Morgunblaðið - 28.11.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.11.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993 31 Minning Pétur Omar Þorsteins■ son ljósmyndari Fæddur 22. júní 1936 Dáinn 20. nóvember 1993 Ég kveð elskulegan frænda með fáum orðum, en því miður voru okk- ar kynni of skammvinn, en við kynntumst fyrst fyrir alvöru á ákveðnum stað, þar sem frændi kom eins og svífandi engill, eins og inn á leiksvið í hvítum sloppi. Eftir gömul og slitrótt kynni hófst með okkur vinátta, sem aldrei brást. Pétur var mjög frændrækinn og ræddum við okkar uppruna og skyld- leika mikið og var hann miklu fróð- ari en ég um hann. Pétur var sonur hjónanna Láru Magneu Pálsdóttur og Þorsteins Sig- urðssonar. Var Þorsteinn einn _af frumkvöðlum húsgagnalistar á Is- landi. Rak hann fyrirtæki sitt á Grettisgötunni með mikilli reisn og sóma og var umtalaður einhver mesti og besti fagmaður í sinni grein í þá daga. Pétur Þorsteinsson átti því ekki langt að sækja listsköpun sína. Hann var talinn einn af fremstu ljósmyndurum landsins meðan hann var og hét í því starfi. Hann söðlaði um, varð viðskila við konu sína og fór þær slóðir er margir forfeður hans höfðu farið. Hann hafði hug á öðru en ljósmynd- un og tók sér fyrir hendur gull- og silfursmíði sem afi okkar hafði stundað með reisn. Ekki tel ég að ég þurfi að rekja ættir okkar saman, það mun von- andi koma frá öðrum mér færari á því sviði, en ég veit að ættir okkar eru göfugar og góðar. Frændi sæll, ég þakka þér alla þína vináttu og trúnað og verði þér vel tekið í faðm okkar ættingja, elsk- huga og vina. Guð gefi þér og okkur öllum frið. Ég bið_ að efnishyggja yfirbugi mig ekki. Ég bið að ég geri mér grein fyrir mikilvægi andlegra verðmæta. Ég votta ykkur, börnin góð, og öðrum aðstandendum samúð mína. Vertu sæll, frændi, við mætumst. Jóhann (Nói). Það var haust er við kynntumst, fyrstu frostin voru komin, stjörnumar tindmðu, ég man það svo vel! Ég var líka ástfangin. Þú varst í heimsókn hjá Dóru og komst til dyra þegar ég bankaði. Þú kynntir þig: „Komdu sæl, ég heiti Pétur, nei, sko, en fallegir fætur.“ Það hnussaði i mér. Skyldi hann vera kvensamur? Þá bættir þú við: „Ekki standa svona, stattu heldur svona." Það lyftist á mér brúnin, mikið rétt, ég var ekki lengur hneyksluð. Ég hugsaði: Mikið er þetta skynsamur maður. Nokkru seinna, er við þekktumst betur, spurðir þú: „Ertu alveg viss?“ Ég hváði. ,,Með hann Jón,“ sagðirðu. Ég var alveg bit. Hvemig gat hann vitað að ég var ekki alveg viss? Seinna öðlaðist ég vissu. En hver veit, kannski hefði það ekki orðið nema vegna afskiptasemi Péturs. Þú varst eldhugi, Pétur, og við vomm ekki alltaf sammála, en oft, já oft, þurfti ég að samsinna, í huganum, því san þú sagðir. Og viðurkenni núna, að það var rétt. Ég hitti þig í draumaheimi mínum, eftir að þú varst farinn. Þú svafst eins og bam. Ég gekk að rúminu þínu og tók í höndina sem lá á sænginni. Þú opnaðir augun, og þau sögðu: „Vemm vinir.“ Mér fannst ég þurfa að bera þessa kveðju. Kæra Dóra, við eram ung og sterk, leyfðu okkur að vera vinir þínir á erfiðum stundum. Kær kveðja til bama og barnabama. Ingibjörg, Jón Jóhann og Magnús. Margrét Kjartans dóttir — Minning Fædd 12. maí 1904 Dáin 8. nóvember 1993 Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Svo hljóði sálmurinn sem amma okkar Margrét Kjartansdóttir fór með. áður en hún fór að sofa á hveiju kvöldi í fjölda ára. Andlát ömmu kom á óvart þrátt fyrir háan aldur. Tveimur sólar- hringum áður en hún lést spurði hún um hvernig langömmubarninu gengi í skólanum, hún fylgdist með því sem að fjölskyldan hennar var að gera allt til hins síðasta. Amma var rúmlega 89 ára þegar hún dó á Borgarspítalanum 8. nóvember sl. Margrét Kjartansdóttir var fædd 12. maí 1904 í Reykjavík, á afmæl- isdegi móður sinnar Þóru Björns- dóttur, en faðir hennar var Kjartan Runólfsson frá Naustakoti á Vatns- leysuströnd. Amma var yngst þriggja systkina, Arndís var elst og samfeðra. Albróðir ömmu var Siguijón. Bæði systkini ömmu lét- ust fyrir nokkrum árum. Móðir ömmu lést þegar hún var þriggja ára og var ömmu þá komið í fóstur til vandalausra í fæðingarsveit móð- ur hennar á Kjalarnesi. Hún vildi aldrei ræða um uppvaxtarár sín eða æsku. Eflaust var fjölskyldan henni svo hjartfólgin af þeim sökum síðar á ævinni. Amma giftist aldrei en eignaðist eina dóttur, móður okkar, Ingibjörgu Dröfn Sigríksdóttur sem gift Birni Leví Halldórssyni og eiga þau fjögur börn. Fátt skipti ömmu meira máli en fjölskyldan, dóttir hennar, tengda- sonurinn og barnabörnin. Hún bjó á heimili foreldra okkar systkin- anna. Tók þátt í gleði og sorgum, hafði gífurlegan áhuga á frammi- stöðu okkar í skóla og síðar hvern- ig okkur gekk í lífínu sjálfu. Það var fastur liður eftir að hvert okkar fékk einkunnir afhentar að vori að setjast með ömmu okkar og fara yfir frammistöðuna. Öll eigum við minningar um stuðning hennar á æsku- og unglingsárum okkar. Kynslóðabil var einhvern veginn aldrei til staðar milli okkar og ömmu. Hún hvatti og var einnig trúnaðarvinurinn sem alltaf var hægt að halla sér að þegar á móti blés. Afkomendurnir voru hennar stolt og það var fátt sem skyggði á það. Þegar hún varð langamma varð þriðja kynslóðin aðnjótandi þess sem við hin höfðum notið af hennar hálfu. Sem betur fer var sjónin ekki farin að bregðast henni þegar hennar fyrsta langömmubarn fædd- ist og hún fylgdist af sama áhugan- um með uppvexti nöfnu dóttur sinn- ar og hún hafði gert varðandi okk- ur barnabörnin. Það hefur oft verið sagt að kyn- slóðirnar læri hver af annarri. Við nutum þess og munum alltaf njóta þess sem við lærðum af ömmu okk- ar. Hún dvaldist á heimili foreldra okkar þar til hún var orðin áttræð, en þá ákvað hún að fara á Hrafn- istu í Reykjavík. Heilsan var farin að bregðast henni og hún vildi ekki verða neinum byrði eins og hún sagði þegar hún tilkynnti fjölskyld- unni að hún væri að fara á Hrafn- istu. Henni varð ekki þokað með þá ákvörðun og við urðum að sætta okkur við hana. Líkamleg heilsa varð henni erfið síðustu árin en hún hélt áhuganum fyrir sínum allt til hins síðasta. Ókkar gæfa var að fá að eiga sam- leið með henni svo lengi. Hún hefur fengið frið og við sem eftir lifum óskum henni blessunar með þökk fyrir allt. Barnabörnin, Halldór, Margrét, Birna og Helgi. t Útför sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, PÉTURS ÓMARS ÞORSTEINSSONAR Ijósmyndara, ferfram frá Fríkirkjunni mánudaginn 29. nóvember kl. 13.30. Dóra Jónsdóttir, Sigri'ður Pétursdóttir, Berglind Rós Pétursdóttir, Eyjólfur Björgmundsson, Margrét Lára Pétursdóttir, Ágúst Ómar Agústsson, Þorsteinn Pétursson, Sveinfríður Ólafsdóttir og barnabörn. t Útför móður minnar og stjúpmóður okkar, EMMU FINNBJARNARDÓTTUR hjúkrunarkonu, verður gerð frá Akureyrarkirkju, mánudaginn 29. nóvember kl. 13.30. Sigríður Óskarsdóttir, Sæmundur Óskarsson, Guðfinna Óskarsdóttir, Magnús Óskarsson. t Minningarathöfn um, EIRÍK STEFÁNSSON kennara, frá Skógum, verður gerð frá Langholtskirkju þriðjudaginn 30. nóvember kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Orgel§jóð Langholts- kirkju. Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn 3. desember kl. 13.30. Þórný Þórarinsdóttir, Svava Fells, Haraldur Hauksson, Sigrún Kristjánsdóttir, Jóhann Svanur Hauksson, Guðrún Guðnadóttir, Eirikur Hauksson, Helga Guðrún Steingri'msdóttir Laufey Sigrún Hauksdóttir, Haukur Hauksson, Lára Gísladóttir og aðrir aðstandendur. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐJÓNS JÓNSSONAR Hæðargarði 29, áður Breiðagerði 23. Sérstakar þakkir eru færðar Félagi járn- iðnaðarmanna. Unnur Benediktsdóttir, Birgir Guðjónsson, Sigþrúður Guðmundsdóttir, Sonja Guðjónsdóttir, Birgir Guðlaugsson og barnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður og ömmu, GUÐNÝJAR OTTESEN ÓSKARSDÓTTUR, Aflagranda 40, Reykjavík. Theodóra G. Gunnarsdóttir, Óskar G.H. Gunnarsson, Eyrún Gunnarsdóttir, Gunnar H. Gunnarsson, Þorsteinn Þ. Gunnarsson, Hekla Gunnarsdóttir, Einar Gunnarsson, GunnarG. Smith, og barnabörn. Vilhjálmur B. Kristinsson, Sigurður Kjartansson, Þórunn Sigurðardóttir, Sigrún Jóhannsdóttir, Sævar Magnússon, Oddfri'ður Jóhannsdóttir, Ingibjörg Jensdóttir t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengamóður, systur, ömmu og langömmu, SVÖVU SÖLVADÓTTUR frá Bíldudal, Norðurbrún 1, Reykjavík. Ársæll Egilsson Ingi Rafn Lúthersson, Hulda B. Cushing, Sólbjört Egilsdóttir, Sölvi Egilsson, Sveinbjörn Egilsson, Jóhanna Guðmundsdóttir, Sigurður Gíslason, Guðrún Einarsdóttir, Sigrún Anna Jónsdóttir, Páll Sölvason, barnabörn og barnabarnabörn. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt- ingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðs- ins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins I Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.