Morgunblaðið - 26.11.1993, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
41
Morgunblaðið/Silli.
Frá bridsmótinu í Ljósvetningabúð. Efstu pörin spila saman. Talið
frá vinstri: Þórólfur Jónasson, Magnús Andrésson, Magnús Magnús-
son og Þóra Sigurmundsdóttir.
Karpov „heiinsmeistari“ FIDE
_________Brids_________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Tvímenningskeppni 18 pör.
ÞórarinnÁmason - Bergur Þorvaldsson 153
Óli Valdimarsson - Stefán Halldórsson 141
Pálmi Vilhelmsson - Þórður Vigfússon 121
Eggert Einarsson - Karl Adolfsson 119
Tvímenningskeppni 14 pör.
Sigurleifur Guðjónsson - Eysteinn Einarsson 188
Ólöf Guðbrandsd. - Ásthildur Sigurgísladóttir 178
Garðar Jónsson - GísliGuðmundsson 178
Ingibjörg S. — Fróði Pálsson 171
Sparisjóðsmót S. Þingeyinga í
Lj ós vetningabúð
Húsavík.
Hið árlega opna bridsmót Sparisjóðs
Suður-Þingeyinga fór fram að Ljós-
vetningabúð síðastliðinn sunnudag og
var þar spilað á 10 borðum. Keppend-
ur voru víða og allt frá Vopnafírði til
Akureyrar.
Röð efstu para varð þessi:
Þóra Sigurmundsdóttir - Magnús
Andrésson, Húsavík.
Magnús Magnússon, Akureyri - Þór-
óflur Jónasson, Syðri-Leikskálaá.
Anton Haraldsson - Pétur Guðjóns-
son, Akureyri.
Góð verðlaun, bikara og bækur
veitti Sparisjóður Suður-Þingeyinga.
Mótstjóri var séra Magnús Gamalíel
Gunnarsson, Hálsi.
Evrópukeppni á Húsavík
Bridsfélag Húsavíkur tók þátt í
Evrópukeppni í tvímenningi í brids,
sem haldin var föstudaginn 19. októ-
ber og spilað var alls staðar á sama
tíma.
Á Húsavík urðu úrslit þessi. A/V:
Tryggvi Bessason - Torfi Aðalsteinsson.
N/S:
Guðlaugur Bessason - Sveinn Aðalgeirsson.
Alls var spilað á átta borðum.
Fréttaritari.
Bridsdeild
Barðstr endingafélagsins
Þegar lokið er 4 umferðum í Hrað-
sveitakeppni deildarinnar er staða
efstu sveita eftirfarandi.
Sv. Óskars Karlssonar 2216
Sv. Þórarins Árnasonar 2194
Sv. Leifs Kr. Jóhannessonar 2132
Sv. Stefáns Ólafssonar 2073
Sv. Bjöms Árnasonar 2057
Sv. Lálandsgengisins 2047
Meðalskor í 4 umferðum er 2020
stig.
Bestu skor í 4. umferð náðu eftirfar-
andi:
Sv. Óskars Karlssonar 634
Sv. Leifs Kr. Jóhannessonar 581
Sv. Kristins Óskarssonar 542
Meðalskor er 504.
Skák
Margeir Pétursson
EFTIR einvígi sem stóð í
skugga klofnings í FIDE og
fjárhagserfiðleika Iauk einvígi
þeirra Anatólís Karpovs og Jans
Timmans fyrir nokkru með
sigri þess fyrrnefnda 12’/2— 8'/2.
Þeir háðu heimsmeistaraeinvígi
sem varamenn þeirra Ka-
sparovs og Shorts sem ekki
vildu tefla undir merkjum
FIDE. Karpov var síðan lýstur
heimsmeistari af Alþjóðaskák-
sambandinu og þar með endan-
lega ljóst að Gary Kasparov
hefur ekki lengur umboð þess
til að kalla sig heimsmeistara.
Þetta er í annað skiptið á ferlin-
um sem FIDE lýsir Karpov heims-
meistara án þess að hann sigri
þann ríkjandi. Fyrra skiptið var
árið 1975 er sambandið, undir
þrýstingi frá Sovétmönnum, vildi
ekki ganga að öllum kröfum
Bobby Fischers og svipti hann titl-
inum.
Þrátt fyrir að oft hafi mikið
gengið á í starfi FIDE var þetta
ár örugglega það erfiðasta í sögu
þess. Atvinnumannasamband Ka-
sparovs og Shorts hefur nú hafið
sína eigin heimsmeistarakeppni og
fer stórt undanrásamót fram í lok
desember í Groningen í Hollandi.
Jóhann Hjartarson er einn fimmtíu
skákmanna sem þegið hefur boð
um þátttöku. Verðlaun eru helm-
ingi hærri en í sambærilegu móti
FIDE og búist við að flestallir
sterkustu skákmenn heims verði
meðal þátttakenda, að þeim
Karpov og Timman undanskildum.
Það dylst fæstum skákáhuga-
mönnum að taflmennskan í Lond-
on hjá þeim Kasparov og Short
var öllu betri og skemmtilegri en
hjá varamönnunum. Það þarf
mikla formalista til að halda því
fram að Karpov sé bestur skák-
manna. Meira að segja Jan Tim-
man hefur sagst hafa miklar efa-
semdir um titil Karpovs og að
Kasparov sé betri skákmaður.
FIDE einvígið fór af stað með
glæsibrag og fyrstu skákirnar
voru líflegar og Timman sýndi
mun meiri tilþrif en búist hafði
verið við fyrirfram. En eftir 9.
skákina varð Campomanes, forseti
FIDE, að viðurkenna fyrir kepp-
endum að hann hefði ekki gætt
þess að afla nægra trygginga fyr-
ir verðlaunasjóðnum. Þar með
snerist einvígið upp í hálfgerðan
skrípaleik. Að sögn Bandaríkja-
mannsins Yassers Seirawans bað
Campomanes Timman að hjálpa
sér að finna aðila í Hollandi til
að fjármagna einvígið að nýju.
Að vonum lagðist þetta afar illa
í Timman og næstu skák tapaði
hann afar klaufalega. Þar með var
forskot Karpovs orðið tveir vinn-
ingar.
Eftir tólf skákir þurfti að gera'
þriggja vikna hlé á einvíginu áður
en það var flutt til Jakarta í Indón-
esíu. FIDE neyddist til að fjár-
magna verðlaunin úr eigin sjóðum
og að lokum urðu það u.þ.b. 40
milljónir króna sem komu í hlut
keppenda, eða aðeins fjórðungur
þess sem Kasparov og Short tefldu
um.
Taflmennska Timmans í Ja-
karta var afar slök og Karpov
vann alltof auðveldan sigur. Hann
komst í 12—7, en þá náði Timman
að minnka muninn um vinning
áður en Karpov hélt jafntefli í 21.
skákinni og tryggði sér sigurinn.
20. einvígisskákin:
Hvítt: Anatólí Karpov
Svart: Jan Timman
Enski leikurinn
1. Rf3 - c5 2. c4 - Rc6 3. Rc3
- Rf6 4. d4 - cxd4 5. Rxd4 -
e6 6. a3 — Rxd4 7. Dxd4 — b6
8. Bf4 - Bc5 9. Dd2 - 0-0 10.
Hdl - Bb7 11. Bd6 - Bxd6 12^
Dxd6 - Hc8 13. e3 - He8 14.
f3 - Hc6 15. Dd4 - Ba6 16. Re4?
Karpov hefur reynt að einfalda
taflið til jafnteflis og tryggja sigur
í einvíginu en hér gengur viðleitni
hans í þá átt alitof langt.
16. - Rxe4 17. Dxe4 - Dc7 18.
Bd3 - g6 19. b3
19. - d5! 20. cxd5 - Bxd3 21.
Dxd3 - exd5 22. Kf2
Svartur hefur náð geysilega
sterku frumkvæði. 22. 0-0 — Hc3
23. Dxd5 — Hexe3 var einnig
mjög slæmt.
22. - Hc3 23. Dxd5 - Hcxe3
24. Hd2 - De7 25. Kg3 - Hxb3!
26. a4 - Hb4 27. Hd4 - Hxd4
28. Dxd4 - Dg5+ 29. Kh3 -
He2 30. Hgl - Dh5+ 31. Kg3
- Dg5+ 32. Kh3 - Hd2 33. Dc3
- Ila2 34. Dd4 - h6 35. Dc4 -
Dh5+ 36. Kg3 - De5+ 37. Kh3
- Hd2 38. Dh4 - Df5+ 39. Kg3
- g5 40. Dxh6? - Df4+ og
Karpov gafst upp, því eftir 41.
Kh3 — g4+ tapar hann drottning-
unni.
Guðmundur Jóhann
Einarsson - Minning
Guðmundur Jóhann Einarsson
varð bráðkvaddur 21. október síð-
astliðinn. Hann var fæddur í Ási í
Hegranesi 19. ágúst 1916, sonur
hjónanna Einars Guðmundssonar,
Olafssonar og Jóhönnu Einarsdótt-
ur, og Valgerðar Jósafatsdóttur,
Guðmundssonar og Guðrúnar Ólafs-
dóttur í Krossanesi.
Guðmundur ólst upp í Ási, að
tveim árum undanskildum er for-
eldrar hans ásamt tveimur bræðrum
hans, Guðjóni og Svavari, voru bú-
sett í Syðri-Hofdölum. Þar varð
hann fyrir því þunga áfalli að missa
móður sína aðeins sex ára gamall.
Aftur lá leið föður hans með synina
þrjá að Ási.
Árið 1924 hóf Einar búskap á
hálfri jörðinni og hafði hann þá
fengið Sigríði Jósafatsdóttur, sem
var alsystir Valgerðar, sem ráðs-
konu. Þau gengu í hjónaband 1925.
Einar og Sigríður eignuðust sam-
an þrjú böm, Valgarð sem varð
bóndi í Ási, Jóhönnu sem giftist til
Vopnafjarðar og Aðalgeir sem lést
ellefu ára.
Á uppvaxtarárum Guðmundar
var ætíð mannmargt í Ási, þar var
jafnan tví- og stundum þríbýli.
Mundi, eins og hann var oftast kall-
aður, mun snemma hafa lært að
hjálpa til við sveitastörfin. Mun öll-
um, bæði fyrr og síðar, hafa þótt
gott að vinna með honum þvi að
þar fór duglegur geðprýðismaður
með glettni í viðmóti.
Mundi vann á búi föður síns
ásamt bræðrum sínum, en tók vinnu
ef bauðst, svo sem vegavinnu vor
og haust. Auk þess fóru Mundi og
Svavar saman nokkrar vertíðir til
Vestmannaeyja. Mundi hafði gaman
af skepnum. Þó hafði hann mest
yndi af hrossum, átti góða hesta og
átti með þeim margar unaðsstundir.
Hinn 6. desember 1946 gekk
Guðmundur í hjónaband með Guð-
björgu Þórarinsdóttur, Siguijóns-
sonar frá Bessastöðum og Hallfríðar
Jónsdóttur frá Dæli, sem seinna var
þekkt sem Halla á Spítalanum.
Þau Mundi og Bubba bjuggu
fyrstu árin í Ási. Mundi varð síðan
bústjóri á Garði hjá Pétri Björnssyni
kaupmanni á Siglufirði, er þá átti
jörðina. Á þessum árum kenndi
Mundi veilu í baki, taldi rétt að tak-
ast ekki meira á við sveitastörfin
og fluttust þau hjónin til Sauðár-
króks. Vann hann þar alla almenna
verkamannavinnu þar til útgerðin
efldist. Réðst hann þá til starfa í
frystihúsinu og vann við fiskvinnslu
í mörg ár, en síðustu árin fyrir sjö-
tugt vann hann hjá Loðskinni hf.
Bubbu og Munda varð ekki barna
auðið, en áður en þau tóku saman
hafði Bubba eignast tvö börn, Hall-
fríði og Björn Ragnarsbörn. Björn
kom til þeirra sex ára gamall og
ólst upp hjá þeim eftir það. Halifríð-
ur var komin í fóstur að Hrafnsstöð-
um í Kinn, Þingeyjarsýslu. Ólst hún
þar upp og er nú búsett á Húsavík,
gift Erni Jenssyni bifvélavirkja og
eiga þau fimm börn sem eru: Al-
bert, Kristján, Þóra, Einar og Guð-
mundur. Björn er búsettur í Kefla-
vík suður, sambýliskona hans er
Ólöf Bjömsdóttir, áður hafði Björn
eignast þijá syni, Runólf, Guðmund
og-Þórhall.
Með Munda og fjölskyldum stjúp-
barnanna ríkti ástúð og hlýja og
börn þeirra leit hann á sem eigin
afabörn og þó ekki hvað síst nafn-
ana á hverjum stað.
Stuttu eftir að Mundi og Bubba
fluttust í bæinn hafði Guðjón bróðir
hans fest kaup á upphlaðinni hæð
með steyptri plötu á Bárustíg 13.
Byggði hann síðan rishæð ofaná
sem þau Mundi og Bubba festu
kaup á fokheldri. Innréttuðu síðan
þeir bræður íbúð, sinn á hvorri
hæðinni og hafa búið undir sama
þaki um 30 ára skeið í sátt og sam-
lyndi.
Þegar Mundi og Bubba bjuggu í
Ási fæddist bróðurdóttir hans, Sig-
ríður. Tóku þau strax ástfóstri við
þessa litlu frænku sem enst hefur
síðan. Átti Siggajafnan athvarf hjá
þeim er hún stundaði nám við gagn-
fræðaskólann, einnig er hún fór
fyrst út á vinnumarkaðinn, allt þar
til hún stofnaði sitt eigið heimili
með Magnúsi Rögnvaldssyni. Ekk-
ert breyttist, vináttusambandið
rofnaði ekki, mjög náið samband
var ætíð milli þessara heimila, oft
sem eitt væri. Börn þeirra Siggu
og Magga, Ragnar, Inga Dóra og
Þröstur, nutu einlægrar ástar þeirra
Munda og Bubbu. Voru þeir frænd-
ur, Ragnar og Mundi, mjög sam-
rýndir, unnu saman að sínum hugð-
armálum, sem voru hestar, fóðrun
þeirra og brúkun. Er það sjálfsagt
fátítt með svo mikinn aldursmun
að þeim skyldi aldrei verða sundur-
orða.
Við sem þekktum Munda, lifðum
og störfuðum með honum, kveðjum
góðan dreng með þökk og virðingu.
Far þú í friði.
+
Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, og langafi,
GUÐMUNDUR STEINSSON,
Vegamótum,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
í dag, föstudaginn 26. nóvember,
kl. 13.30.
Sigríður Jónathansdóttir,
Guðfinna Guðmundsdóttir, Rafn Thorarensen,
Sigrún Thorarensen, Dagný Thorarensen,
Selma Thorarensen, Sigurður R. Jónsson,
Rakel Sif Sigurðardóttir.
í
í
t
Innilegar þakkir til allra þeirra,
sýndu okkur samúð og hlýhug við
lát og útför föður okkar,
ÓLAFS JOSÚA
GUÐMUNDSSONAR
frá Litla Laugardal,
Tálknafirði.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
BJARNA JÓNSSONAR,
Faxaskjóli 12.
I
i
j
l
Adolf Bjarnason, Ásta Jóhannesdóttir,
Kristinn Bjarnason, Kristín Pálmadóttir,
Bjarni G. Bjarnason, Sigrún Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Vinur.