Morgunblaðið - 19.12.1993, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR/INNLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. ÐESEMBER 1993
EFNI
Borgarsljóri vill frestun aðgerða
Útsvarhækkar
víðauml,
ALÞINGI samþykkti í gær að útsvar sveitarfélaga yrði 8,4% að lág-
marki á næsta ári og 9,2% að hámarki. Miðað við 1,5% tekjuskatts-
lækkun á móti þýðir þetta að útsvar í sveitarfélögum sem ekki hafa
lagt á 7,5% hámarksútsvar hækkar að raungildi. Útsvar í Reykjavík
er nú 6,7% en hækkar a.m.k. í 8,4% eða um 1,7 prósentustig.
„Af hálfu Reykjavíkurborgar höf-
um við ítrekað það að við vildum
hafa óbreytt ástand, 6,7% útsvar og
bætur frá ríkissjóði vegna missis
aðstöðugjalds, eins og verið hefur
til bráðabirgða á þessu ári og að
öllum þessum fyrirhuguðu aðgerðum
nú yrði frestað,“ sagði Markús Öm
Antonsson borgarstjóri um þessar
hugmyndir. Hann telur svo um-
fangsmiklar breytingar framundan
varðandi skiptingu verka og tekna
milli ríkis og sveitarfélaga að
ákvörðun þessi sé ótímabær.
Borgarstjóri sagði félagsmálaráð-
herra og fleiri ráðherra hafa lagt
áherslu á að óeðlilegt væri að mikill
munur væri útsvarsálagningu sveit-
arfélaganna. „Maður getur látið sér
detta í hug að hér sé verið að koma
í veg fyrir að bilið í útsvarsálagningu
hjá sveitarfélögunum verði jafn
breitt og það hefði hugsanlega orðið
ef aðeins væri ákveðin hámarks-
álagning," sagði Markús Örn.
Ottast aukíð atvinnu-
Helgi hylltur
Kaupmannahöfn, frá Sigrúnu Davíðs-
dóttur.
MIKILL fögnuður ríkti á frum-
sýningu Konunglega danska
ballettsins á Þyrnirós á föstu-
dagskvöld. Milli 50 og 60 ís-
lendingar voru á sýningunni
og hylltu þeir og aðrir stjórn-
andann, Helga Tómasson, sér-
staklega í leikslok.
Ballettinn Þymirós er eitt viða-
mesta verkefni Konunglega
danska ballettsins. Standa mörg
hundmð manns að henni. Um-
gjörð og búningar vom stórglæsi-
leg. Margrét Danadrottning og
Ingiríður drottningarmóðir vom
meðal gesta. Uppselt var fyrir
löngu. I hópi íslendinganna var
Sigríður Ármann, fyrsti kennari
Helga, og héldu íslendingamir
Helga hóf í gærmorgun.
Bíllíbúð
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
ENGIN slys urðu á fólki þegar bifreiðin hafnaði á aðalinngangi
verslunarinnar Vísis eftir árekstur við annan bíl.
Ok inn í verslun
BlðnduósL
BIFREIÐ af gerðinni Ford Escort var ekið inn í verslunina Vísi
í hádeginu sl. föstudag.
Verslunarferð bifreiðarinnar
var afleiðing árekstrar við Lada-
bifreið sem ekið var af Þverbraut
inn á Húnabraut. Engin slys urðu
á fólki.
Bifreiðin hafnaði á aðalinn-
gangi verlunarinnar Vísis og var
það lán í óláni að verslunin var
lokuð í hádeginu og því enginn á
ferli. Að sögn lögreglunnar á
Blönduósi hefur umferð að öðm
leyti gengið vel og lítið um óhöpp.
Jón Sig.
leysi eftir áramótin
SAMDRÁTTUR í verslun og verklegum framkvæmdum leiðir til auk-
ins atvinnuleysis eftir áramótin, ef svo fer sem horfír, að sögn for-
svarsmanna Dagsbrúnar og VR. Formaður VR segir eins líklegt að
samdráttur í verslunarstörfum sé varanlegur. Markús Örn Antonsson
borgarstjóri telur að Reylgavíkurborg muni áfram leggja áherslu á
atvinnuskapandi aðgerðir.
Borgarstjóri bendir á að nú fari
í hönd sá árstími þegar atvinnuleysi
hefur jafnan mælst mest. „Ég geri
ráð fyrir því að þegar kemur fram
á næsta ár verði fjallað um hvemig
borgaryfírvöld geti bmgðist við með
sérstökum ráðstöfunum og aukaíjár-
veitingum," sagði Markús. „Því mið-
ur hefur þróun atvinnumála orðið
verri hér en menn hugðu þegar
ákvörðun var tekin um síðustu ára-
mót að fella aðstöðugjald af fyrir-
tækjum niður. Það var rökstutt með
því að fyrirtækjum yrði með því
tryggður bættur hagur og aðstaða
til að efla atvinnuástandið almennt.
Þessar tölur sýna að það hefur ekki
gengið eftir."
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, sagði verslunarmenn vera ugg-
andi vegna vaxandi atvinnuleysis í
stéttinni. „Ég hef áhyggjur af því
sem gerist eftir áramótin, þá er ár-
viss samdráttur í versluninni," sagði
Magnús. Hann taldi ekki ólíklegt að
verslunin væri að laga sig til fram-
búðar að breyttu rekstrammhverfl
og að samdráttur í mannafla gæti
verið til frambúðar. Magnús segir
að lengri opnunartími verslana, til
dæmis á sunnudögum, hafi ekki
kallað á fjölgun starfsfólks svo neinu
nemi. Þess munu dæmi, að sögn
Magnúsar, að fólk sem til dæmis
vinnur við uppsetningu á vöm sé
ráðið á verktakagmndvelli. „Því mið-
ur hefur orðið vart við að þetta fólk
sé hvergi skráð og réttindalaust ef
eitthvað ber útaf,“ sagði Magnús.
Óttast sjómannaverkfall
Atvinnuástand hjá Dagsbrún
versnar dag frá degi, að sögn Guð-
mundar J. Guðmundssonar for-
manns félagsins. Nú em skráðir á
5. hundrað atvinnulausra hjá félag-
inu og em það fleiri en í fyrra. Búið
er að segja upp tugum manna, sem
500 krökkum boðið
á Aladdín-jólaball
MIKILL fjöldi litaðra mynda barst til Morgunblaðsins í Aladdín-lita-
Ieiknum sem var í blaðinu fyrir skömmu. Á næstu dögum eiga 500
krakkar von á að fá í pósti boðsmiða frá Sam-bíóunum á jólaball sem
haldið verður á Hótel íslandi mánudaginn 27. desember. Hver miði
gildir fyrir tvo.
Á jólaballinu verða nöfn þriggja
krakka dregin út og eftirfarandi
verðlaun afhent: Sega-leikjatölva og
Aladdín-tölvuleikur frá Tölvulandi,
myndbandið með Fríðu og dýrinu
og miðar fyrir alla fjölskylduna á
Aladdín-myndina sem Sam-bíóin
sýna um jólin. Á jólaballinu verður
margt til skemmtunar, meðal annars
leikin lög úr Aladdín-myndinni bæði
á íslensku og ensku ásamt jólalögum
og hægt verður að prófa nýja Aladd-
ín-leikinn. Allir krakkar fá Aladdín-
plakat og ís frá Emmess. Ekki má
gleyma að jólasveinamir láta auðvit-
að sjá sig á ballinu og boðið er upp
á kaffí og kökur fyrir foreldrana.
Morgunblaðið og Sam-bíóin
þakka öllum þeim fjölmörgu krökk-
um sem tóku þátt í litaleiknum og
sendu inn vel litaðar myndir.
eiga að hætta um áramót, einkum
í byggingavinnu og hjá verktökum.
Guðmundur óttast að eftir áramótin
fari fyöldi atvinnulausra í Dagsbrún
yfír 500.
„Þeir sem björguðu ástandinu
öðrum fremur í fyrra var Reykjavík-
urborg og var frábærlega vel að
verki staðið hjá þeim,“ sagði Guð-
mundur. „Rússafiskur og viðhald
rússnesku togaranna hafa bjargað
miklu f haust.“ Hann telur gott veð-
ur í október hafa bjargað útivinnu
fram eftir hausti, síðan hafi syrt að.
Guðmundur óttast afleiðingar
langvinns sjómannaverkfalls, ef til
þess kemur. „Ég sé ekki fyrir afleið-
ingamar af því, heilu atvinnugrein-
amar gætu hrunið."
Guðmundur bindur vonir við að
Aflvaki Reykjavíkur hf. efli atvinnu
í borginni og reiknar hann með að
Dagsbrún kaupi hlut í félaginu. „Það
þarf fijórri hugmyndir um atvinnulíf
í Reykjavík og sameiginlegt átak til
fjármögnunar. Við munum beita
okkur fyrir því að lífeyrissjóðir komi
þar til og leggi fram fé. Þarna verða
allir að beita sér, því eftir því sem
atvinnuleysið grefur um sig verður
erfíðara að uppræta það.“
Jóna veðurathugunarmaður á Hveravöllum
Ætli við förum
ekki 1 jólaköttíim
ARLEGUR jólakostur var fluttur til veðurathugunarmanna á
Hveravöllum í gær og sagði Jóna B. Jónsdóttir í samtali við Morg-
unblaðið að þau Kristinn Gunnarsson hefðu verið orðin langeyg
eftir ferskmetinu og jólakortunum. Á daginn kom hins vegar við
nánari eftirgrennslan að þeim hafði láðst að hugsa fyrir jólafötum
og tók Jóna þvi undir það að líklegast myndu þau lenda í jólakett-
inum að þessu sinni.
Það var Hafþór Ferdinandsson,
öðru nafni Hveravallaskreppur,
sem venju samkvæmt var milli-
göngumaður um tilfærslu jóla-
glaðningsins. Jóna sagði að hann
flytti þeim jafnan ferskmeti á borð
við ávexti og grænmeti og einnig
væri gott að fá ijóma í jólabakst-
urinn. Þau fengu líka jólatré og
önd til þess að hafa í matinn á
aðfangadagskvöld. Eitthvað fengu
þau líka af pökkum og sagði Jóna
að nú væri þeim ekkert að vanbún-
aði.
- Hvað með jólafötin?
„Við ætluðum að vera í fötunum
sem við vorum í í fyrra en fyrst
þú nefnir það... ætli við fórum
ekki bara í jólaköttinn," segir
Jóna. „Þetta er stórmál, kannski
við reddum nýjum sokkum eða
einhveiju," segir hún.
Dagurinn hefst á ýmsum morg-
unverkum, einnig gá þau Kristinn
til veðurs á þriggja tíma fresti,
en Jóna sagði að þegar veðrið
væri gott reyndu þau að vera úti
við, til dæmis á gönguskíðum, hins
vegar læsu þau þegar illa viðraði.
Haustið og veturinn segir hún
hafa verið óvenju mildan, varla
hafí fallið snjókom. Um þessar
mundir reyna þau að nota tímann
fyrir jólaundirbúning sem gengur
vel að sögn Jónu. „Við erum búin
að vera að föndra og baka en það
vantar bara snjóinn, annars kemst
maður ekki í jólaskap."
A
► 1-56
Almenna samkomu-
lagið um hagsæld og
velmegun
►Eftir sjö ára átök liggur Gatt-
samkomulagið nú fyrir./lO
Hangikjöt og ekkert
annað
►Mike Fitzgerald ogfjölskylda
hans halda nú jólin á íslandi og
ræða muninn á íslensku og banda-
rískujólahaldi./12
Skurðhnífurinn slíðr-
aður
►Læknisaðgerðir verða smám
saman nettari og hnitmiðaðri. Álag
á sjúklinga minnkar og legudögum
fækkar./18
Skrúfað f rá sálarkran-
anum
►Hörður Torfason er nú fluttur
heim eftir margra ára útlegð í
Danmörku. Hér ræðir hann um
þversagnir lífsins í gleði og
sorg./20
Heimaumjólin
►Erlendir stúdentar á íslandi
segja frá jólahaldi í heimalandi
sínu./22
B
► 1-36
Málamiðlun menning-
arstrauma
►Dr. Hjalti Hugason lýsirþróun
jólanna til foma og nýjum hug-
myndum um tildrög kristnitökunn-
ar./l
Samkvæmistískan
►Glæsilegar hárgreiðslur og fatn-
aður einkennir jóla- og áramóta-
tískuna./4
Þótti ónáttúra á kven-
fólki að vera með hníf
►Hulda B. Kristjánsdóttir Víði-
felli Þingeyjarsýslu talar um út-
skurð, skáldkonu og fortíðina./8
Hvaða jaf nrétti er allt-
af verið að tala um?
►Bandaríski rithöfundurinn og
blaðamaðurinn Susan Faludi hefur
fengið konur til að endurmeta
stöðu sína í jafnréttismálum með
bókinni Bakslagi./lO
Drottni til dýrðar
►Trúarleg tónlist sækir í sig veðr-
ið./14
C BÍLAR
► 1-4
NýrVolvo
►Næsti nýi Volvo verður að öllum
líkindum fjölskyldubffl af milli-
stærð og framleiddur í samstarfi
við japanska bílaframleiðandann
Mitsubishi. Hann kemur á markað-
inn 1995-1996, samkvæmt heim-
ildum bílablaðs Berlingske Tid-
ende./l
Reynsluakstur
►Liðugur Trooper með díselvél
ogþægindum./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 20b
Erlent baksvið 14 Kvikmyndir 22b
Kvikmyndahús 26 Fólk í fréttum 24b
Leiðari 28 Myndasögur • 28b
Helgispjall 28 Brids 28b
Reykjavíkurbréf 28 Stjömuspá 28b
Menning 31 Skák 28b
Minningar 40 Bíó/dans 27b
íþróttir 50 Bréf til blaðsins 32b
Útvarp/sjðnvarp 52 Velvakandi 32b
Mannlífsstr. 6b Samsafnið 34b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4