Morgunblaðið - 26.11.1993, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
URSLIT
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Houston og Seattle enn án taps
lyeikir aðfaranótt fimmtudags:
Utáh — Houston.................93:95
■Houston hefur byrjað tímabilið best allra
liða og nú vann Houston 11. sigurinn í röð
og hefur ekki tapað leik. Framlengingu
þurfti í leiknum gegn Utah. Mario Elie
gerði tvö stig úr vítum þegar tvær sekúnd-
ur voru eftir af venjulegum leiktíma og
tryggði framlengingu Houston. Vemon
Maxwell tryggði siðan sigurinn með þriggja
stiga körfu þegar rúmlega ein mínúta var
til loka framlengingarinnar. Hakeem
Olajuwon var stigahæstur að vanda með
29 stig, en John Stockton var stigahæstur
í liði Utah með 24 stig.
■Houston er sjötta liðið í 48 ára sögu
NBA-deildarinnar til að vinna ellefu leiki í
__ röð og á liðið nú flóra leiki eftir í metið.
Sácramento Kings - Seattle.....93:120
■Seattle hefur byijað vel eins og Houston
og unnið fyrstu níu leikina. Gary Payton
gerði 23 stig, Ricky Pierce 21 og Nate
McMillan 13 stig og tók auk þess 11 frá-
köst. Mitch Richmond var stigahæstur í liði
Kings með 24 stig. Þetta var fyrsta tap liðs-
ins á heimavelli í vetur.
Cleveland — Washington........113:107
■Mark Price gerði 28 stig og Gerald Wilk-
ins 16 fyrir Cleveland sem hafði yfir allan
leikinn. Bullets, sem hafði unnið fjóra af
siðustu fimm leikjum, komst næst því að
jafna undir lokin.
Detroit - Boston..............103:118
■Boston hefur byijað mjög vel og var þetta
áttundi sigur liðsins í 10 leikjum. Robert
Parish gerði 20 stig fyrir Boston, en Olden
Polynice var stighæstur heimamanna með
27 stig og tók 13 fráköst.
■Leikmenn Boston skoruðu úr 20 skotum
í röð utan af velli, sem er NBA-met.
Indiana — Philadelphia........97:108
■Dan Barros gerði 22 stig og Tim Perry
20 fyrir Philadelphiu, sem var 14 stigum
undir í fyrsta leikhluta en var sterkara á
endasprettinum. Rik Smits gerði 25 fyrir
Pacers og Reggie Milter 21.
Miami — Golden State..........102:108
■ Latrell Sprewell var hetja Golden State
— gerði 7 af síðustu 11 stigum liðsins og
var stigahæstur með 27 stig. Steve Smith
náði persónulegu meti er hann gerði 32
stig fyrir Miami Heat.
Charlotte — LA Lakers........141:124
■Larry Johnson fór á kostum í liði Charl-
otte og gerði 28 stig. Þetta var fjórði heima-
sigurinn í röð og hefur unnið alla með
meiri mun en 21 stigi. Lakers hefur hins
vegar tapað fimm síðustu leikjum sínum.
San Antonio — Chicago Bulls....109:84
■ Dennis Rodman tók 21 frákast fyrir San
Antonio og munar um minna: Willie Ander-
son gerði 21 stig fyrir Spurs, sem hefur
unnið fimm af síðustu sex leikjum. Það
gengur ekki eins vel hjá meisturunum eftir
að Jordan hætti. Þeir hafa aðeins unnið fjóra
leiki og tapað sjö!
Minnesota — New Jersey........107:106
■Chuck Person gerði sigurkörfu Minnesota
með skoti utan af velli þegar 3 sekúndur
voru eftir. New Jersey hafði yfir 100:106
þegar 2,20 mín. voru eftir, en náði ekki að
skora eftir það. Derrick Coleman, sem var
stigahæstur í iiði New Jersey með 36 stig
og 15 fráköst, hitti ekki úr opnu færi þeg-
ar 20 sekúndur voru eftir og Minnesota
náði frákastinu og Person gerði sigurkörf-
una eins og áður er lýst.
Mílwaukee — Atlanta.............85:89
■Craig Ehilo var stigahæstur (21 stig)
fyrir Atlanta Hawks, sem er í efsta sæti í
miðriðli austurdeildar. Blue Edwards gerði
28 stig fyrir Bucks.
Phoenix — Denver.............130:107
■Charles Barkley gerði 21 stig og Dan
Majerle 20 í frekar auðveldum sigri á heima-
velli. Phoenix hefur unnið alla fimm heima-
leikina á tímabilinu og var þetta sjöundi
sigur liðsins í síðustu átta leikjum. Mahmo-
ud Abdul-Rauf, sem hefur ávallt verið stiga-
hæstur í liði Denver í vetur, náði aðeins
að gera 11 stig gegn Barkley og félögum.
Evrópukeppni meistaraliða
Mechelen, Belgíu:
Mechelen - Benetton (Ítalíu)...86:85
■Stigahæstir í liði Mechelen: Bill Varner
27, Kurt Portmann 21, Dirk Snyders 15.
Hjá Benetton var Riccardo Peptes með 17
stíg, Winston Garland 16, Pace Manneon
13 stig.
Madrid, Spáni:
Real Madrid - Olympiakos.......57:58
■ Joe Arlauckus 12, Arvidas Sabonis 12,
Antonio Martin 11, Jose Biriukov 10 voru
stighæstir hjá Real Madrid, en Zarko Pasp-
alj var með 25 stig fyrir gn'ska liðið Olymp-
iakos.
Ikvöld
Sund
Bikarkeppni 1. deildar SSl hefst í
Sundhöll Reykjavíkur í kvöid kl. 20.
Keppninni verður framhaldið á morg-
un og sunnudag. Sex lið keppa um
bikarmeistaratitilinn. Þau eru; ÍA,
SFS, SH, KR og Ægir sem er bæði
með a- og b-lið.
Handknattleikur
Bikarkeppni karla:
Strandgata: ÍH - KA........kl. 20
Húsavík: Völsungur- Selfoss ...kl. 20
Blak
1. deild kvenna:
Digranes: HK-Sindri........kl. 20
BARDAGALIST
Mismun-
andi stíll
eneittmót
Þeir sem æfa bardagalist hér á
landi ætla að halda sameigin-
legt mót á laugardaginn. Þar mun
í fyrsta sinn keppt í hnefaleika-
hring, frá því hnefaleikar voru
bannaðir árið 1956, og verður fróð-
legt að sjá hvaða „stíll“ bardaga-
og sjálfsvamaríþrótta er bestur.
Mótið verður haldið að Ármúla
30 og hefst kl. 13. Mikill áhugi er
á mótinu enda ekki á hverjum degi
að menn í mismunandi íþróttagrein-
um eigast við. Þarna verða judó-
menn, karate-menn, menn sem æfa
fujuka-do, kung-fu, kick-box og
ninjutsu. Þetta er í fyrsta sinn sem
svona mót er haldið hér á landi.
SKIÐI
KNATTSPYRNA
Eriingur Krist-
jánsson næsti
þjáKari KA?
Erlingur Kristjánsson hampar
hér bikamum fyrir sigur KA í Meist-
arakeppni KSÍ fyrir þremur árum.
Erlingur Kristjánsson hefur
verið í viðræðum við KA um
að taka að sér þjálfun 2. deildarl-
iðs félagsins næsta sumar sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins. Erlingur lék í mörg ár með
KA og var m.a. í liðinu og fyrir-
liði þess er það varð meistari árið
1989. Hann hefur ekki leikið
knattspyrnu með félaginu undan-
farin tvö ár en er hins vegar á
fullu í handboltanum með 1. deild-
arliði KA.
Njáll Eiðsson, sem þjálfaði KA
í fyrra, verður ekki áfram hjá
félaginu. Þórarinn E. Sveinsson,
formaður knattspyrnudeildar KA,
vildi ekki tjá sig um þjálfaramálin
í gær og sagði að þau myndu
skýrast á allra næstu dögum.
Erlingur sagði; „Ég vil ekkert
segja um málið á þessu stigi.“
Ásta níunda í Geilo
Kristinn Björnsson meiddur í baki
ÁSTA S. Halldórsdóttir skíða-
kona frá ísafirði hóf keppnis-
tímabilið með því að taka þátt
í tveimur mótum í Geilo í Nor-
egi um síðustu helgi. Hún hafn-
aði í 9. sæti í svigi og 19. sæti
stórsvigi, en bæði mótin voru
viðurkennd af Alþjóðaskíða-
sambandinu (FIS) og gefa því
alþjóðleg styrkstig.
JW
Asta níunda í svigi sem fram fór
á sunnudaginn. Hún fékk sam-
anlagðan tíma, 1.42,10 mínútur. Sig-
urvegari var Titti Roding frá Svíþjóð
á 1.38,63 mín., Marianne Kjörstad
frá Noregi varð önnur á 1.38,66
mín. og Trude Gimle, Noregi, þriðja
á 1.39,54 mín. Ásta fékk fyrir árang-
ur sinn 38 alþjóðleg styrkstig. Hún
keppti einnig í stórsvigi á sama stað
á laugardag og hafnaði í 19. sæti,
en missti þá annan skíðastafinn í
síðari umferð.
Ólafsfirðingurinn Kristinn Bjöms-
son, sem hefur æft í Geilo, hefur átt
við meiðsli að stríða í baki og ekki
getað æft í 10 daga. Hann hefur
verið hjá sjúkraþjálfara í nálastung-
um og hnykkingum. Hann reiknar
jafnvel með að geta byijað að æfa
á fullu aftur um helgina.
Arnór Gunnarsson frá ísafirði er
einnig í Geilo við æfingar. Hann
keppti í stórsvigi á laugardag og
fékk fyrir árangur sinn 71 stig.
Sigurgeir Svavarsson frá Ölafs-
firði keppti í 16 km göngu með
fijálsri aðferð í Geilo á sunnudaginn.
Hann sagðist hafa verið 8% á eftir
sigurvegaranum sem var Thomas
Alsgaard frá Svíþjóð. Sigur Svíans
kom á óvart því bæði Björn Dæhlie
og Vegar Ulvang urðú að játa sig
sigraða, en þeir höfnuðu í öðru og
þriðja sæti. Sigurgeir hefur verið í
Óstersund í Svíþjóð og æft þar með
Daníel Jakobssyni, en hefur nú flutt
sig yfír til Ólafs Bjömssonar sem býr
í Lillehammer.
RALLI
Reuter
Kankkunen heimsmeistari
FINNINN Juha Kankkunen tryggði sér sinn fjórða heimsmeistaratitil í rall-
íakstri er hann vann konunglega breska rallíið í þriðja skipti á þriðjudag —
vann það einnig 1987 og 1991. Kankkunen, sem ók Toyota Celica, kom í mark
á þrettándu og síðustu ökuleiðinni í N-Englandi einni mín. og 44 sek. á undan
Svíanum Kenneth Eriksson, sem ók Mitsubishi. Hér á myndinni er Kankkunen
á fullri ferð við aðstæður sem hann þekkir vel til heima hjá sér. Hann fékk
samanlagt 135 stig í heimsmeistarakeppninni, en síðan komu Frakkarnir Deleco-
ur (112 stig) og Aurioi með 92 stig.
LYFJAMAL
Strauss eygir mögu-
leika á uppreisn æru
Hollensk rannsóknarstofa segir líkama hennarframleiða
mikið testosterón við bjórdrykkju, eins og hún hélt fram
ÞYSKA sundkonan Astrid
Strauss á möguleika á að
verða hreinsuð af áburði um
lyfjamisnotkun í kjölfar rann-
sóknar, sem leiddi í Ijós að
líkami hennar framleiddi
óvenjulega mikið magn af
hormóninu testosterón eftir
víndrykkju. Strauss hélt því
fram, þegar hún féll á lyfja-
prófi, að um væri að kenna
mikilli bjórdrykkju og neitaði
lyfjamisnotkun, en var dæmd
í keppnisbann og missti m.a.
af Olympíuleikunum í Barcel-
ona ífyrra.
Straúss mældist með meira
magn af testosterón í mars
1992 en kanadíski hlauparinn Ben
Johnson á Ólympíuleikunum í Seo-
ul 1988 og var dæmd í 18 mánaða
keppnisbann fyrir lyfjamisnotkun.
Hins vegar komst rannsóknar-
stofa í Utrecht í Hollandi að fyrr-
nefndri niðurstöðu eftir að viður-
kenndar rannsóknarstofur af Al-
þjóða ólympíunefndinni höfðu
neitað að framkvæma könnunina
af ótta við að niðurstöðurnar ýttu
undir lyfjamisnotkun.
Strauss, sem er 24 ára, hætti
við að höfða mál á hendur Álþjóða
sundsambandinu, FINA, vegna
bannsins. Hún hætti keppni í júní
s.l. eftir að hafa ekki náð lágmark-
inu í 800 m skriðsundi, greininni
sem hún sigraði í á HM 1986,
fyrir Evrópumeistaramótið. Hún
sagðist ekki ætla að taka málið
upp, en vildi að beðist yrði afsök-
unar á mistökunum. „Ég sagði
ekki ósatt og það skiptir miklu
máli fyrir þá sem ég umgengst,
foreldra mína, vini og íþróttafélag-
ið. Ég vil hætta í landsliðinu með
reisn. Þeir gætu haldið mér veislu
og jafnvel gefið mér blóm.“
Tveir þýskir sundmenn bíða
rannsóknar á B-sýnum eftir að
rannsókn á A-sýnum fyrr í vik-
unni leiddi lyfjamisnotkun í ljós.
Sylvia Gerasch og Ralf Beckmann,
sem unnu til gullverðlauna á EM
í styttri vegalengdum, sem fór
fram í Englandi fyrir skömmu,
mældust með ólöglegt magn af
koffíni. Garasch sagðist ekki hafa
neytt ólöglegra lyfja en verið á
meðulum vegna kvefs. Smollich
viðurkenndi mikla kaffidrykkju og
neyslu aspiríns, sem er ekki á
bannlista. Ralf Beckmann, lands-
liðsþjálfari, sagði að niðurstöðurn-
ar kölluðu á spurningar um hvort
ekki væri hægt að treysta lyfja-
prófum og niðurstöðurnar frá
Utrecht ýttu undir grun hans. í
framhaldi af þeim sagði Beck-
mann að hver sem niðurstaðan úr
B-sýni Smollichs yrði, yrði óskað
eftir sams konar prófi og Astrid
Strauss gekk undir til að sjá hvort
framleiðsla hormóna eins og test-
osteróns ætti sér stað í líkamanum
við ákveðnar aðstæður án vitundar
viðkomandi íþróttamanns.
Manfred Donike, helst sérfræð-
ingur Þjóðveija varðandi lyfjamis-
notkun, dró niðurstöður rannsókn-
arstofunnar í Utrecht í efa. Stofan
hefði misst viðurkenningu IOC
vegna misræmis rannsókna í
tengslum við mál þýsku hlaupa-
drottningarinnar Katrínar Krabbe
„og enginn af þeim 80.000 íþrótta-
mönnum, sem voru teknir í lyfja-
próf á síðasta ári, lét sig dreyma
um að nefna vínneyslu í því sam-
bandi.“
HANDBOLTI
Dómarar
fá verkefni
Tvenn íslensk dómarapör hafa
verið sett á leiki í Evrópu-
keppni kvenna í handknattleik.
Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson munu dæma leik Gjer-
pen frá Noregi og Funfhaus frá
Austurríki í Evrópukeppni meist-
araliða og verður leikið 30. janúar.
Guðjón L. Sigurðsson og Hákon
Siguijónsson fara til Danmerkur
og dæma leik Viborg og Lokomo-
tiva Zagreb frá Króatíu og er sá
leikur 23. janúar. Þá fer Gunnar
K. Gunnarsson sem eftirlitsmaður
til Spánar á leik Barcelona og
Pfandi Winterthur frá Sviss í Evr-
ópukeppni bikarmeistara karla.
Leikurinn verður 19. janúar.
FRJALSIÞROTTIR
Þekktir þjálfar-
ar til landsins
Breski frjálsíþróttaþjálfarinn Mike
Holmes, sem þjálfar m.a. há-
stökkvarann Steve Smith, bronshafa
frá heimsmeistarakeppninni í Stuttg-
art í ágúst sem leið, og landi hans
Trevor Llewellyn, sérfræðingur á
sviði hreyfifræði, verða leiðbeinendur
á þjálfaranámskeiði, sem fræðslu-
nefnd FRÍ gengst fyrir að Laugar-
vatni um helgina.
Sérstaklega verður fjallað um há-
stökk og tugþraut á námskeiðinu og
er það opið þjálfurum, leiðbeinendum
og áhugamönnum um fijálsíþróttir.