Morgunblaðið - 26.11.1993, Page 17

Morgunblaðið - 26.11.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993 17 Neyðarkall frá Sarajevo eftir Björn Bjarnason í aðeins nokkurra klukkustunda flugleið frá íslandi bíða milljónir Evrópubúa örlaga sinna milli vonar og ótta. Ástandinu í Sarajevo, Ólympíuborginni í Bosníu-Herzeg- óvínu, hefur verið lýst á þann veg, að þar hafí verið komið á fót stærstu og fjölmennustu útrýmingarbúðum í mannkynssögunni. Allir íbúamir 300.000, mest konur, börn og gam- almenni, hafi verið dæmdir til dauða, enginn þeirra viti hins vegar ekki hvenær eða hvemig dóminum verðf fullnægt. Sumir kunni að falla fyrir skoti úr byssu leyniskyttu. Hungur eða vosbúð leiði aðra til dauða. Fyrir fáeinum vikum kom sendi- nefnd frá þingi Bosníu-Herzegóvínu til fundar við fulltrúa á Evrópuráðs- þinginu í Strassborg. Miro Lazovic, þingforseti í Sarajevo, veitti sendi- nefndinni forystu. Lengi hafði verið reynt að koma á þessum fundi. Það var ekki fyrr en Bandaríkjaher sendi flugvél frá Frankfurt eftir bosnísku þingmönnunum að þeir komust úr landi. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli skrifstofu Evrópuráðsþingsins og fögur fyrirheit fulltrúa evrópskra foringja í friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Júgóslavíu fyrrverandi, reyndist Evrópuríkjunum ófært að flytja þingmennina frá Sarajevo til Strassborgar. Engin skýring fékkst á þessu aðgerðarleysi evrópsku friða- ræslusveitanna. Það er þó tákrænt fyrir þann boðskap, sem bosnísku þingmennimir höfðu að flytja, að þeir væm í raun fangar í eigin landi og biðu þess eins að deyja. Slæm samviska Bosnísku þingmennirnir sögðu, að evrópskir ráðamenn vildu ekki gefa þeim tækifæri til að láta í sér heyra í Strassborg eða annars staðar. Atburðirnir í Bosníu-Herzegóvínu væru til marks um samviskuleysi Evrópuþjóða. Hverjum í Evrópu þætti eftirsóknarvert, að vakin væri athygli á hinu evrópska misk- unnarleysi, sem þremur milljónum Bosníumanna hefði verið sýnt? Sumir þingmannanna höfðu ekki komist frá Sarajevo í þá 18-20 mánuði, sem þar hefur rikt stríðsástand. Þeir báru þess merki að hafa búið við þröngan kost og mikið andlegt álag. í máli sínu höfðuðu þingmennirnir til samvisku okkar og báðu um hjálp. Þeir höfðu frá litlu öðru að segja en dauða og hörmungum. 250.000 árangur ætti að nást við samninga- borðið. Landamærahelgi Bosníu- Herzegóvínu væri hin sama og ann- arra ríkja. Evrópuþjóðirnar ættu að átta sig á nauðsyn þess að setja „nýfasist- unum“ skorður í Júgóslavíu fyrrver- andi og brjóta þá á bak aftur þar, því að annars væri hætta á því að fasisminn færi aftur að breiðast út um álfuna. Átökin hefðu leyst úr læðingi óhugnanlega grimmd, þar sem löglausir menn myrtu jafnt kon- ur sem börn. Enginn væri óhultur um líf sitt á götum Sarajevo og.leyni- skytturnar virtust sumar hafa ein- hverja sjúklega nautn af því að skjóta fæturna undan bömum og gamal- mennum! „Átökin hefðu leyst úr læðingi óhugnanlega grimmd, þar sem lög- lausir menn myrtu jafnt konur sem börn. Eng- inn væri óhultur um líf sitt á götum Sarajevo og leyniskytturnar virt- ust sumar hafa ein- hverja sjúklega nautn af því að skjóta fæturna undan börnum og gam- almennum!“ Við þessar aðstæður skildi fólkið ekki, hvers vegna Evrópuþjóðir gætu deilt endalaust innbyrðis um úrræði eða við Bandaríkjamenn. Hvers vegna má ekki létta af okkur vopna- sölubanni, svo að við getum að minnsta kosti varið okkur sjálfir, ef þið viljið ekki leggja okkur lið? Hvers vegna má ekki beita flugvélum á vegum NATO okkur til hjálpar? Þeg- ar þær fljúga í lágflugi yfir Sarajevo bregst ekki, að töluvert hlé verður á stórskotaárásum á borgina. Á vanda fólksins í Bosníu-Herz- egóvínu er engin önnur lausn en pólitísk, sögðu þingmennirnir frá Sarajevo. Ef ekki verður gripið til hennar, dregur að því að Bosnía- Herzegóvína verði þurrkuð út af landakortinu, en sagan mun geyma nöfn hinna seku: Serbíu, Króatíu og allra hinna sem þögðu. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Björn Bjarnason manns hafa fallið í Bosníu-Herzegó- vínu þar af 13.000 í Sarajevo. Hun- grið sverfur að fólki, sem er háð matargjöfum frá hjálparliði Samein- uðu þjóðanna. Á einum mánuði fær fjögurra manna fjölskylda tvö kíló af hrísgijónum, tvö kíló af kartöflum, einn lítra af matarolíu og eina og hálfa dós af fiski eða kjöti. Þetta er niðurlægjandi fyrir okkur, sögðu þingmennirnir, en dugar kannski til þess að við getum dregið fram lífið og það tekst ekki að bijóta okkur á bak aftur með þessum hætti. Nú hefur vetur gengið í garð í Sarajevo. Frostið getur farið niður í 20 gráður. íbúunum eru allar bjargir bannaðar. Rafmagn og olía er fjar- lægur munaður. Með öllu er óvíst hvað margar bílalestir með matvæli komast til borgarinnar eða annarra hluta Bosníu-Herzegóvínu. Pólitísk lausn I sendinefndinni frá bosníska þing- inu voru fulltrúar múslima, Serba og Króata. Þeir sögu að þessir þrír hópar gætu lifað saman í friði í Sarajevo og annars staðar í Bosníu- Herzegóvínu. Þeir sættu sig á hinn bóginn ekki við að „ný-fasistarnir“ í Serbíu og Króatíu legðu undir sig land sitt, aldrei myndu þeir fallast á tillögur Owens lávarðar og Thorvalds Stoltenbergs, sáttasemjara Samein- uðu þjóðanna, um skiptingu Bosníu- Herzegóvínu í þrennt. Það yrði að skipta um sáttasemjara, ef einhver SPARNAÐUR FYRIR HUNDRUÐ ÞÚSUNDA Einstaklingar og fyrirtæki hafa nú einstakt tækifæri tii að gera góð kaup í verslun Nýherja í Skaftahlíð 24. fjölbreytt vöruúrval Nýherji hefur aö bjóöa og hins vegar viðleitni fyrirtækisins til að bjóða viðskiptavinum sínum vandaðar vörur á góðu Laugardaginn 20. nóvember sl. birtust verði. Þetta hefur tekist með hagkvæmum Ráðstefna um ofbeldi Tilboðstíðindi Nýherja hér á síðum magninnkaupum og samningum við birgja um Morgunblaðsins. í Tilboðstíðindum er að finna sérstök kynningarverð. FORELDRASAMTÖKIN, Heimdallur, F.U.S. og Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum boða til ráðstefnu um ofbeldi i íslensku þjóðfélagi. Ráðstefnan verður haldin kl. 13.30 til 15.30 í safnaðarheimili Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14 (Iðnóhúsinu, gengið inn á horni Vonarstrætis og Lækjargötu) laugardaginn 27. nóvember. A ráðstefnunni verður m.a. fjallað um þá aukningu sem hefur orðið á alvarlegum ofbeldisverkum að und- anförnu og þá sérstaklega meðal ungs fólks. Rætt verður um leiðir til úrbóta og hlut einstakra hópa eða stofnana í því skyni. Sérstaklega verður rætt um ábyrgð og hlutverk foreldra, lögreglu, borgaryfirvalda og félagsmálastofnana. Þá verður einnig greint frá umfangi og þróun þeirra ofbeldisverka sem Slysadeild Borgarspítalans í Reykjavík hefur fengið til meðferðar á síðustu árum. Þess má geta að í hléi verða höfð til sýnis vopn sem Reykjavíkurlög- reglan hefur gert upptæk að undan- förnu. Framsögumenn verða: Eiríkur Ingólfsson, formaður Foreldrasam- takanna, Gunnar Jóhann Birgisson, héraðsdómslögmaður, Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfírlögreglu- þjónn og yfirmaður forvarnardeild lögreglunnar og Kristín Þórunn Tóm- asdóttir, formaður stjórnar Æsku- lýðssambands kirkjunnar í Reykja- víkurprófastsdæmum og formaður Félags guðfræðinema í Háskóla ís- lands. Á eftir framsöguerindum verða pallborðsumræður og fyrir- spurnir. í pallborðinu taka þátt auk framsögumanna: Ólöf Helga Þór, starfsmaður Rauðakrosshússins og Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir og forstöðumaður slysa- og bæklunar- lækningadeildar Borgarspítalans. Wicanders Kork^O'Plast EF ÞÚ BÝRÐ ÚTI Á LANDI ÞÁ SENDUM VIÐ ÞÉR ÓKEYPIS SÝNISHORN OG BÆKLING. JKork'O'Plast er með slitsterka vinylhúð' og notað á gólf sem mikið mæðir á, svo sem flugstöðvum og sjúkrahúsum. JKork-O'Plast er auðvelt að þrífa og þægilegt er að ganga á því.. Þ. ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640 fjölmörg tilboö á vörum með miklum afslætti. Tilboðstíðindi eru fyrirliggjandi í verslun Þessi tilboð sýna annars vegar hversu okkar í Skaftahlíð 24. Auk þessara dæma sem eru tekin hér mó finna yfir sextíu önnur frábær tilboð í Tilboðstíðindum Nýherja. Músamottur, disklingar, prentarar, tölvur, faxtæki og fleira og fleira. Hvers vegna ekki að líta við í verslun Nýherja og skoða hvað er í boði? Verslun okkar í Skaftahlíð 24 verður opin alla laugardaga fram að jólum frá kl. 10:00 - 16:00. .IJfGsd mu«89{j iJisJcósJeunniv uio nsbnumc NÝHERJI SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI 69 77 OO Alltaf skrefi ú undan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.