Morgunblaðið - 19.12.1993, Page 20

Morgunblaðið - 19.12.1993, Page 20
) 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 Bresta vonir manna þegar dauðadæmdur hlær og dásamar þá hamingju sem hann á afgangs frá í gær? Lífið reynist mörgum þykkur múr. Ég mjakast líka í gegnum hann sem trúbadúr. nnanum eftir Svein Guðjónsson Hördur Torfason er fluttur heiun eftir margra ára útlegó i Danmörku Hér ræóir hann unn þversagnir lífsins i gleói og sorg Hörður Torfason leikari, leik- stjóri og trúbadúr syngur um ang- urværð draumanna, hreinleika og mátt ástarinnar og óumbeðna ná- lægð dauðans á nýrri plötu sinni Gull. Þetta eru ljóðsögur í tónlist um lífið sjálft í gleði og sorg. Hörður er nú fluttur heim, eftir margra ára útlegð í Kaupmanna- höfn. Hann er einn fárra íslend- inga sem orðið hafa að flýja land vegna fordóma, en það gerðist eftir að hann lýsti því yfir í tíma- ritsviðtali að hann væri hommi. Slík hreinskilni kom mönnum í opna skjöldu á þeim árum. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. „Fyrstu árin í Kaupmannahöfn fóru í að tína saman sálarbrotin, því ég var sundurtættur. Ofsóknirnar voru svo hrikalegar," segir Hörður þegar við rifjum upp flóttann til Danmerkur. Eg var lengi að sleikja sárin og ég var ein þijú, fjögur ár að jafna mig á þessu." Hörður kveðst þó aldrei hafa séð eftir því að hafa gengið fram fyrir skjöldu með svo afgerandi hætti þótt þetta hafi vissulega verið erfitt: „Að koma til dyranna eins og maður er klæddur er hluti af því lífsmynstri sem ég hef valið mér sem trúbadúr. Að segja söguna eins og hún er og draga ekkert undan. Ef ég hefði lát- ið kyrrt liggja, fengið mér hvíta skyrtu og bindi og horfíð inn í fjöld- ann, þá hefði ég svikið sjálfan mig. Auðvitað hafa þetta verið átök, sem hafa kostað miklar fómir, en þær hefðu orðið miklu meiri ella. Ég er hluti af þjóð sem ég vil vel og ég berst fyrir auknum skilningi og umburðarlyndi manna á milli. Við getum tekið sem dæmi umræðuna um sjálfsvíg hér á landi. í henni gleymast oft þau átök tilfínninganna sem tengjast kynferðismálum. Ég er viss um að í mörgum tilfellum sjálfs- víga hjá ungum mönnum er það vegna þess að þeir hafa uppgötvað hjá sér kynhneigð sem ekki fellur að forskriftinni og þeir rísa ekki undir því. Skömmin er svo mikil. Og þótt fordómamir séu kannski ekki eins miklir og þeir voru þegar ég flutti út, þá eru þeir enn of miklir. Ég leit alltaf þannig á málin að það væri ekkert að hjá mér. Það var umhverfið sem var snarruglað með sínum fordómum og ofsóknum. Mað- ur velur ekki hvernig maður fæðist, hvort maður fæðist karlmaður eða kona, dökkhærður eða ljóshærður, hommi eða hetró.“ Ég er ekki til sölu Áður en Hörður flutti af landi brott hafði hann sent frá sér tvær plötur. Sú fyrri kom út skömmu eft- ir að hann !auk leiklistamámi og gengur venjulega undir nafninu „bláa platan“. Hún hefur selst í nokkrum þúsundum eintaka, enda eru á henni lög sem nutu mikilla vinsælda og heyrast stundum enn og má þar nefna Ég leitaði biárra blóma og Guðjón bak við tjöldin. Platan þótti sérstök á þeim tíma og sjálfur segir Hörður að það hafí lík- lega verið vegna þess að hann vissi ekki hvað hann var að gera. „Maður var bara ungur og hress og glaður með fullt af lögum í pokahominti og svo valdi Svavar Gests bara úr þeim á plötuna." Hörður var með annan fótinn í leiklist á þessum ámm og starfaði meðal annars í Þjóðleikhúsinu og síð- ar með íslenskum leikhópi í Dan- mörku, „Androklesa-leikhópnum“. Síðan gaf hann út plötuna Án þín og fór því næst til Bandaríkjanna, þar sem átti að gera hann að stjömu eftir því sem sagan segir. „Ég fór á vegum bandarísks um- boðsmanns, sem heyrði mig spila í Tívolí í Kaupmannahöfn. Þegar ég kom vestur byijuðu þeir á að taka klæðnaðinn og útlitið í gegn og það átti að „hanna“ mig til samræmis við amerískar kröfur um skemmti- krafta. Ég átti að koma fram í leik- húsi í Washington D.C., en þegar ég fór að kynnast lífinu þama snerist ég þversum. Yfirborðsmennskan fór afskaplega í taugamar á mér. Það átti sem sagt að sníða mig sam- kvæmt forskriftinni, breyta hár- greiðslunni, klæðaburðinum, tónlist- inni og textunum. Mér fannst ég vera orðinn einhvers konar gervikarl og sagði þeim að ég vildi heldur vera bóndi á Islandi. Þessi viðbrögð mín lýsa kannski vel mínum karakter. Ég er ekki til sölu. En það er þessi sölumennska sem er svo einkennandi fyrir skemmtiiðnaðinn. Margir ágæt- ir skemmtikraftar og listamenn hafa lent í því að selja sig í gegnum um- boðsmenn, kannski af því þeir hafa ekkert að segja. Og ég virði það sjón- armið alveg. Það á bara ekki við mig. Mér fínnst ég hafa það mikið að segja. Hún brýst alltaf í gegn hjá mér, þessi löngun eða þörf til að segja sögur.“ Að segja sögur Hörður heldur uppteknum hætti á nýju plötunni. Hann er að segja sög- ur. Að mati þess, sem þetta skrifar, eru það athyglisverðar og góðar sög- ur. Og Hörður lætur sér ekki nægja að syngja ljóðin við eigin lög, heldur kemur leikarinn einnig upp í honum og skín víða í gegn. En er það ekki einmitt hluti af tjáningarformi trúbadúrsins? „Allt er þetta hluti af tjáningar- formi trúbadúrsins. Hann segir sögur og reynir með þeim að hafa áhrif útávið. Til dæmis reyni ég talsvert að slá á fordóma fólks. Tjáningarform trúbadúrsins er í raun lítt útbreytt hér á íslandi þótt ýmsir hafi gefíð sig út fyrir að vera trúbadúrar. En flestir þeirra eru í einhvers konar fylleríis-slögurum, sem rista fremur grunnt. Ég hef hins vegar algjörlega hafnað þessum fyl- leríis-kúltúr og forðast að koma fram þar sem fólk er að drekka. Þar er fólk ekki að hlusta á það sem ég er að gera og ég á því ekkert erindi á slíkar samkomur. Stundum er ég spurður, þar sem ég kem fram, hvort ég geti ekki haft aðeins meira „stöð“ í þessu. En það er bara ekki minn stíll. Ég er að gera allt aðra hluti og hef stund- um líkt því við leikhús. Ég er í raun- inni að setja upp litla leiksýningu í hvetju lagi. Stundum nota ég tjöld og stundum ekki. Trúbadúrformið er því eins konar samhæfing á þess- um listgreinum: ljóðlistinni, tónlist- inni, leiklistinni og svo hinni gömlu íslensku sagnahefð." Maður má ekki bara hugsa um sjálfan sig Tvö ár eru nú liðin frá því Hörður flutti heim til íslands og hann segist fyrst núna vera að átta sig á því og „fínna fyrir fjöllunum í sér“, eins og hann orðar það. Hann gefur út hljóm- plötur sínar sjálfur og kveðst hafa lagt milljónir í það fyrirtæki og ekki fengið allt það fé til baka. Hann starfar jafnframt við leiklist og leik- stýrir að meðaltali þremur verkum á ári, aðallega hjá áhugaleikhúsum úti á landi. „Leikhús þarf ekki að vera betra þótt það heiti stofnanaleikhús. Það gefur mér mikið að kenna fólki, áhugasömu fólki úr þorpinu, kaup- túninu eða sveitinni, fyrir utan þau forréttindi hversu stutt er út í náttúr- una. Maður kynnist líka þjóðinni sinni vel í slíku starfi. íslendingar eru skemmtileg blanda ólíkra hópa eftir því hvaðan þeir koma og við hvaða aðstæður þeir hafa alist upp. Bóndinn fyrir vestan þarf ekki endi- lega að vera eins og bóndinn fyrir austan og Héraðsbúinn hefur oft gjörólík viðhorf til lífsins en Seyðfirð- ingurinn." - Hvað um viðhorf fólksins úti á landi til leikhúsverka. Það er ekki mikið fyrir þungar pælingar, hefur maður heyrt? „Nei, eðlilega ekki. Þetta fólk vinnur mikið og þegar það fer í leik- hús vill það lyfta sér upp, en ekki leggjast í einhver grátverk eða heim- spekilegar pælingar, sem jafnvel höfundar verkanna hafa aldrei skilið. Þetta fólk kemur í leikhús til að hlæja og það er mjög skiljanlegt. Það getur auðvitað verið þreytandi fyrir okkur, sem förum víða til að setja svona stykki upp, að lenda oft á sama fars- anum, en við verðum að hugsa um fólkið sem við erum að vinna fyrir. Maður má ekki alltaf bara hugsa um sjálfan sig. Ég geri það sem trúbad- úr, en ekki sem leikstjóri." Sársaukinn kennir manni „Sem trúbadúr get ég skrúfað frá sálarkrananum. Á ferðum mínum um landið heyri ég margar sögur og fólk biður mig oft um að ræða við sig um hin margvíslegustu málefni. Ég kynnist því fólkinu í landinu vel á þessum ferðum. Ég er ekki bara að setja upp leikrit, heldur held ég líka tónleika og þá tek ég oft fyrir ákveð- in málefni. Ég hef tekið fyrir homma og lesbíur, ég hef fjallað um for- dóma, einhleypar mæður, alnæmi og margvíslega málaflokka og þá fjalla ég gjaman um þetta án þess að vera að lesa yfir fólki heldur varpa frekar fram spumingum. Og oft gerist það eftir svona tónleika að mér er boðið í hús til að ræða þessi mál nánar. - Þú nefndir þarna alnæmi. Finnst þér þú sjálfur lifa í skugga þessa sjúkdóms þar sem þú telst vera í svokölluðum áhættuhópi...? „... sem er þvæla, því það em allir í áhættuhópi. Það er einmitt þessi blekking, að þetta sé bara homma- sjúkdómur, sem er svo hættuleg. Með því að einblína á einn hóp manna er verið að firra stærsta hópinn ábyrgð og þar með er verið að opna allar rásir til smitunar. Með því að telja sér trú um að aðeins hommar og sprautusjúklingar séu í hættu er í raun verið að grafa fjöldagröf alnæ- missjúklinga. Hommar hafa orðið fyrir miklum ofsóknum vegna þessa sjúkdóms og ég kem inn á það í einu ljóðinu á plötunni, sem ber heitið Ulfur og fjallar um mig sem einstakling í þess- ari baráttu. Eg hef staðið yfír gröfum margra vina minna á undanfömum árum. Á slíkum stundum fer maður að velta fyrir sér miskunnarleysi lífs- ins og þá finnst mér ég stundum breytast í einhvers konar villidýr. Maður skynjar samt að lífið heldur áfram og einhvern veginn verður maður að komast af og ég hef aldr- ei misst löngunina til lífsins. Ég samdi þetta eftir að ég kom heim einu sinni og sambýlismaður minn hafði framið sjálfsmorð. Annað lag á plötunni, Myrkrið, fjallar um dauðastríð hans. Lífið er fullt af þver- sögnum og miskunnarleysi. En sárs- aukinn kennir manni, þroskar mann og styrkir.“ - Undir niðri má skynja þennan sársauka á plötunni þinni...! „í uppgjöri við sjálfan sig er alltaf sársauki. En það þýðir ekkert að fylla sjálfan sig einhverri beiskju. Aðalatripið er að vinna sig út úr þessu. Ég fjalla líka um gleðina á þessari plötu og húmorinn er aldrei langt undan hjá mér eins og margir textar mínir og flutningur ber með sér.“ Við erum öll haldin fordómum - Þú kemur líka inn á fordómana á plötunni og í því sambandi dettur mér í hug lagið Karl R. Emba, þar sem rödd samviskunnar grípur af og til fram í fyrir sögumanni og segir honum að „gefa þeim blóm ...“. „Við erum öll haldin einhveijum fordómum, ég er uppfullur af þeim, en málið er að láta þá ekki stjórna sér. Inntakið í kristinni trú er að fyrirgefa og þama er ég að höfða til þess. Röddin sem grípur fram í er rödd samviskunnar eða rödd guðs, sem er það sama því guð býr innra með okkur. Ég tek þarna fyrir mála- flokka þar sem mönnum hættir mjög til að láta stjómast af fordómum, það er varðandi litarhátt fólks, kyn- hneigð, kynferði og trúmál. Ég valdi þann kost að fjalla um þetta í gamansömum tón, sem er oft vænlegur kostur til að fá fólk til að hlusta. Og það er víðar í ljóðunum á plötunni þar sem ég slæ á léttari strengi. Þama eru til dæmis tvö bamalög, en ég hef mikið unnið með börnum sem leikstjóri og samið mörg lög og texta fyrir börn. Annars vil ég ekki vera að gefa einhveija for- skrift að því hvernig fólk á að hlusta á þessa plötu. Menn verða að upplifa þá reynslu hver fyrir sig.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.