldunni þessa síðustu daga.
Hversu hann var duglegur að hossa
okkur krökkunum á hné sér og
syngja fyrir okkur. Það var alveg
ótrúlegt hvað hann hafði mikla þol-
inmæði við okkur krakkana. Það
sér maður best þegar maður er nú
sjálfur kominn með börn. Ég minn-
ist þess ekki að afi hafi nokkurn
tíma misst þolinmæðina við okkur,
sama hversu kröfuhörð og erfið við
vorum. Ég hef reyndar grun um
að þegar við vorum hvað erfiðust,
hafi hann látið sig hverfa niður í
kjallara þar sem hann átti athvarf
við tómstundaiðju sína. Þar bjó
hann til ýmis leikföng fyrir okkur
krakkana, bíla, dúkkurúm o.fl.
Einnig urðu þar til hinir ýmsu nytja-
og skrautmunir. Oft fagurlega
skreyttir mósaíki.
Þar sem afa féll aldrei verk úr
hendi, féll honum afar þungt þegar
heilsan takmarkaði ferðafrelsið og
tók það síðar alveg frá honum. Það
gat hver maður séð þegar hann
gerði sitt besta til að sinna hinu
og þessu eftir að heilsan kom í veg
fyrir að hann uppskæri árangur
erfiðisins.
Nú síðustu árin naut hann góðrar
umönnunar starfsfólks í Skjóli. Því
vil ég þakka kærlega fyrir.
Elsku amma, leyfðu góðum guði
að gefa þér styrk og huggun í sorg
þinni og mundu að þú getur alltaf
leitað til barna og barnabarna með
hvað sem er.
Megi hann afi hvíla í friði.
Barnabarn.
Ágætu viðskiptavinir:
Breyttur
opnunartími
frá og með 1. nóvember.
Sigmundur Stefánss. - Hallgrímur Hallgrímss. 521
ÞórirLeifsson-EggertBergsson 495
Rapheiður Nielsen - Sigurður Ólafsson 490
María Asmundsd. - Steindór Ingimundarson 471
AV
Guðjón Siguijónsson - Rúnar Einarsson 541
Andrés Ásgeirsson - Sveinn Sigurgeirsson 493
MagnúsTorfason-GísliTorfason 492
Aðalsteinn Jörgensen - Guðlaug Jónsdóttir 491
Vetrar-Mitchell BSÍ er spilaður öll
föstudagskvöld og byijar spila-
mennska kl. 19. Spilaður er einskvölds
tölvureiknaður Mitchell.
Bridsfélag Hreyfils
Aðalsveitakeppni félagsins er
hafin og eftir tvær umferðir er staða
efstu sveita þessi;
Sigurður Ólafsson 47
Tómas Sigurðsson 42
Jóhannes Eiríksson 42
Verslun Skúfuvogi 16:
i i i i i
► Timbursala Súðarvogi 3-5:
8:00 9:00 10:00 11:00 12:00 13:00 14:00 15:00 16:00 17:00 18:00
I I I I I l
Mánudaga til föstudaga kl. 8.
Laugardaga kl. 10.
ilialwli
Mánudaqa til föstudaqa kl 8.
J Laugardaga lokað J
I I I I I
I I I I I
► Verslun og timbursala j
Helluhrauni 16:
\SALA - LEIGAI
Dalvegur 24
s. 4 23 22 64 1020
Mánudaga til föstudaga kl 9
nwiriMdMiigi
itt
BMUi
Geymið auglýsinguna.
I
i
Bílamarkaöunnn
Smiðjuvegi 46E
v/ReykjanesbrauL
Kopavogi, sími
571800
OPIÐ SUNNUDAGA
KL. 13 - 18.
V.W. Golf CL 1.8 '93, grænsans, 5 g., ek.
14 þ., vökvastýri o.fl. V. 1030 þús. stgr.
Daihatsu Charade TS EFi 16v '83, rauö-
ur, 1300 vél, bein innsp., 5 g., ek. aöeins
4 þ. km. Sem nýr. V. 860 þús.
Renault 19 GTS '90, hvítur, 5 g., rafm. í
rúðum o.fl. V. 690 þús. stgr.
Honda Prelude 2.0 EXi '86, rauöur, 5 g.,
ek. 86 þ., álfelgur, sóllúga, leðurinnrétting
o.fl. Toppeintak. V. 730 þús.
MMC Colt GL '90, ek. 69 þ., hvítur.
V. 690 þús. Tilboð kr. 590 þús. stgr.
Toyota Corolla Llft Back 1.6 XL '92,
5 g., ek. 27 þ., hvítur. V. 1080 þús.
MMC L-300 Minibus 4x4 '88, grásans,
5 g., ek. 87 þ. Gott eintak. V. 1090 þús
Mikið breyttur Bronco '74, 4 g., 8 cyl
(460 cc), 205 millikassi, Unimoc hásingar,
44“ dekk o.fl. V. tilboð - skipti.
Chervolet Suburban 6.2 diesel '83, ek
86 þ. mílur, m/spili o.fl. V. 1280 þús
MMC Galant GLSi '91, 5 g., ek. 36 þ
V. 1250 þús., sk. á ód.
Bfll fyrir vandláta. M Benz 260 SE '87
sjálfsk., ek. 90 þ., leðurinnr., rafm./hiti í
sætum, sóllúga, álfelgur o.fl. o.fl. V. 3,3
millj., skipti.
MMC Galant GLSi '89, blár, sjálfsk., ek
76 þ. km., rafm. í öllu, spoiler o.fl. Toppein
tak. V. 990 þús.
Toyota Double cab diesel '92, silfurgrár
5 g., ek. 64 þ. V. 1690 þús., sk. á ód.
Nissan Sunny SLX '89, 5 g., ek. 52 þ.
rauður. V. 560 þús. Fallegt eintak.
MMC Lancer GLX '89, sjáltsk., ek, 47 þ
spoiler o.fl. V. 780 þús.
Wagoneer LTD 4.0L '89, sjálfsk., m/öllu,
ek. 74 þ. V. 1890 þús.
BILAR A TiLBOÐSVERÐi:
Suzuki Swift GL '88, 3ja dyra, 5
g., ek. 70 þ. V. 370 þús. Tilboðs-
verð: 270 þús. stgr.
Honda Prelude '85, 5 g., ek. 125
þ., sóllúga, spoiler. V. 480 þús. Til-
boðsverð: 330 þús. stgr.
Mazda 323 '87, sjálfsk., ek 81 þ.,
3ja dyra. Gott eintak. V. 395 þús.
Tilboðsverð: 320 þús. stgr.
MMC Colt GL '90, 5 g., ek. 69 þ.
V. 690 þús. Tilboðsverð: 600 þús.
stgr.
Toyota Corolla Liftback '88,
sjálfsk., ek 98 þ. V. 630 þús. Til-
boðsverð: 520 þús. stgr.
Mazda GLX 1500 5 g., ek. 129 þ.,
5 dyra. Gott eintak. V. 370 þús.
Tilboðsverð: 290 þús. stgr.
FLISASKERAR
OG FLISASAGIR
í
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44