Morgunblaðið - 28.11.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993
AFREKSFOLK
KORFUKNATTLEIKUR
Kínverskar stúlkur skara framúr í hverri íþróttagreininni á fætur annarri
Fyrstvarþað
sund, síðan
hlaup og nú eru
það lyftingar
KÍNVERSKAR íþróttakonur hafa verið mjög áberandi á al-
þjóðlegum mótum síðustu misserin. Fyrst var það sundið
á Óiympíuleikunum í Barcelona, síðan sýndu þær hvers þær
eru megnugar á hlaupabrautinni á heimsmeistaramótinu í
Stuttgart og þær svo til einokuðu fyrstu sætin á heims-
meistaramótinu í lyftingum sem lauk í Ástralíu fyrir
skömmu.
K
kínverska unglingsstúlkan Sun
Caiyan svitnaði varla þegar
hún tryggði Kínveijum þriðju gull-
verðlaunin á heimsmeistaramótinu
í lyftingum fyrir viku. Yfirburðir
hennar voru miklir og hun lyfti
15 kílóum meira en næsta stúlka.
Þjálfari hennar, Wen Xhixi, segir
frammistöðu kínversku stúlkn-
anna eðlilega og uppskriftin að
velgengninni sé í raun sáraeinföld.
„Caiyan borðar ginseng og það
hjálpar henni mikið. Hún verður
sterk af því og hún þreytist aldr-
ei,“ segir hann og bætir því við
að reyndar borði stúlkumar einnig
mikið af hefðbundinni blöndu af
kínversku náttúrulækningafæði.
Ólögleg lyfjanotkun?
Árangur kínversku stúlknanna
í lyftingum hefur enn og aftur
komið af stað umræðu um hvort
þær hljóti ekki að taka einhver
ólögleg lyf. Slík umræða fór einn-
ig í gang eftir árangurinn á
Olympíuleikunum og eftir HM -í
Stuttgart. Wen þjálfari segir af
og frá að kínverskir íþróttamenn
noti ólögleg lyf. „Ég skil ekki þess-
ar vangaveltur. Almenningsálitið
í Kína er á móti slíku og íþrótta-
menn láta sig ekki dreyma um að
reyna slíkt," segir Wen.
Fyrrum heimsmeistari í lyfting-
um kvenna, Maria Christoforidou,
sem nú er 29 ára gömul, varð að
láta sér nægja þriðja sætið að
þessu sinni. „Ég held að það sé
ekki hægt að lyfta þeim þyngdum
sem kínversku stúlkumar eru að
lyfta nema með hjálp ólöglegra
lyfla," sagði Cristoforidou.
Kínversku konurnar unnu 19
af 27 guilverðlaunum sem í boði
voru á HM í Melbourne. Margir
vilja meina að þær hefðu átt að
vinna þau öll, en meiðsli hafí kom-
ið í veg fyrir það. Þær hafa unnið
samtals 156 gullverðlaun af 171
mögulegu í síðustu sjö lyftinga-
mótum.
Yfárburðir
Yfírburðir Kínveija þykja með
ólíkindum og sem dæmi um það
lyfti heimsmeistarinn í yfírþunga-
vigt Li Yajuan 27,5 kg meira en
sú sem næst henni kom. Li, sem
er 23 ára, sagði að hún hefði get-
að lyft meiru, en fékk verk í maga.
„Ég borðaði núðlur rétt fyrir
keppni og það varð til þess að ég
fann til í maganum og það háði
mér,“ sagði Li eftir fjórða heims-
meistaratitil sinn í röð. Hún setti
sjö heimsmet í þessum nýja flokki
og lyfti mest; 105 kg í snörun,
155 í jafnhöttun eða samanlagt
260 kg. Ii, sem létti sig um 5 kg
mánuðinn fyrir keppnina, var
125,07 kg á mótinu og var þó
ekki þyngst í flokknum því Carla
Garret frá Bandaríkjunum, sem
varð önnur, vóg 126,5 kg.
Sú sterkasta
LI Yajuan frá Kína varð heimsmeistari kvenna í yfírþungavigt í fjórða sinn
í röð á HM í Melboume. Hún er 22 ára og vegur 125 kílógrömm.
„Magic" Johnson segirfrá sjálfum
Eawin
neftir
áttatíu og eir
BÓK um bandaríska körfuknattleikskappann Earvin „Magic"
Johnson, Ævi mín, er nýlega komin út í þýðingu Hersteins Páls-
sonar og Páls Hersteinssonar. „Magic" segir þarfrá uppvexti
sínum í Lancing í Michigan, háskólaárunum og glæsilegum ferli
i NBA-deildinni.
í kaflanum Nýliði, þar sem John-
son segir frá fyrsta ári sínu með
Los Angeles Lakers, segir m.a.:
„Við hófum leiktímabilið gegn Clip-
pers í San Diego. Ég hélt vitanlega
uppteknum hætti með því að gera
vitleysu í fysta leik með hveiju nýju
liði. I þetta sinn tók ég sjálfum mér
þó fram því að mér tókst að gera
mig að fífli áður en leikurinn hófst.
Sem efnilegum nýliða veittist mér
sú sæmd að fara á undan Lakers
út á völlinn vegna upphitunar fyrir
leikinn. Ég átti að taka boltann,
reka hann að körfunni og troða
honum í til að gera fyrstu körfu á
nýju Ieiktímabili. Það var ekki erfítt
en ég var samt óstyrkur. Á það var
að líta að þetta var fyrsti leikurinn
minn á atvinnuferli. Síðasti opinberi
leikurinn sem ég hafði tekið þátt í
hafði verið um vorið gegn Indiana
State. Það voru aðeins sjö mánuðir
síðan en samt var þetta eins og það
hefði verið á annarri öld. Þegar tími
, var til þess kominn að Lakers færu
út á gólfiið tók ég boltann, rak hann
að körfunni og — bang! — datt kyl-
liflatur á andlitið. Ég hafði misst
fótanna vegna upphitunarbuxn-
anna. Mér lá svo mikið á að ég
hafði ekki hirt um að binda þær
almennilega. Þær runnu nógu langt
niður til þess að skella mér flötum
á gólfíð. Félögum mínum fannst
þetta óskaplega fyndið og sama
máli gegndi um áhorfendur. Þegar
ég stóð á fætur gerði ég mitt besta
til þess að reyna að brosa. Það er
af því að CBS hafði valið þennan
leik til að hefja vikulegar landssend-
ingar sínar.
Hlutirnir gátu aðeins gengið bet-
ur eftir þetta. Eða það hélt ég að
minnsta kosti. En ég lék svo illa í
fyrsta fjórðungi leiksins að Jack
McKinney þjálfari kallaði mig út
eftir um það bil níu mínútur. Hann
sendi mig aftur inn síðar og í það
skipti stóð ég mig og var enn á
gólfínu á lokamínútum leiks þar sem
mjög mjótt var á mununum.
Þegar átta sekúndur voru eftir
og Lakers einu stigi undir bað
McKinney um leikhlé til að undirbúa
lokaskot okkar. Það var aðeins einn
leikur hugsanlegur eins og á stóð
og allir í húsinu vissu nákvæmlega
hvað það var: Senda boltann til þess
stóra og láta hann skjóta. Og það
gerðum við. Þegar Kareem [Abdul
Jabbar] greip boltann á vítalínunni
sendi hann langan, glæstan og háan
bolta sem tryggði sigurinn þegar
bjallan suðaði.
Þar sem hann var að hlaupa út
af vellinum var ég svo æstur að ég
stökk í fangið á honum og faðmaði
hann. En þegar ég leit í andlitið á
honum var það ljóst að hann var
Earvin „Magic“ Johnson með son sinn Earvin Johnson III. Eiginkona „Magics", Cookie, gekk með bamið er það
uppgötvaðist að körfuknattleiksmaðurinn var með eyðniveiruna. Á myndinni til hægri er „Magic“ í búningi Los Angel-
es Lakers á hátindi ferils síns, eins og margir muna hann.
ekki eins hrifínn og ég. Hann virtist
segja: Hvað er um að vera? Það er
starf mitt að senda slík skot.
Þegar við komum í búningsher-
bergið sagði hann: „Stilltu þig, Ear-
vin — við eigum eftir áttatíu og einn
leik.“ En ég ætlaði ekki að breyta
leikstíl mínum. Ég hafði alltaf leikið
af ástríðu og félagar mínir hlytu
að venjast því um síðir.“
Larry Bird
Johnson ræðir um marga sam-
ferðamenn sína í bókinni. Einn
þeirra er Larry Bird, sem kom inn
í NBA-deildina á sama tíma og
Johnson og lék með Boston Celtics.
í kaflanum um hann segir: „Á því
tímabili sem ég keppti í NBA hef
ég leikið gegn hundruðum, kannske
þúsundum körfuboltamanna. Marg-
ir voru góðir. Nokkrir voru mjög
góðir. Örfáir áttu ef til vill skilið
að vera kallaðir stórkostlegir. En
enginn var stórkostlegri en Larry
Bird.“
Síðar segir: „Einu sinni var ég
ófær um að leika vegna meiðsla
þegar Celtics komu til að keppa í
Forum. Áður en leikurinn hófst gekk
Larry yfír að bekknum til þess að
heilsa upp á mig. „Magic, leikur þú
ekki? Þá ætla ég að setja upp sýn-
ingu fyrir þig. Eg vil að þú slakir
bara á og njótir sýningar Larrys
Birds.“
Larry átti frábæran leik þennan
dag, skoraði 36 stig, tók 20 fráköst
og sendi 15 stoðsendingar. í hvert
skipti sem hann skoraði leit hann
til mín og brosti. Ég hristi bara
höfuðið. Þetta var sérkennileg til-
fínning: Það var verið að bursta lið-
ið mitt og þessi náungi var að gera
það mér til heiðurs!“