Morgunblaðið - 26.11.1993, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
49
Heilsuhagfræði,
endalok samkenndar
I Frá Júlíusi Váldimarssyni:
HINN 20. nóvember birtist í Morg-
unblaðinu grein eftir Gunnar Má
I Hauksson sem nefndist Heilsuhag-
fræði. Inntak greinarinnar var að
fólk þyrfti að fara að sætta sig við
| það í eitt skipti fyrir öll að ekki vær
hægt að veita nema hluta af fólki
læknisþjónustu. Taldi hann það vera
staðreynd að flokka þyrfti þá sem
ættu að njóta lækninga, en það
þyrfti að gera þetta á hagfræðilegan
hátt. Vandann mesta kvað hann
vera að koma fólki í skilning um
þetta því að eins og segir orðrétt í
greininni: „Einstaklingurinn metur
sína eigin heilsu mjög hátt, þó að
hún vegi e.t.v. ekki mikið á vogar-
skálum heildarinnar." Það sækir að
manni hálfgerður flökurleiki þegar
maður les um svona viðhorf. Þama
er samkenndin lögð fyrir róða og
skortur á bróðurkærleik gefður að
fræðigrein.
Maður getur ímyndað sér hvatn-
ingarorðin til fólksins í framtíðar-
þjóðfélagi heilsuhagfræðinnar. Þú
) munt verða beðinn um það, ef röðin
skyldi koma að þér að verða veikur
og fá ekki læknisþjónustu, að þú
) sýnir því skilning og axlir þína byrði.
Föðurleg umvöndur. mun fylgja á
þann veg, að þótt þetta virðist stórt
mál í þínum augum, þá sé þetta nú
að meðaltali mjög lítið mál þegar
mælt er á vogarskál heildarinnar.
Talnalegum útskýringum mun sjálf-
sagt einnig verða beitt til að sýna
fram á að sá lífsstíll sem hentar
nútíma þjóðfélagi leyfi ekki að veija
nema takmörkuðum fjármunum í
það að lækna fólk.
Þessi nýju og kaldhæðnislegu við-
horf eru mjög ólík þeim hugsjónum
sem forfeður okkur börðust fyrir og
fjölmargir upphafsmenn og baráttu-
menn verkalýðsfélaga, stjórnmála-
flokka og samtaka fólksins um
heilsuvernd fyrir alla fyrr á öldinni,
og ríktu þar til fyrir fáum árum.
Ég spyr, til hvers ætlum við að hafa
þjóðfélag og hagvöxt og hagsæld
ef að við gerum ekki allt sem í okk-
ar valdi stendur til þess að fram-
kvæma svo sjálfsagðan hlut og að
veita þeim aðhlynningu og lækningu
sem þurfa þess með. Þetta þarf að
setja í forgang jafnvel þótt við þurf-
um að draga úr eyðslu okkar í aðra
hluti. Ég hvet fólk til að vakna ræki-
lega til umhugsunar um hvað er að
gerast. Ég tel mig vera húmanista
og vil vera það, vegna þess að húm-
anistar eru ekki efnishyggjumenn
sem búa til hagfræði til að réttlæta
mannlegar hörmungar. Þeir sem
gera slíkt eru ekki húmanistar, þeir
eru eitthvað annað.
JÚLÍUS VALDIMARSSON,
Laugavegi 17,
Reykjavík.
Pennavinir
Nítján ára finnsk stúlka vill skrif-
ast á við 19-24 pilta eða stúlkur.
Hefur áhuga á listum, dýrum,
ferðalögum o.fl.:
Meija Kivela,
Opastinkuja 4 A 10,
45120 Kouvola,
Finland.
LEIÐRÉTTING
Setning féll
niður
Í grein Árna M. Mathiesen, serr.
birtist í blaðinu í gær, féll niðui
hluti úr setningu og er hún birt héi
rétt um leið og höfundur er beðinn
velvirðingar. .
„Umboðsmaður Alþingis hefur
samkvæmt 11. grein laganna um
umboðsmann Alþingis einnig það
hlutverk að tilkynna Alþingi og við-
eigandi stjómvaldi ef hann verður
þess var að meinbugir séu á gild-
andi lögum. Forsætisnefnd Alþingis
hefur haft þann hátt á að vísa slík-,
um málum til umfjöllunar í allsher-
jamefnd, en í skýrslu umboðsmanns
fyrir 1992 er um sex slík mál að
ræða.“
Rangt ártal
í leiðara Morgunblaðsins í gær
sagði að Þjóðarflokkurinn hefði far-
ið með völd í Suður-Afríku frá 1984.
Hið rétta er auðvitað að flokkurinn
hefur farið með stjóm landsins frá
1948.
i
)
I
i
i
I
$
VELVAKANDI
ÞEKKIR EINHVER
FÓLKIÐ?
ÞEIR sem þekkja fólkið á mynd-
unum em beðnir um að hafa
samband við Henriettu Berndsen
í Búðardal í síma 93-41162.
VELJA
FORRÁÐAMENN
ÞJÓÐARINNAR
ÍSLENSKT?
MARGRÉT Aðalsteinsdóttir
hringdi og vildi beina þeirri fyrir-
spurn til þeirra forráðamanna
þjóðarinnar sem em nú að aug-
lýsa íslenskan vaming hvort þeir
gangi sjálfir í íslenskum fötum.
Hún sagðist ekki vita betur en
forseti Islands væri með sér-
stakan erlendan hönnuð til að
hanna föt á sig.
Væri ekki rétt að þeir gengju
á undan með góðu fordæmi og
styrktu sjálfir íslenskan fataiðn-
að.
„HAMBORGARA
HRYGGUR?“
KONA hringdi til Velvakanda og
segist hafa heyrt auglýst í nokkr-
um fjölmiðlum „hamborgara-
hryggi" til sölu. Henni leikur for-
vitni á að vita úr hveiju þessir
hamborgarahryggir séu. Em þeir
úr hamborgurum eða er átt við
hamborgarhryggi?
ELDRIMAÐUR
sem kom að vitja æskustöðva
sinna í bakhúsi við Bragagötuna
snemmsumars er vinsamlega
beðinn að hafa samband aftur.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Úr fannst
STÁLKARLM ANN SÚR fannst
við stöðumæli í Lækjargötunni á
móts við íslandsbanka. Eigandi
má hringja í síma 666246.
Gull- og silfurnæla týndist
GULL- og silfurnæla með perlu
(lengd nælu u.þ.b. 3-4 cm) tapað-
ist sl. Iaugardag. Líklegast er að
það hafí verið í tjóðleikhúskjall-
aranum, Café Romance eða ein-
hvers staðar á leiðinni þar á milli.
Nælan er eigandanum mjög kær
og verða skilvísum fínnanda veitt
góð fundarlaun.
Jakki í misgripum
GRÆNN vaxjakki var tekinn í
misgripum úr fatahengi á Vina-
balli í Árseli sl. föstudag. Sá sem
er með jakkann er vinsamlega
beðinn að hringja í síma 676891
eða 651013.
Landsmót skáta
í Kjarnaskógi
TJALD, sem varð viðskila við
eiganda sinn, er í vörslu BÍS í
afgreiðslunni á 2. hæð í Skáta-
heimilinu við Snorrabraut. Sími
23190.
Silkislæða tapaðist
AFLÖNG silkislæða, með appel-
sínugulbrúnum- og gráleitum
röndum tapaðist mánudaginn 22.
nóvember (í hádeginu) frá
Bankastræti að Gijótagötu (og
til baka) og Austurstræti og
Vallarstræti. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 625266.
Týnt úr
KVENÚR tapaðist sl. föstudag í
Stakkahlíð eða Stigahlíð.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 39654.
Dúkka i apóteki
DÚKKA í bleiku burðarrúmi
gleymdist í Apóteki Austurbæjar.
Hafa má samband við apótekið
í síma 621044.
1 Tannverndarráö
ráðleggur foreldrum að gefa börnum sínum
□ jóladagatöl
L J án sælgætis
Hjartans þakklceti fœri ég hreppsnefnd Gerða-
hrepps, skólanefnd Gerðaskóla og samkennur-
um, Garðbúum og öðrum, \inum og vanda-
mönnum, sem heiðruðu mig ú 70 úra afmæli
mínu 24. október sl.
Halldóra Ingibjörnsdóttir.
Innilegar þakkir til allra, sem minntust mín
og glöddu í tilefni af 60 úra afmœli mínu
19. nóvember.
Guð blessi ykkur.
Halldór Þórðarson,
Litla-Fljóti,
Biskupstungum.
Innilegar þakkir færum við ö/lum þeim, sem
heiðruðu okkur ú gullbrúökaupsdaginn
19. nóvember sl.
Sérstaklega þökkum við börnum okkar, tengda-
börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum
fyrir ógleymanlegan dag.
Megi Guð og gæfan fylgja ykkur öllum
ú ókomnum drum.
Kær kveðja.
Inga S. Kristjánsdóttir,
Guðmundur S. Sigurjónsson,
Fagrabæ 1, Reykjavík.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSIUN
Komnir aftur - pantanir óskast sóttar!
■ POSTSENDUM SAMDÆGURS ■ 5% STAÐGRE1ÐSLUAFSLATTUR 1
Tðkum vlð notuðum skúm tll hanúa hágstöúúum
Domus Medica, Toppskórinn, Kringlunni,
Egilsgöiu 3, Veltusundi, Kringlunni 8-12,
sími 18519 sími 21212, sími 689212