Morgunblaðið - 28.11.1993, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.11.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993 35 ATVIN N U A UGL YSINGAR Gœtir þú hugsað þér að dvelja eitt ár íBandaríkjunum? Fá fríarferðir og vita að þegar þú kemur á áfangastað bíður þín „heimili að heimanu? Eitt ár sem au pair er ómetanleg reynsla sem þú býrð að alla ævi. Þúsundir evrópskra ungmenna fara á ári hverju til au pair dvalar í Bandaríkjunum og hafa yfir 400 Islendingar farið á okkar vegum síðastliðin 3 ár. Engin samtök bjóða betri og óruggari þjónustu: Viðtal sem staðfestir hvort þú stenst þær kröfur sem gerðar eru til au pair. Við útvegum öll gögn, m.a. vegabréfsáritanir. Þú ferðast því á fullkomlega öruggan og löglegan hátt. Kaupum sjúkra- og slysatryggingar fyrir þig í 12 mánuði að upphæð USD 50.000. Engin sjálfsábyrgð. Við finnum fjölskyldu sem hæfir þér og uppfyllir óskir þínar (engin önnur samtök hafa jafn fullkomið kerfi við þennan mikilvæga þátt). Vasapeningar. Þú færð USD 100 á viku og 2ja viknafrí (með vasapeningum) á árinu. Námskeið í einn dag áður en lagt er af stað frá íslandi. Brottfarir eru mánaðarlega og er flogið beint frá Islandi. Allar ferðir til og frá Bandaríkjunum og innan þeirra eru fríar. Leiðsögn alla leið. Fulltrúi AuPair Homestay U.S.A. tekur á móti þér og ferðafélögum þínum í New York og aðstoðar ykkur við að komast á leiðarenda. Trúnaðarmenn eru tiltækir allan sólarhringinn. Au pair klúbbarnir funda mánaðarlega, ferðast og skemmta sér saman. Orientation. Eins dags námskeið með gistifjölskyldu þinni og öðrum au pair á þínu svæði 10 dögum eftir að komið er til Bandaríkjanna. Námssjóður að upphœð USD 300 sem gistifjölskyld- an greiðir til að þú getir sótt námskeið að eigin vali. Námsráðgjafi samtakanna er þér innan handar á meðan þú dvelur ytra. Eftir að árinu hjá fjólskyldu þinni er lokið færðu tækifæri til að ferðast ódýrt um Bandaríkin í heilan mánuð. Hverjir geta sótt um? Ungt fólk á aldrinum 18-25 ára. Umsækjendur þurfa að hafa góða reynslu af bamagæslu, vera með bflpróf og þeir mega ekki reykja. Ef þú vilt komast út í janúar, febrúar, mars, apríl eða maí, ættirðu að hringja strax. AuPAIR VISTASKIPTI & NÁM ÞÓRSGATA 26 101 REYKJAVÍK SÍMI 91-62 23 62 FAX 91-62 96 62 SAMSTARFSFYRIRTÆKIAUPAIR HOMESTAY USA SEM TILHEYRIR SAMTÖKUNUM WORLD LEARNING INC. STOFNUD ÁRID 1932 UNDIR NAFNINU THE U.S. EXPERIMENTIN INTERNATIONAL LIVING. ÞAU ERU EIN AF ELSTU SAMTÖKUM A SVIDIALÞJÓDA MENNINGARSAMSKIPTA í HEIMINUM SEM EKKIERU REKINIHAGNADARSKYNI OG STARFA MED LEYFI BANDARÍSKRA STJÓRNVALDA. Matreiðslumaður Hótel ísafjörður óskar eftir að ráða mat- reiðslumann til starfa í byrjun næsta árs. Fjölþætt og krefjandi starf fyrir áhugasaman einstakling sem vill vinna úti á landi. Nánari upplýsingar um starfið veitir hótel- stjóri. Hótel ísafjörður, sími 94-4111. Ifi Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á neðangreinda leikskóla: Árborg v/Hlaðbæ, s. 814150. Efrihlíð v/Stigahlíð, s. 813560. Njálsborg v/Njálsgötu, s. 14860. Eingöngu í 50% starf e.h. á leikskólana: Álftaborg v/Safamýri, s. 812488. Árborg v/Hlaðbæ, s. 814150. Þá vantar starfsmann með sérmenntun í 50% stuðningsstarf f.h. á leikskólann: Sæborg v/Starhaga, s. 623664. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik- skólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. Nýtt félag hjúkrunarfræðinga Eftirtaldir starfsmenn óskast til starfa hjá nýju félagi hjúkrunarfræðinga sem stofnað verður 15. janúar 1994: 1. Framkvæmdastjóri. Hjúkrunarfræðimenntun áskilin. 2. Hagfræðingur. 3. Skrifstofumaður. Reynsla í almennum skrifstofustörfum og sjálfstæð vinnubrögð áskilin. í öllum tilvikum er miðað við fullt starf og þarf viðkomandi að geta hafið störf 16. jan- úar 1994. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „Nýtt félag hjúkrunarfræð- inga“ fyrir 8. desember 1993. Stjórn Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga. Stjórn Hjúkrunarfélags íslands. Laus störf 1. Hjúkrunarfræðingur til sölustarfa hjá fyr- irtæki sem m.a. flytur inn skurðstofu- og lækningaáhöld. Hlutastarf. Vinnutími eftir samkomulagi. Leitað að starfsmanni með skurðstofureynslu. 2. Járnsmiður hjá verktakafyrirtæki. Almenn járnsmíðavinna, aðallega við viðgerðir. Leitað að starfsmanni sem getur unnið sjálfstætt og hefur reynslu af að vinna bæði með ál og ryðfrítt stál. Vinnutími 8-18. 3. Setjari/umbrotsmaður hjá fyrirtæki á Akureyri. Tölvusetning og umbrot á Mac- intosh og PC-tölvur (m.a. Quark Express, Corel Draw og Freehand hugbúnaður). Leitað er að fagmenntuðum setjara. Að- stoðað verður við útvegun húsnæðis. Starfið er laust strax. Umsóknarfrestur ertil og með 1. desember nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Skólavördustig la - 101 Reykjavlk - Simi 621355 Hafrannsókna- stofnunin Laus er staða rannsóknamanns við tilrauna- eldisstöð Hafrannsóknastofnunarinnar við Grindavík. Starfið krefst nákvæmni, sam- viskusemi og undirstöðuþekkingar í fiskeldi. Æskilegt er að starfsmaðurinn verði búsettur í Grindavík. Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist stofnuninni fyrir 10. desember nk. Nánari upplýsingar um starfið gefur Matthías Oddgeirsson, stöðvarstjóri, ísíma 92-68232. Hafrannsóknastofnunin, pósthólf 1390, Skúlagötu 4, 112 Reykjavík. Samkeppnisstofnun Staða yfirlögfræðings hjá Samkeppnisstofn- un er laus til umsóknar nú þegar. Upplýsingar um starfið eru veittar í síma 27422. Leitað er eftir lögfræðingi með starfsreynslu. Laun verða samkvæmt launakerfi starfs- manna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist Samkeppnis- stofnun, Laugavegi 118, pósthólf 5120, 125 Reykjavík, fyrir 1. desember 1993. Húsvörður Hótel Saga hf. óskar eftir að ráða húsvörð. Æskilegt er að viðkomandi umsækjandi sé trésmiður. Um er að ræða fullt starf og er það laust frá 1. desember nk. Skriflegar umsóknir skulu sendar á auglýs- ingadeild Mbl. merktar: „H - 13053“ fyrir þriðjudagskvöldið 30. nóvember. Hótel Saga hf., v/Hagatorg, Reykjavík. Verslunarstjóri Óskum að ráða verslunarstjóra í nýja og glæsilega bókaverslun okkar í Kringlunni. Viðkomandi þarf að hafa áhuga og góða þekkingu á íslenskum bókum, vera þjónustu- lundaður og metnaðargjarn og eiga gott með að starfa með öðrum. Umsóknir, með greinargóðum upplýsingum, sendist skrifstofu okkar, merktar: „Verslun- arstjóri", fyrir föstudaginn 3. desember nk. Ath.: Upplýsingar ekki veittar í síma. jmf Eymundsson Höfðabakka 3, 112 Reykjavík Auglýsinga- teiknarar/hönnuðir Við auglýsum eftir auglýsingateiknara/hönn- uði til að sjá um hönnunarvinnu hjá útgáfufyr- irtæki auk ýmissa starfa við markaðs- og fjölmiðlamál. Leitað er eftir hugmyndaríkum aðila, sem hefur áhuga á krefjandi og fjölbreyttri vinnu hjá nútíma fyrirtæki. Umsóknir, er greini aldur, menntun, með- mælendur og fyrri störf, skilist til auglýsinga- deildar Mbl. fyrir 3. desember merktar: „AUGL - 93“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.