Morgunblaðið - 29.10.1993, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
t
Bróðir okkar,
EINAR GUÐGEIRSSON,
andaðist á Hrafnistu 27. þ.m.
Systkini hins látna.
t
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
HALLDÓR V. SIGURÐSSON
fyrrverandi ríkisendurskoðandi,
lést í Brussel miðvikudaginn 27. október.
Kristrún Jóhannsdóttir og börn.
t
Hjartkær móðir okkar,
ESTHER S. ÞORSTEINSDÓTTIR,
Laugavegi 135,
lést í Landspítalanum 26. þessa
mánaöar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gi'sli Ragnarsson,
Maria Guðmundsdóttir.
Páll Haukur Krist-
jónsson — Minning
Fæddur 25. september 1920
Dáinn 22. október 1993
I dag verður minn elskulegi afi,
Páll Haukur Kristjónsson, jarð-
sunginn.
Eitt af því fyrsta sem mér dettur
í hug þegar ég hugsa til afa eru
skemmtilegu tímarnir sem við átt-
um saman, t.d. ferðalögin okkar til
Benidorm og Kanarí. Það eru þess-
ar skemmtilegu stundir sem ég
ætla að hugsa um mér til huggunar
um að afi sé farinn okkur frá.
Fyrsta minningin mín um ferð
með afa tengist reyndar ekki út-
löndum, heldur ferð í stórum Olís-
bíl sem hann keyrði. Þá bjuggum
við í Sæviðarsundi, en þar bjó ég
hjá afa og ömmu þangað til að ég
varð fjögurra ára gömul. Reyndar
fluttist ég aldrei alveg frá afa og
ömmu nema með annan fótinn því
að lengi vel vildi ég einna helst
vera hjá þeim, fyrst í Sæviðarsund-
inu, síðan í Bólstaðarhlíðinni og nú
síðast í Mjódd.
Það var svo margt sem mér þótti
svo gott við afa og lét mér þykja
svo vænt um hann. Afi var alltaf
svo blíður og góður en hann var
líka mjög skemmtilegur og því góð-
ur vinur minn. En hann var líka
stríðinn og stundum þegar hann
stríddi mér varð ég eiginlega svolít-
ið fúl. En það eru samt þessar minn-
ingar sem ég hugga mig við núna
— þetta er hluti af skemmtilegu
tímunum okkar saman.
Það er samt ein minning sem
mér á alltaf eftir að þykja rosalega
vænt um. Það er minningin um
sögu sem afí sagði frá í tíu ára
afmælinu mínu fyrir stuttu. Þá var
hann að riija upp svolítið sem gerð-
ist þegar ég var eins árs og lá alvar-
lega veik á sjúkrahúsi. Afi sagði
að hann hefði vitað að allt yrði í
lagi daginn sem hann kom til mín
og ég gaf honum merki sem við tvö
áttum saman. Það er þetta merki
sem afi minntist á, sem segir mér
að á milli okkar var eitthvað sér-
stakt — eitthvað sem tengdi okkur
tvö svona náið eins og við vorum.
Elsku afí, þó að þú sért farinn
frá okkur héðan veit ég að þú fylg-
ist ennþá með okkur og heldur
áfram að vera hjá okkur í minning-
um okkar um þig. Ég á eftir að
sakna þín mjög mikið, en í hjarta
mínu ertu enn hjá mér og þetta
merki okkar sem segir að allt verði
í lagi.
t
Útför eiginmanns míns og föður okkar,
KARLS ÞORKELSSONAR
frá Arngeirsstöðum,
Stóragerði 1a,
Hvolsvelli,
fer fram frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð laugardaginn
30. október kl. 14.00.
Hulda Hjartardóttir,
Hjörtur Heiðdal,
Sigríður Karlsdóttir,
Gunnar Þór Karlsson,
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
MARON BJÖRNSSON,
Ásabraut 3,
Sandgerði,
verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju
laugardaginn 30. október kl. 14.00.
Þórir Maronsson,
Björn Maronsson,
Viggó Maronsson,
Helgi Maronsson,
Margrét Maronsdóttir,
Eisa Kristjánsdóttir,
Lydía Egilsdóttir,
Erla Sveinbjörnsdóttir,
Þórunn Haraldsdóttir,
Magnús Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför föður okkar,
JAKOBS FALSSONAR,
Sundstræti 23,
ísafirði,
sem andaðist 24. október, verður gerð frá ísafjarðarkapellu laugar-
daginn 30. október kl. 14.00.
Guðrún Jakobsdóttir, Sveinbjörn Jakobsson,
Jónína Jakobsdóttir, Óli A. Jakobsson,
Lilja Jakobsdóttir, Hörður Jakobsson.
t
Eiginkona mín,
VALGERÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Kollafjarðarnesi,
Melgerði 44,
Kópavogi,
andaðist mánudaginn 25. október.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju,
mánudaginn 1. nóvember, kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna,
Guðmundur Eiríksson.
Minning
Lars Snorre Larsen
Fæddur 29. október 1924
Dáinn 20. september 1993
í dag vil ég minnast elskulegs
stjúpa míns, sem lést á St. Jóseps-
spítala, Hafnarfirði, hinn 20. sept-
ember sl. Einmitt þennan dag, 29.
október, hefði hann orðið 69 ára
hefði hann lifað. Það er alltaf sárt
að missa, því söknuðurinn er mik-
ill. Orð mega sín lítils á þessari
stundu og segja þessar ljóðlínur
meira en mörg orð.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Nú þegar hann hefur kvatt þenn-
an heim mun ég og fjölskylda mín
minnast hans með virðingu og
þakklæti. Megi góður guð geyma
góðan dreng. Blessuð sé minning
Lars Snorre Larsen.
Eiginmaður minn,
HJÖRTUR MAGNÚSSON
fyrrv. vagnstjóri hjá SVR,
sem lést þann 19. október, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
í dag, föstudaginn 29. október, kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arnbjörg Sigurðardóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
MARGEIR GUÐMUNDUR
ÁSGEIRSSON
frá Hnffsdal,
sem lést 20. október sl., verður jarð-
sunginn frá Keflavíkurkirkju laugardag-
inn 30. október kl. 14.00
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á Krabbameinsfélag fslands og Sjúkra-
hús Keflavíkur.
Ásthildur Árnadóttir,
Árni Margeirsson, Anna Ingólfsdóttir,
Ragnhildur Margeirsdóttir, Hafsteinn Hafsteinsson,
Ásgeir Margeirsson, Sveinbjörg Einarsdóttir,
Veigar Margeirsson, Sigríður Ragna Jónasdóttir
og barnabörn.
Þú varst besti afí í heimi, ég elska
þín Helen Svava.
Það er kaldur vetrardagur, blind-
hríð og sorti yfir öllu. Heimilisfólk-
ið á bænum einblínir út í sortann
og bíður þess að það sjái bíiljós
lýsa upp heimdragann. Von er á
tankbíl, sem flytur þeim þann
svarta vökva sem þau eru svo háð
til að hita upp bæinn sinn og
skepnuhúsin, sérstaklega í kulda
sem þessum.
Jú, þarna sjást ijós, sem nálgast,
og fljótlega birtir yfír hlaðvarpan-
um. Bóndanum verður að orði:
„Seigur er hann Palli, honum má
ætíð treysta." Hér er átt við bílstjór-
ann, Pál Hauk Kristjónsson.
Starf hans var að aka olíubíl fyr-
ir Olíuverslun íslands. Hann hafði
haft þann starfa í hartnær 30 ár.
Flestar hans ferðir voru að aka
austur fyrir Fjall og dreifa olíu um
sveitina, enda hnútum kunnugur
frá veru sinni þar á unglingsárum.
A vetuma var hér um erfitt og
vandasamt starf að ræða og reyndi
þá á árvekni og kunnáttu bílstjór-
ans við slíkar aðstæður.
I dag kveðjum við Pál Hauk
Kristjónsson, sem lést 22. október
síðastliðinn. Hann var fæddur 25.
september 1920. Foreldrar hans
voru Sigríður J. Bjarnadóttir og
Kristjón Pálsson er bjuggu í Berg-
staðastræti 9.
Mín fyrstu kynni af Páli urðu er
við vorum saman á togaranum Jóni
Þorlákssyni RE sem var í eigu
Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Þau
kynni jukust er ég festi ráð mitt
og giftist stjúpdóttur hans. Lítið
þekkti ég til ferils hans á árum
áður. En tvo syni hafði hann eign-
ast á þeim árum, þá Gest og Ómar.
Árið 1960 gekk Páll að eiga
Svövu Magnúsdóttur, einstæða
fjögurra dætra móður. Var því
heimilið stórt strax á fyrstu búskap-
arámm þeirra. Sjúpdætur hans
voru Magnea, Kristín, Ragna og
Hulda Jóhannesdætur.
Þeim hjónum varð þriggja barna
auðið: Sigurðar, Kristins, Jónínu og
Magnúsar Geirs.
Eins og áður er getið stundaði
Páll sjómennsku, aðallega á togur-
um. í kringum 1960 fór hann í land.
Starfaði hann fyrst að útkeyrslu
fyrir Mjólkursamsöluna og síðar hjá
Ólíuverslun íslands.
Hann var hvarvetna traustur
maður, staðfastur í skoðunum og
ákveðinn í gjörðum sínum.
Nú er við kveðjum mætan mann
biðjum við Guð að veita þeim Svövu,
börnum þeirra og öðrum aðstand-
endum styrk í sorg sinni.
Blessuð sé minning Páls Hauks
Kristjónssonar.
Ingvi R. Einarsson.
ERFIDRYKKJURl
MeSöngahúsiö
HðTEL BSJl
sími 689509
V_____________^