Morgunblaðið - 26.11.1993, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 26.11.1993, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993 27 ifin eima Noregi, falla úr 18% niður í 0. Fram- leiðslumunstrið á næsta ári verður ekki í eins föstum skorðum eins og verið hefur undanfarin ár og afar erfitt að segja til um hvernig þetta muni ganga fyrir sig, bæði hjá okkur og Norðmönnum. Næsta sveiflan í sjófrystum flökum og blokk Við íslendingar þurfum að fylgjast mjög vel með því, sem er að gerast í heiminum í kringum okkur. Fyrir um 4 árum varð mikil auking á fram- boði á alaskaþorski. Hann streymdi þá inn til Portúgals og reyndist okk- ur mjög erfíður keppinautur. Það gekk svo yfír á skömmum tíma vegna ofveiði meðal annars. Þá kom rússa- þorskurinn í staðinn og það er erfítt að segja hve lengi hann skapar vanda fyrir íslenzka saltfískframleiðendur. Hann heldur þorskmarkaðnum að vísu við, en verðsveiflurnar hafa ver- ið miklar. Ég hef reyndar trú á því að heildarframboð minnki með vax- andi eftirliti með veiðum Rússanna. Þeir eru sjálfír að auka þorskneyzlu og virðast geta keypt meira af honum sjálfir en áður. Þeir eru líka í auknum mæli að breyta frj'stiskipum sínum, famir að draga úr heilfrystingu og fara meira yfír í blokk og flök. Mín tilfínning er sú, að næsta sveiflan á þessum markaði verði í sjófrystu flökunum og blokkinni og hún er reyndar þegar að byrja. Verð á þess- um afurðum lækkar og þá er það spurningin hvort og í hvaða fram- haldsvinnslu þær fara. Sjófrystu flökin í salt? Við höfum ekki séð þessa þróun á sama hátt í saltfískinum vegna þess að það er ekki svo auðvelt að fram- leiða sælkera-saltfísk úr öðru en þorski. Reyndar höfum við stóraukið söltun á ufsa en það er önnur afurð. Stundum fínnst mönnum að það sé tímasóun að velta þessum málum fyrir sér. Við höfum samt reynt að gera það, til dæmis í gegn um starf- ið hjá SAS. Með því móti höfum við fengið stórauknar upplýsingar um það, sem er að gerast í veiðum og vinnslu út um allan heim og það skilar sér allt. Við höfum til dæmis verið að reyna að beina fiskistraumn- um, bæði frá Alaska og Rússlandi, í gegn um vinnslu- og sölukerfí okk- ar. Framan af vildu menn ekki salta heilfrystan físk. Síðan fóru Portúgai- ir að salta þennan físk og þörfín skapaði þá markað fyrir þessa afurð. Nú erum við komnir með tækni, sem gerir okkur kleift að framleiða tiltölu- lega góða vöru úr frystum fiski. Það er því ekki lengur spuming um rússa- físk, heldur líka hvenær og hvað mikið við förum að taka af íslenzku frystitogurunum og vinna. Lækki verð á sjófrystum flökum á næstunni hlýtur að vera mikil framtíð í því að taka þessi flök og salta þau hér heima. Með því verða frystitogararn- ir í nokkmm mæli hráefnisöflun- artæki fyrir vinnsluna í landi, til dæmis söltun og ýmiss konar pökk- un. Það er því að mörgu að huga á þessum tímum örra breytinga í mark- aðsmálum með sjávarafurðir," segir Magnús. Efnahagsreikningnr SÍF er traustur Hvernig lýstþér á framtíð SÍF sem hlutafélags? „Ég held að fram hafí farið mjög nákvæm uppstokkun á fjármálum SÍF, þegar því var breytt í hlutafé- lag. Ég held að það sé að vissu leyti til fyrirmyndar. Farið var vel ofan í allar eignir fyrirtækisins og tryggt að' raunvemleg eign væri til staðar. Þar fóra menn yfír fasteignir fyrir- tækisins, sem eru stór hluti eigna þess. Þar var ákveðið að færa eign- irnar niður um 80 milljónir til þess að gera ráð fyrir lægsta mögulega verði, þyrfti að selja þær strax. Ég held að efnahagsreikningur SÍF sé mjög traustur og þegar hlutabréfin verða gefín út verði raunveruleg eign á bak við þau. Við mat á verðmæti fyrirtækisins var ákveðið að taka ekki inn í það viðskiptavild, öll vöru- merki og fleira. Síðast en ekki sízt er Nord Morae, fyrirtækið sem SÍF keypti í Frakklandi, metið á kaup- verði. Það var keypt árið 1990 í smávægilegum hallarekstri með veltu upp á um 1,3 milljarða miðað við gengi í dag. Nú er Nord Morue með yfir tvo milljarða í ársveltu og verulegan hagnað. Eftir fyrstu 9 mánuðina var hagnaðurinn orðinn 50 milljónir og nú undir lok nóvem- ber hefur komið í ljós að sá hagnað- ur hefur heldur aukizt. Ég held að staða fyrirtækisins sé fjárhagslega sterk, þó að nóvember og desember kunni að verða erfiðir vegna lítillar framleiðslu. Það sem maður hefur kannski óttazt er að einhveijum eig- endum hlutabréfa kynni að liggja um of á að selja þau og seldu þau þá of ódýrt. Auðvitað verður hver og einn að gera það upp við sig sjálfur, en ég held að menn væru að skaða sig miðað við stöðuna í dag seldu þeir bréfín undir nafnvirði. Það væri kannski hægt að telja þau meira virði, en á móti þarf að gæta sann- girni gagnvart íjárfestum og hér er um nýtt hlutafélag að ræða. Á hinn bóginn er SÍF að koma þarna inn á markaðinn með 60 ára reynslu að baki. Þetta eru elztu sölusamtökin og hafa staðið af sér marga stor- mana í gegn um tíðina og ég _er ekki í nokkrum vafa um það að SÍF á að hafa alla möguleika til að halda velli og styrkja stöðu sína enn frekar í framtíðinni." Yfirtaka ósennileg Er einhver hætta á því að einhveij- ir aðrir en framleiðendur nái yfirtök- um í SÍF fari mikið af bréfum maark- að? _ „Ég tel það frekar ósennilegt. Mér finnst ólíklegt að til séu aðilar í þjóð- félaginu, sem séu tilbúnir til að kaupa hlutafé fyrir 250 til 300 milljónir króna til að tryggja sér meirihluta- stöðu í fyrirtækinu. það væri hins vegar áhugavert væru hér einhveijir stórir aðilar, sem hefðu áhuga á því að fjárfesta í SÍF. Áhyggjur af hugs- anlegri yfírtöku held ég séu óþarfar. Menn hafa haft af því áhyggjur að næðu til dæmis lífeyrissjóðir eða aðil- ar óskyldir sjávarútvegi yfírtökum í sölusamtökum af þessu tagi, að þau fjarlægðust uppruna sinn og fram- leiðendur og myndu þess vegna ekki gegna hlutverki sínu nógu vel. Þetta gengur einfaldlega ekki þannig. Fyr- irtæki, sem ætla sér að stunda út- flutning á sjávarafurðum, verða að vera með mjög náin tengsl við fram- leiðendur. Framleiðendurnir era við- skiptavinir þeirra og ætlaði sér ein- hver að taka þau yfír yrði hann að halda þessum tengslum, annars gæti hann ekki rekið fyrirtækið með hagn- aði og myndi þá tapa á ijárfesting- unni. Hagur fjárfestanna byggist ekki á því að slíta þessi tengsl heldur viðhalda þeim, því þannig ávaxta þeir fé sitt bezt. Á sama hátt er það bezt fyrir framleiðendur að skipta við sölufyrirtæki, sem eru það fjár- hagslega sterk að þeir hafi tryggingu fyrir því að fá ætíð hæsta verðið og að þeir fái sína peninga með skilum. Forsenda fyrir vexti og viðgangi fyr- irtækis af þessu tagi er góð sam- skipti við framleiðendur, hveijir sem eigendur fyrirtækisins eru. Auka þarf samstarfið á erlendum vettvangi Sölufyrirtækin þurfa líka að vera það stór og sterk að þau geti veitt þá þjónustu og öryggi sem framleið- endur þurfa og fylgt eftir þeirri sölu- stefnu sem mörkuð er hveiju sinni. Það hefur verið rætt um það í gegn um tíðina, að menn ættu að efla samstarf þessara stóra sölusamtaka vegna þess að kaupendur era alltaf að stækka. Það er ekki nauðsynlegt að sameina þau, en ég tel að þau ættu að efla samstarf sitt á erlendum vettvangi. Þannig eru til dæmis Söl- umiðstöðin, íslenzkar sjávarafurðir og Síldarútvegsnefnd í samstarfí í Rússlandi og ég sé fyrir mér að slíkt samstarf gæti þróazt á fleiri mörkuð- um. Ég held líka að það sé skynsam- legt hjá þessum fyrirtækjum að auka við fyrirtækjaeign sína erlendis. Með því að kaupa fyrirtæki, sem era inni á mörkuðunum, eiga vöramerki og dreifíleiðir og era í sambandi við ., veitingahús og stórmarkaði, getum við styrkt stöðu okkar veralega. Sveiflurnar upp og niður í sjávarút- vegi era viðráðanlegri því nær neyt- andanum sem maður er. Þeim mun nær sem við eram markaðnum á hvetjum tíma, þeim mun meira verð- ur eftir heima af verðmæti vörann- ar. Hér heima höfum við átt í erfíð- leikum, en fyrirtækin erlendis eru að ná sér á strik vegna þess að þau taka þátt í alþjóðlegri verzlun með físk og eru nær neytandanum. Við þurfum að ráða eins mikið yfír öllum þáttum frá veiðum til markaðar og unnt er.“ Hollt að skipta um forystu Er engin aftirsjá að þessu starfí? „Nú era um 8 ár síðan ég hóf störf hjá SÍF, en ég hef alltaf haft þá skoðun að enginn maður eigi að vera í svona starfi of lengi, fastur í einu fyrirtæki. Ég held að bæði manninum og fyrirtækinu hollt að skipt sé um forystu. Þetta hefur verið mikil bar- átta, sérstaklega frá því síðasta haust er ég kom hér inn á ný eftir að hafa verið í fríi vegna starfa fyrir Sam- starfsnefnd atvinnurekenda í sjávar- útvegi. Þetta ár og síðastliðið haust hefur verið feikilega erfitt. Ég fer ekki í neinar grafgötur með það að baráttan heldur áfram. Þó grunnur hafí verið lagður að því að auðvelda mönnum sóknina verður þetta síður en svo einhver dans á rósum í fram- tíðinni. Vegna samdráttarins hér heima verður það fjögurra til fímm ára barátta að efla þetta alþjóðlega starf, sem þegar er komið vel á veg, og þá vinnu, sem menn hafa verið að undirbúa á þessu ári. Ég verð að viðurkenna það, að fjögur til fímm á í viðbót á þessu sviði myndi ég tæp- ast geta hugsað mér. Þess vegna fannst mér það eðlilegt að með breyt- ingunni í hlutafélag og nýrri stjóm yrði ráðinn nýr framkvæmdastjóri. Ég tel mig skila hérna nokkuð góðu búi og ég neita því ekki að mér er nokkur eftirsjá að hverfa héðan. Þó oft hafí verið stormasamt um mann og ekki alltaf allir ánægðir með gjörðir mínar hef ég eignast um allt land feikilega marga og góða og trausta vini og ég hef haft af því mikla ánægju að vinna fyrir íslenzka saltfiskframleiðendur. Auk þess hef ég starfað með mörgu góðu fólki innan fyrirtækisins, sem ég kveð með nokkrum trega. Við erum reyndar ekki að skilja alfarið, enda vonast ég til að halda áfram að vera í tengsl- um við íslenzkan sjávarútveg, þó ég hverfi af þessum vettvangi. Það er ekki ákveðið hvað við tekur hjá mér, en ég býst ekki við því að sitja lengi auðum höndum. Ég er ekki að fara úr þessu starfí til að fara í annað. Þetta er bara sjálfstæð ákvörðun svo verður framhaldið að ráðast,“ segir Magnús Gunnarsson. HG. í A Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar um viðhorf Islendinga til Háskóla Islands Flestir landsmenn eru já- kvæðir í garð háskólans MIKILL meirihluti þjóðarinnar hefur jákvætt viðhorf til Há- skóla íslands, samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar sem Félagsvlsindastofnun háskólans hefur gert. í könnuninni voru tæp 31% þeirra sem svöruðu mjög jákvæðir gagn- vart Háskóla íslands og tæp 46% voru jákvæðir gagnvart skólanum. Um 20% voru hlutlaus en um 3% vora frekar eða mjög neikvæðir. Fram kom munur á svörum fólks eftir menntun, starfsstétt og stjórn- málaskoðunum. Fólk með háskóla- próf var líklegra en aðrir mennta- hópar til að vera mjög jákvætt, en svarendur sem lokið höfðu verklegu framhaldsnámi voru síður jákvæðir. Þá voru stuðningsmenn Kvenna- lista hlutfallslega oftar jákvæðir en stuðningsmenn annarra flokka en stuðningsmenn Framsóknarflokks heldur neikvæðari gagnvart háskól- anum en aðrir. Gegnir hlutverki sínu í könnuninni var einnig spurt hvernig fólk teldi háskólann gegna hlutverki sínu og töldu tæp 43% að háskólinn gegndi hlutverki sínu vel, tæp 33% töldu hann gegna hlut- verki sínu sæmilega en um 2,9% töldu hann gegna hlutverki sínu illa. Eru þetta svipaðar niðurstöður og komu fram þegar sömu spurningar var spurt í könnun árið 1989. Loks var spurt hvort viðhorf fólks hefði breyst til háskólans á undan- förnum mánuðum og bar mikill meirihluti, eða um 81%, óbreytt viðhorf til skólans. Yngsti aldurs- hópurinn var jákvæðari gagnvart skólanum en áður en viðhorfsbreyt- ing fólks á aldrinum 60-75 ára var oftar neikvæð. Könnunin var gerð dagana 6.-10. nóvember og var úrtakið 1.500 manns á aldrinum 18-75 ára á öllu landinu. Alls fengust svör frá 1.090 þeirra sem komu í úrtakið. Hver er afstaða þín gagnvart Háskólanum? Mjög jákvæður Frekar jákvæður Hlutlaus Neikvæður Háskólamenn jákvæðastir FOLK með háskólamenntun er jákvæðast í garð Háskóla íslands, sam- kvæmt niðurstöðum Félagsvísindastofnunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.