Morgunblaðið - 28.11.1993, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDÁGUR 28. NÓVEMBER 1993
43
Gunnar Friðriks-
son - Attræður
Gunnar Friðriksson fæddist 29.
nóvember 1913 að Látrum í Norð-
ur-Aðalvík.
Foreldrar Gunnars voru Rann-
veig Ásgeirsdóttir og Friðrik Magn-
ússon útvegsbóndi í Látrum. Frið-
rik er fæddur í Látrum, sonur
Magnúsar Dósóþeussonar. Hann
var áður kvæntur Gunnvöru Brynj-
ólfsdóttur, hreppstjóra á Sléttu, en
hún lést árið 1903. Með henni átti
Friðrik tvo eldri bræður Gunnars,
Magnús og Brynjólf Ingvar. Þeir
fórust báðir með sama bátnum 15.
desember 1924. Með annarri konu,
Sigríði Pálmadóttur Jónssonar í
Rekavík bak Látur átti Friðrik eina
dóttur Sigríði Pálínu. Áður hafði
Friðrik eignast dótturina Kristínu
Jónu með ráðskonu sinni.
Forfeður Gunnars Friðrikssonar
lifðu í tvær aldir að Látrum í Aðal-
vík. Þangað komu Bjarni Jónsson
og kona hans Margrét Halldórs-
dóttir frá Höfðaströnd í Grunna-
víkurhreppi. Afi Bjarna í föðurætt
var séra Bergsveinn Hafliðason frá
Torfastöðum í Biskupstungum er
varð síðar prestur að Hrepphólum
í Árnessýslu. Séra Bergsveinn var
fyrst skikkaður til að þjóna á Stað
í Súgandafirði, þar sem hann gerði
út skip til að drýgja tekjur sínar.
Síðar gerðist hann prestur í
Grunnavík og þjónaði því kalli til
æviloka. Á þessum tíma var útgerð
mest frá Skáladal í Aðalvík. Þar
var margt hraustra manna, þeirra
á meðal var Snorri á Húsafelli, en
hann og séra Bergsveinn voru
skólabræður.
Kona séra Bergsveins var Hall-
dóra Snæbjörnsdóttir Pálssonar,
„Mála-Snæbjörns“, lögréttumanns
að Sæbóli á Ingjaldssandi. Faðir
séra Bergsveins, Hafliði Berg-
sveinsson varð 92 ára og átti með
Karólínu, dóttur séra Eiríks prests
í Lundi í Borgarfirði, tíu börn sem
öll komust til manns.
Margrét og Bjarni á Látrum áttu
tvö börn, Halldór hreppsstjóra á
Látrum og Guðrúnu sem giftist
Pétri Jónssyni á Dynjanda í
Grunnavíkurhreppi.
Aðalvikin hefur fóstrað marga
afbragðsmenn og konur. Menn
stunduðu þar jöfnum höndum land-
búnað og sjávarútveg þótt sjávar-
aflinn væri aðalbjargræðið. í
mannskæðu stríði við óblíð náttúru-
öfl var manndómur og mannleg
reisn í öndvegi.
Árið 1990 sendi Gunnar Frið-
riksson frá sér bókina Mannlíf í
Aðalvík. Þá bók verður að telja
með bestu heimildarritum um
horfna lifnaðarhætti. Lesandinn
fær þar innsýn inn í fortíðina.
Myndirnar sem brugðið er upp eru
lifandi og trúverðugar þótt þær séu
skynjaðar með augum barns og
síðar unglings. Höfundurinn,
Gunnar Friðriksson, sér sjálfur
endalok aldalangrar sögu, þar sem
menn beijast á eyðilegum stöðum
í návígi við náttúruöfiin. Sú barátta
var grimm og mannskæð. Lífið var
linnulaus þrældómur. í hýbýlum
sem voru hrörleg og lítil þoldu
menn oft skerandi hugnur og níst-
andi kulda. Eftir erfiðan róður urðu
menn jafnvel að bera lífsbjörgina
á sjálfum sér klukkustundum sam-
an um fjallvegi, urðir og klungur
og svelluð björg. Og bilið var oft
stutt milli lífs og dauða bæði á sjó
og landi. Verk þeirra sem varðveitt
hafa fortíðina verður seint ofmetið.
Við vitum að nútíminn er tómur
og merkingarlaus án fortíðar.
Menn verða líka að vita hvaðan
þeir koma til að vita hvert þeir eru
að fara. Það skilur enginn nútím-
ann og það gerir sér enginn skyn-
samlega grein fyrir framtíðinni án
skilnings á liðinni tíð. Fortíðin liflr
áfram með okkur og í okkur.
í hópi fátækra útkjálkadrengja
fór Gunnar Friðriksson í gagn-
fræðaskólann á ísafirði. Metnaður
þeirra var mikill en veraldleg efni
rýr. Gunnar segir skemmtilega frá
þessu í bók sinni:
„Þar sem ég var formaður nem-
endaráðs kom það í minn hlut að
setja árshátíð skólans. Skemmtunin
átti að fara fram í Góðtemplarahús-
inu sem þá var stærsta og vegleg-
asta samkomuhús bæjarins. Annað
kom ekki til greina. Þar átti ég að
standa uppi á sviði frammi fyrir
öllu fína fólkinu á ísafirði, bjóða
það velkomið og tala þannig að
öllum væri til sóma en einkum
skólanum og ræðumanni.
En hér var úr vöndu að ráða að
einu leyti. Ég átti nefnilega engin
spariföt og gat ekki keypt þau.
Eina úrræðið var að fá föt að láni
hjá frænda mínum Jóhanni Frið-
rikssyni frá Ystabæ í Aðalvík. Gall-
inn var bara sá að þessi frændi
minn var eldri og stærri en ég.
Buxurnar gátum við stytt með því
að bijóta upp á skálmarnar en það
var öllu verra með jakkann. Hann
var hólkvíður og allt of ermalang-
ur...“
En ungu mennirnir úr Aðalvík-
inni urðu engum til skammar. Þeir
urðu flestir þjóðkunnir athafna-
menn sem litu á það sem skyldu
sína, eftir að hafa notið menntun-
ar, að vinna þjóð sinni gagn. Þetta
var almennt sjónarmið. Síðar komu
ný viðhorf ekki síst með spekingum
sjöunda áratugarins en það er önn-
ur saga. Skólaganga þá var mun
styttri en menntun betri að ég
hygg, vegna þess að þá fólst
menntun í miklum og almennum
lestri góðra bóka.
Innan við tvítugt reynir Gunnar
Friðriksson eftir menntunina á
ísafírði að ryðja byggðarlagi sínu
braut inn í nútímann, en straumur-
inn lá af landsbyggðinni til Reykja-
víkur. Eftir að stóru bátarnir með
kraftmiklu vélarnar komu til sög-
unnar eftir 1920 fjölgar sjóslysum.
í Aðalvíkinni farast fimmtán ungir
menn þar á meðal báðir bræður
Gunnars eins og fyrr segir og
margir nánir frændur og vinir.
Gunnar fór með þeim sem eftir
lifðu úr byggðarlaginu suður til
Reykjavíkur.
Island er sérstætt land og íslend-
ingar á ýmsan hátt sérstæð þjóð,
þótt þeir hafi fylgt almennri þróun
í hinum vestræna heimi. Sú kynslóð
sém fæddist á árum heimsstyijald-
arinnar fyrri og ólst upp á tímum
kreppunnar átti ekki annarra kosta
völ en að vinna eins mikið og orkan
leyfði. Og sú kynslóð hefur skilað
glæsilegu og óbrotgjörnu starfi
enda varð hún sterk að innviðum.
Og ungu maðurinn úr Aðalvíkinni
var fljótur að átta sig á breyttum
tímum sem lágu í loftinu. Þegar
til Reykjavíkur var komið hitti hann
unga stúlku, Unni Halldórsdóttur
móðursystur mína, sem kom austan
af Héraði. Og saman lifðu þau það
ævintýri að sjá hið nýja ísland rísa
og verða að veruleika. Og þau voru
ekki aðeins áhorfendur. Þau voru
í hópi þeirra athafnamanna sem
tóku beinan þátt í atburðarásinni
og umbyltu á nokkrum áratugum
sögu þjóðar sem búið hafði við lifn-
aðarhætti í aldaraðir þar sem allt
virtist standa kyrrt. Nú hefur ís-
lenska þjóðin í hálfa öld notið meiri
velmegunar en hún hefur nokkru
sinni þekkt í sögu sinni. En breyt-
ingar koma ekki af sjálfu sér. Þær
kosta baráttu og þrotlaust starf.
Það þarf athafnafólk til að hrinda
þeim í framkvæmd. Starf þessa
dugmikla fólks varð samofið þjóð-
arsögunni. Kynslóð Gunnars Frið-
rikssonar skapaði íslenska velferð-
arríkið. Sú kynslóð þekkti sögu sína
og skildi hvers vegna samhjálp er
nauðsyn. Vonandi ber ný kynslóð
gæfu til að skilja þetta líka. En ef
hún gleymir fortíð sinni þá kann
svo að fara að hún verði neydd til
að endurtaka villur fortíðarinnar
og þá gætum við á ný séð tíma
nálgast sem þessi þjóð þekkti alt
of vel áður en velferðarríki síðustu
áratuga varð til.
Auk umfangsmikillar kaupsýslu
hafði Gunnar Friðriksson mikil af-
skipti af félagsmálum. Hann var
jafnan fljótur að átta sig á mönnum
og málefnum og náði alltaf góðum
tökum á verkefnum sínum. Störf
hans einkennast af hófsemi og
festu. Hann er hógvær maður að
eðlisfari og ég held að honum hafi
aldrei brugðist háttvísi. Málum er
þokað áfram með margháttuðum
aðgerðum og nú geta menn séð
árangurinn af miklu dagsverki og
undrast afköstin. Þekktust eru
störf hans sem forseti Slysavarnar-
félagsins frá 1960-1982. Hann var
snemma kosinn á Alþýðusam-
bandsþing og hann situr í stjórn
Landakotsspítala. Hann vann einn-
ig margvísleg störf í þágu blindra.
Hann var formaður Bátafélagsins
Bjargar og hann var mörg ár í
Sjómannadagsráði. Þá var hann
kosinn til að mæta á stofnfundi
Sambands íslenskra sveitarfélaga
og þannig mætti lengi telja. Hins
vegar fékkst hann aldrei til að taka
þátt í flokkapólitík þótt hann hafi
verið um það beðinn. Fyrir störf
sín hefur Gunnar Friðriksson hlotið
verðskuldaða viðurkenningu innan-
lands og utan. Má þar nefna Stór-
riddarakross Fálkaorðunnar, 1978
og hann var einnig sæmdui' heið-
ursmerki af forseta Póllands 1976.
Þrátt fyrir mikil umsvif og annir
virtist mér að Gunnar hefði alltaf
tíma til að ræða við vini sína. Ég,
ekki síst sem námsmaður, naut
stundum góðs af þessum samræð-
um og oftar en ekki urðu þær upp-
spretta nýs skilnings og nýrra
hugsana. Ég minnist þess t.d. að
eitt sinn drakk ég kaffí á Borginni
með Gunnari og ævifélaga hans
séra Sigurði Einarssyni skáldi í
Holti. Orðræður voru þar allar hin-
ar hressilegustu og þær urðu mér
eftirminnilegar og íhugunarefni
síðar. Gunnar Friðriksson kynntist
séra Sigurði skáldi Einarssyni fyrst
þegar Gunnar var kosinn á þing
ASÍ á haustdögum 1934. Skáldið
var þá alþingismaður, fréttastjóri
útvarpsins og auk þess kennari við
Kennaraskólann. Kona séra Sig-
urðar var Hanna Karlsdóttir en hún
var ættuð að vestan og frænka
Gunnars. Séra Sigurður Einarsson
var gott skáld og góður fræðimað-
ur, skrifaði meðal annars mikið rit
um Einar skáld Benediktsson sem
aldrei fékkst gefið út vegna tíðar-
andans. Skáldið, séra Sigurður Ein-
arsson, komst snemma í andstöðu
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu nýlega til styrktar krabbameins-
sjúkum börnum og varð ágóðinn 2.260 krónur. Þær heita Aðalheið-
ur Svavarsdóttir og Hjördís Helga Jensdóttir.
við þau öfl sem fóru hægt en örugg-
lega að taka öll völd í menningar-
málum á Islandi þegar á fjórða
áratug aldarinnar. Skáldið í Holti
var alla tíð talsmaður mannúðar
og hann var baráttudjarfur maður,
en hann var að sjálfsögðu ofurliði
borinn. Þau sjónarmið Sigurðar
sem „vinstrisinnaðir gáfumenn"
skildu ekki og fordæmdu á fjórða
áratugnum urðu íslendingum yfir-
leitt ekki ljós fyrr en hálfri öld síð-
ar. Þó að önnur öfl hafi ráðið í
menningarmálum á íslandi síðustu
áratugina þá hefur nú sannast að
stefna Sigurðar Einarssonar skálds
var rétt. Þótt þeir menn sem sigr-
uðu hafi á Vesturlöndum kallast
vinstrisinnaðir gáfumenn þá hefur
reynslan þegar sýnt að gáfur þeirra
reyndust heimska. Það reyndist
heimska að reyna að þurrka út eða
falsa fortíðina. Það reyndist
heimska að reyna að skapa „hinn
nýja mann“ úr eintómum draum-
sýnum. Það reyndist heimska að
trúa á einhveijar árþúsundalausnir
til að skapa nýjan heim. Menn-
ingarmaður er raunar hrein and-
staða við hinn vinstrisinnaða gáfu-
mann af þessari gerð. Menningar-
maður ber virðingu fyrir lífí og
þjáningum fyrri kynslóða.
Varðveisla en ekki útþurrkun ,
fortíðarinnar er þess vegna ævin-
lega stefna hins raunerulega
'menntamanns. Það er mesti mis-
skilningur að varðveisla þýði ekki
annað en að byggja söfn og varð-
veita safngripi. Menningarmaður
gerir sér að sjálfsögðu grein fyrir
að hann lifir í heimi þar sem allt
er háð stöðugum breytingum. Það
er ekki heldur neinn ágreiningur
um það að réttar breytingar eru
af hinu góða. Málið snýst um það
að allir þessir ofdýrkuðu „gáfu-
menn“ vildu snöggar róttækar
breytingar og þeim fylgdu alls stað-
ar fjöldamorð og kúgun. Menning-
armaður missir hins vegar aldrei
sjónar af mannúð og siðferðislegum
gildum.
Gunnar Friðriksson hefur verið
farsæll maður í einkalífi. Hann og
Unnur eignuðust þijú börn, Friðrik,
framkvæmdastjóra Vélasölunnar
hf., Rúnar kvikmyndagerðarmann,
Sjónvarpinu, og Guðrúnu, hús-
freyju á Seltjarnarnesi, en áður
átti hann Sæmund, deildarstjóra
hjá Hofí sf.
Gunnar Friðriksson og hans fólk
hefur alla tíð verið vinamargt og
með afbrigðum gestrisið fólk. Ég
vil nota tækifærið og þakka Unni
og Gunnari þann tima sem ég
dvaldist með þeim á heimili þeirra
á Hverfisgötunni, ég þakka þeim
fyrir margar ógleymanlegar stund-
ir innanlands og utan. Á þessum
merkisdegi sendum við Elísabet
kveðju okkar, þökkum hjartanlega
vináttu og hlýhug gegnum tíðina
og óskum ykkur öllum velfarnaðar
í bráð og lengd.
Gunnar Dal.
9 9
3
1ÖLADAGATAL
DESEMBER
Verið velkomin á fjölbreytta kynningardagskrá okkar.
Miðvikud.
BÓKAKYNNING
ALMENNA BÓKAFÉLAGSINS
11.20:30 Aðgangur óieypis_______
Fimmtud.
Höfundar AB:
Einar Már Guömundsson,
IUugi Jökulsson,
Jóhanna Kristjónsdóttír,
Ingibjörg Einarsdóttír og
Þorsteinn Eggertsson lesa
úr verkum sínum
11.23:00 kr.1000,-
K.K. BAND
Föstud.
JÓLAHLAÐBORÐ |
kl. 18:00 -21:30 J
JÓLAHLAÐBORÐ Ulipi' Sönghópurinn ÓSKABÖRN
kl. 18:00 - 21:30 $ Steinunn Ólína, Hitirik, Sóley,
kr. 2750,- 4 Maríus og Aðalheiður
LEIKHÚSBANDID 1 skemmta matargestum
Sunnud. JÓLALÖG
JÓLAHLAÐBORÐ ■" Margrét Pálmadóttir,
II ts.nn 91.M 1 Jóhanna ÞórhaUsdóttirog
kl. 18.00 - 21.30 1 Margrét Eir syngja jólalög
kr.2550,-_
Mánud.
VISNAKTÖLD
11.20:30 kr. 500,-
6
og önnur létt lög
VISNAVINIR
syngja ogspila
Borbapantanir í síma 1 96 361 Fax 1 93 00