Morgunblaðið - 26.11.1993, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
25
Steffen Heitmann hætt-
ir við forsetaframboð
€ B€ L
Bonn. Reuter.
STEFFEN Heitraann, forsetaefni Kristilega demókrataflokks-
ins, sagði í gær að hann myndi ekki gefa kost á sér í embætti
forseta Þýskalands er Richard von Weizsacker lætur af emb-
ætti á næsta ári. Helmut Kohl kanslari hafði barist hart fyrir
tilnefningu Heitmanns, þrátt fyrir harða gagnrýni og er þetta
töluvert pólitískt áfall fyrir hann.
í yfirlýsingu sem hann gaf út
sagði Heitmann að hann vildi taka
það skýrt fram að hann drægi sig
ekki til baka til að frambjóðandi
úr vesturhluta Þýskalands gæti orð-
ið forseti. Heitmann, sem gegnir
embætti dómsmálaráðherra í Sax-
landi í austurhluta landsins, hvatti
til þess að menn úr öllum flokkum
myndu nú fylkja sér um einn fram-
bjóðanda, jafnaðarmanninn Richard
Schröder.
Schröder er prestur og var áber-
andi í andófshreyfingunni gegn
stjórn kommúnista í lok síðasta
áratugar. Hann var forystumaður
jafnaðarmanna á síðasta þingi
Austur-Þýskalands árið 1990 en lét
síðan af stjórnmálaafskiptum og
kennir nú guðfræði við Humboldt-
háskólann í Berlín. Hann hefur ít-
rekað lýst því yfir að hann hafi
ekki hug á forsetaembættinu.
Þýski Jafnaðarmannaflokkurinn,
SPD, hefur þegar lýst yfir stuðn-
ingi við Johannes Rau, forsætisráð-
herra Nordrhein-Westphalen.
Steffen Heitmann var alveg
óþekktur í Þýskalandi er Helmut
Kohl lýsti því yfir fyrr á árinu að
hann teldi rétt að næsti forseti
kæmi úr austurhluta Þýskalands
og að hann vildi Heitmann sem
forsetaefni Kristilega demókrata-
flokksins. Það val sætti strax mik-
illi gagnrýni jafnt innan raða kristi-
legra demókrata sem utan. Heit-
mann þótti hafa einstrengningsleg-
ar skoðanir og ekki vera líklegur
til að sameina þjóðina. Það voru
ekki síst skoðanir hans á innflytj-
endum, málefnum kvenna og fortíð
Þýskalands sem ollu miklum deil-
um. Kohl hafði hins vegar tekist
að knýja í gegn tilnefningu Heit-
manns er hann ákvað að draga sig
til baka. Síðast á miðvikudag varði
hann Heitmann í umræðum á þing-
inu.
Eftir að Heitmann hafði gefið
út yfirlýsingu sína í gær sagðist
Kohl virða þessa ákvörðun þó að
hann harmaði hana. Sagði hann
hina persónulegu rógsherferð á
hendur Heitmann vera öllum þeim
til skammar, sem staðið hefðu að
henni. „Það hvernig hann dregur
sig í hlé sýnir greinilega fram á
hversu brengluð mynd hefur verið
dregin upp af Steffen Heitmann í
fjölmiðlum."
Þó að Heitmann hafi lagt til að
Schröder yrði næsti forseti Þýska-
lands telja margir fréttaskýrendur
að líklegra sé að Kohl muni reyna
að fá Roman Herzog, forseta stjórn-
lagadómstólsins, til að bjóða sig
fram. Herzog nýtur mikillar virð-
ingar í landinu og er talið að um
hann geti náðst breið samstaða.
Vinnuvikan fjórir dagar hjá Volkswagen
Efasemdir um
samnmgana
Hannover. Reuter.
TEKIST hafa samningar milli Volkswagens, stærstu bílasmiðja í
Evrópu, og verkalýðssambandsins IG Metalls um fjögurra daga vinnu-
viku í verksmiðjunum í Þýskalandi. Jochen Schumm, aðalsamninga-
maður Volkswagens, sagði, að samningurinn sparaði fyrirtækinu
um 70 milljarða ísl. kr. á ári næstu tvö árin og lækkaði launakostn-
að um nærri 20%. Jiirgen Peters, aðalsamningamaður IG Metalls,
áætlaði, að launalækkun starfsmanna Volkswagens yrði eitthvað
innan við 10%.
Grunnlaun verkamanna lækka
ekki, heldur ýmsar greiðslur aðrar,
og þeir afsala sér 3,5% launahækk-
un, sem taka átti gildi 1. þessa
mánaðar. Þá var fyrirhugðri stytt-
ingu vinnuvikunnar úr 36 klukku-
stundum í 35 frestað í eitt ár. Laun
hækka hins vegar um 1% 1. janúar
nk. og á sú hækkun að koma í stað
þeirra hækkana, sem hugsanlega
hefði samist um í kjarasamningum
á næsta ári. Volkswagen hefur
greitt starfsmönnum sínum 14
mánaða laun á ári en nú verður 14.
mánuðurinn skertur.
Misjafnar undirtektir
Talsmenn Volkswagens og IG
Metalls eru mjög ánægðir með
samninginn en fyrirtækið hafði áð-
ur lýst yfir, að án hans yrði starfs-
mönnum í Þýskalandi fækkað um
30.000 en þeir eru alls 100.000.
Viðbrögð stjórnmálamanna og hag-
fræðinga við samningnum eru með
ýmsu móti en sérfræðingar í bíla-
iðnaðinum eru vantrúaðir. Oskar
Lafontaine, varaformaður Jafnað-
armannaflokksins, sagði, að samn-
ir.gurinn ætti að vera fordæmi fyrir
aðra en Rudolf Zwiener, hagfræð-
ingur við DlW-rannsóknastofnun-
ina, sagði, að yrði þetta fyrirkomu-
lag algengt í Þýskalandi, gæti það
liaft verulega erfiðleika í för með
sér vegna lægri launa og minni
kaupgetu. Þá segja sumir, að drag-
ist efnahagssamdrátturinn í Þýska-
landi fram á árið 1995 muni
Volkswagen ekki geta staðið við
samninginn og Norbert Walter, að-
alhagfræðingur Deutsche Bank,
sagði, að samningurinn væri fremur
tilraun Volkswagens til að fela
vandamálin í stað þess að horfast
í augu við þau.
Bandarískum stúlkubörnum víxlað vísvitandi
Vill ekkert með kyn-
foreldra sína hafa
Sarasola. Reutor.
LÖGFRÆÐINGUR Kimberley Mays, stúlkunnar sem var víxlað
skömmu eftir fæðingu fyrir hjartveika stúlku, sagði á miðvikudag
að upplýsingar þess efnis að starfsfólk sjúkrahússins sem hún fædd-
ist í hefði vísvitandi víxlað stúlkubörnunum, breyttu í engu þeirri
ákvörðun hennar að hafa engin samskipti við kynforeldra sína. Víxl-
in uppgötvuðust fyrir fimm árum er hin stúlkan lést af völdum
meðfædds hjartagalla.
Kimberley Mays vann í sumar
mál gegn kynforeldrum sínum, sem
kröfðust þess að fá forræði yfir
henni. Þvertók stúlkan fyrir það,
svo og að þeir fengju umgengnis-
rétt. Fær hún að alast upp hjá föð-
ur sínum og mega kynforeldrar
hennar ekki hitta hana.
Það var sjúkraliði á sjúkrahúsinu
sem stúlkurnar fæddust í sem upp-
lýsti á dánarbeði sínu að þeim hefði
verið víxlað vísvitandi. Viðtali við
sjúkraliðann, sem er sextug, var
sjónvarpað á CBS-sjónvarpsstöð-
inni. Sagði hún greinilegt að annað
barnið hefði verið hjartveikt, þar
sem húð þess var bláleit. Hitt barn-
ið (Kimberley Mays) hefði hins veg-
ar verið fullkomlega heilbrigt.
Sjúkraliðinn upplýsti ekki hver víxl-
aði börnunum.
Lögreglan í Hardee-sýslu býr sig
nú undir rannsókn málsins og
mögulega málsókn.
BORGARKRINGLUNNI
SÍMI677230
-1911-
Kynnið ykkur gistitilboð
í desember.
V
Sigtúni 38 - Allar upplýsingar i síma 689000 - Fax: 680675
Við tökum smá
forskotájólin og
borð að höfðingja sið.
Að sjálfsögðu er allt það besta
úr íslenska búrinu, til dæmis
heitt og kalt hangikjöt, svið,
sviðasulta, rófustappa,
rauðkál og laufabrauð.
Við lumum einnig á
klassískum jólaréttum frá
útlöndum og berum fram
danska rifjasteik, sænska
sfldarrétti, gljáð grísalæri,
fylltan kalkún og margt fleira
girnilegt góðgæti sem
ómissandi er á höfðingja-
borðum. Einnig jólaglögg
að hætti hússins.
Öll kvöld frá 26. nóvember
I hádeginu frá fimmtudegi til sunnudags
o g öll hádegi síðustu vikuna fyrir jól.
Verð: 1.950.- í hádeginu og
2.400.- á kvöldin
Salir fyrir 40 - 130 manna hópa
m.a. Hóteigur a efstu hæð
með útsýni yfír borgina.
1
____________________________.....________________
BACKMAN