Morgunblaðið - 26.11.1993, Side 26

Morgunblaðið - 26.11.1993, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993 SÍF eykur umsv ytra en sparar h PlnirgmiriMalíili Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Raunsætt stöðumat á Flateyri Framhaldið þó enginn dans á rósum segir Magnús Gunnars- son fráfarandi forsljóri SÍF „ÞÆR breytingar, sem gerðar hafa verið á rekstri félagsins, hafa verið mjög erfiðar, þó að ekki hafi farið mikið fyrir þeim í almennri umfjöllun. Við höfum auðvitað þurft að horfast í augu við mikinn samdrátt í þorskafla. Um 85% af útfluttum saltfiskafurðum eru þorsk- ur og því er bein tenging á milli samdráttar í þorskafla og samdráttar i útflutningi á saltfiski. Við urðum að takast á við þennan vanda og skera starfsemina verulega niður. Frá því í október í fyrra höfum við til dæmis þurft að fækka starfsfólki um helming. Við höfum þurft að taka á mjög mörgum kostnaðarliðum og ávinningurinn af því er, sé miðað við rekstrarkostnað árið 1992 og rekstraráætlun á næsta ári, sparnaður upp á um 85 milljónir króna á ársgrundvelli. Ef tekið er inn í það lokun á kæligeymslu okkar og sá rekstur, sem henni fylgdi, eru það 45 milljónir króna í viðbót. Þetta er því gífurlega mikill samdráttur og um leið sparnaður í rekstri,“ segir Magnús Gunnarsson, fráfarandi forsljóri SIF. Sú ákvörðun forráðamanna Hjálms hf. á Flateyri að hætta fiskvinnslu og segja upp öllu starfsfólki sínu, vegna mik- ils taps fyrstu tíu mánuði árs- ins, hefur að vonum vakið mikla athygli. Fyrirtækið hefur um langa tíð verið burðarás atvinnu- lífs á Flateyri. Einar Oddur Kristjánsson, stjómarformaður Hjálms hf., segir í samtali við Morgunblaðið á þriðjudag: „Núna getum við staðið við allar okkar skuldbind- ingar og svo verður tíminn að leiða í ljós hvað okkar bíður. Mönnum leyfíst ekki að tapa nema sínu eigin fé.“ Fyrrgreind yfírlýsing Einars Odds Kristjánssonar um að mönnum leyfist ekki að tapa nema eigin fé hefur vakið at- hygli. Því miður er það fátítt að stjómandi fyrirtækis í rekstr- arerfíðleikum lýsi því yfir á þennan hátt að ekki sé siðferði- lega veijandi að reka fyrirtækið áfram að óbreyttum aðstæðum. Stór hluti þess uppsafnaða vanda, sem við búum við í dag, er einmitt til kominn vegna þess að fyrirtæki hafa haldið áfram starfsemi þótt löngu væri orðið ljóst að rekstrargrundvöllur þeirra væri ekki lengur fyrir hendi og að þau væru að tapa annarra fé. Það liggur í augum uppi, að þegar menn hætta að tapa sínu eigin fé en halda áfram tap- rekstri byrja þeir að tapa ann- arra manna fé. Tugir milljarða hafa farið í súginn á undanförn- um áratugum vegna tapaðra útlána í sjávarútvegi, fískeldi, loðdýrarækt og ýmsum öðrum rekstri. I flestum tilvikum hafa ríkið, opinberir sjóðir og banka- stofnanir orðið að axla byrðarn- ar. Þeir sem greiða hins vegar endanlega reikninginn eru al- menningur og fyrirtæki í formi hærri skatta og vaxta. Oft er kvartað yfír skorti á viðskiptasiðferði á Islandi. Það hefur jafnvel gerst hvað eftir annað að fyrirtæki sé keyrt í þrot með tugmilljóna skuldir á bakinu en hefji síðan rekstur á nýjan leik skömmu síðar undir nýju nafni en með sömu eigend- ur. Varanlegur þjóðarauður og traust lífskjör verða hins vegar ekki byggð upp á slíkum for- sendum. Ef við ætlum að stand- ast samanburð við nágrannaríki okkar hvað lífsgæði varðar í framtíðinni verða islensk fyrir- tæki að vera rekin á traustum og heilbrigðum grunni. Menn verða að temja sér annað við- horf en viðgengist hefur. Það er betra að draga saman seglin í tæka tíð þegar á móti blæs, og bíða þess að sóknarfæri gef- ist á ný, líkt og stefnt virðist vera að á Flateyri, en að bíða þangað til allt það sem byggt hefur verið upp og meira til er uppurið. Vissulega kostar það tíma- bundnar fórnir og sársauka að grípa til aðgerða af þessu tagi, ekki síst í byggðarlagi sem treystir nánast alfarið á eitt fyr- irtæki. Ef ekkert hefði verið gert, hefði hins vegar sú fóm, sem orðið hefði að færa þegar fram í sækti, reynst mun sárs- aukafyllri. Því miður eru dæmin um hið síðarnefnda allt of mörg á síðustu árum. Vonandi verður raunsætt stöðumat stjómar- manna Hjálms á Flateyri öðmm umhugsunarefni. Það er hins vegar alvarlegt umhugsunarefni, að flest sjávar- útvegsfyrirtæki á Vestfjörðum eiga við mikla erfíðleika að etja. Lengi hafa verið vandamál í útgerð og fiskvinnslu á Patreks- fírði og Bíldudal. Rekstrarstað- an er veik í Dýrafirði. Fullkomin óvissa ríkir um framtíð þess rekstrar, sem hafínn er á Bol- ungarvík í kjölfar gjaldþrots fyr- irtækja Einars Guðfinnssonar hf. Raunar er mikil bjartsýni að ætla, að sá rekstur geti gengið til lengdar, svo að ekki sé meira sagt. Fyrirtæki á Isafírði og í Súðavík tóku við útgerð og físk- vinnslu á Súgandafírði og er sá rekstur vafalaust þungur. Til eru fyrirtæki við Djúp, sem standa mjög vel, en það hallar undan fæti hjá öðmm. Þessi vandamál eru komin á það stig, að það er ástæða til að spyrja hver framtíð byggðar á Vestfjörðum er að óbreyttum aðstæðum. Þetta er þeim mun meira umhugsunarefni, þar sem Vestfírðir hafa öldum saman verið ein öflugasta verstöð á íslandi. Það er alveg ljóst, að sum fyrirtæki í sjávarútvegi ganga vel, þrátt fyrir minnkandi afla. Það er augljóst, að það em stóm fyrirtækin, sem standa upp úr. Það er íhugunarefni fyr- ir Vestfirðinga, hvort nauðsyn- legt kunni að vera að efna til mun róttækari endurskipulagn- ingar sjávarútvegs á Vestfjörð- um en menn hafa hingað til stefnt að. Reynslan af rekstri Granda í Reykjavík, ÚA og Samheija á Akureyri, Síldar- vinnslunnar á Norðfírði, svo að dæmi séu nefnd, getur hugsan- lega vísað Vestfírðingum veg- inn. Hitt er alveg ljóst, að ef ekki verður meiri háttar upp- stokkun í sjávarútvegi á Vest- fjörðum heldur þessi atvinnu- grein áfram að veikjast þar, eins óskiljanlegt og það nú er í ljósi nálægðar við fiskimiðin. „Ég held að búið sé að fara eins vel ofan í þessa stöðu eins og hægt er. Við gerðum okkur einnig grein fyrir því, að við yrðum að afla tekna, sem dygðu fyrir þessum rekstri, sem eftir stendur," segir Magnús. „Ljóst var, að þótt sveiflur væru bæði upp og niður og ýmist gengi vel eða illa að selja, að við þurftum að fá tölu- vert meiri fisk í gegn um sölukerfi okkar en fáanlegur var hér heima, til að halda þeirri stöðu, sem við höfðum á markaðnum. Við fórum því í stórauknum mæli að kaupa frystan fisk fyrir verksmiðju okkar í Frakk- landi til vinnslu þar. Það gerðum við strax í vor og sumar, þegar verð var lágt, en menn voru þá ekki tilbúnir til þess hér. Við sáum þó fram á að þessi vinnsla gengi vel og fluttum inn 400 tonn af heilfrystum þorski, sem við dreifðum á ákveðin fyrirtæki sem tilraun. Hugmyndin er svo að fara í vinnslu á rússafiski í auknum mæli, þegar framboð eykst og verð lækkar. Verulegt magn af saltfiski keypt Samhliða þessu höfum við keypt verulegt magn af saltfiski víða að úr heiminum, frá Kanada, Færeyjum, Noregi og Danmörku og frosinn fisk frá Alaska og Rússlandi, bæði Múr- mansk og Kamtsjatka, og síðan erum við að gera tilraun nú með innflutn- ing á frystum fiski frá Suður-Kóreu. Ef litið er á þessi umsvif verður niður- staðan sú, að utan íslands höfum við, SÍF og Nord Morue, dótturfyrir- tæki okkar í Frakklandi, átt í við- skiptum sem velta hátt á annan millj- arð króna. Við höfum því haft inni í sölukerfi okkar svipað magn og á síðasta ári, þrátt fyrir samdráttinn hérna heima. Það hefur hjálpað okk- ur að auka tekjur umfram það, hefð- um við aðeins unnið fiskinn, sem fékkst hér heima. SÍF hefur verið einn stærsti seljandi á saltfiski í heimi. Það er mjög mikilvægt fyrir íslenzka saltfiskframleiðendur, þeg- ar litið er fram á veginn, að SIF haldi þessari stöðu og geri það þá með því að efla alþjóðleg sambönd sín, annars hverfum við nánast út af markaðnum eða töpum mikilli hlutdeild vegna þess að við höfum einfaldlega ekki nægan þorsk. Þetta er hægt að gera á feman hátt. Það er hægt að efla starfsemi fyrirtækis- ins hér heima, sem er meginverkefn- ið. Það líka hægt að hugsa sér að SÍF auki enn frekar innflutning á hráefni til vinnslu héma’ heima og það hlýtur að vera næsta mál á dag- skrá. Þá held ég að menn verði huga að því hvað hægt sé að gera í sam- starfi við aðra aðila sem framleiða saltfísk, annaðhvort í framleiðslu eða söiumálum. Við höfum fundið, að það er stór hópur af mönnum, sem hefur áhuga á því að vinna með okkur, þó það séu ekki íslendingar. Loks er hægt að auka alþjóðleg viðskipti með fisk. Tollarnir á söltuðum flökum falla niður Það er gífurlega margt, sem hefur breytzt í rekstraramhverfi SÍF á skömmum tíma. Sérleyfi SÍF til út- flutnings er endanlega úr sögunni. Það þýðir ekki aðeins aukna sam- keppni hér heima, heldur líka aukna samkeppni á mörkuðunum, því þar hefur baráttan meðal annars staðið milli SÍF og annarra íslenzkra útflytj- enda. Kvótamir hafa minnkað, en framboðið frá öðmm löndum, sér- staklega Noregi og Rússlandi, hefur stóraukizt og á sama tíma veikjast gjaldmiðlar Suður-Evrópuríkja og dollarinn styrkist. Þetta hefur allt gerzt á þessu ári, en síðan þurfum að huga að því, hvað fram undan er. Sé aðeins horft á saltfiskheiminn er gífurlega mikið að gerast. Á næsta ári tekur EES-samkomulagið vænt- anlega gildi og þá falla niður allir tollar á saltfiski nema þurrkuðum fiski. Byltingin er sú að tollar á sölt- uðum flökum falla úr 20% niður í ekkert. Það getur haft töluverð áhrif á framleiðslumynstrið hér heima. Nú fer að skila sér sú þolinmæði og þær fómir, sem menn hafa fært á síðustu árum, eða frá árinu 1987. Menn yf- irgáfu flakamarkaðinn aldrei algjör- lega né heldur þá markaði, sem ekki gátu borgað hæsta verðið. Við ákváð- um að viðhalda þessum mörkuðum, þó það væri erfítt, sérstaklega eftir að utanríkisráðherra leyfði fleirum að flytja saltfisk út en SÍF. Við urð- um að selja flök til Ítalíu, Frakklands og Spánar og seldum þá gjarnan á meðalverði til að mismuna ekki fram- leiðendum eftir því á hvaða markaði þeir settu fiskinn. Það þýddi þá að meðalverðið hjá okkur var lægra en menn gátu fengið með því að selja bara á þá markaði, sem borguðu hæsta verðið. Nú er þetta allt saman breytt, þannig að hver framleiðandi fær greitt það verð, sem fæst fyrir fiskinn á hveijum markaði fyrir sig. Með þessum fórnum hefur okkur tek- izt að halda í markaðinn á Ítalíu, til dæmis, sem verður væntanlega mjög sterkur, þegar tollurinn er fallinn niður. Þar getum við gengið að kaup- endum okkar og unnið markaðinn upp í samstarfí við þá mun hraðar en annars væri mögulegt. Því er lík- legt að söltunin færist meira yfir í flök eftir áramótin á kostnað flatn- ingar. Breytingar hjá Norðmönnum Menn mega svo ekki gleyma því að við gildistöku EES-samkomulags- ins verða miklar breytingar hjá Norð- mönnum. Þeir hafa búið við tollfrelsi á saltfiski en tolla á freðfiski. Því verður það hagkvæmara fyrir þá að frysta fískinn eftir gildistökuna. Þá mun það hafa áhrif á heildarframboð af fiski á næsta ári, að tollamir á ferskum flökum, bæði frá íslandi og Skömmtun eða verðlagning eftir Erlend Magnússon Morgunblaðið greinir frá því þriðju- daginn 26. október að sjávarútvegs- ráðherra hafí í umræðum um sjávarút- vegsstefnu á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins spurt hvort leggja eigi skatt á skort? Það er eins og ráðherrann viti ekki að allar auðlindir jarðarinnar eru takmarkaðar — aðeins misjafnlega mikið — og að verð þeirra ræðst af framboði og eftirspum. Það er því heimsins eðiilegasti hlutur að greiða fyrir skort (að því mun koma að greiða verður eigendum fossanna fyrir orku þeirra). Gull væri lítils virði ef framboð þess væri nær ótakmarkað. Svo væri einnig um jarðolíu. En framboð gulls og framboð jarðolíu er takmarkað. Það er meðal annars þess vegna sem olíufélögin greiða breska og norska ríkinu fyrir námuréttinn til að vinna olíu í Norðursjó. Takmörkuðum auðlindum verður aðeins skipt milli manna með tvenns konar hætti: með skömmtun (sov- éska aðferðin) eða verðlagningu (markaðsaðferðin). Skömmtun getur farið fram á margan hátt. Menn geta fengið skammtinn sinn vegna fjölskyldutengsla, búsetu, flokks- tengsla, eða með því að vera fremst- ir í röðinni, svo dæmi séu nefnd. En það er sama hvemig skammtað er, skömmtunin leiðir til forréttinda og er því ætið óréttlát og þjóðhagslega óhagkvæm. Fiskistofnamir í efnahagslögsögu íslands eru takmörkuð auðlind og því verður að takmarka heildarveiðar — um það er ekki deilt. Auðlindin er eign íslensku þjóðarinnar — sumir viðurkenna það að vísu aðeins í orði. Réttlátasta leiðin til þess að skipta afnotum af eigninni er að þeir sem njóta greiði fyrir afnotin. Slíkt er ekki aðeins réttlætismál, heldur besta aðferðin til þess að útgerð færist úr höndum ónytjunga til hinna dugmeiri í hópi útgerðarmanna. Þannig verður afraksturinn mestur og bestur fyrir alla þjóðina. Höfundur stai-far við alþjóðleg bankamál í London.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.