Morgunblaðið - 26.11.1993, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
Áfengis vandamálin og*
dagur fjölskyldunnar
eftir Hjalta
Krisijánsson
Það er dagur fjölskyldunnar sem
rekur mig í þessar skriftir. Það er
ekki langt síðan ég var unglingur
og innrætti umhverfið mér fijáls-
lega afstöðu gagnvart áfengi, en
ég verð að segja að því lengur sem
ég starfa við heimilislækningar því
mun íhaldssamari verð ég gagnvart
áfengi. Ég hef því miður allt of
mikið af afleiðingum áfengisneyslu
að segja í mínu starfi. Ég ætla að
reyna að fjalla meira um þá hlið
sem ég verð var við.
Í fyrsta lagi verður maður var
við áfengisneyslu á vöktum en í
Vestmannaeyjum skiptum við fjórir
á milli okkar vöktum á kvöldin og
um helgar. Það kemur fyrir að
hringt er vegna sjúklinga sem
drukkið hafa í lengri tíma og þurfa
aðstoð við að koma sér út úr því.
Það er þó algengara að við verðum
varir við afleiðingar áfengisneyslu
í formi slysa, þar er algengast að
þurfa að sinna fólki sem slegið
hefur verið af öivuðu fólki eða sjálft
verið í slagsmálum ölvað. Það þarf
vart að taka það fram að yfírleitt
eru þeir sem slegnir eru ölvaðir líka.
Það er misjafnt hvaða afleiðingar
þetta hefur, gerandinn brotnar oft
á handarbeini og þessi brot gróa
oft illa. Þolandinn brotnar oft á
nefi sem getur leitt til þess að gera
þurfi aðgerð á nefínu. Hér er oft
um mjög ungt folk að ræða, bæði
gerendur og þolendur og því miður
oft um sama fólkið að ræða, sér-
staklega hvað varðar gerendur.
Lífíð snýst þá meira og minna um
að „detta í það“, helst tvö til þtjú
kvöld í hverri viku og því miður
er sá hópur mjög stór. Um aðrar
afleiðingar þess má lesa í fjölmiðl-
sokkabuxurhnésokkar
v/Nesveg, Seltj
KUNERT
um eftir hveija helgi og því miður
eru nauðganir oft með í spilinu,
fórnarlambið er þá oft drukkið og
gerar.dinn að sjálfsögðu líka. Ger-
andinn er náttúrulega sá seki en
ekki þolandinn, en skyldi það vera
tilviljun að mörg af fómarlömbum
nauðgana eru drukkin. Er það ekki
sorglegt þegar sautján, átján, nítj-
án eða tuttugu ára unglingur er
ákærður fyrir að hafa nauðgað
fjórtán, fímmtán eða sextán ára
unglingi? Aðrar afleiðingar eru að
sjálfsögðu það siðleysi sem við-
gengst í kynlífsmálum, t.d. hvað
varðar framhjáhald en það væri
fróðlegt að athuga hvað stór hluti
framhjáhalds fer fram undir notkun
áfengis. Annar handleggur á því
er kynlíf unglinga, en það væri
einnig fróðlegt athugunarefni hve
stór hópur unglinga byijar sitt kyn-
líf og jafnvel að iðka kynlíf iðulega
undir áhrifum áfengis, þá á ég við
um helgar þegar tjaldað er til einn-
ar nætur. Hvað skyldi mikið af því
viðgangast ef ekki væri um þessa
áfengisneyslu að ræða?
Alverst er kannski að fínna það
sinnuleysi sem er í þjóðfélaginu um
þessi mál, það er eins og að allir
líti á það sem óhjákvæmiiega stað-
reynd að þetta verði að vera svona.
Það má segja að viss vakning hafí
átt sér stað í framhaldi af þeim
sögum sem berast af næturlífi
Reykjavíkurborgar um helgar og
er það auðvitað til' góðs. Ég tel þó
að mestu vakninguna vanti enn en
það myndi vera vakning innan fjöl-
skyldunnar á því að taka á vanda-
málinu fyrst heima fyrir. Það er
orðin rík stofnanatilhneiging á ís-
landi, einhveijar stofnanir og ein-
hveijar stéttir eru að leysa öll
vandamál en ábyrgð fjölskyldunnar
virðist fara síminnkandi. Énn einn
liður í því er auðvitað að hjónaskiln-
uðum hefur fjölgað mjög mikið svo
að fjölskyldan er orðin meira og
minna klofín. Hvað skyldi áfengi
spila mikla rullu í vaxandi tíðni
hjónaskilnaða? Sem dæmi um hvað
foreldrar gætu gert væri að vera
betri fyrirmynd, sumir unglingar
sjá foreldra sína drukkna, jafnvel
dauðadrukkna um jafnvel hveija
helgi og er þá skrýtið að þeir fái
þá hugmynd að svona eigi þetta
bara að vera. Mér skilst á sálfræð-
ingum að eina félagslífið í sumum
fjölskyldum nú til dags sé þegar
unglingarnir og foreldramir hittist
fullir eftir böll eða skemmtanir eða
partí og segja „hæ, hvernig var“
Hjalti Kristjánsson
„Það er undarlegt til
þess að vita að fólk sé
tilbúið að eyða frá tvö
til tíu þúsund krónum
jafnvel um hverja helgi
í áfengi þegar það
skrimtir á laununum,
borgar háa húsaleigu
og hefur alls konar
skuldir á bakinu.“
um miðjar nætur. Kannski ýkt
mynd, en við vitum öll að þetta er
til og allt of algengt. Hver þekkir
ekki líka heimilismyndina, þar sem
litlu börnin sitja fyrir framan Stöð
tvö eða nú á tíðum jafnvel RÚV á
laugardags- og sunnudagsmorgn-
um og horfa á bamatímann á með-
an unglingar og fullorðið fólk heim-
ilisins liggur uppi í rúmi, sofandi
úr sér vímu næturinnar. Ýkt mynd?
Því miður allt of algeng.
Það em til fleiri hliðar á áfengis-
vandanum. Ég starfa í félagsmála-
hópi í tengslum við mitt starf og
þar rekst maður á þá vanrækslu
sem lítil börn á svona heimilum
verða fyrir. Maður rekst að sjálf-
sögðu líka á fjárhagserfíðleika sem
geta fylgt mikilli áfengisneyslu.
Það er undarlegt til þess að vita
að fólk sé tilbúið að eyða frá tvö
til tíu þúsund krónum jafnvel um
íiuscpimA
slœrígegn!
Nýja saumavélin frá Husqvarna!
Sœnsk hönnun - sœnsk gœði,
nú á frábœru verði.
Leitið nánari upplýsinga
um nýju Smaragd saumavélina.
Verið velkomin.
VÖLUSTEINNhf
Faxafen 14,Sími 679505
© Husqvarna
hveija helgi í áfengi þegar það
skrimtir á laununum, borgar háa
húsaleigu og hefur alls konar
skuldir á bakinu. Þó að miðað væri
við eina flösku um hveija helgi
væri um að ræða vel yfir hundrað
þúsund krónur á ári. Það hlýtur
að muna um minna.
Hvað er til ráða?
Hvað varðar heilbrigðisstéttir
myndi ég vilja ítreka það sem ég
hef sagt að ofan: Verið á varðbergi
gagnvart áfengisvandanum, ef
læknar em beðnir um svefnlyf hjá
tiltölulega ungu fólki eða kvíða-
stillandi lyf ættu þeir ávallt að
hafa áfengi í huga. Mikil tengsl em
þama á milli, skemmst er að minn-
ast könnunar á diazepam-útskrift-
um lækna, þar sem kemur í ljós
að þær aukast þegar verð á áfengi
hækkar. Hafíð einnig í huga fólkið
með kvíða, magabólgur og síendur-
teknar komur til læknis vegna
óljósra vandamála eða „psycho-
somatiskra sjúkdóma".
Gleymið ekki heldur að þung-
lyndi getur stafað af áfengisneyslu.
Hafíð þetta einnig í huga ef fólk
fær briskirtilsbólgu eða jafnvel til-
komna eða áunna sykursýki. Hafíð
þetta einnig í huga við offitu. Það
verður að viðurkennast að það er
mjög erfítt oft að ná til alkóhólista
en það verður líka að hafa í huga
að enn er borin virðing fyrir lækn-
um og öðram heilbrigðisstéttum á
íslandi þannig að það sem þær
segja vegur kannski þyngra en það
sem margir aðrir segja. Hafið einn-
ig áfengi í huga þegar um félags-
leg vandamál er að ræða eða sál-
ræn.
Til foreldra
Reynið að vera gott fordæmi
fyrir unglinginn. Unglinga nútím-
ans vantar góðar fyrirmyndir,
meira að segja í íþróttum sjáum
við sigurvegara fagnað með
kampavíni í fjölmiðlum og við vitum
að áfengi spilar stóra rallu í íþrótta-
hópum nútímans. Það er kannski
erfitt fyrir unglinga að hafa góðar
fyrirmyndir þegar þá fullorðnu
virðast líka vanta góðar fyrirmynd-
ir en það er annar handleggur.
Munið að við foreldrarnir eigum
meiri möguleika en nokkur annar
á að vera góð fyrirmynd fyrir börn-
in okkar. Loks vil ég benda foreldr-
um unglinga á að það má reyna
að vera félagi þeirra. Loks vil ég
benda á þær foreldrahreyfíngar
sem era að myndast á Norðurlönd-
unum þar sem foreldrar þar fara
ódrakknir niður í miðbæ og ræða
við unglingana. Það hafa allir verið
ánægðir með það, bæði foreldrar
og unglingar. Unglingar nútímans
hafa ekki allt of mörg tækifæri til
að ræða við fullorðið fólk.
Til stjórnmálamanna
Þið skuluð ekki ímynda ykkur
að tilkoma bjórsins hafí lagað
ástandið, ég get vitnað þar í nýlega
skýrslu frá Tómasi Helgasyni sem
hefur rannsakaað áfengisneyslu á
íslandi í mörg ár og birt mjög at-
hyglisverða skýrslu um það. Hann
bendir á í nýlegri skýrslu að bjórinn
er í dag í raun og vera ekkert ann-
að en viðbót við þær áfengisvenjur
sem vora til staðar fyrir tilkomu
bjórsins. í byijun dró úr notkun
sterkra drykkja hjá unglingum en
það virðist vera að sækja í sama
farið og það var áður en bjórinn
kom til og bjórinn eingöngu vera
viðbót. Þið skulið ekki telja ykkur
trú um að það dugi að hækka verð
á áfengi endalaust, ég vitna aftur
til ofannefndrar niðurstöðu. Ég
legg það einfaldlega til að þið byij-
ið á því að banna bjórinn aftur og
vil benda ykkur á að ef áfengi
væri að koma á markaðinn í dag
væri litið á það sem eiturlyf. Hvað
varðar allt tal um vínmenningu
verð ég að segja að ég hef litla trú
á öllu slíku tali samanber það sem
ég hef skrifað um bjórinn hér að
ofan.
Til lögreglunnar
Ég vildi einnig viija beina því til
lögreglu og annarra aðila sem
verða varir við áðumefndar afleið-
ingar áfengisneyslu að huga að
samstarfí sem gæti leitt til að ofan-
nefnt fólk geti fengið áfengismeð-
ferð áður en ástandið versnar meir.
Ég legg til að þið takið hart á úti-
vistartímum, ég fagna þeirri þróun
sem átt hefur sér stað með það
undanfarin tvö til þijú ár og tel
að það muni skila árangri. Það
væri þá alla vega auðveldara fyrir
Bindindisdagur
fjölskyldunnar
eftirHönnu Kolbrúnu
Jónsdóttur
Til margra ára hefur sá siður
tíðkast hér á landi að velja dag í
vetrarskammdeginu sem fjölskyld-
um þessa lands er bent á til íhugun-
ar bindindis. Hann er 26. nóvember
og við köllum hann bindindisdag
flölskyldunnar. Raunar er það gott
að hugsa til þess að geta verið alls-
áður og skýrt hugsandi alla daga
ársins. Það er þó gott að geta valið
dag þar sem allir í fjölskyldunni era
samstæðir í hugsun og umfjöllun á
sama málefni. Þessi árstími hentar
vel.skammdegisdrungi hvílir yfír
mörgum og innivera fólks er meiri
en ella.
Þegar íhuga skal bindindismálin
vakna spurningar af ýmsu tagi eins
og afstaða til bindindismála. Borgar
bindindi sig? Hvaða fyrirmynd vilj-
um við vera bömum okkar og ann-
arra og hvemig teljum við að okkur
og ijölskyldunni líði best?
Þeta eru spumingar sem vert er
að hugleiða ekki bara einn dag á
ári heldur alla daga ársins.
Þetta hlýtur að vera kappsmál
okkar sem eram foreldrar að sjá
börn okkar og annarra verða dug-
ikið og hugsandi fólk. Það er jú
æskan sem á að erfa þetta iand.
Við vitum það að áfengi sljóvgar
hugsun mannsins. Þess vegna er
ástæða til að ætla að dugur manns-
ins sé meiri án þess.
Það hefur þótt tilheyra sam-
„Áfengisneysla leiðir
alloft af sér neyslu
sterkari o g alvarlegri
vímuefna. Þegar neysla
er orðin stjórnlaus
dregur úr þreki manns-
ins, námsgeta minnkar
og oft gætir þunglyndis
og leiða hjá viðkom-
andi.“
kvæmis- og skemmtanalífinu að fá
sér í glas. Það er ekki sama hvað er
í glasinu. Það þarf ekki að vera
vökvi sem sljóvgar dómgreind eða
veldur vímu.
Nú era til nógir drykkir góðir og
girnilegir sem auk þess era óáfeng-
ir og drekka má úr fallegum glös-
um. Þeir era heilsusamlegri og veita
mönnum ekki síður ánægju en
áfengir drykkir.
Tískudrykkja getur leitt af sér
óhófsama drykkju hjá allt of mörgu
góðu fólki. Menn ætla að hafa stjórn
á drykkju sinni, þeir óska þess að
geta verið hófdrykkjumenn. Svo
einfalt er það ekki alltaf. Allt of
stór hópur fólks missir stjóm á sinni
drykkju, sumir mjög fljótt, aðrir á
lengri tíma eða einhveijum árum.
Sá sem aldrei drekkur úr fyrsta
glasinu þarf ekki að óttast misnotk-
un. Þess era dæmi að fólk lítur á
áfengisnotkun sem menningu og