Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 16

Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 Morgunblaðið/Stefanía Þorgeirsdóttir „Þú veist að ég elska þig, þú finnur að ég er þín,“ syngur Björk í eina laginu með íslenskum texta á tónleikum hennar á skemmtistaðnum Avalon í Boston. Meó Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. FYRIR stuttu lauk fyrstu sólóhljómleikaferð Bjark- ar Guðmundsdóttur um Norður-Ameríku eftir að hún gaf út sólóplötu sína, Debut, og fékk hún lof- samlega dóma fyrir frammistöðu sína í New York, en gagnrýnandi dagblaðs eins í Boston var ekki jafn hrifinn. Sama dag og Björk spilaði í Boston birtist við hana heilsíðuviðtal í dagblaðinu The Boston Globe þar sem hún lagði áherslu á að Sykur- molarnir væru ekki hættir, þeir væru bara í dvala. AF HUÓMLEIKA- FERÐALAGI BJARKAR GUÐ- MUNDSDÓTTUR UM NORÐUR-AMERÍKU Hvaða Sykurmolar? var það fyrsta sem kom upp í hugann eftir tónleika Bjark- ar á skemmtistaðnum Avalon í .Boston á fimmtudag í síðustu viku. Björk lék. aðeins lög af nýjustu plötu sinni, auk tveggja nýrra laga sem ekki hafa verið gefín út og var utan raddarinnar fátt í ryþmískri danstónlist- inni sem minnti á gömlu hljómsveitina. Björk vatt sér ásamt sex manna hljóm- sveit sinni strax út í lagið Human Behaviour af Debut og voru gestir þegar með á nótun- um. Reyndar þurfti söngkonan að glíma við hæsi og var í upphafí eins og röddin ætlaði að bresta, en það lagaðist eftir fyrsta lagið og náði rödd hennar brátt sínum yfitjarð- nesku hæðum. Oft og tíðum virtist sem áhorfendur væru ekki alveg með á nótunum og virtust til dæmis The Anchor Song og Like Someone in Love, sem bæði eru sungin við undirleik eins hljóðfæris, fara fyrir ofan garð og neð- an. Öðru máli gegndi um lög á borð við There’s More To Life Than This og Violently Happy, sem kitluðu danstaugar viðstaddra. Björk bauð í prufur þegar hún valdi hljóm- sveitina og hefur tekist mjög vel upp. Aðeins einn hljómsveitarfélaga lék með Björk á Debut, slagverksleikarinn Talvin Singh, en hinir virðast ekki eiga í neinum vandræðum með tónlist hennar. Undirleikurinn var hnökralaus og vart feilnótu að fínna. í hljóm- sveitinni eru tveir hljómborðsleikarar, blás- ari, sem fór á kostum, undrataktvís bassaleik- ari og trommuleikari. Björk skipuleggur einnig tónleikaferðina og hljóta það að vera mikil viðbrigði frá því að vera hluti af hljómsveit. „Það var einmitt hugmyndin með þessu,“ sagði Björk í sam- tali við blaðamann og kvaðst ánægð með árangurinn. Ongþveiti í New York Björk sagði að viðtökur hefðu verið svipað- ar í Boston og New York. í New York hefði þó verið uppselt og myndast öngþveiti þegar þúsund miðalausir aðdáendur neituðu að hverfa af vettvangi. Tónleikaferð Bjarkar hefur vakið nokkra athygli og kom hún m.a. fram í spjallþætti, sem sjónvarpað er frá New York. Þar söng Björk Human Behaviour og spjallaði stjórn- andi þáttarins, Conan O’Brien, stuttlega við hana. „Fyndið,“ var eina orðið, sem kom upp í huga Bjarkar þegar hún var spurð um þátt- inn og fannst henni líkast því að vera komin í sófasettið hjá Hemma Gunn. „Björk skiptir um bylgjulengd," sagði gagnrýnandi The New York Times, Jon Pare- les, í fyrirsögn eftir tónleika Bjarkar í Webst- er Hall á Manhattan. Hann sagði að nýjar umbúðir hefðu ekki gert úr henni hefðbundna sönggyðju. „Enn er stokkið til og frá og far- ið á ómstrítt svig í laglínum hennar,“ skrif- aði gangnrýnandinn. | Sagði hann að á stundum hefði hljómsveit- in getað verið að leika undir hjá söngkonu á borð við Sade, en söngur Bjarkar hefði | „barist gegn seiðandi undirleiknum." Hann * klykkti út: „Mitt í tónlist, sem var staðföst og hefðbundin, reyndist Björk enn vera einn af skemmtilegustu furðufuglum rokksins.“ Gagnrýnandi dagblaðsins The Boston Her- ald var ekki jafn upprifinn eftir að Björk hafði spilað hér í borg. „Innblæstri Bjarkar ábótavant," skrifaði Sarah Rodman í fyrir- sögn. Sagði hún að Björk og hljómsveit henn- ar skorti síður en svo hæfileika og rödd „hinn- ar smávöxnu sönggyðju hefði ótrúlega breidd og djúpa túlkun.“ Sagði í gagnrýninni að Björk væri skemmra á veg komin í lagasmíðunum en á öðrum sviðum og þyrfti hún að bæta úr því. í viðtali við Jim Sullivan á The Boston Globe kvaðst Björk vera sýnu jarðbundnari þegar hún væri ein á ferð, en með Sykurmol- unum, Sullivan þessi skrifaði fyrir fimm árum gagnrýni um hljómleika Sykurmolanna, þar sem hann sakaði þá um að líta á Bandaríkja- menn sem gullkálf, sem hægt væri að blóð- mjólka og draga sundur og saman í háði og fyrirlitningu um leið. Nú spyr hann um hroka Sykurmolanna á sviði og Björk svarar því til að líf poppara sé ekki jafn goðumlíkt og fólk haldi. „Þú þarft að læra fleiri hegðunarferli en drottn- ingin af Englandi, vera „uppreisnarlegur“ í ákveðnum mæli án þess að það komi því nokkuð við að vera uppreisnarmaður," sagði hún og bætti því við að uppreisnargirni Syk- urmolanna hefði af og til brotist fram í undar- legri hegðun á sviði. Björk hélt til Toronto í Kanada frá Boston og þaðan til Chicago. Einnig lék hún í San Francisco og Los Angeles, en lauk síðan tón- leikaferð sinni til að fylgja Debut eftir í Evr- ópu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.