Morgunblaðið - 28.11.1993, Síða 29

Morgunblaðið - 28.11.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993 29 á skóna sína áður en gengið er und- ir stigann en þá mega menn ekki líta við fyrr en hrákinn er þornaður. ÓLÍKAR SKÝRINGAR Hræðsla fólks við að ganga und- ir stiga getur verið sprottin af hreinni skynsemi. Sú hætta er nefni- lega fyrir hendi að menn fái eitthvað í hausinn, málningu eða verkfæri, því líkur eru til þess að einhver sé að vinna uppi í stiganum. Slíka hjá- trú mætti ef til vill kaila skynsemis- hjátrú. Heimildir um stigahjátrúna eru ekki gamlar en hugsanlegt er þó að hún eigi sér dýpri rætur. Áður fyrr meðan hengingar voru við lýði var reistur stigi upp við gálgann og böðullinn hratt hinum seka úr stig- anum inn í eilífðina. Sá dauði hékk þá í snörunni undir stiganum. Þegar menn ganga undir stiga eru þeir að fara inn á umráðasvæði hinna dauðu og það kann auðvitað ekki góðri lukku að stýra. Önnur skýring er sú að undirstað- an, stiginn og það sem hann er reist- ur upp við myndi þríhyrning. Hin heilaga þrenning hefur verið tákn guðdómsins allt frá árdögum kristn- innar og það getur verið vanhelgun að ganga í gegnum þríhyrning. Út frá sjónarhorni kristninnar hefur einnig verið bent á að stigar hafi fengið á sig slæmt orð vegna þess að stigi var notaður til að taka Krist niður af krossinum. VERNDARGRIPIR Verndargripir eru hlutir sem fólk ber á sér eða hefur í kringum sig, í þeirri trú að í þeim búi kraftur sem veiti vernd gegn illum öflum, sjúk- dómum eða öðru óláni. Þeir eru af margvíslegu tagi og hafa fylgt mannkyninu frá ómunatíð. Óhætt er að fullyrða að trú á verndarmátt alls kyns hluta þekkist í einhverri mynd á nær öllum menningarsvæð- um heims. Gamlar og nýjar heimild- ir bera henni vitni og hún lifir góðu lífi enn þann dag í dag í tæknivædd- um samfélögum nútímans. Notkun verndargripa er ein útbreiddasta og almennasta hjátrú sem þekkist nú orðið. Fólk ber krossa um hálsinn, armbönd og hringa með verndar- táknum, verndargripir eru festir við lyklakippur eða hengdir upp í bílum og húsum. Víða í kringum okkur í daglegu lífi eru ýmiss konar verndar- gripir. Stundum gerir fólk sér ekki grein fyrir verndargildi þessara hluta en aðrir trúa statt og stöðugt á áhrif þeirra. Algengastir eru grip- ir af trúarlegum toga, krossar eða helgimyndir, en einnig hlutir með táknum sem sótt eru til framandi menningarsvæða, bæði í nútíð og fortíð. Litlir verndargripir af ýmsum gerðum sem festir eru á armbönd (,charms“) hafa notið mikilla vin- sælda á undanförnum árum. GEGNILLUM AUGUM Sú skoðun kemur víða fram í þjóðtrú að sumir menn og dýr hafi ill augu og geti haft skaðleg áhrif á umhverfi sitt með augnaráðinu. Talið er að uppruni trúarinnar á mátt verndargripa tengist að ein- hverju leyti trú manna á ill augu. Einstöku þjóðfræðingar hafa gengið svo langt að fullyrða að notkun verndargripa sé hreinlega afleiðing þessarar trúar. Dæmi um þekkta verndargripi gegn illum augum sem enn eru notaðir, þó að fæstir geri sér grein fyrir verndargildi þeirra, eru eyrnalokkar. Ótti við ill augu og skaðleg áhrif þeirra kemur fram í íslenskri þjóðtrú meðal annars í þeirri venju að hylja höfuð galdra- manna svo þeir geti ekki gert skaða með augnaráði sínu. í Evrópu var það sérstaklega á Suður-Ítalíu sem trúin á ill augu lifði góðu lífi til skamms tíma og þar nota menn ennþá sérstakt orð yfir menn með ill augu, „jettatore". Sjö, níu, þrettán Hjátrú íslendinga í dag- lega lífinu Símon Jón Jóhannsson tók saman Útgefandi: Vaka-Helga- fell hf. Verð: 2.980 krónur SAMHJÁLPARSAMKOMA verður í Fíladelfíukirkjunnni í dag kl. 16.30. Fjölbreytt dagskrá að vanda. Mikill söngur og margir vitnisburðir. Samhjálparkórinn tekurlagið. Skírnarathöfn. RæðumaðurÓliÁgústsson. Allir hjartanlega velkomnir. SAMHJÁLP. AHslenshar Domlno's Plzzur Coca Cola frá Verksmiðjunni Vífilfell. Ostur frá Osta og smjörsölunni. Ali áleggfrá Síld ogfisk. Kjöt frá Ferskum Kjötvörum. Kassamir eru frá Kassagerð Reykjavtkur. íslenskt Grœnmeti. Sveppirfrá Flúðasveppum. Hveitið í botnininum erfrá Komax. □ OT Ö Z< SN oíá q a GETUR BETUR SIMI 8-12345 GRENSÁSVEGI 11 fSLENSKT HRÁEFNI • ISLENSKT VINNUAFL • ÍSLENSK GÆEII

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.