Morgunblaðið - 19.12.1993, Page 22

Morgunblaðið - 19.12.1993, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 Erlendir stúdentar á íslandi segja ffrá jólahaldi i heimalandi sinu eftir Bergþór Bjamarsqn „SINN ER siður í landi hverju" er gamall og góður íslenskur málsháttur og hann á við um jólin eins og annað. En hvernig skyldi þessum sið- um vera háttað um jól í öðrum Evrópulöndum, í Afríku eða Suður-Ameríku? Á íslandi eru erlendir stúdentar frá nærri öllum heimshornum og því hægt að forvitnast um hvernig þeir halda jól í heimalandi sínu. Meira aó segja lögreglan getur verió skemmtileg um fólin Victoria Cribb er frá Bretlandi en hefur verið í námi á Islandi í nokkur ár og í tvígang eytt jólun- um á íslandi. „Jólin eru mikilvæg- asta hátíðin í Bretlandi. Aður fyrr lögðu Englendingar meiri áherslu á hátíðahöldin sem tengjast jólun- um, en Skotar lögðu aftur á móti meiri áherslu á áramótin. Nú hefur þetta breyst, Englendingar halda nú áramótin hátíðlegri en áður og Skotar leggja meiri áherslu en áður á jólahátíðina. Jólaundirbún- ingur á Englandi hefst í október! Þá kemur jólaskraut í búðir sem fólki finnst alveg óþolandi. Á að- ventu er mjög vinsælt hjá bömum að taka upp dagatal og margir eru með aðventukrans. í Englandi eru jólalög mjög vinsæl og dagana rétt fyrir jól fara mörg böm og líka fullorðnir og syngja fyrir utan hús annarra. Það . er sérstaklega skemmtilegt í sveitum og ég fór einu sinni upp í sveit ásamt hópi fólks. Það’var heil hljómsveit með og við gengum frá húsi til húss og sungum. Þá kemur heimilisfólk- ið út með sherrý og „mincepies" sem er sérstakur jólaréttur hjá okkur, deig sem er fyllt með þurrk- uðum ávöxtum. Þetta er mjög skemmtilegt og í lokin er maður orðinn létt kenndur. Rétt fyrir jól er líka mikið sungið í kirkjum og margir hlusta á jólasöngva frá King’s College Chapel í Cambridge í útvarpinu á jólunum." Vió þurf um aó hafa útkastara i Dómkirkjunni Vicky segir 24. desember ekki vera stórhátíð og þá sé unnið í Bretlandi. Á aðfangadagskvöld fara margir í miðnæturmessu í Dómkirkjunni, fer gjarnan á pöbba og síðan eftir það hengir fólk upp jólasokkana sína sem jólasveinninn fyllir af gjöfum. Það er mismun- andi hvort gjafirnar eru opnaðar strax þegar fólk vaknar eða um hádegið. Einnig eru alltaf einhveij- ar gjafir undir jólatrénu og svo er hengdur upp mistilteinn sem er vinsælt að kyssast undir. „Við þurfum að hafa útkastara í Dóm- kirkjunni því fulk fólkið vill líka fara í kirkjuna. Ég hef oft lent í því að þurfa að klofa yfir ælur við Dómkirkjunna því það er svo margt fullt fólk sem kemur í kirkju. Á jóladag er stórveisla og borðaður kalkúnn. Heima hjá okkur verðum við 12 í ár og gamalli konu, sem er ekki í ættinni, verður boðið því það á ekki að láta fólk vera út undan um jólin. Þá er mikið drukk- ið, ólíkt því sem hér gerist. Ég man að einu sinni að kom lögregl- an meðan við vorum í kirkju því að eldur hafði hreyft jólaskraut svo að þjófavarnakerfið fór í gang. „Lögregluþjónarnir voru beðnir afsökunar og þeim boðið inn að fá sér eitthvað að drekka sem lögregl- an má auðvitað ekki þegar hún er á vakt. En þeir svöruðu: „Nei, við erum búnir að drekka svo mikið kampavín niðri á stöð að við erum orðnir fullir,“ og svo keyrðu þeir af stað. Lögin eru stundum dálítið sveigjanleg á jóladag og meira að segja getur lögreglan verið skemmtileg.“ Vió erum ekki eins miklir púritanar Jólamatur flestra er kalkúnn og á eftir er borðaður jólabúðingur. Búðingurinn er búinn til í október og soðinn í marga klukkutíma, síð- an er hellt yfir hann koníaki og hann borinn fram logandi. „Eftir þetta líður manni ótrúlega illa,“ segir Vicky. „Ef fólk borðar jóla- matinn í hádeginu er svo borðuð ensk jólakaka um „teleytið“. Klukkan þijú safnast fjölskyldan saman fyrir framan sjónvarpið og hlustar á drottninguna eða hlustar ekki því allir eru að ræða um hvaða kjól hún hafi valið og hvað hann sé hallærislegur. Það tilheyrir líka að horfa á James Bond-mynd. Á annan í jólum er borðaður afgang- urinn af jólamatnum og þá eru oft mörg jólapartí. Reyndar eru partí alveg fram að áramótum og fólk fer kannski tvo daga í vinnuna." - Þeklq'ast þá ekki ijómatertu- kaffiboð á jólunum? „Nei það eru frekar kokkteilboð, þið hafið lúterstrú en við erum ekki eins miklir púrítanar í ensku biskupakirkjunni." Jólasveinninn býr auóvilaó i Finnlandi „Nánasta fjölskyldan hittist hjá okkur um jólin,“ segir Camilla Wide frá Finnlandi. Camilla ætlar nú um jólin í fyrsta skipti að vera Lögin eru stundum dálítió sveigjanleg á jóladag og meira aó segja getur lögreglan verió skemmtileg Maóur skildi aldrei áóur fyrr af hverju pabbi var ekki heima þegar jólasveinninn kom á íslandi en hún hefur tvisvar ver- ið í Bandaríkjunum um jólin því hún segist vilja slappa af og það sé svo mikið að gera þegar hún fer heim. „Yfirleitt eru það amman og afínn, foreldrar, systkini og kannski systkini foreldra manns og börn þeirra sem eru saman við upphaf jólanna. Síðustu árin hefur það bara verið mín nánasta fjöl- skyla og engir aðrir því að allir hafa viljað vera út af fyrir sig. Amma mín vill bara vera heima hjá sér um jólin eins og hún var alltaf áður en afi dó. Þangað til ég var 12-13 ára voru hins vegar stór fjölskylduboð, líklega meðan börnin í fjölskyldunni voru lítil. Ef maður á stóra fjölskyldu og vill ná öllum saman þá hittist fólk 24. desember. Á jóladag býður maður kannski vinum sínum eða þeim sem ekki var boðið þann 24.“ Setió aó beróum i þrjó tima Camilla segir að í Finnlandi sé mikil áhersla lögð á matinn .um jólin og í raun sé samskonar matur borðaður þrisvar sinnum hjá henn- ar fjölskyldu en hann samanstend- ur af mörgum réttum, ættuðum frá Finnlandi og Svíþjóð. „24. des- ember er unnið til hádegis og þá er borðaður hrísgijónagrautur með möndlu og sá sem fær möndluna á að giftast. Eftir hádegi er farið að búa til matinn og klukkan sex les einhver úr bæjarstjórninni jóla- friðinn við Ráðhúsið og þá á að vera friður í landinu. Venjulega fer fólk í kirkju klukkan fímm og eft- ir það er farið heim og byijað að borða og aðalmálið er að fá síld og snafs sem er venjulega Kosken- korva. Þá eru borðaðar kartöflur og síld eða „lútfiskur" sem er lagð- ur í lút og svo soðinn lengi. Yfir- leitt er skinka í matinn en á síð- ustu árum eru sumir farnir að borða reyktan kalkún. Með skink- unni eru borðaðir þrenns konar heitir réttir, kartöflu-, rófu- og gulrótaréttir sem eru bakaðir í ofni. Einnig er bökuð lifrarkaka sem í eru rúsínur. Amma býr allt- af til rauðrófusalat með ijóma og grænum baunum. Eftirrétturinn á að vera sveskjusúpa en margir hafa eitthvað annað. Svo er setið í næstum þijá klukkutíma, borðað og drukkið vín með. Eftir matinn eru gjafimar opnaðar og bömun- um finnst mjög erfitt að bíða eftir því. Það þurfti líka alltaf að bíða eftir að jólasveinninn kæmi áður en hægt var að opna gjafirnar. Maður skildi aldrei áður fyrr af hveiju pabbi var ekki heima þegar jólasveinninn kom. Jólasveinninn gefur nokkrar gjafír, skilur svo pokann eftir og fer. Hann er ekki eins óg sá íslenski, heitir ,julgub- ben“. Jólasveinninn er gamall mað- ur með skegg og býr Lapplandi en í þjóðtrúnni eru líka til ,jultomtar“ sem em álfar og eiga að hjálpa jólasveininum." Löngu fyrlr jól er farió aó drekka jólaglögg „13. desember er Lúsíuhátíð og þá koma líka jólasveinar þannig að jólin byija eiginlega þá. Jólin em líka búin eftir þann 24. en jóla- tréð er látið standa fram á þrett- ándann þegar jólin em formlega búin. Á jóladag förum við út að skemmta okkur og þá eru skemmtistaðir opnir. í Finnlandi em áramótin frekar hátíðleg og venjulega ekki farið á veitingastaði heldur eru partí í heimahúsum. í partíum er siður að bræða tin og kasta í vatn og myndin sem við það verður til á að spá um framtíð- inni. Ef t.d. margar litlar kúlur myndast merkir það peninga. Löngu fyrir jól er farið að drekka jólaglögg og hjá fyrirtækjum og félögum er haldið „litla jólapartí“. Foreldrar mínir bjóða í tveggja tíma jólaglögg 23. desember og allir vinir og vandamenn koma og drekka glögg og borða piparkökur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.