Morgunblaðið - 26.11.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
Akærðir fyrir
umboðssvik
og tilraun
til fjársvika
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið
út ákæru á hendur kaupmanni
fyrir umboðssvik og misnotkun
skjals, öðrum manni fyrir hlut-
deild í umboðssvikum hans og til-
raun til fjársvika og hæstarétt-
arlögmanni fyrir hlutdeild í brot-
um beggja.
Samkvæmt ákærunni hefur kaup-
maðurinn greitt upp skuldabréf sem
útgefið er af iðnfyrirtæki og síðan
selt meðákærða það. Iðnfyrirtækið
hafði heimilað kaupmanninum að
nýta lánsrétt sinn hjá Verslunariána-
sjóði í þeim tilgangi að ráðstafa ætti
lánsfjárhæðinni til greiðslu skuldar
hans við það. Er honum gefið að sök
að misnota aðstöðu sína sem hand-
hafí hins greidda skuldabréfs sjálfum
sér til ávinnings og iðnfyrirtækinu
til tjóns. Hann á að hafa selt og afsal-
að skuldabréfinum, sem upphafiega
var að fjárhæð 5 milljónir en rúrn-
lega 11 milljönir við greiðslu, til
meðákærða fyrir milligöngu hæsta-
réttarlögmannsins fyrir 2 milljónir
en jafnframt að hafa leyst fasteign
sína úr veðböndum en hún hafði stað-
ið sem veð fyrir skuldabréfinu.
Manninum sem keypti skuldabréf-
ið er gefið að sök að hafa með þess-
um viðskiptum veitt liðsinni sitt til
þess að valda iðnfyrirtækinu fjár-
tjóni. Jafnframt að hann hafi gerst
sekur um tilraun til fjársvika með
því að krefja og síðan höfða dóms-
mál á hendur fyrirtækinu til inn-
heimtu rúmlega 11 milljóna, auk
dráttarvaxta og kostnaðar, sem hann
vissi eða hefði mátt vita að kaupmað-
urinn ætti enga kröfu á.
Hlutdeild
hæstaréttarlögmanns
Hæstaréttarlögmanninum er gefið
að sök að hafa í opinberu sýslunar-
starfí sínu haft milligöngu um þessi
viðskipti, þrátt fyrir að hann þá vissi
eða mætti vita, að kaupmaðurinn
ætti ekki kröfu á hendur iðnfyrirtæk-
inu á grundvelli skuldabréfsins.
Einnig að hann hafí tekið að sér að
reyna að innheimta hjá iðnfyrirtæk-
inu á grundvelli skuldabréfsins rúm-
ar 11 milljónir, auk dráttarvaxta og
kostnaðar, (nú nær 20 milljónum)
og að hafa fylgt þeirri innheimtu
eftir með málshöfðun eftir að hafa
fengið upplýsingar um að kaupmað-
urinn en ekki iðnfyrirtækið væri
sjálfur hinn raunverulegi skuldari frá
upphafí, og þannig í Iögmannsstarfí
sínu veitt meðákærðu, hvorum á sinn
hátt, liðsinni sitt til að auðgast á
kostnað iðnfyrirtækisins.
------» » ♦-----
■ SRI CHINMOY setrið heldur
námskeið í yoga og hugleiðslu. A
námskeiðinu verða kenndar margs-
konar slökunar- og einbeitingaræf-
ingar. Námskeiðið verður haldið í
Sri Chinmoy setrinu, Hverfisgötu
76, það er ókeypis og öllum opið.
Það er í sex hlutum og byrjar fyrsti
hlutinn í kvöld, föstudag kl. 20.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
KRISTINN BRIEM
Spákaupmennska knúði fram
yfirlýsingu um innköllunarrétt
Milljarða kaup Seðlabankans á spariskírteinum var undanfari yfirlýsing-
ar Lánasýslu ríkisins um að innköllunarréttur yrði hugsanlega nýttur
SVO virðist sem mikil spákaupmennska með spariskírteini með
innköllunarrétti hafi valdið því að Lánasýsla rikisins sendi frá
sér yfirlýsingu á miðvikudag um hugsanlega innlausn skírtein-
anna á næstu tveimur árum. Eftir vaxtalækkanirnar um síðustu
mánaðamót sáu fjárfestar sér leik á borði til að innleysa gengis-
hagnað. Jafnframt virðist orðrómur um að fjármálaráðuneytið
ætlaði að nýta innköllunarréttinn hafi ýtt við markaðnum. Fjár-
festar hófu því skömmu eftir síðustu mánaðamót að selja spari-
skírteini í þessum flokkum í gríð og erg á Verðbréfaþingi. Keypti
Seðlabankinn spariskirteini í síðustu viku fyrir rúman milljarð
og hafði keypt töluvert fyrir þann tima. Vegna þessa þrýstings
sendi Seðlabankinn bréf til fjármálaráðuneytisins um síðustu
helgi þar sem farið var fram á að ráðuneytið tæki af öll tvímæli
um innköllunarrétt bréfanna. Á þessu máli er síðan önnur hlið
því ríkið gæti sparað sér allt að 500-600 milljónir á ári í vaxta-
greiðslur með því að innleysa flokkana. Spurningin er hins vegar
sú hvort markaðsaðstæður leyfi þessar innlausnir.
Fjármálaráðuneytið ákvað að
setja inn í spariskírteini ákvæði
um innköllunarrétt á árunum
1984-1987 en á þeim tíma var ís-
lenskt efnahagslíf að renna inn í
hávaxtaskeið. Innköllunarréttur á
skuldabréfum er algengur erlendis
og fleiri aðilar en ríkissjóður hafa
gefíð út bréf með slíkum ákvæðum
hér á landi. Þannig hafa bæði Fisk-
veiðasjóður og Lýsing hf. gefíð út
bréf með innköllunarrétti á þessu
ári. Sömuleiðis hefur ríkissjóður
gefíð út skuldabréf með innköllun-
arrétti erlendis og hefur nýtt sér
þann möguleika að greiða upp lán
fyrr en á lokagjalddaga.
Ákvæðin um innköllunarrétt
umræddra spariskírteina hafa
lengi valdið töluverðum heilabrot-
um á verðbréfamarkaði bæði hjá
verðbréfamiðlurum og upplýstum
fjárfestum. Hefur athyglin sér-
staklega beinst að stærsta flokkn-
um, 861/A6, en hann er með fyrsta
innlausnardag 10. janúar 1992.
Þessi flokkur ber mjög háa vexti
eða 9% og er nú að markaðsverð-
mæti um 8,8 milljarðar. Fram á
mitt sumar 1989 miðaðist verð
skírteinanna við þennan fyrsta
mögulega innlausnardag. Á þeim
tíma hófst ákveðin spákaup-
mennska með skírteinin á verð-
bréfamarkaði þar sem augljóst var
að ef ríkissjóður myndi ekki inn-
leysa þau fyrsta innlausnardag
fengju eigendur þeirra góðan
gengishagnað. Jókst eftirspurn
eftir slíkum spariskírteinum til
muna. Seðlabankinn brá þá á það
ráð að breyta viðmiðun um inn-
lausnardag við verðlagningu skír-
teinanna og miða við árið 1994.
Viðmiðuninni var síðan enn breytt
þegar kom að fyrsta innlausnar-
degi árið 1992 og hann færður
fram til ársins 2000.
Spákaupmennska kringum
nýlegar vaxtalækkanir
Þegar vextir tóku á lækka á
markaðnum í síðasta mánuði áður
en hin eiginlega umtalsverða
vaxtalækkun varð skapaðist enn
nokkur spákaupmennska í kring-
um þessa flokka. Fjárfestar sáu
sér leik á borði og hófu að kaupa
skírteini til eins langs tíma og
mögulegt var enda skilar vaxta-
lækkun meiri gengishagnaði eftir
því sem skuldabréf eru til lengri
tínia. Urðu mikil viðskipti með
spariskírteini í 86/1A6 o.fl flokk-
um spariskírteina á þessum tíma
og seldi Seðlabankinn mikið af
skírteinum.
Eftir að vextir höfðu lækkað
umtalsvert um mánaðamótin snér-
ist dæmið við. Hafði t.d. myndast
25% yfírgengi á 86/lA6-flokknum
og skapaði það óhjákvæmilega
freistingar á markaðnum að inn-
leysa gengishagnaðinn strax. Fjár-
festar hófu að selja spariskírteini
á ný og hefur Seðlabankinn þurft
að kaupa skírteini fyrir 2,6 millj-
arða í mánuðinum en þar af nema
kaup á skírteinum í flokknum
86/1A6 1,7 milljörðum. Raunar
mun þetta hafa gengið svo langt
að verðbréfafyrirtæki höfðu mark-
visst samband við lífeyrissjóði til
að leita að spariskírteinum í þess-
um flokkum. Fyrir langtímafjár-
festa þótti það blasa við að skyn-
samlegast væri að selja þessi skír-
teini með 5,25% ávöxtunarkröfu
og innleysa gengishagnaðinn en
veija andvirðinu til kaupa á hús-
bréfum með 5,6% ávöxtun. Jafn-
framt gátu fjárfestar losað sig
undan áhættunni vegna ákvæð-
anna um innlausnarrétt.
„Straumurinn var stöðugt
að þyngjast"
Birgir ísleifur Gunnarsson,
seðlabankastjóri, benti á að þeir
flokkar spariskírteina sem væru
með ákvæðum um innköllunarrétt
bæru mjög háa vexti miðað við það
sem tíðkaðist í dag eða allt að 9%.
Sá flokkur væri reyndar lang-
stærstur eða 8,8 milljarðar á upp-
reiknuðu verðgildi. „Það virðist
hafa farið af stað orðrómur um
að fjármálaráðherra myndi inn-
leysa þessa flokka sem gerði það
að verkum að sumir eigendur bréf-
anna hófu að losa sig við þau eins
hratt og þeir gátu. Seðlabankinn
hefur verið mjög virkur á þessum
markaði m.a. til að stuðla að því
að vaxtalækkunin haldist og hefur
því keypt þau spariskírteini sem
boðin hafa verið til sölu á Verð-
bréfaþingi. Þetta hefur orðið til
þess að við höfum keypt mjög
mikið af þessum flokkum á síðustu
vikum. Vegna þess að straumurinn
var stöðugt að þyngjast og orðróm-
urinn að vaxa þá vildum við vekja
athygli fjármálaráðherra á þessu
og gerðum það um síðustu helgi.
Bentum við á að það yrði að taka
af skarið á annan hvorn veginn
um þetta. Það yrði að gefa út yfir-
lýsingu um að stefnt væri að því
að innleysa þessa flokka eða að
þeir yrðu ekki innleystir. Við skilj-
um mætavel aðstöðu fjármálaráð-
herra um að hann treysti sér ekki
til gefa út yfirlýsingu um að hann
ætli að greiða allt að 9% vexti fram
til ársins 2000 meðan hann getur
fengið 5% vexti. Ég held að okkar
mat hafi verið rétt að um væri að
ræða spákaupmennsku en ekki að
vaxtahækkun væri í aðsigi því við-
skiptin með þessa flokka og önnur
spariskírteini hafa færst í eðlilegt
horf. Þessi spákaupmennska hefði
getað haft þau áhrif að hækka
vaxtastigið," sagði Birgir.
Hann sagði að Seðlabankinn
hefði keypt spariskírteini fyrir
rúman milljarð dagana 16-24. nóv-
ember en fyrir þann tíma hefði
einnig verið keypt töluvert af skír-
teinum í þessum áhættuflokkum.
Eftir tilkynningu Lánasýslunnar
á miðvikudag um að stefnt sé að
því að segja upp þessum flokkum
á skipulegan hátt á næstu tveimur
árum breytti Seðlabankinn viðmið-
un sinni um innlausnartíma. Miðar
bankinn að þessu sinni við mitt
ár 1995 í stað ársins 2000 sem
hafði þau áhrif að verð bréfanna
lækkaði um allt að 15%. Verði
skírteinunum sagt upp er því ljóst
að bankinn situr uppi með töluvert
tap vegna kaupanna að undan-
förnu. Hann á rúma tvo milljarða
af 86/lA6-flokknum.
Ríkið þarf að keppa við
erlenda fjármálamarkaði
Á næstu tveimur árum eru á
lokagjalddaga 12-13 milljarðar í
spariskírteinum. Þeir flokkar sem
ráðgert er að segja upp á þessum
tíma til viðbótar eru að fjárhæð
17 milljarðar eða djúgur hluti af
þeim 60 milljörðum sem eru úti-
standandi f spariskírteinum. Þann-
ig gætu heildarinnlausnir spari-
skírteina numið 30 milljörðum á
tveimur árum. Sú spurning vaknar
hvort markaðurinn þoli þessar
gríðarlegu innlausnir.
í þessu sambandi þarf að hafa
í huga að ótakmarkaðar heimildir
til fjárfestinga í erlendum verð-
bréfum verða veittar um næstu
áramót. Fjárfestar hljóta að leita
eftir hagkvæmustu ávöxtun hveiju
sinni auk þess sem þeir hafa til-
hneigingu til að leita á vit nýrra
ævintýra t.d. erlendis. Verðbréfa-
fyrirtækin hafa lagt gríðarlega
mikla vinnu í að afla sambanda á
erlendum fjármálamörkuðum und-
anfarin ár og láta ekkert tækifæri
ónotað til að upplýsa stofnanafjár-
festa eins og t.d. lífeyrissjóði um
þá möguleika ,sem þar eru í boði.
Ríkið mun því standa frammi fyrir
aukinni samkeppni frá erlendum
fjármálamörkuðum á næstu árum.
Hin hliðin á málinu er síðan
mikill vaxtakostnaður ríkisins.
Fjármálaráðherra hlýtur á hveijum
tíma að nýta alla möguleika til að
fá sem hagkvæmust vaxtakjör fyr-
ir ríkissjóð.
Menningarsjóður veitir samtals 13,3 milljónir í styrki vegna útgáfu bóka
31 bókmenntaverk fær styrk
Fyrsta úthlutun úr Menningarsjóði hefur farið fram. Auglýst var
eftir umsóknum og bárust sjóðnum samtals 105 umsóknir. Stjórn Menn-
ingarsjóðs samþykkti samhljóða að veita 31 styrk samtals að upphæð
kr. 13.350.000 til eftirtaliima verkefna:
Helgi Haraldsson fékk 2.000.000
kr. tii útgáfu Rússnesk-íslenskrar
orðabókar. Bókaútgáfan Iðunn fékk
1.000.000 kr. til útgáfu Íslensk-ítal-
skrar orðabókar. Kvenréttindafélag
íslands fékk 1.000.000 kr. til úgáfu
Veraldar sem ég vil, Sögu Kvenrétt-
indafélags íslands 1907-1992. Þjóð-
minjasafn íslands og Þjóðsaga hf.
fngu 1.000.000 kr. til útgáfu ís-
lenskrar þjóðmenningar, 7. bindi.
Almenna bókafélagið fékk 500.000
kr. til útgáfu Úr forðabúri forsetans
— úrvali úr ritgerðum Jóns Sigurðs-
sonar.-Blaðamannafélág Islands fékk
500.000 kr. til útgáfu Sögu fjölmiðl-
unar á íslandi. Leikfélag Reykjavíkur
fékk 500.000 kr. til útgáfu 100 ára
afmælisrits Leikfélags Reykjavíkur.
Mál og menning fékk 500.000 kr.
til útgáfu íslenskrar orðtengslabókar
eftir Jón Hilmar Jónsson. Matthías
Bjamason fékk 500.000 kr. til út-
gáfu á bókinni ísland fijálst og full-
valda ríki. Skipstjóra- og stýri-
mannafélagið Aldan fékk 500.000
kr. til útgáfu 100 ára afmælisrits
Öldunnar. Vaka-Helgafell hf. fékk
500.000 kr. til útgáfu Íslandsísa eft-
ir Ara Trausta Guðmundsson. Öra
og Örlygur, bókaklúbbur hf. fékk
500.000 kr. til útgáfu Stóru alfræði-
orðabókarinnar fyrir börn og ungl-
inga. Örn og Örlygur, bókaklúbbur
hf. fékk 500.000 kr. til útgáfu Ís-
lenskra orðatiltækja eftir Jón G. Frið-
jónsson. Mál og menning fékk
350.000 kr. til útgáfu íslenskrar
bókmenntasöga II. Bolli Gústavsson
fékk 300.000 kr. til útgáfu Ljóð-
mæia Björns Halldórssonar. Orm-
stunga hf. fékk 300.000 kr. til út-
gáfu Landfræðisögu íslands eftir
Þorvald Thoroddsen, endurútgáfa.
Vaka-Helgafell hf. fékk 300.000 til
útgáfu Islandssögu A-Ö eftir Einar
Laxness. Vaka-Helgafell hf. fékk
300.000 til útgáfu Lífsmynda forseta
— æviferils Jóns Sigurðssonar. Val-
borg Sigurðardóttir fékk 300.000 til
útgáfu Söga Fósturskóla íslands.
Almenna bókafélagið fékk 250.000
til útgáfu íslenskra tilvitnana. Bók-
menntafræðistofnun Háskóla íslands
fékk 250.000 kr. til útgáfu Túlkunar
Heiðarvígasögu eftir Bjama Guðna-
son. Mál og menning fékk 250.000
kr. til útgáfu Sögu daganna eftir
Árna Bjömsson. Ættfræðifélagið
fékk 250.000 kr. til útgáfu Manntals
1910. Bókmenntafélagið Hring-
skuggar fékk 200.000 kr. til útgáfu
bókarinnar Um Jónas eftir Matthías
Johannessen. Gylfi Gröndal fékk kr.
200.000 til útgáfu Ævisögu Sveins
Björnsson. Raunvísindastofnun Há-
skólans fékk 150.000 kr. til útgáfu
Minningarrits um Leif Ásgeii-sson.
Almenna bókafélagið fékk 100.000
kr. til útgáfu Ritsafns Sigurðar Nor-
dals — 3. hluta. Bandalag íslenskra
skáta fékk 100.000 kr. til útgáfu
Skátahandbókarinnar. Hið íslenska
þjóðvinafélag fékk 100.000 kr. til
útgáfu Andvara 1993. Rannsóknar-
stofnun Kennaraháskóla íslands
fékk 100.000 kr. til útgáfu Lýð-
menntunar, hugleiðinga og tillagna
eftir Guðmund Finnbogason, endur-
útgáfa. Landssamband Gídeonfélaga
á Islandi fékk 50.000 kr. til kaupa
á Nýja testamenti og Davíðssálmum
og Biblíum.
Með samþykkt laganna um nýjan
Menningarsjóð féllu úr gildi lög um
menningarsjóð og menntamálaráð. f
fréttatilkynningu sjóðsins segir að
„hlutverk Menningarsjóðs er að veita
fjárhagslegan stuðning til útgáfu
þeirra bóka á íslenskri tungu sem
verða mega til eflingar íslenskri
menningu."
Stjórn Menningarsjóðs skipa þær
Bessí Jóhannesdóttir sagnfræðingur
formaður, Áslaug Brynjólfsdóttir
fræðslustjóri og Hlín Danielsdóttir
fulltrúi.