Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 14

Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 SS-maður í Bandaríkjunum Vísað úr landi vegna stríðsglæpa London. The Daily Telegraph. ALEXANDER Schweidler, 72 ára gamall fyrrverandi SS-vörð- ur í Mauthausen-fangabúðum nasista, hefur verið sakaður um morð á tveim sovéskum stríðs- föngum 1942 og ætla bandarísk yfirvöld að vísa honum úr landi. Breska innanríkisráðuneytið segir að ekki verði reynt að hindra að Schweidler fái þar landvist en hann er með breskt ríkisfang. Schweidler komst undan í stríðs- lok og settist fyrst að í Bretlandi en fluttist með eiginkonu sinni til New York árið 1965. Hann býr nú í Flórída. Schweidler er sagður hafa skotið mennina tvo og undirritað yfirlýsingu daginn eftir þar sem hann gekkst við verkinu. Skjöl um málið fundust í Austur-Evrópu eftir hrun kommúnismans. Bandarísk stjórnvöld segja að Schweidler hafi ekki sagt sannleik- ann um feril sinn við komuna til Bandaríkjanna en í lögum þarlendra segir að ekki skuli leyfa stríðs- glæpamönnum landvist og skipti engu hve langur tími sé liðinn frá afbrotinu. Schweidler mun hafa samþykkt að fara úr landi til að komast hjá réttarhöldum þar sem farið yrði í saumana á starfi hans í fangabúðunum. Hann segist ekki muna eftir að hafa drýgt áður- nefnda glæpi. plorgw- í Kaupmannahöfn FÆST Í BLAOASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI Nýjar vonir um raunhæfar samningaviðræður á Norður-írlandi Margra alda saga undir- okunar og trúardeilna SAMEIGINLEG hvatning forsætisráðherra Bretlands og ír- lands til IRA og annarra hryðjuverkasamtaka á Norður-írlandi um að binda enda á vígaferlin hefur verið kölluð vatnaskil í deilunum. Bretar segjast munu sætta sig við að landshlutinn sameinist írska Iýðveldinu ef íbúamir og þá ekki síst mótmæ- lendur, meirihluti Norður-íra, samþykki. Írski forsætisráðherr- ann hét því á móti að fellt yrði á brott stjórnarskrárákvæði um tilkall lýðveldisins til Norður-írlands ef deiluaðilar í hérað- inu næðu saman. Þegar þetta er skrifað er enn óljóst hver endanleg viðbrögð verða við yfirlýsingu leiðtoganna tveggja og margt í henni er reyndar með loðnu orðalagi. Þótt fallist verði á hugmyndir þeirra er margur þröskuldurinn eftir, t.d. spyrja menn hvernig hægt verði að fullnægja kröfum IRA um sakaruppgjöf til handa hryðjuverkamönnum. Langvinn átökin á Norður-Irlandi, rótgróin tortryggni og hatur þar í landi eru lítt skiljanleg nema hugað sé að aðdragandanum. Blóðug’ur sunnudagur í Londonderry SUNNUDAG einn árið 1972 skutu breskir hemenn í fáti á mótmæ- lagöngu kaþólikka í Londonderry og féllu 13 manns, enn fleiri særðust. Á myndinni sjást hermenn og óbreyttir borgarar stumra yfir einu fórnarlambanna. Konungsvaldið enska byijaði að seilast til áhrifa á írlandi þeg- ar á miðöldum en það var ekki fyrr en á sextándu og sautjándu öld að verulegur fjöldi Englend- inga og Skota tók sér bólfestu í landinu og hóf að undiroka inn- fædda íra. Siðbreytingin í Eng- landi á sextándu öld varð til þess að enn dýpri gjá myndaðist því að írar héldu fast við sinn ka- þólska sið. Englendingar frömdu ægileg grimmdarverk er þeir bældu niður uppreisn á sautjándu öld, er talið að þriðjungur íbúanna hafi fallið. Fram á síðustu öld voru það lög í öllu breska kon- ungsríkinu að kaþólikkar mættu ekki gegna þar opinberum emb- ættum og var því írskur almenn- ingur að mestu utan við lög og rétt. Á þessum tímum verða til rótgrónir for- dómar í Eng- landi um íra, heimsku þeirra og skringileg- heit, sem urðu ekki til að létta írum róðurinn. Fjöldi íra fluttist þó árlega búferlum til Englands í leit að vinnu og hefur svo verið fram á þennan dag. Hörmungasaga á 19. öld Fyrstu áratugi síðustu aldar riðu mörg áföll yfir írsku þjóðina, hungur og farsóttir. Kartöflur voru uppistaðan í fæði alþýðufólks en 1841 brást uppskeran og fjöldi manna féll úr hungri. Irar voru fjölmennir í röðum nýlendubú- anna í Vesturheimi þegar á átj- ándu öldinni en um miðja síðustu öld hófust miklir þjóðflutningar frá landinu til Bandaríkjanna. Um sama leyti var byijað að viðra hugmyndir um heimastjórn á ír- landi en þingmenn íra sátu á breska þinginu í London. Það var þó ekki fyrr en 1886 að William Gladstone lagði fram fyrsta lagafrumvarpið um heima- stjóm handa írum, Home Rule. Það olli geysilegum deilum í Eng- landi og klofningi innan stjórn- málaflokkanna en náði ekki fram að ganga og sama gerðist 1893. Þá voru íhaldsmenn við völd og þeir voru andvígir öllum sjálfstæð- ishugmyndum. írar eignuðust lit- ríka leiðtoga í sjálfstæðisbarátt- unni, þekktastur var Charles Parnell, en voru þó oft sjálfum sér sundurþykkir. Bandaríkja- menn af írskum uppruna voru fjöl- mennir og styrktu baráttuna með fé. Ráku samtök þeirra látlausan áróður gegn meintri kúgun bre- skra stjórnvalda í gamla landinu. Og þegar kom frá þessa öld var ljóst að mótmælendur á írlandi, sem bjuggu að mestu í sex af níu sýslum héraðsins Ulster í norður- hluta írlands, myndu ekki sætta sig við að lúta yfirráðum kaþólska meirihlutans. Páskauppreisnin Heimastjórnarlög voru loks samþykkt 1914 en sama ár hófst heimsstyijöldin fyrri og ákvað þingið þá að fresta gildistöku lag- anna þar til henni lyki. Á páskun- um 1916 hófu um 2.000 manns llla skipulagða uppreisn gegn breskum yfírráðum og lýstu yfír lýðveldisstofnun í Dublin en hún var skjótt bæld niður; 14 leiðtogar uppreisnarmanna voru teknir af lífí. Páskauppreisnin hefur síðan verið írskum þjóðemissinnum endalaust yrkisefni í hetjusögur og hefur eitrað samskipti þjóð- anna. Næstu árin háðu ýmsir hópar, þ. á m. írskí lýðveldisherinn (IRA) skæruhernað gegn Bretum sem gekk erfið- lega að finna lausn er allir gætu unað við. Loks var ákveð- ið að skipta írlandi, árið 1921. írska fríríkið svonefnda, fékk sjálfsstjórn innan breska samveld- isins á sama hátt og Kanada og Ástralía. Það náði yfir meginhluta eyjarinnar, var hlutlaust í heims- styijöldinni síðari og varð sjálf- stætt lýðveldi 1949. Sex sýslur í Ulster, þar sem mótmælendur voru í meirihluta, heyrðu áfram undir Bretland en með víðtæka sjálfsstjóm og eigið þing. Mótmælendur réðu öllu sem þeir vildu í krafti þess að kjörið var til þings í einmenningskjör- dæmum, þeir gátu neytt aflsmun- ar. Þeir stjómuðu flestum fyrir- tækjum, tekjumunur var mikill, kaþólikkum í óhag. Mótmælend- um var hyglað við embættaveit- ingar, í skólum og í félagslegri þjónustu. Kaþólikkar svöruðu fyrst í stað með því að hætta allri þátttöku í stjómmálum héraðsins, margir þeirra bjuggu í fátækrahverfum borgarinnar og stöku sinnum kom til óeirða. Þeir fluttust þó ekki í neinum mæli suður til lýðveldis- ins. Skipasmíðar og síðar flug- vélasmíði í heimsstyijöldinni síð- ari ollu efnahagsuppgangi í Belf- ast og velferðarkerfíð breska eftir stríð tryggði fólki ákveðin lág- markslífskjör. Lýðveldið var á hinn bóginn bláfátækt, atvinnu- leysi landlægt og ungt fólk reyndi yfirleitt að hafa sig á brott til Bretlands eða Bandaríkjanna. Mótmælendur misnotuðu að- stöðu sína að vísu herfilega en bentu á að írland, sem gerði til- kall til héraðsins, væri ekki aðeins kaþólskt heldur eitthvert alræmd- asta virki afturhalds og trúarlegr- ar þröngsýni í Evrópu. Kirkjan hefur ávallt verið þar mjög valda- mikil og félagsleg löggjöf hefur dregið dám af þeim áhrifum, meðal annars varðandi getnaðar- varnir og fóstureyðingar. Vopnuð átök hefjast Upp úr 1960 fóm mannrétt- indahópar að láta til sín taka og fóm þá gjarnan í smiðju til rétt- indasamtaka blökkumanna í Bandaríkjunum. Farnar voru kröfugöngur í Belfast og Derry, hin unga Bernadette Devlin varð átrúnaðargoð og heimsfræg. Frí- kirkjuklerkurinn Ian Paisley fór hamförum gegn kaþólikkum og hvatti sína menn til að beijast með öllum ráðum gegn veldi páf- ans í Róm. Klofningshópur í IRA nefndi sig Provisionals og er stjórnmálaarmur hópsins Sinn Fein. Hópurin.n, oftast er hann einfaldlega kallaður IRA, hóf skæruliðabaráttu gegn mótmæ- lendum og breskum stjórnvöldum. Mótmælendur svömðu með því að stofna vopnaðar sjálfboðaliða- sveitir. í byijun áttunda áratugar- ins sendi breska stjómin her til héraðsins til að halda uppi lögum og reglu, 1972 leysti hún upp þingið og síðan hefur svæðinu verið stjórnað frá London. Kaþó- likkar fögnuðu í fyrstu hernum, væntu þess að friður kæmist á en IRA og annar kaþólskur hryðjuverkahópur, fjóðfrelsisher íra (INLA), vora ekki í sáttahug- leiðingum. Morð og sprengjutil- ræði urðu nær daglegt brauð. Kaþólsku hóparnir voru mun at- kvæðameiri en mótmælendurnir í hryðjuverkum. Kaþólskir íbúar N-írlands fóm márgir að líta á breska herliðið sem tákn um aldagamla kúgun Breta, gagnkvæmt hatur magn- aðist en ávallt voru til hugrakkir einstaklingar sem reyndu að miðla málum. Nær 500 manns féllu 1972, flestir óbreyttir borgarar, síðar var sendiherra Breta í Du- blin myrtur og 1979 létu Mount- batten lávarður, tveir unglingar og 19 breskir hermenn lífíð í til- ræðum. Alls hafa átökin kostað rúmlega 3.000 manns lífið frá 1968. Lögreglulið N-írlands, þar sem mótmælendur ráða ferðinni, hefur ásamt breska herliðinu verið sak- að um að bijóta mannréttindi á kaþólikkum og í nokkmm tilvik- um var saklaust fólk í fangelsi ámm saman í Bretlandi. IRA færði út kvíamar, hóf aðgerðir í Bretlandi sjálfu, samvinnu við er- lenda hermdarverkamenn og rík- isstjórn Líbýu, einnig munu sam- tökin hafa fengið vopn beint frá kommúnistaríkjunum. 1984 kom IRA fyrir sprengju á hóteli í Brig- hton þar sem Ihaldsmenn héldu flokksþing, fjórir menn létust og nokkrir slösuðust en Margaret Thatcher forsætisráðherra slapp ósködduð. Heldur dró þó úr hryðjuverkun- um á níunda áratugnum og 1985 gerðu bresk og írsk stjórnvöld samning um að tekið yrði upp reglubundið samráð ríkjanna í von um að takast mætti að binda enda á blóðsúthellingarnar. írskum stjórnvöldum reyndist þó erfítt að uppfylla kröfur Breta sem m.a. vildu fá íra til að framselja um- svifalaust IRA-menn er leituðu skjóls í lýðveldinu. Undanfarna mánuði hafa bresk stjórnvöld átt viðræður með leynd við fulltrúa ÍRA og vitað er að sumir leiðtoga samtakanna vilja stöðva átökin. Á næstunni mun koma í ljós hvort væntingamar um tímamót rætast. BAKSVID eftir Kristján Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.