Morgunblaðið - 26.11.1993, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
t
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að aðlagast óvænt-
um breytingum á vinnustað.
Einhver kemur ef til vill
ekki heiðarlega fram við þig
í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sumir eiga það til að ýkja
einum um of í dag. Einhver
gefur þér loforð sem erfitt
getur verið að standa við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Taktu enga fjárhagslega
áhættu í dag. Þú þarft að
bijóta málin til mergjar áður
en þú tekur endanlega
ákvörðun.
Krabbi
(21. juní - 22. júlí) >"16
Einhver stendur ekki við til-
boð um aðstoð í vinnunni í
dag. Reyndu að kunna þér
hóf i skemmtanalífinu í
kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. úgúst)
Gættu þess að standa við
loforð sem þú hefur gefið
ættingja. Einhver óvissa rík-
•ir í vinnunni fyrri hluta dags.
Meyja
(23. ágúst - 22. septcmberl <t'j
Taktu ekki of mikið mark á
því sem sumir segja í dag
því þeir geta átt það til að
gera of mikið úr málunum.
Þú sinnir þörfum barns.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Misskilningur getur komið
upp milli vina. Gættu hófs
við innkaupin í dag og at-
hugaðu vel verðlagningu
vörunnar.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^jjj^
Vertu ekki með of mörg jám
í eldinum. Þú gætir gefið
loforð sem erfítt er að standa
við. Sýndu aðgát í fjármál-
um.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Varastu kæruleysi í vinn-
unni. þú gætir vanmetið erf-
iðleikana við lausn verkefn-
is. Ekki kaupa köttinn í
sekknum.
Steingeit
(22. *des. - 19. janúar) m
Sumt af því sem þér er sagt
í dag er ekki sannleikanum
samkvæmt. Sumir ýkja og
aðrir gefa loðin svör. Gættu
hófs í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú þarft að gæta hagsýni í
viðskiptum í dag. Þótt vinur
vilji þér vel geta ráð hans
verið á misskilningi byggð.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) <
Haltu þér fast við staðreynd-
ir í dag þótt aðrir hafí til-
hneigingu til að fara í kring-
um þær. Taktu ekki van-
hugsaða ákvörðun.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
LJÓSKA
SMAFOLK
P55T, SALLV... WWAT
PIP V0U PUT POUUN
F0RTHE FIR5T QUE5TI0N?
''IUHATHAPPENEPIN 1816?
HOU) 5U0ULP I KNOUU? I
WA5N'T THERE.BUTIFIMAP
PEEN, l’PNEVER APMIT IT"
Psst, Gunna, hvað skrifaðirðu
við fyrstu spurningunni?
„Hvað gerðist 1816? Hvernig ætti
ég að vita það? Ég var ekki þar,
en ef ég hefði verið þar myndi ég
aldrei viðurkenna það.“
I LL TMINK 0F
50METHIN6 EL5E
-y'l
Ég ætla að hugsa
um eitthvað annað.
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Fátt er eins mikilvægt í vörn (og
gott fyrir makkerskapið, eins og Gylfi
Baldursson orðar það) og skýr köll.
Taktu þér sæti í austur og reyndu
að átta þig á hvað makker er að fara.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður.
♦ KG5
¥ DG87
♦ KD5
♦ KD6
II
Vestur Norður Austur Suður
2 tíglar*
Pass 2 gr.** Pass 3 hj.***
Pass 4 hjörtu Allir pass .
♦Flannery, 4 spaðar og 5+ hjörtu
** Spurning um skiptingu
*** 4-5-2-2
Útspil: spaðaás.
Suður lætur sexuna heima í spaða-
ásinn. Vestur spilar næst spaðasjöu
og þú trompar, en suður fylgir lit
með áttunni. Hvað nú?
Makker er snillingur að finna
spaðaásinn út, en hvað meinar hann
með þessari spaðasjöu? Gat hann
ekki verið skýrari? Hvort vill hann
lauf eða tígul?
Þú sérð ekki þrist og fjarka í spaða.
Ef sagnhafi er að fela þau spil þá
hefur hann átt 8643 í bytjun. Svo sem
til í dæminu, en varla hefði makker
komið út í spaða með ÁD í litnum.1
Makker á því spil undir sjöunni. Og
líka yfir sjöunni, greinilega. Hvaða
miðjumoð er þetta?!
Norður
♦ KG5
¥ DG87
♦ KD5
Vestur * KD5
♦ Á10974
¥ Á
♦ G762 111111
♦ 1082 _ .
Suöur
♦ D863
¥ K10542
♦ Á4
♦ Á3
Vestur er einfaldlega að segja að
hann eigi hvorugan láglitaásinn. En
trompásinn getur hann hæglega átt
og því ætti austur að spila trompi.
Það er nauðsynlegt að taka síðari
spaðastunguna strax, því annars get-
ur sagnhafi hent tveimur spöðum nið-
ur í drottningarnar í láglitunum.
Lærdpmur til að skrá á bak við
eyrað: í stöðum þar sem hliðarköll
eiga við, bera miðjuspilin líka boð-
skap.
SKÁK
Austur
♦ 2
¥ 963
♦ 10983
+ G9754
Austur
♦ 2
¥ 963
♦ 10983
* G9654
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp í fjórðu
umferð á útsláttarmótinu í Tiíburg
í seinni framlengingarskák þekktu
stórmeistaranna Gata Kamsky
(2.654), Bandaríkjunum og Art-
urs Jusupov (2.630), sem nú tefl-
ir fyrir Þýskaland. Jusupov hafði
svart og átti leik. Keppendur byrj-
uðu með 20 mínútur í skákinni
en fengu 10 sekúndur fyrir hvern
leik. Tímaskortur er eina skýring-
in á síðasta leik Kamskys, 27. g2
- g3?? í staðinn hefði hann getað
leikið 27. Dd2! með hótuninni 28.
Rf5+ og stendur þá betur að vígi.
■ b c d • l g h
27. - Rf3+, 28. Khl - Hh8!,
29. Rfl - Dh6, 30. h4 - Rxh4
og Kamsky gafst upp því hann
er óveijandi mát. Þar með féll
hann út úr mótinu, því fyrri skák-
inni lauk með jafntefli. Önnur
úrslit í framlengingum urðu
Karpov - Kaidanov IV2-V2, Vag-
anjan - Dreev IV2-V2 og Kir. Ge-
orgiev - Morosevitsj 2-0. I fjórð-
ungsúrslitunum mætast Jusupov
og Karpov, Vaganjan og
Beljavskí, Barejev og Shirov, Kir.
Georgiev - ívantsjúk. Um helg-
ina: Nóvemberhraðskákmót Tafl-
félags Reykjavíkur fer fram
sunnudaginn 28. nóvember kl. 20.