Morgunblaðið - 29.10.1993, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1993
41
Pennavinir
Bílastyrkur
vinnukvenna
Frá Einarí Kristinssyni:
HUGSIÐ ykkur bara hvað þvotta-
konur og þær sem eru í heimilis-
hjálpinni og eru á sífeldum þönum
fram og aftur um bæinn hafa miklu
meiri þörf fyrir bílahlunnindi en
bankastjórar sem hafa fastan
vinnustað. Auk þess hafa þessi
hlunnindi miklu meira gildi fyrir
þær vegna þess að þetta jafngildir
þreföldun launa (föst laun um 40
þús., en bílastyrkurinn metinn á um
80 þús.). Bankastjórinn hækkar
hins vegar lítið í launum (fer úr
1.000 þús. í 1.080 þús.). Þetta er
hreint smáræði, sem vart tekur að
tala um. Svo er fleira, þvottakonan
þarf að þekkja sundur óhreinindi
og listaverk og heimilishjálpin þarf
að þekkja sundur gamalmennið og
heimilisköttinn. Því þarf að gera
verulegar kröfur um andlegt at-
gervi þegar valið er í þessi störf.
Hvað bankastjórana varðar er þessu
gerólíkt farið.
Því minna vit, sem þeir hafa á
fjármálum, þeim mun betri eru þeir.
Þetta sannast best á því að sá sem
lítið veit er líklegur til að lána í
vonlaust fyrirtæki, sem fer á haus-
inn og þá skapast útlánatap. Til að
vega það upp er nauðsynlegt að
auka vaxtamuninn og þá hagnast
bankinn. Auk þess er líklegt að með
hærri vöxtum rúlli fleiri og þá get-
ur bankinn keypt eigur þeirra á
góðum kjörum. Þannig sópar bank-
inn til sín vöxtum og eignum. Þökk
sé góðum bankastjóra.
EINAR KRISTINSSON,
Funafold 43,
Reykjavík.
Frá Ghana skrifar þrítug kona
með áhuga á ferðalögum, tónlist,
söng o.fl.:
Anna King,
P.O. Box 107,
Elmina,
Ghana.
Bandarískur 72 ára gamall frí-
merkjasafnari vill eignast islenska
pennavini:
Charles R. Newkirk,
7654 Ostrom Avenue,
Van Nuys,
CA 91406-2123,
U.S.A.
Frá Ghana skrifar 22 ára stúlka
með áhuga á matargerð, tónlist,
íþróttir og ferðalög:
Ama Ahema,
P. O. Box A-144,
Adisadel P.O.,
Cape Coast,
Ghana.
VELYAKANDI
HVER GREIÐIR
AUGLÝSINGUNA?
ER ÞAÐ rétt sem fram kemur í
Tímanum í dag, miðvikudag, að
Morgunblaðið greiði ekkert fyrir
auglýsinguna á gamla Morgun-
blaðshúsinu sem borgin er búin
að kaupa. Ef þetta er ekki aug-
lýsing hverjum ber þá að mála
yfír stafína, er það Morgunblaðið
eða sá sem kaupir húsið?
Vigdis
SPILLING í
LISTASAFNI
ÍSLANDS
HINN almenni skattborgari hef-
ur mikið hneykslast á listaverka-
kaupum, sem safnráðsrtienn
Listasafns Islands hafa lagt kaup
á undanfarin ár. En vita allir að
um árið, þegar safnráðsmenn
tóku upp á því að kaupa „strau-
borðið með fugladritinu, flöskun-
um og óhreina tauinu“ á tæpar
700 þúsund, að þá var listamað-
urinn sjálfur, Kristján Guð-
mundsson, í safnráði. Og hefur
hann því, ásamt Beru Norðdal
og hinum safnráðsmönnunum,
haft ákvarðanavaldið um kaupin.
Unnur
GÆLUDÝR
Týndur köttur
LITIL svört læða, ekki ársgöm-
ul, hvarf frá Grænuhltð, fyrir
tæpri viku. Hafí einhver orðið
ferða hennar var er hann vinsam-
lega beðinn að hringja í síma
681596.
KANNAST EINHVER
VIÐ VÍSUNA?
ÁG_ÆTI lesandi.
Ég stunda nám í þjóðfræði við
Háskóla íslands, og er m.a. að
rannsaka sögu vísu einnar, sem
ég lærði ungur. Ef þú kannast
við hana og telur þig vita eitt-
hvað um hana, þætti mér vænt
um að þú skrifaðir mér, þar sem
fram kæmi allt sem þú veist,
eins og t.d. nafn höfundar (og
helst eitthvað meir um hann),
aðdragandi að gerð vísunnar,
hvenær hún er samin, og hvernig
hún er „rétt“.
Ég lærði hana svona:
Djöfull er hann drullugur.
Duglega þarf að skafa’ ann.
Ljótur bæði’ og lélegur,
likur þeim sem gaf ann.
Með fyrirfram þökk.
Sigurður Ægisson,
postboks 146,
8770 Træna,
NORGE.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Gleraugu fundust
LESGLERAUGU í gylltri um-
gjörð fundust við Langagerði sl.
föstudag. Eigandi má hafa sam-
band í síma 32953.
Hlífðarsvunta af
barnavagni
DÖKKBLA hlífðarsvunta af
barnavagni eða kerru fannst við
Meistaravelli sl. helgi. Eigandi
má hafa samband í síma 23211.
Leikfangabíll tapaðist
STÓR rauður leikfangabíll úr
járni (kassabíll) með svörtu sæti,
fótstiginn með keðju, hvarf frá
Dalalandi í Fossvogi í sumar.
Viti einhver hvað hefur orðið um
bílinn er hann vinsamlega beðinn
að láta vita í síma 671981.
FRÁ JEPPAVINI
Vegna neikvæðra skrifa um
jeppa.
Krossbit urðu Jón og ég
er jeppinn mætti andspyrnu.
Þó alþýðan sé yndisleg
hún ekkert veit um sandspymu.
Baldur Hafstað,
jeppavinur,
Asvallagötu 24,
Reykjavík.
V I K I N G A
ifltro
Vinningstölur ,------------
miðvikudaginn:i 27. okt. 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
El 6af6 0 36.980.000,-
ETB 5 af 6 LŒ+bónus 1 397.758,-
3 5af6 8 39.065,-
FB 4 af 6 248 2.004,-
ra 3 af 6 f R+hónus 926 230,-
Heildarupphaeð þessa viku
38.400.250,-
á ísl.:
1.420.250,-
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI91- $8 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
EIKHUSKVOLDVERÐUR
CHATEAUX.
BORÐAPANTANIR1
SÍMA 25700
Gildir frá kl. 17.30 til 19.00
FORRETTIR:
Sjávarréttarsúpa.
Skeldýr á kartöfluköku
með tómat-hvítlauk og ólífum.
Reyksoðin lundabringa
með linsubaunum og salati.
i AÐALRÉTTIR:
Grísalundir
með koníaks-sveppasósu.
Nautalundir Dijon.
s -
Pönnusteiktur skötuselur
með humar og pasta.
FORRETTUR AÐALRETTUR
OG EFTIRRÉTTUR
EFTIRRÉTTUR:
Perur og döðlur með vanilluís.
Kjúklingar
á kostabobi
Velkomin í kjúklingakrœsingamar okkar
Fjölskyldupakki fyrir 5.
10 kjúklingabitar, franskar,sósa og salat Verb 1990 kr
Athugið abeins 398 kr á mann
Fjölskyldupakki fyrir 3.
6 kjúklingabitar,franskar,sósa og salat Verb 1290 kr.
Pakki fyrir 1
2 kjúklingabitar,franskar,sósa og salat Verb 490 kr
Sími 29117
Þú getur bæbi tekib matinn meb þér heim eba borbab hann á stabnum