Morgunblaðið - 28.11.1993, Qupperneq 36
MoifluNBfrAiPia w* ■
§&•
ATVINNUA UGL YSINGA R
Söguritun
Félag bókagerðarmanna hyggst ráða rithöf-
und til þess að skrá sögu stéttarfélaga í
prentiðnaði 1897-1997.
Áætluð útkoma bókar er 7. apríl 1997 og
handriti sé skilað 1. desember 1996.
Æskilegt er að væntanlegur höfundur hafi
lokið prófi í atvinnusögu eða félagsfræði og
hafi nokkra þekkingu á prentiðnaði.
Umsóknir sendist Félagi bókagerðarmanna
(ritnefnd), Hverfisgötu 21, 101 Reykjavík,
eigi síðar en 15. desember 1993.
Stjórn Félags bókagerðarmanna.
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs
Svæfingarlæknir
Staða sérfræðings í svæfingum er laus til
umsóknar við Sjúkrahús Keflavíkurlæknis-
héraðs.
Umsóknum skal skilað fyrir 31. desember
nk. til undirritaðs á sérstökum eyðublöðum
sem látin eru í té á skrifstofu sjúkrahússins,
Mánagötu 9, Keflavík, og á skrifstofu land-
læknis.
Allar nánari upplýsingar veitir Hrafnkell
Óskarsson, yfirlæknir, í síma 92-20500.
Framkvæmdastjóri.
fBORGARSPÍTfllIMM
Hjúkrunarfræðingar
Fyrirhugað er að auka aftur starfsemi skurð-
lækningadeilda eftir áramótin. Stöður hjúkr-
unarfræðinga á eftirtöldum sérsviðum eru
því auglýstar til umsóknar:
Almennar skurðlækningar.
Bæklunarlækningar.
Heila- og taugaskurðlækningar.
Háls-, nef- og eyrnalækningar.
Þvagfæraskurðlækningar.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Tómas-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696364.
Hjúkrunarfræðingar
Á Endurhæfingadeild Grensásdeildar
EN-62 eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga
á næturvaktir (40-60%) frá og með 1. desem-
ber næstkomandi. Einnig eru lausar stöður
á aðrar vaktir. Áhersla er lögð á góða starfs-
aðlögun fyrir nýtt starfsfólk og góða sam-
vinnu.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Hjálmars-
dóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 696732.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Aðstoðarlæknar
Lausar eru til umsóknar tvær stöður aðstoð-
arlækna við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
frá 1. janúar nk.
Annars vegar er um.að ræða stöðu aðstoðar-
læknis á fæðingar- og kvensjúkdómadeild
og hins vegar á bæklunar- og slysadeild.
Vaktir eru fimm-skiptar.
í framhaldi af ráðningartíma kæmu til greina
störf á öðrum deildum sjúkrahússins.
Á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ákureyri er rekin
fjölþætt starfsemi á handlækninga- og lyf-
lækningasviði, auk mjög fullkominna stoð-
deilda. Á FSA starfa um 450 manns og þar
af eru stöður lækna 39. Markvisst hefur ver-
ið unnið að því undanfarin misseri að bæta
vinnuaðstöðu aðstoðarlækna.
Nánari upplýsingar veita Geir Friðgeirsson,
fræðslustjóri lækna, Júlíus Gestsson, yfir-
læknir bæklunar- og slysadeildar og Kristján
Baldvinsson, yfirlæknir fæðingar- og kven-
sjúkdómadeildar.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
MIÐSTÖÐ
FÓLKS í ATVINNULEIT
Breiðholtskirkju, Mjódd, sími 870 880
Opið hús í Breiðholtskirkju, Mjódd, mónudaga kl. 12-15
og safnaðarheimili Dómkirkjunnar fimmtudaga kl. 12-15.
ÁDAGSKRÁ
mánudaginn 29. nóvember kl. 14.00:
„Andlegirfylgikvillaratvinnuleysis
-úrræði.“
Sæmundur Hafsteinsson, sálfræðingur,
fjallar um efnið og svarar fyrirspurnum.
Kaffiveitingar.
Fundarstaður: Breiðholtskirkja,
Mjódd, jarðhæð.
RANNSOKNASTOFA
Óskum eftir að ráða rannsóknarmann til
starfa á rannsóknastofu hjá traustu iðnfyrir-
tæki í Reykjavík.
Starfstími/starfshlutfall: Starfstími er
kl. 7.45-12.30 alla virka daga, einnig eru
unnar aukavaktir u.þ.b. aðra hverja helgi.
Starfið er fólgið í rannsóknum og gæðaeftir-
liti og krefst menntunar í efnafræði eða skyld-
um greinum. Starfið er laust 1. janúar 1994.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar: „Rannsóknastofa 312“,
fyrir 4. desember nk.
Hagva C-/ ■ ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Markaðsfulltrúi
Starfsmaður óskast í hálft starf við sölu og
markaðsmál.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra
fyrst.
Umsóknum merktum: „Markaðsmál" skal
skila á skrifstofu Þjóðleikhússins, Lindargötu
7, fyrir 7. desember nk.
f' SÓLVANGUR
| SJÚKRAHÚS
wllw HAFNARFIRÐI
Kvöldvakt
í desember
Sjúkrahúsið Sólvang í Hafnarfirði bráðvantar
hjúkrunarfræðing á 80% kvöldvaktir
í desember.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Ingi-
mundardóttir, hjúkrunarforstjóri,
í síma 50281.
Vélstjóri
Frystihús á Vesturlandi óskar eftir vélstjóra
til alhliða viðhalds- og viðgerðarvinnu.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „V -
12137" fyrir 6. desember nk.
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS
Aðstoðardeildarstjóri
Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildar-
stjóra við legudeild barna- og unglingadeild-
ar geðdeildar Landspítalans. Legudeildin
annast sérhæfða greiningu og meðferð
barna með geðræn og félagsleg vandamál.
Um er að ræða 100% starf, vaktavinnu.
Aðstoðardeildarstjóra gefst tækifæri til að
sækja um barnaheimilispláss og húsnæði.
Frekari upplýsingar veitir Anna Ásmunds-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
602500.
Þroskaþjálfi
Staða þroskaþjálfa við dagdeild barna- og
unglingadeildar geðdeildar Landspítalans er
laus til umsóknar. Dagdeildin sinnir sér-
hæfðri greiningu og meðferð ungra barna
m.a. vegna einkenna ofvirkni, misþroska og
einhverfu. Um er að ræða 100% starf, vinnu-
tími kl. 8.00 til 16.00.
Frekari upplýsingar veitir Anna Ásmunds-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
602500.
BARNASPITALI HRINGSINS
Hjúkrunarfræðingar
Afleysingar vegna námsleyfa. Frá áramótum
vantar nokkra hjúkrunarfræðinga á barna-
deildir. Stöðurnar eru afleysingastöður í eitt
ár vegna námsleyfa. Ennfremur eru lausar
fastar stöður á barnadeild 3, 13-E, sem er
13 rúma handlækningadeild fyrir börn á aldr-
inum 2-16 ára og á vökudeild gjörgæslu
nýbura. Allar deildir bjóða góða og markvissa
aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingi.
Semja má um ráðningartíma og starfshlutfall.
Upplýsingar veitir Hertha W. Jónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 601000/
601033, Ragnheiður Sigurðardóttir, hjúkrun-
ardeildarstjóri vökudeildar, sími 601040 og
Anna Ólafía Sigurðardóttir, hjúkrunardeildar-
stjóri 13-E, í síma 601030.
SKURÐDEILD LANDSPÍTALANS
Hjúkrunarfræðingar
Vegna aukinnar starfsemi skurðdeildar Land-
spítalans getum við boðið hjúkrunarfræðing-
um þjálfun í skurðhjúkrun frá og með 1. jan-
úar nk. Ennfremur er laus staða skurðhjúkr-
unarfræðings. Starfsemi deildarinnar er í
örum vexti og ákaflega fjölbreytt.
Upplýsingar veita Svala Jónsdóttir, hjúkrun-
arstjóri, í síma 601319 og Anna Stefánsdótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma
601366.
Læknaritari
Starf læknaritara við handlækningadeild
Landspítalans er laust til umsóknar.
Um er að ræða afleysingastöðu í 3 mánuði
frá 1. desember nk. 100% staða, vinnutími
frá kl. 8-16.
Frekari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í
síma 601332.
RÍKISSPÍT ALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri
meöferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og viö höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni aö leiðarljósi.