Morgunblaðið - 26.11.1993, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
Tónlistarskólinn
Tónleikar
söngdeildar
SÖNGDEILD Tónlistarskólans á
Akureyri heldur tónleika i Akur-
eyrarkirkju í kvöld, föstudags-
kvöldið 26. nóvember, kl. 20.30.
Á tónleikunum verða eingöngu
flutt verk frá barokktímanum, en
með tilkomu sembals sem skólinn
eignaðist síðastliðið vor opnuðust
möguleikar á fjölbreyttari tónlistar-
flutningi. Semballinn er nú í fyrsta
sinn notaður í tónleikahaldi söng-
deildar.
Á tónleikunum í kvöld verða fleiri
hljóðfæri til styrktar söngvurunum,
strengir og blásturshljóðfæri, en
hljóðfæraléikararnir eru úr röðum
kennara. Flutt verða verk eftir
Bach og Handel, m.a. hlutar úr
Jólaóratóríunni og Messíasi.
-.---------
Rússnesk
myndí
Borgarbíói
KVIKMYNDAKLÚBBUR Akur-
eyrar sýnir rússnesku kvikmynd-
ina Urga í Borgarbíói kl. 17 á
sunnudag. Myndin er með norsk-
um texta.
Myndin Qallar um Gombo og
konu hans sem eru hirðingjar á
steppum Mongólíu. Gombo lifir fá-
brotnu lífi og hefur aldrei í stórborg
komið, en líf hans tekur stakka-
skiptum þegar fjarskyldur ættingi
frá borginni kemur í heimsókn, veg-
ur er lagður að heimkynnum hans
og hann kynnist vörubílstjóra sem
vinnur við vegalagninguna. Saman
halda þeir til borgarinnar og verður
ferðalag þeirra samfellt ævintýri.
Nikita Mikalkoff, sem leikstýrir
myndinni, er einn þekktasti leik-
stjóri Rússa á Vesturlöndum.
(Fréttatilkynning.)
----»-»■■■♦-
I HEIÐAR Jónsson snyrtir verð-
ur með konukvöld í Blómahúsinu
á Akureyri í kvöld, föstudagskvöld-
ið 26. nóvember. Einnig verður þar
undirfatasýning frá Amaro.
Annað kvöld verður Heiðar aftur
á ferðinni í Blómahúsinu og þá
með dagskrá sem hann nefnir
hjónakvöld. Einnig verður tískusýn-
ing á dömu- og herrafatnaði frá
Amaro. (Fréttatílkynning.)
Yerslunarmiðstöðin Krónan í miðbæ Akureyrar eins árs
V erslunareigendur
EIGENDUR verslana í Krón-
unni í miðbæ Akureyrar fögn-
uðu eins árs afmæli verslun-
armiðstöðvarinnar í gær. Sex
verslanir eru nú starfandi á
fyrstu hæð miðstöðvarinnar
og sú sjöunda verður opnuð
innan tíðar auk þess sem versl-
anir verða væntanlega opnað-
ar á annarri hæð fyrir jól.
Fæ ég líka?
í TILEFNI eins árs afmælis
Krónunnar var gestum boðið
afmæliskaffi sem fjölmargir
þáðu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sjö verslanir á fyrstu hæð
og fleiri bætast við fyrir jól
KRÓNAN við Hafnarstræti 97 varð eins árs í gær og af því til-
efni var mikið um dýrðir í verslunarmiðstöðinni og gestum boðið
í afmæliskaffi. Byggingafélagið Lind, sem að framkvæmdum stóð,
er fimm ára um þessar mundir, en ýmis verktakafyrirtæki og
einstaklingar á Akureyri eru hluthafar í félaginu. Álls eru sex
verslanir á fyrstu hæð og sú sjöunda verður opnuð innan tíðar,
en búist er við að fljótlega verði einnig opnaðar verslanir á ann-
arri hæð verslunarmiðstöðvarinnar. Húsið er alls sex hæðir.
„Það er gott að vera í þessu
húsi, ég er mjög ánægð með þessa
aðstöðu og finn að fólk hefur
gaman af því að koma hingað í
verslunarmiðstöðina," sagði
Steinunn Guðmundsdóttir sem
rekið hefur verslunina Tískuversl-
un Steinunnar í Krónunni frá því
að verslunarmiðstöðin var opnuð
fyrir einu ári. „Ég er bjartsýn á
framtíðina hér og að mínu áliti
hefur þessi bygging verið miðbæ-
jarlífínu lyftistöng, maður verður
var við að þegar hópar koma í
bæinn til dæmis á fundi eða ráð-
stefnur að fólk hefur hér viðkomu
og líst vel á.“ Aðrar verslanir í
Krónunni eru Kátir krakkar,
Centro, Sápubúðin, Isabella og
Alladín.
Samningur við ríki og bæ
Framkvæmdir við byggingu
Krónunnar hófust sumarið 1989,
en byijað var að byggja af krafti
tveimur árum síðar. Annar áfangi
byggingarinnar sem er lokafrá-
gangur á annarri hæð er langt
kominn og er vonast til að ein-
hveijar verslanir þar verði opnað-
ar fyrir jólin. Viðræður hafa stað-
ið yfir í nokkum tíma við ríki og
Akureyrarbæ um að aðgengi í
Heilsugæslustöðina á Akureyri,
sem er í næsta húsi, Amarohús-
inu, verði um Krónuna og vonast
er til að á næstu dögum verði
gengið frá samningi þar um.
Verður þá hafist handa um að
fullgera húsið með lyftu og teng-
ingu yfir í Hafnarstæti 99.
Sama lyktin og var
í gömlu sápubúðinni
Edda Vilhjálmsdóttir, sem á
Sápubúðina, segir að samnefnd
búð hafi verið rekin á Akureyri í
byijun aldarinnar og þar var
verslunarstjóri Lára Ólafsdóttir,
sú sama og Þórbergur Þórðarson
sendi bréf til. „Eldra fólk, sem
kemur hingað, nefnir gjarnan að
það sé sama lykt hér og var í
gömlu sápubúðinni,“ segir Edda.
Þó að nafn verslunarinnar sé
kennt við sápur er vöruúrvalið
víðtækara, þar má finna fjölbreytt
úrval gjafavöru, góðgæti af marg-
víslegu tagi, sultur, súkkulaði og
sinnep svo eitthvað sé nefnt auk
þess sem þar eru til sölu bresku
vörurnar frá Crabtree & Evelyn.
Edda flytur mikið af vörum beint
inn, m.a. súkkuiaði í gjafapakkm
ingum sem sérstaklega er ætlast
til að hafa með kaffi. „Ég er mjög
ánægð með viðtökurnar, það er
gott að vera í þessu samfélagi hér
og staðsetningin er líka afar
heppileg," sagði Edda.
MESSUR
■AKUREYRARPRESTA-
KALL Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju verður í safnaðarheimilinu á
morgun kl. 11. Kirkjubílarnir fara
frá Minjasafnskirkju og Kaupangi
kl. 10.40 og frá kirkjunni kl. 12.
Guðsþjónusta verður 1. sunnudag
í aðventu kl. 11. Félagar í kór
Akureyrarkirkju syngja. Organisti
Björn Steinar Sólbergsson. Einnig
syngur barnakór kirkjunnar undir
stjórn Hólmfríðar Benediktsdóttur.
Guðsþjónusta á hjúkrunardeild
aldraðra, Seli, kl. 14. og á dvalar-
heimilinu Hlíð kl. 16. Barnakór
Akureyrarkirkju syngur. Æsku-
lýðsfélagið heldur fund í Kapellunni
kl. 17 á sunnudag. Biblíulestur
verður í safnaðarheimilinu á mánu-
dagskvöld kl. 20.30.
■GLERÁRKIRKJA Biblíulestur
og bænastund kl. 13. Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. á morgun.
Fundur æskulýðsfélagsins verður
kl. 17.30 á sunnudag.
■KAÞÓLSKA KIRKJAN við
Eyrarlandsveg 6. Messa í dag,
laugardag, kl. 18 og á sunnudag
kl. 11.
■HJÁLPRÆÐISHERINN.
Helgunarsamkoma kl. 11 á morg-
un. Sunnudagaskóli kl. 13.30, bæn
kl. 19.30 og almenn samkoma kl.
20. Flokksforinginn í Reykjavík,
Sven Fosse, talar á samkomum
dagsins.
Hlutabréfasjóður Norðurlands
50 miiljóna kr. hlutafjárútboð
i verði um 19% eða sem svarar til hlutabréfasjóða á verðbréfamark-
6,7% raunávöxtunar á ári, en Hluta- aði. Sjóðurinn á nú um 65 milljónir
bréfasjóður Norðurlands skilaði á króna og eru hluthafar tæplega
síðasta ári bestu raunávöxtun allra 500.
Aukafjárveiting til
Félagsmálastofnunar
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að veita þriggja milljóna króna aukafjár-
veitingu til Félagsmálastofnunar Akureyrarbæjar vegna fjárhags-
aðstoðar á þessu ári.
FIMMTÍU milljóna króna hluta-
fjárútboð Hlutabréfasjóðs Norð-
urlands hófst í vikunni. Sölu-
gengi bréfanna er í upphafi 1,19
en breytist á útboðstímanum sem
er til 22. maí á næsta ári eftir
markaðsverðmæti eigna félags-
ins.
Hlutabréfasjóður Norðurlands
varð tveggja ára í þessum mánuði,
en tilgangur með rekstri sjóðsins
er að skapa farveg fyrir samvinnu
lögaðila og einstaklinga um fjár-
festingar í hlutabréfum og skulda-
bréfum atvinnufyrirtækja. Fast-
eignarstefna félagsins miðað ar því
að 40 til 70% áf eignum þess sé
að jafnaði bundið í hlutabréfum og
25-60% í skuldabréfum.
Besta raunávöxtunin
Þau tvö ár sem félagið hefur
starfað hafa hlutabréf þess hækkað
Á fundi félagsmálaráðs fyrir
skömmu kom fram að áætluð upp-
hæð til fjárhagsaðstoðar á þessu ári
hafi verið rúmar 13 milljónir króna.
Staðan var þannig 1. nóvember síð-
astliðinn að þegar hafði verið búið
að greiða tæpar 11,9 milljónir króna
og á umræddum fundi sem haldinn
var 10. nóvember kom fram að það
sem af væri mánuðinum hafi verið
veittar rúmlega 1,1 milljón króna í
lán og styrki, þannig að fjárveiting
ársins var uppurin.
Félagsmálaráð óskaði eftir Jiví við
bæjarráð að það veitti þriggja milljón
króna aukafjárveitingu til fjárhags-
aðstoðar fyrir mánuðina nóvember
og desember og var það samþykkti
í bæjarráði í liðinni viku.