Morgunblaðið - 26.11.1993, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
Þingmaður Alþýðubandalagsins um kvótamálin á Alþingi
Líkti framsali á kvóta við
skipulagða glæpastarfsemi
„SKIPULÖGÐ glæpastarfsemi“ voru orðin sem Jóhann Ársælsson,
fulltrúi Alþýðubandalagsins í sjávarútvegsnefnd Alþingis, viðhafði á
Alþingi í gær um afleiðingar kvótaframsals. Hann hélt því fram að
hæstaréttardómurinn í Hrannarmálinu þýddi að ákvæði laga um stjórn
fiskveiða og þjóðareign á fiskistofnum væri markleysa. Ráðherramir
Þorsteinn Pálsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Sighvatur Björgvins-
son mótmæltu þessum skilningi og sögðu að Hrannardómurinn fjall-
aði um skattamál og hreyfði í engu við þjóðareign á fiskistofnum.
Jóhann Ársælsson sagði við utan-
dagskrárumræðu á Alþingi í gær að
þungamiðjan í umræðunni um sjáv-
arútvegsmálin væri eignarétturinn á
fiskinum í sjónum. Afleiðingunum
af óréttlátu og spilltu framsalskerfi
væri helst hægt að líkja við skipu-
lagða glæpastarfsemi.
Frjálst framsal
Jóhann sagði að hið svokallaða
fijálsa framsal, sem opnaði mögu-
leika á að kaupa og selja aðgang að
auðlindinni, færði kvótaeigendum
raunverulegt ígiidi eignarréttar á
fiskinum í sjónum. Til að hindra þetta
hefði nýtt ákvæði verið sett inn í
lögin á sínum tíma um að fiskistofn-
ar á ísiandsmiðum væru sameign
íslensku þjóðarinnar og markmið iag-
anna að stuðla að vendun og hag-
kvæmri nýtingu þeirra, og tryggja
með því trausta atvinnu og byggð í
iandinu.
Jóhann sagði að þrátt fyrir að
þessi fyrsta grein laganna væri alveg
ljós hefði réttur kvótaeiganda til
fijáls framsals verið óbreyttur. Hlyti
það að leiða til þess að framangreint
ákvæði yrði marklaust eða að fijálst
framsal yrði lagt af með lögum.
Atvinnuréttindi
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, sagði að Hrannardómurinn
fjallaði um skattamál og hreyfði
hann í engu við þjóðareign á fiski-
stofnum. Hann vitnaði til lögfræði-
legrar greinargerðar Sigurðar Lín-
dals prófessors og Tryggva Gunnars-
sonar lögfræðings um úthlutun alfla-
hlutdeilda; að ekki sé verið að mynda
einstaklingsbundna stjómarskrár-
varða eign á veiðiheimildum, en á
hinn bóginn verið að afmarka og
skilgreina nánar eignarréttindi í
formi atvinnuréttinda og leggja jafn-
framt grundvöll að slíkum réttindum
um ókomna tíð.
Þorsteinn sagði að á vorþinginu
1990 hefðu ýmsir viljað taka meiri
tíma til að ræða um fiskveiðistjórn-
unina. Alþýðubandalagsþingmenn
hefðu hins vegar viljað hespa af af-
greiðslu málsins. Þingmaðurinn tal-
aði hins vegar eins og Alþýðubanda-
lagið hafi hvergi nærri komið og
segði jafnvel að lögin væru skipulögð
glæpastarfsemi. Væri það einsdæmi
að þingmaður lýsti því yfir að flokks-
bræður hans væru ábyrgðarmenn
fyrir skipulagðri giæpastarfsemi.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 26. NOVEMBER
YFIRLIT: Yfir landinu austanverðu er skarpt lægðardrag, sem þokast
austur.Um 800 km suðsuðaustur af Hvarfi er ört vaxandi 970 mb djúp
lægð, sem hreyfist norður og síðar norðvestur.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi eða roki á Suðvesturmiðum,
Faxaflóamiöum, Breiðafjarðarmiðum, Vestfjarðamiðum, Norðvesturmið-
um, Norðausturmiðum, Suðausturmiðum, Vesturdjúpi, Norðurdjúpi,
Suðausturdjúpi, Suðurdjúpi og Suðausturdjúpi.
SPÁ: Á morgun hvessir um land allt, fyrst suðvestaniands. Um miðjan
daginn verða komin 9-10 vindstig með rigningu og einnig austanlands
undir kvöld. Hiti yfirleitt á billnu 4-8 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Allhvöss eða hvöss sunnan
og suðvestan átt á landinu. Slydduél á suður- vestur- og norðvestur-
landi, en aðmestu úrkomulaust annars staðar. Hiti 0-2 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Fremur hæg suðaustanátt, gola eða kaldi og
súldeða rigning sunnan- og austanlands, en þurrt að mestu norðan og
vestanlands. Hiti 2-4 stig.
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
■<ö
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað
Alskýjað
*
Skúrir Slydduél
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.(
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
itig..
FÆRÐA VEGUM: oa 17.30 ígær>
Greiðfært er um mestallt landið, en á vestan- og suðvestanverðu land-
inu ertalsverð hálka á vegum, en á þvf svæði hefur snjóað dálítið og
hefur færð þyngst á útvegum í Rangárvallasýslu af þeim sökum. Eins
er hálka á heiðum á Vestfjörðum og á Norðurlandi.
Upplýsingar urri færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltl vsður
Akureyri 1 skýjeð
Reykjavik________1 úrkomaígrennd
Björgvin 4 skýjað
Helsinki +3 kornsnjór
Kaupmannahöfn 1 þokumóða
Narssarssuaq +10 snjókoma
+8 skýjað
0 snjókoma
0 snjók.ás.klst.
6 skýjað
Nuúk
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlfn
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madrid
Malaga
Mallorca
Montreal
NewYork
Orlando
París
Madeira
Róm
Vín
Washington
Winnipeg
17 léttskýjað
2 þokaumóða
14 rigningogsúkt
+2 þokumóða
3 alskýjað
8 þokumóða
1 mistur
3 rígning
+2 þokumóða
9 rigning á s. klst.
11 heiðskírt
3 þokumóða
10 iéttskýjað
16 léttskýjað
15 rigning
+13 léttskýjað
+1 alskýjað
20 súld
6 þokumóða
17 hálfskýjað
14 skýjað
+1 þokumóða
9 alskýjað
+11 8kýjaö
r r r
f DAG kl. 12.00
Heimild: Veðursfofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.16 í gær)
Morgunblaðið/PPJ
Boeing 737-200
TÍU ára gömul Boeing 737-200 leiguflugvél á vegum flugfélagsins
Atlanta hf. kom til landsins í gærmorgun. Arngrímur Jóhannsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að flugvélin taki við hlutverki
tuttugu ára gamallar Boeing-vélar á vegum fyrirtækisins í vöruflutn-
ingum fyrir þýska flugfélagið Lufthansa. Hann sagði að starfsmenn
Flugleiða myndu skoða vélina og undir leiðsögn þeirra yrði henni
breytt í fragtvél. Henni yrði síðan flogið til Kölnar eftir um 10 daga.
Önnur flugvél á vegum Atlanta verður skoðuð hér á landi um miðj-
an desember. Umræður standa nú yfir um möguleika á því að Flug-
leiðir taki að sér fleiri viðhaldsverkefni fyrir Atlanta.
Hundur skotinn á Blönduósi
Hæstiréttur fell-J
ir niður refsingu
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt niður refsingu fjáreiganda á Blöndu- i
ósi sem dæmdur var í héraðsdómi í sekt fyrir að skjóta hund sem
var að atast í fé hans. Jafnframt hefur Hæstiréttur vísað frá
héraðsdómi skaðabótakröfu eiganda hundsins þar sem krafan var
ekki talin nægilega reifuð.
Hundur hljóp frá eiganda sínum
sem hafði stutta viðdvöl á Blöndu-
ósi vorið 1992. Fór hann að atast
lambfé á nærliggjandi túni og skaut
fjáreigandinn hann með hagla-
byssu. Var hann ákærður fyrir
drápið og dæmdur til sektar í hér-
aðsdómi og gert að greiða eiganda
hundsins skaðabætur. Ákærði
áfrýjaði málinu til Hæstaréttar og
krafðist sýknu og ákæruvaldið
krafðist sakfellingar samkvæmt
ákæru í áfrýjun sinni.
í dómi Hæstaréttar er fallist á
það með héraðsdómara að ákærði
hafi ekki nýtt öll tiltæk úrræði til
þess að stugga hundinum í burtu
og veija þannig fé sitt áður en
hann greip til þess örþrifaráðs að
skjóta hann með haglabyssu sinni.
Þá sé ekki fulljóst að fé ákærða
hafi í raun verið hætta búin af
hundinum. Fallist er á það með
héraðsdómara að ákærði hafi brotið
gegn 1. mgr. 257. gr. almennra
hegningarlaga og ákvæðum laga
um dýravernd. Einnig að hann hafi
ekki haft leyfi til byssunnar og
hleypt af skotum á almannafæri og
þannig brotið gegn ákvæðum laga
um skotvopn.
Illa gætt
Hæstiréttur telur að við mat á
refsinámi verknaðar ákærða beri
að hafa hliðsjón af því að hundsins
hafi verið illa gætt og hann hlaupið
laus á almannafæri á Blönduósi þar
sem lausagagna hunda er bönnuð.
Þá hafi hér verið um að ræða veiði-
hund og megi ætla að ótti fjáreig-
andans um að hann kynni að verða
fénu skaðlegur hafi ekki verið alveg
ástæðulaus. Megi ætla að fljótræði
hans að skjóta hundinn hafi af
þessu stafað.
Hæstiréttur ákvað að fella niður
refsingu ákærða. Hins vegar var
ákvæði héraðsdóms um upptöku
óskráðrar haglabyssu hans stað-
fest. Skaðabótakrafa eiganda
hundsins var ekki talin nægilega
reifuð til þess að dómur yrði á hana
lagður og því bæri að vísa henni
frá héraðsdómi. Loks var ákvæði
héraðsdóms um sakarkostnað stað-
fest og ákærða gert að greiða áfrýj-
unarkostnað og málsvarnarlaun.
KK-bandið ekki selt
til Skífunnar og Spors
KK-BANDIÐ hefur ákveðið að selja ekki lengur geislaplötur
sínar og tónbönd til Skífunnar hf. og Spors hf. vegna þess við-
móts sem fyrirtækin hafa sýnt þeim og öðrum óháðum útgefend-
um og listamönnum.
Pétur Gíslason framkvæmda-
stjóri Beinnar leiðar, útgáfu- og
rekstrarfyrirtækis KK-bandsins,
segir að plötur og tónbönd KK-
bandsins séu ekki höfð uppivið með
öðrum plötum í verslunum Skífunn-
ar og Spors. „Okkur þykir leitt að
þurfa að fara þessa leið en eftir að
hafa farið í verslanirnar undanfarna
daga og allstaðar fundið þær undir
borði og eftir að hafa talað við
starfsfólkið sem sagði að þetta
væri skipun að ofan þá var ákveðið
að fara þessa leið,“ sagði hann.
„Við viljum ekki hafa plötuna okkar
eins og klámspólu undir borði.“
Sagði hann að í raun fengju nán-
ast allar óháðu útagáfurnar sem
Japis sæi um dreifingu á sömu
meðferð hjá Skífunni og Spori.
„Þetta er ekki aðgerð frá Japis
heldur frá okkur,“ sagði Pétur.
„Við viljum ekki láta fara svona
með okkur. Ef þeir hefðu viljað
leysa þetta friðsamlega á einhvern
hátt þá hefur það staðið þeim til
boða lengi. Við viljum ekki standa
í neinu stríði."
Ekki náðist í Jón Ólafsson for-
stjóra Skífunnar í gær.