Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993
13
Jórunn Eyfjörð erfðafræðingur um nýbirt genakort
Auðveldar fund erfðafræði-
legra skýringa á sjúkdómum
FRANSKIR vísindamenn hafa birt í tímaritinu Nature nær fullgert
kort af genasamsetningu mannsins og segir Jórunn Eyfjörð erfða-
fræðingur hjá Krabbameinsfélaginu að „kortlagningin muni leiða
til þess að fljótlegra verði að staðselja og rannsaka gen“. Genakort-
ið er safn kjarnsýrubúta sem samsvara ákveðnum svæðum á litning-
unum og spannar u.þ.b. 90% Iitninga mannsins og segir Jórunn að
það muni m.a. auðvelda rannsóknir á sjúkdómsvaldandi genum.
Verið er að undirbúa uppsetningu tölvubúnaðar hérlendis svo hægt
sé að nálgast kortið í gegnum tölvunet en ekki er vitað hvar hann
verður eða hvenær hann kemst í gagnið. íslendingar hafa nú þegar,
í samstarfi við hin Norðurlöndin, aðgang í gegnum mótald að alþjóð-
legum gagnabanka sem veitir aðgang að þessum upplýsingum.
Jórunn segir íslendinga hafa tek-
ið þátt í alþjóðlegu verkefni um að
kortleggja litningamengið, sem
nefnist HUGO, (Human Genome
Organization) og hafa starfsmenn
frá Landspítalanum og Krabba-
meinsfélaginu farið utan til að
kynna sér notkun og uppsetningu
gagnabanka, þar sem kortið verður
að finna.
Erfðafræðirannsóknir fara meðal
annars þannig fram að erfðaefnið
er einangrað úr frumum, t.d. í blóði
eða húð. Það er klippt niður og
bútar sem samsvara ákveðnum litn-
ingshlutum skoðaðir. Nú er búið
að stika litninga mannsins og búa
til mjög gróft kort af um 90% gena-
mengisins og segir Jórunn að þótt
búið sé að fíngreina einstaka búta
litninga geti aðrir í svo grófri kort-
lagningu verið mjög svipaðir inn-
byrðis, sem geri staðsetningu gena
erfiðari. Hægt sé að skilgreina þau
svæði nákvæmar með fíngreiningu
en slíkt taki lengri tíma. „Kortið
mun samt sem áður auðvelda stað-
setningu gena og væntanlega flýta
fyrir rannsóknum á arfgengum
sjúkdómum,“ segir Jórunn. Hún
segir einnig að þetta muni hafa
áhrif á framþróun læknisfræði og
hraða því að erfðafræðilegar skýr-
ingar fínnist á fjölda sjúkdóma.
Aukin þekking á erfðaefni manns-
ins veki hins vegar upp ýmsar sið-
fræðilegar spurningar, t.d. hve
langt eigi að ganga í leit að upplýs-
Jórunn Eyfjörð
ingum og hvemig eigi að fara með
nýja þekkingu. Jómnn Eyfjörð
bendir loks á að alls ekki sé hægt
að segja að tilvist kortsins komi í
veg fyrir sjúkdóma enda sé stórt
stökk milli erfðarannsókna og gena-
lækninga.
50% gjald á erlendan
bjór þrátt fyrir EES
FORSTJÓRI Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, Höskuldur Jóns-
son, segir að verðlagning á erlendum bjór verði ekki færð til sam-
ræmis við innlenda framleiðslu um áramótin því verðlagningarregl-
ur frá fjármálaráðuneytinu geri ráð fyrir 50% álagningu á inn-
kaupsverð á þessu ári. Snorri Olsen deildarstjóri segist ekki vita
hvort verðlagningarreglurnar standist ákvæði EES og það komi
ekki á daginn nema þær verði „klagaðar eða kærðar sérstaklega“.
Höskuldur sagði í samtali við
Morgunblaðið að „sérstakri álagn-
ingu“ hafi verið komið á innkaups-
verð á erlendum bjór árið 1989,
til þriggja ára, innlendri fram-
leiðslu til vemdar. Ætlunin hafí
upphaflega verið að afnema álagn-
inguna, sem var 72%, í þremur
áföngum en samkvæmt ákvörðun
fjármálaráðuneytisins sé gert ráð
fyrir að svo verði ekki að fullu
fyrr en 1996. „Að öðru leyti er
verð bjórs byggt á sama reiknillk-
ani og aðrir áfengir drykkir. Það
er ekki mitt að dæma um hvort
þetta samræmist EES-samningn-
um, við hlítum reglum fjármála-
ráðuneytisins," sagði Höskuldur
Jónsson.
Reynir á lögmæti ef kært
verður
Snorri Olsen, deildarstjóri tekju-
og lagaskrifstofu fjármálaráðu-
neytisins, segir vörugjaldið hafa
verið lækkað niður í 50% 1. desem-
ber sl. 1. desember 1994 muni það
lækka í 40%, í 25% ári síðar og
loks verði það afnumið 1. desem-
ber 1996. „Við höfum gefíð upp
hvernig við hyggjumst afnema
þetta og það hefur ekki verið kært
eða klagað sérstaklega." Hann
segist efast,um að afnámið hafi
verið nákvæmlega útlistað í samn-
ingaviðræðum um EES, hins vegar
viti innlendir framleiðendur og iðn-
aðarráðuneytið af þessu. Ekki
reyni á lögmæti þessarar verðlagn-
ingar nema af kæru verði. „Hingað
til hafa menn talið að þeir gætu
haft álagningu ÁTVR með þeim
hætti sem þeir vildu svo framar-
lega að tegundum væri ekki mis-
munað. Verndarreglur fyrir inn-
lendan bjór voru taldar nauðsyn-
legar á sínum tíma, þegar þær
verða afnumdar mun eitt yfír inn-
lenda og erlenda framleiðslu
ganga,“ sagði Snorri að lokum.
Svarfir/brúnir
36-41 verð kr.
5.980
42-46 verð kr.
6.980
Svartir
36-41
verð aðeins kr.
5.980
a wísm
Opib: Sunnud. 19. des. 13-18
Skóverslun Kópavogs
Jólagjafir sem gleðja
Náttfatnaður
Glæsilegt úrval
Gott verð
Laugavegi 4 - Sími14473
Nýkomnir leður - hvíldarstólar
Mikið úrval - Margir litir
Teg. KIMA
kr. 46.400 stgr.
Teg. TILLY
kr. 25.000 stgr.
Teg. ARI
kr. 15.900 stgr.
Teg. GAS
kr. 33.200
y/S4»
□□□□□□
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654 100
ULLARSKÓR
Stærðir 21-35
Verð áður: 3,300
Verð nú:
Stærðir 36-46
Verð áður: 4,200
Verð nú: 3,360
Stærðir 18-35
Verð áður: 2,800 Verð nú: 2,240
Mikið úrval af sterkum og fallegum
ullar inniskóm með stömum sólum.
Veitum 10% staðgreiðsluafslátt
til jóla af öllum skóm í versluninni.
Einning 5% afsláttur ef greitt er
með kreditkorti.
Sendum í póstkröfu
^ |s| Búðin borgar
SKÓVERSLUN
Cfsli Fcrdiiuindssoii íií
LÆKJARGÓTU 6A • SÍMI 1 47 11