Morgunblaðið - 26.11.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
23
Sölulisti vikuna
15.-21. növember
Islenskt,
já takk!
Kristján Jóhannsson er sterkur í öðru sæti, en
salan líklega meiri.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Todmobile fer beint í þriðja sætið.
á loks er kominn jólasvipur
á íslenska popplistann -
topp XX. Nú er helsta plötuvertíð
íslenskrar tónlistar og íslenskar
plötur raða sér inn á toppinn.
Þannig er meirihluti á topp tíu
íslenskar plötur, Bubbi situr sem
fastast í efsta sæti, Kristján Jó-
hannsson kemur beint inn í ann-
að sætið, Todmobile í það þriðja,
KK Band í fjórða sæti úr átjánda,
Stefán Hilmarsson í sjötta sætið,
Nýdönsk, sem kom sterk inn á
lista í síðustu viku, sígur niðurá-
við, og íslensku strákarnir í The
Boys eru á leið út af listanum.
íslenskir flytjendur eru því í góð-
um meirihluta og verða sjálfsagt
fleiri þegar á líður, því enn eiga
eftir að skila sér inn á lista plötur
með til að mynda Jet Black Joe,
Siggu Beinteins, Rabba og Geir-
mundi og safnplöturnar Kærleik-
ur, Ýkt stöff og Heyrðu 2, sem
verða að teljast líklegar til góðrar
sölu, sérstaklega Jet Black Joe,
en einnig gæti Páll Óskar Hjálm-
týsson átt eftir að gera skurk og
Bubbleflies stígur rólega upp á
við, fer nú úr fimmtán í þrettán,
en Fagra veröld, plata með lög-
um við Ijóð Tómasar Guðmunds-
sonar, birtist i 20. sæti. Annars
er plötusala treg, jólavertíðin
varla farin af stað, og ekki nærri
Stefán Hilmarsson fer í sjötta
sæti með sína fyrstu sólóskífu.
því eins mikið líf í markaðnum
og síðar. á eftir að verða, að
minnsta kosti ekki sé litið til söl-
unnar.
Plata Kristjáns Jóhannssonar,
Af lífi og sál, kemur sterk inn á
lista, eins og áður segir, en ekki
nógu sterk samt til að velta úr
sessi Bubba Morthens. Kristján
selst þó víðar en í plötubúðum,
því honum er dreift í bókaversl-
anir líka, en sú sala skilar sér
ekki á íslenska popplistanum -
topp XX, því hann byggist á sölu
í plötuverslunum eingöngu.
Todmobile kemur líka sterk inn
á lista í fyrstu söluviku, en plöt-
unnar hefur verið beðið með
nokkurri eftirvæntingu í kjölfar
vel heppnaðrar tónleikaferðar
sveitarinnar um landið síðustu
vikur. KK Band, sem fór í átjánda
sæti í síðustu viku, náði ekki
nema eins dags sölu fyrir þann
lista, en er nú í fjórða sæti og
erfitt að spá hvort hún fari hærra
í bili, enda sterkar plötur fyrir
ofan. Transdansinn, sem skaust
óvænt í annað sæti, verður að
víkja fyrir þungaviktinni, en Stef-
án Hilmarsson bregður sér hæg-
lega í sjötta sætið með sína
fyrstu sólóskifu, sem hann gefur
sjálfur út, og verður að teljast
gott. Hunang Nýdanskra sígur
niðurávið, eftir kúfinn í síðustu
viku sem kom sveitinni í sjötta
sætið, en ekki er ástæða til að
ætla að skífan eigi eftir að hrynja
niður listann, því hljómsveitin er
með kynningarátak í gangi, með-
al annars vegna væntanlegra
útgáfutónleika. The Boys síga
svo niðurávið og stefna út af list-
anum með hægð.
íslenski popplistinn er unninn af Gallup fvrir Morgunblaðið,
Sjónvarpio, Rós 2 og samband hljómpíötuframlei&enda.
Islenski popplistinn — TOPP XX — er ó dagskró Sjónvarpsins
á föstudögum og á dagskrá Rásar 2 á laugardögum.
Glæsilegir
skíðasamfestingar á börn
og unglinga á
frábæru verði
5%
staðgreiðsluafsláttur,
einnig afpóstkröfum
greiddum innan 7 daga.
Stærðir: 90-110 kr. 3.900
120-140 kr. 4.900
150-180 kr. 6.900
3 litir
mmuTiuFmm
QLÆSIBÆ • SÍMI812922
Tónleikasal FIH
Rauðagerði 27
föstudaginn 26. nóvember kl. 21:00
Slgurðttr Flosason
Það er skemmst frá því að segja
að Gengið á lagið er metnaðar-
fyllsta og markvissasta jazzútgáfa
hérlendis nokkru sinni.
Guðjón Guðmundsson, Mbl. 20.10.1993.
Þeir eru eflaust margir sem vildu
eiga jafn hnökralausa fyrstu
sólóplötu, með svona líka fínum
hljóðfæraleik og lagasmiðum.
Ingvi Þór Kormáksson, D.V. 15. 10. 1993
*o
3
05
co
Dreifing
JAPISS
Brautarholti 2 • Sfmi 62 52 00
C/5
03
>-