Morgunblaðið - 26.11.1993, Page 52

Morgunblaðið - 26.11.1993, Page 52
 Gæfan fylgi þér í umferðinni SJOVArloALIVIENNAR MORGUNBLADID, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: IIAFNARSTRÆTl 85 FOSTUDAGUR 26. NOVEMBER 1993 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Framlög vegna atvinnuleysis opinberra starfsmanna hafa meira en tvöfaldast Atvinnuleysisbætur gætu orðið þrír milljarðar í ár Láglaunauppbót á bæturnar að upphæð 17-18 þúsund kr. greidd í desember 2 nikótín- lyf saman tvöfalda árangur ÞORSTEINN Blöndal yfirlæknir á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að rúmlega helmingi betri árang- ur næst með því að nota tvenns konar nikótínlyf samtímis, þegar hætt er að reykja. 237 íslendingar tóku þátt í sam- anburðarrannsókn sem gerð var við lungna- og berklavamardeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Annar helmingur fólksins fékk nik- ótínplástur og nikótín-nefúða en samanburðarhópurinn nikótínplást- ur og lyfleysu-nefúða. Allir þátttak- endur reyktu fyrir rannsóknina og var fylgst með þeim í eitt ár. Að þeim tima liðnum reyndust 28% í fyrri hópnum ekkert hafa reykt, en árangurinn í samanburðarhópnum, þeim sem fékk lyfleysu, var 13%. Miðað var við algert reykbindindi allan tímann. Sjá bls. Cl: „Meira en...“ Hversu margir standast reykbindindi í eitt ár? Þau sem notuðu nikótín-plástur og nikótín-nefúða Þau sem notuðu nikótín-plástur og lyfleysu-nefúða 8 9 101112mán. ATVINNULEYSISBÆTUR gætu alls numið hátt á þrjá millj- arða króna á yfirstandandi ári. Upphæð bótanna er orðin þriðjungi hærri en í fyrra þegar þær námu rúmum 1.800 milljónum og bæturnar eru þrefalt hærri en á árinu 1991 þegar atvinnuleysisbætur voru samtals 954 milljónir króna. Spákaup- mennska með spari- skírteini SPÁKAUPMENNSKA á verð- bréfamarkaði með spariskírteini með innköllunarrétti í þessum mánuði olli því að ríkið gaf yfir- lýsingu á miðvikudag um hugsan- lega innlausn skirteinanna. Eftir vaxtalækkanimar um síð- ustu mánaðamót sáu fjárfestar sér leik á borði til að innleysa gengis- hagnað. Jafnframt virðist orðrómur um að fjármálaráðuneytið ætlaði að nýta innköllunarréttinn hafa ýtt við markaðnum. Fjárfestar hófu því skömmu eftir síðustu mánaðamót að selja spariskírteini í nokkrum flokkum með innköllunarákvæðum í gríð og erg á Verðbréfaþingi. Sjá bls. 20: „Spákaupmennska > knúði fram...“ Atvinnuleysi meðal opinberra starfsmanna hefur aukist verulega og hafa fjárveitingar vegna þess meira en tvöfaldast í ár frá því í fyrra, en atvinnuleysi meðal opin- berra starfsmanna hefur verið hverfandi á undanförnum árum. Búið að greiða tvo milljarða Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Atvinnuleysistrygg- ingasjóði var búið að greiða rétt rúmlega tvo milljarða króna í at- vinnuleysisbætur fyrstu tíu mán- uði ársins eða 2.070 milljónir króna, en á sama tíma í fyrra var upphæðin 1.461 milljón króna. Til viðbótar höfðu verið greiddar um 95 milljónir króna vegna atvinnu- leysis opinberra starfsmanna en framlög til þess koma beint úr rík- issjóði eða úr sjóðum viðkomandi sveitarfélaga. Samsvarandi út- gjöld fyrstu tíu mánuði síðasta árs voru 43 milljónir. Í þessum tölum hefur ekki verið tekið tillit til 500 milijóna króna fjárveitinga til sér- stakra verkefna á vegum sveitar- félaganna, en fólk á atvinnuleysis- skrá var ráðið til þeirra starfa og spöruðust atvinnuleysisbætur að sama skapi. Reikna má með að búið sé að veita yfir 300 milljónir króna til slíkra verkefna það sem af er þessu ári. Á árinu 1992 fengu 625 ríkis- starfsmenn og 255 starfsmenn sveitarfélaga atvinnuleysisbætur einhvern tímann ársins mismun- andi lengi. 1. nóvember síðastlið- inn höfðu 575 ríkisstarfsmenn fengið bætur á árinu og í kringum 400 starfsmenn sveitarfélaga. Margrét Tómasdóttir hjá Atvinnu- leysistryggingasjóði segir að at- vinnuleysi meðal opinberra starfs- manna sé meira nú og hver ein- stakur sé lengur á atvinnuleysis- skrá en áður. Láglaunauppbót í desember Atvinnuleysi er hlutfallslega meira í nóvember og desember en flesta aðra mánuði ársins. Þannig jókst heildarupphæð atvinnuleys- isbóta um nær fjórðung í þessum mánuðum í fyrra, auk þess sem greidd er út sérstök láglaunaupp- bót á atvinnuleysisbætur í desem- ber til samræmis við það sem kveð- ið er á um í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Lág- launauppbótin kemur á laun undir 80 þúsund krónum. Þeir sem hafa verið atvinnulausir i september, október og nóvember og eiga full- an bótarétt ættu að fá á bilinu 17-18 þúsund krónur í láglauna- bætur í desember til viðbótar venjulegum atvinnuleysisbótum. IJósmynd/RUV - Sjónvarpið Regnhlíf í ræðustól VIÐ umræður um þingsályktunartillögu Guðmundar Hallvarðs- sonar og fleiri um þjóðfána íslendinga á Alþingi í gær gerðist það er frummælandi mælti fyrir frumvarpinu, að hann spennti upp regnhlíf í ræðustól. Samkvæmt núverandi fána- lögum er bannað að nota fánann sem einkenni fyrir íslenska vöru, en því vilja flutningsmenn breyta. Regnhlífin, sem Guð- mundur Hallvarðsson spennti upp, var gjöf Norðurlandaráðs til þátttakenda á Norðurlanda- ráðsþingi, prýdd fánum allra þátttökuríkjanna. Slíkt er bannað samkvæmt íslenzkum fánalögum og vildi Guðmundur leggja áherslu á fáranleika þess að banna merkingar með fánanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.