Morgunblaðið - 26.11.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
51
URSLIT
Haukar - Tindastóll95:68
Iþróttahúsið Strandgötu, Islandsmótið í
körfuknattleik, úrvalsdeild, fimmtudaginn
25. nóvember 1993.
Gangur leiksins: 4:0, 4:4, 8:8, 17:11,
27:20, 27:27, 31:31, 33:33, 41:33, 43:36,
43:38, 52:40, 61:44, 66:52, 70:54, 83:54,
85:60, 85:64, 91:64, 95:68.
Stig Hauka: John Rhodes 23, Jón Amar
Ingvarsson 22, Pétur Ingvarsson 18, Jón
Öm Guðmundsson 14, Tryggvi Jónsson 9,
Guðmundur Bjömsson 3, Sigfús Gizurarson
2, Bragi Magnússon 2, Rúnar Guðjónsson 2.
Stig Tindastóls: Róbert Bintic 21, Láms
Pálsson 13, Ingvar Ormarsson 12, Ómar
Sigmarsson 10, Stefán Hreinsson 5, Hinrik
Gunnarsson 5, Baldur Einarsson 2.
Áhorfendur: 270.
Dómaran Jón Otti Ólafsson og Kristinn
Óskarsson, dæmdu vel.
ÍA-ÍBK 63:84
íþróttahúsið Akranesi:
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 2:14, 16:22,
22:38, 31:45. 38:59, 42:66, 48:75, 53:80,
59:82, 63:84.
Stig ÍA: Einar Einarsson 22, Eggert Garðp-
arsson 13, Dagur Þórisson 13, ívar Ás-
grímsson 6, Dwayne Price 3, Jón Þ. Þórðar-
son 3, Haraldur Leifsson 2, Hörður Birgirs-
son 1.
Stig ÍBK: Sigurður Ingimundarson 18,
Kristinn Friðriksson 15, Albert Óskarsson
12, Guðjón Skúlason 12, Johnatan Bow 11,
Böðvar Kristjánsson 6, Jón Kr. Gíslason
5, Bryiyar Harðarson 3, Ólafur Gottskálks-
son 2.
Áhorfendur: 150.
Dómarar: Helgi Bragason og Kristinn Al-
bertsson, sem dæmdu illa.
UMFS - Snæfell 83:72
Iþróttahúsið Borgamesi, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, fimmtud. 25. nóvember
1993.
Gangur leiksins:0:2, 6:13, 8:16, 18:20,
25:22, 37:30, 46:40, 52:46, 54:54, 56:64,
66:66, 73:68, 80:70, 83:72.
Stig Skallagrims: Birgir Mikaelsson 21,
Alexandre Ermolinskij 16, Sigurður Elvar
Þórólfsson 14, Henning Henningsson 13,
Ari Gunnarsson 7, Þórður Helgason 6,
Gunnar Þorsteinsson 3, Bjarki Þorsteinsson
3,
Stig Snæfells: Bárður Eyþórsson 20, Chip
Entwistle 13, Kristinn Einarsson 10, Hreið-
ar Hreiðarsson 8, Hjörleifur Sigurþórsson
4, Þorkell Þorkellsson 3, Atli Sigurþórsson
2.
Dómarar: Kristján Möller og Héðinn Gunn-
arsson. Höfðu ekki góð tök á leiknum.
Ahorfendur: 548 og héldu uppi rífandi
stemmingu allan leikinn.
Handknattleikur
2. DEILD KARLA:
Ármann-HK....................19:23
Knattspyrna
UEFA-keppnin
Mechelen, Belgíu:
Mechelen - Cagliari (ftal.)....1:3
Alex Czemiatynski (38.) — Gianfranco
Matteoli (33.), Luis Oliviera (82.), Vitorio
Pusceddu (87.). 7.000.
BFámennur hópur áhorfenda, heimamenn,
reyndu að komast inn á völlinn þegar ljóst
var að þeirra lið myndi tapa. Lögreglumenn
með hunda bmgðust skjótt við og náðu að
koma áhorfendunum á sinn stað.
EUROTIPS
111-X12-221-1X1X1
■Þijár raðir (engin á íslandi) komu ffam
með 14 rétta og fær hver röð 1.201.590 kr.
KNATTSPYRNA
íslandsmeistarar ÍA
í UEFA-keppnina?
Nýtillaga um lyrirkomulag á Evrópukeppni meistaraliða lögð fram á fundi hjá UEFA í
næstu viku. 16 bestu liðin í Evrópu í meistaradeild. Tvö félög frá íslandi í UEFA-keppninni
MIKLAR líkur eru á að breytingar verða gerðar á Evrópu-
keppni meistaraliða á nœsta keppnistímabili, þannig að sext-
án bestu félagslið Evrópu taki þátt í meistaradeild, þar sem
liðinum verði skipt ífjóra fjögurra liða riðla. Tillaga þess efn-
is verður tekin fyrir á fundi hjá Knattspyrnusambandi Evrópu,
UEFA, í Genf, fimmtudaginn 2. desember. Ef tillagan verður
samþykkt kemur það í hlut íslandsmeistara Akraness að leika
f UEFA-keppninni næsta keppnistfmabil ásamt FH-ingum.
Ellert B. Schram, einn af vara-
formönnum UEFA, sem verð-
ur á fundinum í Genf, sagði í við-
tali við Morgunblaðið í gær að það
hafi lengi verið uppi hugmyndir um
að gera breytingar á Evrópukeppni
meistaraliða. „Auka áhugann fyrir
keppninni og markaðssetja hana í
sambandi við sjónvarp, en beinar
sjónvarpsútsendingar gefa knatt-
spymunni tekjur — bæði frá sjón-
varpsstöðvum og af auglýsingum.
Það hefur verið erfitt að stórauka
áhugann á meðan miðlungslið hafa
komist í átta liða úrslitin á sama
tíma og félög eins og til dæmis
Stuttgart, Barcelona og Manchest-
er United hafa verið úr leik. Með
því að efla meistaradeildina verður
auðveldara að ná inn tekjum og
þar með að tvöfalda tekjur sem öll
félög sem taka þátt í Evrópukeppni
fá fyrir þátttöku," sagði Ellert B.
Schram, en þess má geta að undan-
farin tvö ára hafa íslensk félagslið
fengið hátt í fimm milljónir ísl. kr.
fyrir þátttöku í Evrópukeppni.
Ellert sagði að með breyttri
landaskipan í Evrópu hafi knatt-
spymuforustan staðið andspænis
því að breyta þyrfti keppninni.
„Það var orðið erfítt að skipuleggja
meistarakeppnina — þjóðimar eru
orðnar um fimmtíu sem senda lið
í keppnina."
Tillagan um nýja fyrirkomulagið
er þannig, að UEFA velur sjö bestu
liðin (eitt frá hverri þjóð) til að
taka þátt í 16-liða úrslitakeppn-
inni, en áttunda sætið væri Evrópu-
meistaranna frá árinu áður. Síðan
koma iið frá þeim þjóðum sem eru
í áttunda til 24. sæti á listanum
yfir bestan árangur í Evrópukeppn-
inni sl. fimm ár, eða sextán félög,
og keppa þau um sætin átta sem
laus eru. Leikið yrði heima og heim-
an með útsláttarfyrirkomulagi. Lið-
unum sextán í meistarakeppninni
verður síðan skipt í fjóra riðla og
leikið yrði heima og heiman. Tvö
efstu liðin úr riðlunum kæmust síð-
an í 8-liða úrslit, en þá verður einn-
ig leikið heima og heiman með út-
sláttarfyrirkomulagi og einnig í
undanúrslitunum. Úrslitaleikurinn
yrði síðan með hefðbundnum hætti
— einn leikur á hlutlausum velli.
„Þetta nýja fyrirkomulag yrði
óneitanlega spennandi. Bestu félög
Evrópu eigast við í meistaradeild-
inni,“ sagði Ellert, en hann sagði
að þær þjóðir sem ættu meistaralið
í 25. sæti og þar fyrir ofan á styrk-
leikalistanum, myndu vera með lið
sín í UEFA-keppninni. „ísland yrði
þá með tvö lið í UEFA-keppninni.
Möguleikamir á að leika gegn góð-
um liðum yrðu áfram fyrir hendi
og einnig möguleikamir á að kom-
ast lengra í keppninni. Evrópu-
keppni bikarhafa verður óbreytt,"
sagði Ellert B. Schram.
Sigfús G. Guðmundsson
Hlynur Stefánsson. Miklar líkur á að hann verði áfram hjá Örebro.
KORFUKNATTLEIKUR
Stórsigur Hauka
Það er gott að komast á sigur-
brautina aftur eftir tvo tapleiki
í röð. Ég er ekki sáttur við frammi-
Stöðuna í fyrri hálf-
Stefán leik, en seinni hálf-
Eiríksson leikurinn var fínn og
skrifar lofar góðu um fram-
haldið," sagði Jón
Öm Guðmundsson fýrirliði Hauka,
eftir 27 stiga sigur, 95:68, á Tinda-
stóli í gærkvöldi.
Leikurinn var rcyndar jafn í fyrri
þálfleik. Ungu piltarnir í Tindastóli
börðust vel í vöm og sókn. Staðan
var jöfn þegar fáeinar mínútur voru
til leikhlés en seigla Haukanna á loka-
mínútum hálfleiksins skilaði þeim sjö
stiga forskoti í leikhléi, 43:36.
Haukamir hristu af sér slenið í
síðari hálfleik og léku frábærlega á
köflum. Þeir juku muninn jafnt og
þétt og sigruðu eins og áður sagði
með 27 stiga mun, 95:68.
Jón Arnar Ingvarsson, sem gerði
22 stig, lék vel og hélt Haukunum á
floti í fyrri hálfleik, gerði þá sautján
stig. Bróðir hans Pétur tók við í þeim
síðari og gerði þá fjórtán stig. Frændi
þeirra Jón Öm Guðmundsson lék
einnig mjög vel, og John Rhodes stóð
fyrir sínu.
Þess má geta að Páll Kolbeinsson
lék ekki með Tindastóli vegna veik-
inda. Ingvar Ormarsson, Ómar Sigm-
arsson og Lárus Pálsson sýndu að
þeir eru mjög svo efnilegir.
Langþráður sigur Skallagríms
Þetta var langþráður sigur í erfið-
um leik,“ sagði Birgir Mikalsson
þjálfari og leikmaður Skallagríms,
eftir sigur á Snæfelli,
83:72. Snæfellingar
byijuðu þennan leik
mjög vel en liðsmenn
Skallagríms voru
seinir í gang og hittu mjög illa fram-
an af. Bárður Eyþórsson var yfir-
burðamaður í liði Snæfellinga og lék
mjög vel í fyrri hálfleik. Um miðjan
fyrri hálfleikinn small lið Skallagríms
saman og náði yfirhöndinni og hélt
forystunni út f leikhlé 46:40
Snæfellingar byijuðu af miklum
Theodór Kr.
Þóröarson.
skrifar
krafti eftir leikhlé og komust í 56:64
undir miðjan síðari hálfleikinn. Þá
hófst mikið baráttu og spennutíma-
bil, jafnt utan vallar sem innan.
Henning Henningsson og Sigurður
Elvar Þórólfsson rifu liðsmenn
Skallagríms með sér með ótrúlegri
baráttu. Snæfellingamir misstu móð-
inn og sigur Skallagríms var ekki í
hættu eftir það. Borgnesingamir léku
síðustu fimm mín. á yfirvegaðan hátt.
Auðvelt hjá Keflavík
Örebro býður
Hlyn nýjan
samning
Forráðamenn félagsins hafa rætt við Am-
ór Guðjohnsen og boðið honum samning
HLYNUR Stefánsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu frá
Vestmannaeyjum, sem hefur
leikið með sænska félaginu
Örebro, verður líklega áfram
hjá félaginu. Þá getur farið svo
að Arnór Guðjohnsen gangi til
liös við Örebro, en forráða-
menn félagsins hafa rætt við
Arnór og Hlyn í Reykjavík —
síðast í gær.
Eg hef fengið betra tilboð frá
Örebro, en ég hafði — það er
mjög freystandi og líkumar miklar
að ég verði áfram
hjá félaginu," sagði
Hlynur, sem var
kjörin leikmaður
ársins hjá Örebro
„Forráðamennimir
voru með tilboð um eins árs samn-
ing og einnig drög að tveggja ára
samningi, en það gæti allt eins orð-
ið ofan á að ég gerði tveggja ára
samning. Ég mun fara til Svíþjóðar
Sigfús G.
Guömundsson
skrifar
frá Eyjum
fyrir stuttu.
í byijun janúar til að ræða nánar
um samning. Ég mun hugsa minn
gang fram að því,“ sagði Hlynur,
eftir að hann kom frá Reykjavík í
gærkvöldi.
Hlynur sagði að Amór Guð-
johnsen væri efstur á óskalistanum
hjá Örebro — yfir nýja leikmenn
fýrir næsta keppnistímabil. „Amór
lék mjög vel með Hácken gegn
okkur síðasta keppnistímabil og
hrifust forráðamenn Örebro mjög
af honum. Það kemur til með að
hafa áhrif á mína afstöðu hvort að
hann kemur eða ekki. Okkur hefur
vantað sókndjarfann miðjumann
eins og Amór. Það yrði gaman að
leika með Arnóri, sem myndi
styrkja Örebro mikið — og skipt
máli fyrir félagið hvort það verði í
toppbaráttu eða botnbaráttu. Eins
og málin standa nú eru góðar líkur
á að Amór komi til Örebro. Það
eins sem kæmi í veg fyrir það væri
að hann fengi tilboð frá einhverju
stærri félaganna," sagði Hlynur.
Islandsmeistara
ekki i miklum
Keflavíkur áttu
erfiðleikum með
áhugalausa Skagamenn — unnu ör-
uggan sigur 63:84.
Frá Heimamenn báru of
Gunntaugi mikla virðingu fyrir
Jónssyni meisturanum, sem
áAkranesi komust fljótlega yfír
2:14 og þá forustu létu þeir ekki af
hendi. Keflvíkingar, sem léku sterkan
varnarleik í byijun, höfðu ekkert fyr-
ir sigrinum. Þeir tefldu fram varalið-
inu nær allan seinni hálfleikinn.
Houllier hættir
með Frakka
Gerard Houllier, landsliðsþjálf-
ari Frakka, sagði starfí sínu
lausu í gær í kjölfar þess að
franska liðið náði ekki að tryggja
sér sæti í úrslitakeppni HM í
Bandaríkjunum. Houllier tók við
þjálfarastarfínu af Michel Platini
eftir Evrópukeppnina í júní á síð-
asta ári. Uppsögn Houlliers kom
aðeins tveimur dögum eftir að
Grahám Taylor, landsliðsþjálfari
Englands, sagði af sér.
Frökkum nægði eitt stig úr
tveimur síðustu leikjunum á
heimavelli í undankeppninni, gegn
ísrael og Búlgaríu, til að komast
í úrslitakeppnina. Þeir töpuðu fyr-
ir ísrael 2:3 þrátt fyrir að hafa
2:1 yfir þegar aðeins sjö mínútur
voru eftir. I síðari leiknum gegn
Búlgaríu komust Frakkar I 1:0
en Emil Kostadinov gerði tvö
mörk fyrir Búlgara og það síðara
á síðustu mínútu leiksins.