Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 30

Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 SYDUR UPP URI SUÐUR-AFRÍKU? Hvítir ung-herjar úr andspyrnuhreyfingu Terre Blanches Buthelezi Zuluhöfðingi ásamt VALDAMIKIÐ ráð hefur verið sett á laggirnar í Suður-Afríku til þess að tryggja að lýðræðislegar kosningar fari fram 27. apríl, en íhaldssamir blökkumenn og hvítir menn neita að eiga aðild að ráðinu og ógna þróun í átt til myndunar meiri- hlutastjórnar blökku- manna. austengt „Frelsisbandalag" Inkatha-frelsisflokks Zuluhöfðingjans Mangos- uthu Buthelezi og íhalds- flokks hvitra stuðnings- manna kynþáttaaðskilnað- ar dró sig út úr viðræðum um lýðræðisþróunina fyrir hálfu ári, þar sem ekki var gengið að kröfum um sambandsríki með þátttöku „heimalanda“ afkomenda Búanna, sem kalla sig Afríkana, og blökkumanna. Síðan hefur bandalag- ið bent á hættu á borgarastyrjöld ef ekki verði gengið að kröfum um hei- malönd með ríflegri sjálfstjórn. Ferdi Hartzenberg, leiðtogi íhalds- flokksins, telur skipun bráðabirgða- stjómarinnar jafngilda „stríðsyfirlýs- ingu“ gegn stuðningsmönnum flftkksins og spáð er uppreisn í heraf- lanum, SADF, sem staðhæft er að verði settur undir stjórn kommún- ista. Stjórn F.W. de Klerks forseta og Afríska þjóðarráðið undir stjórn Nelsons Mandela virðast þó ekki hafa gefíð upp alla von um að tak- ast megi að fá Frelsisbandalagið til samvinnu. Hartzenberg og Constand Viljoen hershöfðingi, leiðtogi Afrikaner Volksfront, (AVF), sem berst fyrir heimalandi Búa, hafa hvatt stuðn- ingsmenn sína til þess að snúast til vamar gegn hugsanlegum yfírgangi bráðabirgðaráðs þess sem nú er tek- ið til starfa og boðað skipun annars ráðs til þess að gæta hagsmuna Búa. Fyrir nokkrum árum kom út bók um borgarastríð í Suður-Afríku árið 2002. Þar er því lýst hvernig hvítir menn neyða alræðisstjórn blökku- manna til þess að veita yfírráða- svæði þeirra sjálfstæði með hótunum um að beita kjarnorkuvopni. Nú er talið að ef til borgarastyijaldar muni koma í Suður-Afríku muni hún hefj- ast 1994 eða 1995 að sögn sérfræð- inga Sunday Times. Stríðsaðilar yrðu að öllum líkindum svartir, aðallega stuðningsmenn Mandela annars veg- ar og stuðningsmenn Buthelezi Zulu- höfðingja hins vegar, en hvítir hægri- -^jienn mundu gegna mikilvægu hlut- verki. Borgarastríð? Trúlegt er talið að átökin muni fremur líkjast upplausnarástandinu í Sómalíu en borgarastyijöldinni á Spáni á sínum tíma. Þótt apríl-kosn- ingarnar fari liklega fram samkvæmt ■ átætlun verði ekkert lát á átökum Xhosa-manna, sem styðja ANC, og Zulumanna, sem styðja Inkhata- frelsisflokkinn. Hvítir og svartir öfgamenn muni reyna að grafa und- an friðsamlegri þróun. Hernaðararm- ur Alafríska þjóðarráðsins (PAC) muni einbeita sér að uppþotum og skotárásum, en hvítir hægrimenn leggja áherzlu á skemmdarverk, hemám tiltekinna svæða eða tilræði og hefndarárásir. Ef til borgarastyijaldar kemur er talið líklegast að hún muni geisa í Natal-KwaZulu á austurströndinni, þar sem Zulumenn úr ANC og Ink- hata-hreyfíngunni bítast á um yfír- ráð yfír svæði, sem er 8,1% af flatar- máli Suður-Afríku og byggt 23% íbúa landsins. Áhrifa átakanna í Natal gætir nú þegar á Jóhannesarborgar- svæðinu og þau kynnu að breiðast , út til fleiri svæða fyrir kosningarnar með ófyrirsjánlegum afleiðingum fyrir efnahag landsins. Banda- menn Inkatha-flokksins, hvítir hægrimenn og valdhafarnir í heima- löndum blökkumanna, kunna einnig •að láta til skarar skríða. Leggja á heimalöndin niður og stjórnin í Pret- oríu kann að hætta fjárhagssstuðn- ingi við þau. Heimalöndin hafa yfir fámennu liði lögregiu og hermanna að ráða og gætu því ekki varizt af eigin rammleik, en kynnu að hafa talsverð áhrif með skæruhernaði í óbyggðunum. Auðugasta heimaland svartra er Bophutatswana, þar sem megnið af piatínu heimsins er að finna. Það hefur á 4.000 velþjálfuðum hermönn- um að skipa, þar á meðal tveimur sveitum fallhlífaliða. Talið er að hvít- ir hægrimenn ráði yfir 10.000 þjálf- uðum mönnum um land allt og ef þeir kæmu blökkumönnum í heima- löndunum til hjálpar gæti samvinna þeirra orðið hættulegt öryggissveit-. um Suður-Afríku, sem hafa í mörg horn að líta. Nú þegar annast 30% lögreglunn- ar og allt að 11.000 hermenn frið- argæzlu í Natal og á Jóhannesar- borgarsvæðinu. Harðnandi átök gætu valdið manneklu, fjárhagserfíð- leikum og klofningi. Nýlega hefur verið fjölgað í lögreglunni, sem nú er skipuð 140.000 manns, og blökku- menn eru í meirihluta. Hægrimenn halda því þó fram að þeir mundu fá stuðning 15.000 hvítra lögreglu- manna ef þeir berðust fyrir fijálsu Búaríki. Ef bæla þyrfti niður uppreisn yrði að fela það heraflanum, SADF, sem er vel búinn vopnum og sá langöflug- asti í Afríku. I orði kveðnu er hann skipaður 616.000 mönnum, en þar af eru 87% hvítir varaliðar í svoköll- uðum Borgaraher og þeir kunna að hafa samúð með hægrimönnum að sumu leyti. Ef fastaherinn yrði að bæla niður uppreisn gæti hann aðeins teflt fram einni fallhlífasveit eða tveimur og nú þegar er stór hluti hans bundinn við friðargæzlu. Borgaraherinn er skipaður 414.000 velþjálfuðum var- aliðum og skyndiárásasveitir 126.000 úrvalshermönnum. Ef þessir hermenn tækju afstöðu með hvítum uppreisnarmönnum í einhveiju yrði ástandið alvarlegt. Búaríki? Hörðustu Búamir, bittereinders, ráða bæjum í Norður-Transvaal og Óraníufríríkinu og hóta að lýsa yfir sjálfstæði. í þeirra augum er De Klerk landráðamaður og Búaupp- reisn mundi bjarga landinu að þeirra dómi. Þeir virðast ekki óttast að stjómin sendi her á vettvang og reynt er að sameina þá og aðra Búa um heilagt stríð gegn meirihlutastjórn blökkumanna. Skæruliðaforingjar Búa hafa ákveðið að fela sveitir sínar á fjalla- svæðum í Transvaal og vopnum og vistum hefur þegar verið komið þar fyrir. Ofstækismenn munu ráðgera hryðjuverkaárásir fyrir kosningamar og morð á ANC-leiðtogum til þess að hrinda af stað borgarastyijöld. Leiðtogar hægrimanna í Norður- Transvaal segjast njóta stuðnings 80% liðsmanna Borgarahersins og skyndiárásasveitanna. Varaliðar hafa ströng fyrirmæli frá heraflanum SADF um að blanda sér ekki í stjórn- mál, en hægrileiðtogar hafa veitt ungum liðsmönnum Borgarahersins tilsögn í skæruhernaði á leyninám- skeiðum í Óraníu-fríríkinu. Slíkar sveitir munu heyra undir Constand Viljoen hershöfðingja, sem var yfirmaður SADF áður en hann varð leiðtogi Afrikaner Voiksfront og stjórnaði þá aðgerðum Suður-Afr- íkumanna í borgarastyijöldunum í Angóla og Namibíu. Hermt er að Viljoen reyni að róa hægrisinna, sem vilji stríð, en segi: „Ég veit ekki hve lengi ég get haft taumhald á þjóð rninni." Viljoen hefur lagt til að Búar fái heimaland til umráða í 25 ár þannig að þeir geti fylgzt með þróuninni í Suður-Afríku og ákveðið síðan við þjóðaratkvæði hvort þeir vilja sam- einast gamia landinu á ný. Þar sem stjórn De Klerks og ANC hafna hug- myndinni segja hægrisinnaðir Búar að um tvennt sé að velja; gefast upp eða beijast. Andstæðingar harðlínumanna telja hótanir þeirra marklausar. Her- aflinn muni yfírleitt halda tryggð við nýja þjóðareiningastjórn eftir kosn- ingar og bæla niður hvers konar uppreisn án tafar. Viljoen sé hers- höfðingi án hers og geti ekki gert hvíta bændur og stuðningsmenn nýf- asistans Eugene Terre Blanche að hermönnum. Carl Nichols, valdamesti Búinn í ANC, efast um að margir Búar muni í raun og veru beijast með Viljoen þegar á reyni. „Þeir vilja ekki stofna atvinnu sinni og fjölskyldum í hættu. Nokkur átök kunna að eiga sér stað, en flestar hótanimar eru mark- lausar." Ný ríkisstjóm ANC og ör- yggissveitir hennar muni ráða við ástandið. Hægrimenn komist fljótt að því að þeim verði ekki ógnað og ótti þeirra muni smám saman hverfa. Eftir verði fámennur hópa forhertra kynþáttaskilnaðarsinna, sem álíka lítil hætta muni stafa frá og skoðana- bræðmm þeirra í suðurríkjum Bandaríkjanna. Svart stríð? Meiri hætta kann að stafa frá helztu bandamönnum hægrisinnaðra Búa, hinum gömlu flendum þeirra Zulumönnum. Sú staða getur komið upp að á sama tíma og Zulumenn beijist fyrir aðskilnaði í Natal standi hópar Búa-skæruliða fyrir skyndiá- rásum á hernaðarlega mikilvæg skot- mörk í norðri. I Ulundi, höfuðborg Zulumanna, hafa ungir stríðsmenn notið tilsagnar fyrrverandi starfsmanna öryggis- þjónustu hvítra manna í hernaði. Zulumenn segja að „stríð sé á næsta leiti,“ en borgarastríð blökkumanna er raunverulega hafið. Á stórum svæðum í Natal eiga Zulumenn úr ANC í harðri baráttu við Zulumenn úr Inkatha-frelsisflokki Buthelezi. í blökkumannabæjunum umhverfis Jóhannesarborg eiga Zulumenn á hættu að herskáir Xhosa-menn úr ANC saki þá um stuðning við Ink- atha og myrði þá. Inkatha heldur því fram að yfir standi „þjóðhreins- unarherferð“ gegn Zulumönnum. Síðan átök Inkatha og ANC hóf- ust í Natal fyrir níu árum hafa um 18.000 manns fallið í pólitískum óeirðum í Suður-Afríku. Margir hvít- ir menn telja blóðsúthellingarnar sanna að tvær fjölmennustu þjóðir blökkumanna — 8,5 milljónir Zulu- manna og 7 milljónir Xhosa-manna — geti ekki lifað saman í sátt og samlyndi. Blökkumenn muni beijast um yfirráðin í Suður-Afríku á svipað- an hátt og Búar og Bretar á árum áður. Aðrir telja að þegar sé hafin bar- átta um pólitísk völd milli íhalds- samra stuðningsmanna Buthelezi, sem styðja markaðsbúskap og gaml- ar hefðir, og ANC-hreyfingar Mand- ela, sem aðhyllist sósíalisma og mið- stýringu. Aukin völd Mandela og ANC hafa vakið andúð í Natal, valda- miðstöð Buthelezi, sem vill að Suður- Afríka verði sambandsríki og Natal raunverulegt „ríki í ríkinu". Inkatha, hægrisinnaðir Búar og bandamenn þeirra í heimalöndum svartra hóta að hundsa apríl-kosn- ingarnar, þar sem ekki hefur verið gengið að kröfum þeirra. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur ANC stuðnings 60% kjósenda um Iand allt, en Inkatha hefur tæplega 10% fylgi og kann að tapa í Natal. Themba Khoza, Inkatha-Ieiðtogi í Jóhannesarborg, sakar ANC um að reyna að útrýma Inkatha til þess að koma á fót raunverulegu eins flokks ríki. Khoza viðurkennir að samstarf- ið við hvíta hægriöfgamenn valdi spennu í Inkatha. Nokkrir Inkatha- leiðtogar hóta úrsögn ef Buthelezi ijúfi ekki þessi tengsl og samþykki þátttöku í kosningunum. Samstarfsmaður De Klerks segir að þótt unnt verði að halda hættunni frá hægri í skefjum eins og á Norður- írlandi séu átök ANC og Inkatha orðin að borgarastyijöld nú þegar. Hann telur að Inkhata muni bjóða fram í kosningunum í apríl, en að til uppgjörs muni koma milli mið- stöðvar Buthelesis í Zululandi og miðstjórnar ANC í Pretoríu. Loka- markmið ANC sé að bijóta helztu svarta mótheija sína á bak aftur. Þegar ANC muni reyna að senda herinn á vettvang til þess að knýja fram vilja sinn muni allt fara í bál og brand. „ANC vill útrýma Inkatha og gera Buthelezi áhrifalausan," sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.