Morgunblaðið - 26.11.1993, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 26.11.1993, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993 -?---------------------------------------------------------------------------------------- að efna gefin loforð TM Reg. U.S Pat Off.—all rights reserved ® 1993 Los Angetes Times Syndicate BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Eru íslenskir fjölmiðlar á móti unglingum? Frá Þórhalli Heimissyni: Mikil umræða hefur verið í fjöl- miðlum undanfarin misseri um ölv- un, óspektir og margskonar nei- kvæða hluti sem fylgja unglingum í dag að sögn þeirra sem um fjalla. Við höfum fengið að fylgjast með óhæfuverkum og agaleysi þessa „hræðilega" fyrirbrigðis sem er á aldrinum 12-19 ára, bæði í blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Engin frétt af óhæfuverkum unglinga er of lítif til þess að rata inn í fréttatíma eða á síður dagblaðanna. En hvað gerist þegar unglingar taka upp á þeim ósköpum að gera jákvæða hluti? Já, það vill nefnilega svo ótrúlega til, sama hvað fjöimiðl- ar segja, að flestir unglingar eru að fást við jákvæða hluti! Þeir eru eins misjafnir og þeir eru margir, með mismunandi áhugamál, hugsanir og tilfinningar. En sjaldnast fær hin jákvæða hlið „unglingsins" náð fyrir augum fréttastjóra og ritstjóra fjöl- miðlanna. Mig langar til þess að nefna smá dæmi. Laugardaginn 6. nóvember héidu um 160 unglingar á vegum æskulýðsstarfs kirkjunnar í Reykja- víkurprófastsdæmum svokallaða „haustsamveru“. Um eftirmiðdaginn heimsóttu sumir þeirra sjúkrahús, elliheimili og vistheimili út um bæ- inn, ekki til að bijóta þar allt og bramla, heldur til þess að skemmta þeim sem þar dvelja, sýna hlýju og vináttu í verki. Aðrir stóðu fyrir opnu húsi í safnaðarheimili Laugar- neskirkju og buðu börnum og full- orðnum upp á kaffi, söng og fönd- ur. Þema dagsins var „fjölskyldan". Um kvöldið var síðan hveijum sem vildi boðið til „smiðjumessu" í Nes- kirkju, en það er messa sem ungling- amir sjálfir „smíða“. Sama dag hitt- ust um 150 norðlenskir unglingar, frá æskulýðssambandi kirkjunnar þar, á Akureyri, í sama tilgangi, enda dagurinn samræmdur norðan og sunnan heiða. Alla vikuna á undan reyndi ég að fá ijölmiðla til þess að segja frá þessu til þess að benda á þetta já- kvæða framtak unglinganna. Við- brögðin voru vægast sagt furðuleg. Rétt var getið um þetta með smáu letri í sumum dagblaðanna. Á út- varpsstöðvunum voru þeir geimverur á heilanum og á sjónvarpsstöðvunum var aðeins glott út í annað. En viti menn. Föstudaginn 5. nóvember glumdu frá fréttastofu ríkisútvarps- ins frásögur af fréttum sem birst höfðu í útlöndum og fjölluðu um ís- lenska unglinga! Kl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00! En fréttirnar sem við hlustendur fengum svo skilmerki- lega að heyra fjölluðu auðvitað um' Frá Guðmundi Jóhannssyni: ÁÐUR hefur verið drepið á mismun grunnlauna, en þar er ekki nema hálfsögð saga þeirra kjara sem yfir- stéttin hefur skammtað sér. Bílafríð- indi er einn þátturinn og þó að seðla- bankastjóri hafi orðið sérstakt tilefni til umræðu nýverið, þá er hann því miður ekkert einsdæmi með að fá bíl á kostnað þjóðarinnar, nei, það eru hundruð manna á vegum hins opinbera sem eru undir þá sök seld- ir. En hann er sennilega sá fyrsti og eini sem afsalar sér slíkum mun- aði, en það var vegna almenningsá- litsins, sem fjölmiðlar komu á fram- færi, en auðheyrt var af tilsvörum bankastjórans að honum fannst ekk- ert athugavert við þessi bílakaup og kvaðst hann vonast til að fjölmiðlar finndu sér verðugra verkefni til að fjalla um í framtíðinni. Hví geta allir þessir aðilar ekki keypt sína bíla og ekið í vinnuna eins og flestir gera sem eru á lægri launum? Komið hef- ur verið upp gjaldskrá á ekinn km sem er eðlilegt að þeir fari eftir sé ekið í þágu ríkisins. Takið félags- málaráðherra okkar ykkur til fyrir- myndar. Þá er siðferðið ekki á háu stigi þegar til ferðalaga1 kemur hjá þessum stjórnsýslumönnum. Reglan mun vera að allur ferðakostnaður er greiddur samkvæmt reikningi + dag- drykkjuskap íslenskra unglinga, dópneyslu þeirra og bijálæði. Þá var allt í einu nægur tími til að segja frá. Sama frétt var ítrekuð í Morgun- blaðinu daginn eftir. En ekki var hægt að eyða einu orði í heimsóknir 300 unglinga til sjúkra og aldraðra. Því leyfi ég mér að spyija, því ég skil einfaldlega ekki þetta frétta- mat. „Eru íslenskir fjölmiðlar á móti unglingum"? ÞÓRHALLUR HEIMISSON, framkvæmdastjóri Æskulýðssambands kirkjunnar. peningar, sem ekki eru skornir við nögl, og þeim er hægt að stinga í rassvasann. Þetta er að sjálfsögðu kaupauki, auk þess sem þetta eru óeðlilegar greiðslur, þá býður þetta heim hættunni; að ekki séu allar ferð- ir knýjandi þörf fyrir þjóðina, það er að segja að þessir dagpeningar eru ferðahvetjandi. Til að bæta gráu ofan á svart er mökum ferðalang- anna heimilar fríar ferðir auk hálfrar greiðslu dagpeninga, samkv. gjald- skrá daggjaldanefndar. Auðvitað mega þessir aðilar og makar þeirra fara eins oft til útlanda sem þá lyst- ir, en þeir verða bara að standa sjálf- ir undir sínum ferðakostnaði svo fremi þeir eru ekki í erindagjörðum þjóðarinnar. Manni er spurn: Hver stendur fyrir svona sukki og hver er ábyrgur fyrir því? Ætla mætti að reglur þessar, ef reglur mætti kalla, væru af himnum komnar og mætti ekki við þeim hrófla. Vonandi standa þær ekki í Biblíunni eða Stjórnar- skránni. Nei, þær munu vera af völd- um nútímamanna með siðblindu. Því nú ver og miður er stjórnsýslukerfið helsjúkt af þessari spillingu, en nauð- syn ber til að lækna hana. GUÐMUNDUR JÓHANNSSON, eftirlaunaþegi, Þrastahólum 10, Reykjavík. Bílakaup og önnur fríðindi HÖGNI HREKKVÍSI Víkveiji skrifar Adögunum þurfti Víkveiji að verða sér úti um blekhylki í HP-prentara, sem hann á og notar við tölvuna sína. Miðað við notkun prentarans, þarf Víkveiji að jafnaði að kaupa sér slíkt hylki á þriggja mánaða fresti og hefur það kostað rétt rúmlega 3.000 krónur um langan tíma. Nú brá hins vegar svo við í vikunni, er Víkveiji varð uppiskroppa með blek, að hylkið hafði hækkað í 3.900 krónur, kostaði um 900 krón- um meira en fyrir þremur mánuðum. Víkveiji keypti umrætt hylki hjá Örtölvutækni í Skeifunni. Hann vildi fá skýringar á þessari gífurlegu hækkun hylkisins, um 30%. Af- greiðslutúlkan vísaði á karlmann í verzluninni og bað hann um að svara hinum óánægða viðskiptavini. Ekki fannst Víkveija hann fá viðhlýtandi svör. Afgreiðslumaðurínn taldi að síðast þegar Víkveiji hafi keypt hylk- ið hafí hann fengið það á einhveiju tilboðsverði, en Víkveiji minnist þess ekki, enda var þetta ekki fyrsta og ekki annað hylkið sem hann keypti. Þá sagði afgreiðslumaðurinn og að verðið væri í samræmi við verðlista Hewlett Packard og til þess að geta gefið fyrirtækjum afslátt, sem keyptu slík hylki í miklu magni, yrði að verðleggja það með þessum hætti. Ekki getur Víkveiji sagt að honum hafí fundizt þessar skýringar viðun- andi. Gengisþróun gefur ekki og heldur tilefni til slíkrar hækkunar og hart er að kyngja ef litlu kúnnarn- ir, einstaklingarnir úti í bæ, sem nota slíka prentara, þurfa að kosta afslátt til stórfyrirtækja með þessum hætti, en svör afgreiðslumannsins gáfu svo sannarlega til kynna, að það væri raunin. Þegar Víkveiji yfir- gaf verzlunina og lýsti vanþóknun sinni á verðinu með þeim orðum að hann gæti ekki sætt sig við að greiða fyrir afslátt stórfyrirtækja, var svar- ið eitthvað á þá leið að sú væri og ekki ætlun verzlunarinnar. En er það ekki einmitt raunin? xxx Og þar sem farið er að ræða um verðlagningu, má geta þess, að félagi Víkveija lenti í því um dag- inn, að gangtruflanir urðu skyndi- lega í nýlegum Volvo, sem hann á. Félaginn fór til gamla bifvélavirkj- ans, sem jafnan hefur gert við bíla hans og þegar hann hafði litið á bil- unina, kom í ljós að færa þurfti bíl- inn til umboðsins til viðgerðar og stillingar. Kom í ljós að skipta þurfti um þrýstijafnara í eldsneytisinns- gjöfinni og ógerlegt reyndist að stilla bílinn, nema hafa við höndina tölvu, sem aðeins umboðsverkstæðið átti, að mati gamla bifvélavirkjans. Allt var þetta nú gott og blessað, ef reikningurinn hefði verið skapleg- ur, en það var hann ekki. Það sem tók gamla bifvélavirkjann örskot- stund að finna út að skipta þyrfti um þrýstijafnara var síðan lagfært hjá umboðinu og á reikningnum stóð „Vinna við: bilanaleit, þrýstijafnari órýtur, fenginn að láni úr bíl Brim- borgar“. Fyrir þetta varð að greiða fjórar klukkustundir og kostar hver klukkustund 2.560 krónur eða sam- tals 10.240 krónur. Þetta fannst fé- laga Víkveija æði dýr leit, en vera má að það hafi og tekið einhvern tíma að skipta um þrýstijafnarann. En ijórar klukkustundir, eru heldur langur tími í bilanaleit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.