Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 47

Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 47
MÖRGÚNBLAÖÍÐ 1 DAGUR 19. DESEMBER 1993 Morðmálið sem mátti ekki segja f rá í júlí í sumar var 23 ára gömul kona í Toronto í Kanada, Karla Homolka, dæmd í 12 ára fangelsi fyrir að hafa átt þátt í að ræna tveimur unglingsstúlkum fyrir tveimur árum og myrða þær síð- an. Lík annarrar stúlkunnar fannst sama dag og Karla giftist Paul Bernardo, 29 ára gömlum bókara, sem bíður dóms fyrir morð og 50 nauðganir allt frá 1984. Meira fengu Kanadamenn ekki að vita um alvarlegasta mál sinnar tegundar í sögu landsins. Dómarinn, Francis Kovacs, bann- aði kanadískum fjölmiðlum að segja nánar frá máli Bernardos til þess að tryggja að það fengi sanngjarna meðferð. Þegar ítarleg grein um það birtist í bandaríska blaðinu Washington Post um miðj- an nóvember var þögnin hins veg- ar rofin. Smám saman fengu Kanada- menn nánari fréttir af réttarhöld- unum, sem þeir höfðu misst af í eigin landi, í sjónvarpssendingum frá gervihnöttum, á tölvuskjám, faxvélum og ljósritum. Tilraunir kanadískra yfirvalda til þess að koma í veg fyrir að um málið væri fjallað í Kanada voru unnar fyrir gýg, þótt tollverðir hafi lagt hald á erlend blöð og fréttir sjón- varpsstöðva hafi verið ritskoðaðar. Málið þykir afturá móti svo and- styggilegt að nú virðast flestir óska þess að þeir hefðu aldrei heyrt á það minnst. Þegar Washington Post sagði frá réttarhöldunum vöktu þau svo mikla athygli að 2.000 Kanada- menn fóru yfir landamærin til þess að komast yfir eintak. Blaða- salar sem urðu uppiskropppa seldu ljósrit í staðinn. Að sögn bandarískra fjölmiðla hafði Karla Homolka upp á stúlk- um handa Bernando til að hafa mök við áður en þau giftust. Sam- kvæmt einni fréttinni „gaf“ Karla Bemando honum 14 ára systur sína, Tammy, í ,jólagjöf.“ Því er haldið fram að Karla hafi laumað róandi lyfi í eggjapúns Tammy áður en þau höfðu mök við hana og tóku það sem gerðist upp á myndband. Tammy kafnaði í eigin ælu og lést daginn eftir. Næsta fórnarlamb var Leslie Mahaffy, 14 ára, sem þau rændu hálfum mánuði áður en þau gift- ust og sagt er að hafí látist eftir að hafa sætt kynferðislegu ofbeldi í tvo daga. Þriðja fómarlambið, Kristen French, 15 ára, var 13 daga í haldi og var látin horfa á myndbandsupptöku af þrekraun Leslie. Karla og Bemardo giftust við Niagarafossa, sama dag og lög- regla fann lík Leslie í um 50 km fjarlægð. Skömmu eftir morðin flúði Karla frá Bernardo vegna misþyrminga til foreldra sinna. Síðan hringdi hún í lögregluna og sagði alla sólarsöguna. Hún var 17 ára þegar hún kynntist Bernardo. Að loknu gagnfræðaskólanámi var hún að- stoðarstúlka dýralæknis og fluttist ásamt Bemando í lítið hús við Ontariovatn. Bernardo var sagður hafa séð sér farborða með smygli á áfengi og tóbaki til Kanada frá Bandaríkjunum. Kapalsjónvarpsstöðvar ná til tveggja milljóna heimila í Ontario og verða dregnar til ábyrgðar ef þær flytja fréttir frá Bandaríkjun- um sem bannað er að segja frá í Kanada — þar á meðal umrætt mál. Þegar gmnsamleg frétt er send út er tekið fram að hún hafí verið „rugluð“ og það vekur for- vitni og gremju. Tilboð Bifreiðaútboð á tjónabifreiðum er alla virka mánudaga frá kl. 9.00-18.00. Ljósmyndir af bifreiðunum liggja frammi hjá umboðsmönn- um SJÓVÁR-ALMENNRA víða um land. Upplýsingar í símsvara 91-671285. IjónasMnarsjjöðin ■ * Dratfhálsi 14-16, 110 Reykjavik, sími 671120, lelefax 672620 'AUGL YSINGAR TJÓNASKOÐUNARSTÖÐ Hamarshöfða 2, 112 Reykjavik símar: 68 53 32 og 2 64 66 fax: 68 83 63 Tilboð Tilboð óskast í bifreiðir, sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Bifreiðirnar verða til sýnis á Hamarshöfða 2, sími 685332, frá kl. 10.00 til 16.00 mánudaginn 20. desember 1993. Tilboðum sé skilað fyrir kl. 16.00 sama dag. Tryggingamiðstöðin hf. Smiðjuvegi 2 - 200 Kópavogur Sími 683400 (símsvari utan opnunartíma) Telefax 670477 Tilboð óskast í bifreiðar, sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Bifreiðarnar verða til sýnis á Smiðjuvegi 2, Kópavogi, mánudaginn 20. desember 1993, kl. 8-17. Tilboðum sé skilað samdægurs. Vátryggingafélag íslands hf. - Tjónaskoðunarstöð - Hljóðritanir - bækur Ný sending af geisladiskum, erlendum bókum, ásamt ýmsum gjafavörum. Landsins mesta úr- val af kristilegu tónlistarefni á hreint frábæru verði (á geisla- diskum og kassettum). Úrval uppbyggilegra bóka fyrir börn sem fullorðna. Mjög hagstætt verð. Mikið úrval af erlendum bókum. Líttu inn, það borgar sig. Hotun2 K»R«Y»dav* Orð lífsins, Grensásvegi8 Almenn samkoma og sunnu- dagaskóli kl. 11.00. Svante Rumar frá Livets Ord prédikar. Allir hjartanlega velkomnir! Sjónvarpsútsendinga á OMEGA kl. 14.30. YWAM - Island Jólasamvera í Breiðholtskirkju í dag kl. 17.00. Helgistund, kaffi og jólaskemmtun. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Brauðsbrotning ki. 11.00. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Svanur Magnús- son. Barnagæsla á sama tíma. Jólaöl og smákökur eftir sam- komuna. Munið að koma með smákökur. Allir hjartanlega velkomnir. *Nýja postulakirkjan, islandi, Armúla 23, 108 Reykjavík Guðsþiánusta sunnudag kl. 11.00. Giinter Kallweit prestur frá Bremen messar. Hópur frá Bremen í heimsókn. Verið velkomln í hús Drottlns! ouglýsingar Sunnudagur 19. des. kl. 16.30: Fyrstu tónar jólanna. Kveikt á jólatrénu. Jólasöngvarnir sungn- ir. Gospelkórinn syngur. Miriam Óskarsdóttir talar. Verið velkomin á Her. SSÍNl Auðbrekka 2 . Kópai’ogur Sunnudagur: Samkoma kl. 16.30. Á samkomunni syngjum við jólin inn. Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Almenn samkoma í Þribúðum, Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00. Mikill almennur söngur. Vitnis- burðir. Barnagæsla. Samhjálp- arkórinn tekur lagið. Ræðumenn Stefán Baldvinsson og Þórir Haraldsson. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. FERÐAFELAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533 Esja um vetrarsóistöður Sunnudaginn 19. des. kl. 10.30 verður hin árlega vetrarsól- stöðuganga Ferðafélagsins á Esju. Gengið frá Esjubergi á Kerhólakamb (856 m). Áætlað að koma til baka um kl. 16.00. Fólk á eigin bíium velkómiö í ferðina! Verð kr. 1.000. Munið að vera hlýlega klædd yst sem innst. Allir velkomnir, félagar og aðrir. Gleðileg jól! Brottförfrá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin, og Mörkinni 6. Ferðafélag íslands. Hvítasunnukirkjan Vegurinn Hafnargötu 84, Keflavfk. Samkoma kl. 11.00 árdegis. Jesús Kristur er svarið. Allir velkomnir. UTIVIST Hallveigarstig 1 • simi 614330 Dagsferð sunnudaginn 19. desember kl. 10.30 Á jólasveinaslóðum f Esjuhlfð- um. Gengið verður um skógar- stíga í Esjuhlíðum og svipast um eftir jólasveinum. Létt og skemmtileg ganga fyrir alla fjölskylduna. Verð kr. 500, ókeypis fyrir börn 15 ára og yngri. Brottförfrá BSl að vestanverðu. Áætluð heimkoma fyrir kl. 15. Útivist. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. t VEGURINN P Krístið samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Fjölskyldusamvera kl. 11.00, eitthvað fyrir alla aldurshópa. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Stefán Ágústsson préd- ikar. Allir hjartanlega velkomnir. Ath. munið bænastundirnar alla virka daga kl. 8.00. SÍK, KFUM/KFUK, KSH Holtavegi Aðventusamkoma i dag kl. 17.00 í húsi félaganna við Holtaveg. Samkoman verður í umsjá yngri-deildar KFUK við Holtaveg. Ath. að húsið verður opnað kl. 16.00 og veröur boðið upp á veitingar. Fjötmennum á samkomuna. Allir eru velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.